Alþýðublaðið - 09.03.1976, Qupperneq 14
14 FRÁMORGNI...
Þriðjudagur 9. marz 1976
ilþýi
blaóiö
Úivarp
7.00 MorgunútvarpVeðurfregnir
kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgun-
leikfimikl. 7.15 og 9.05. Fréttir
kl. 7.30, 8.15 (og forustugr.
dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgun-
bæn kl. 7.55. Morgunstund
barnannakl. 8.45: Vilborg Dag-
bjartsdóttir heldur áfram lestri
sögunnar „Afsakið, ég heiti
Trana” eftir Gunvor Hákans-
son (2) Tilkynningar kl. 9.30.
Þingfréttir kl. 9.45. Létt lög
milli atriða. Fiskispjall kl.
10.05: Asgeir Jakobsson flytur.
Hin gömlu kynnikl. 10.25: Val-
borg Bentsdóttir sér um þátt-
inn. Morguntónleikar kl. 11.00:
Kammersveitin i Prag leikur
Sinfóniu i d-moll eftir Cerubini
/ Filharmóniusveit Lundúna
leikur Sellókonsert i e-moll
eftir Elgar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: TónleUtar.
14.30 Guð þarnfast þinna handa
Fyrri dagskrárþáttur i tilefni
af æskulýðs- og fórnarviku
kirk junnar, sem helguð er mál-
efnum þroskaheftra barna hér
á landi. Umsjónarmenn: Guð-
mundurEinarssonog Jóhannes
Tómasson.
15.00 Miðdegistónleikar
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.1«
Veðurfregnir). Tónleikar.
16.40 Litli barnatiminn. Sigrún
Björnsdóttir sér um timann.
17.00 Lagið mitt Anne-Marie
Markan sér um óskalagaþátt
fyrir börn undir tólf ára aldri.
17.30 Framburðarkennsla i
spænsku og þýzku
17.50 Tónleikar. Tilkynningar
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldisns
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.35 Hver er óháður? Guðjón B.
Baldvinsson fulltrúi flytur
erindi.
20.00 Lög unga fólksins
20.50 Frá ýmsum hliðum
Guðmundur Árni Stefánsson
sér um þátt fyrir unglinga.
21.30 Sinfóniuhljómsveit íslands
leikur i útvarpssalStjórnandi:
Páll P. Pálsson. a. Forleikur að
óperunni „Lohengrin” eftir
Wagner. b. Þrjár impressiónir
eftir Atla Heimi Sveinsson. c.
Tveir slavneskir dansar eftir
Dvorák.
21.50 Kristfræði Nýja testa-
mentisins Dr. Jakob Jónsson
flytur tiunda erind sitt
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir Lestur Passiu-
sálma (19)
22.25 Kvöldsagan: „t verum”,
sjálf sævisaga Theódórs
Friðrikssonar Gils Guðmunds-
son les siðara bindi (28)
22.45 Harmonikulög Reynir
Jónasson og félagar leika.
23.00 A hljóðbergi. Danski
leikarinn Erik Mörk les söguna
„Portnerens sön” eftir H.C.
Andersen. (Hljóðritað á lista-
hátið i Reykjavík i júni 1972).
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Sjónvarp
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagskrá og auglýsingar.
20.40 Leshringur. Kynning á nýju
námsformi, sem mjög er aö
ryðja sér til rúms erlendis.
Þátturinn er gerður i samvinnu
við Bréfaskólann. Leiðbeinandi
er Gunnlaugur Kristinsson.
21.20 Columbo. Bandarlskur
sakamálamyndaflokkur. Þýö-
andi Jón Thor Haraldsson.
22.35 Utan úr heimi. Umræðu-
þáttur um erlend málefni. Haf-
réttarráðstefnan.Þá tttakendur
Benedikt Gröndal, alþingis-
maður, Már Elisson, fiski-
málastjóri, Þór Vilhjálmsson,
hæstaréttardómari, og Gunnar
G. Schram, sem stjórnar
umræðum.
23.15 Dagskrárlok.
LESHRINGUR, HVAÐ ER NÚ ÞAÐ?
Athyglisverður þátt-
ur er á dagskrá sjón-
varpsins i kvöld kl.
20.40. Það er kynning á
nýju námsformi , les-
hring, sem mjög er að
ryðja sér til rúms er-
lendis.
Við höfðum samband viö Sig-
urð A. Magnússon skólastjóra
Bréfaskólans, og inntum hann
nánari fregna af þvi sem þarna
er til umræðu, en þátturinn er
gerður i samvinnu við Bréfa-
skólann.
Sigurður kvað þetta náms-
formmjögvinsæltáhinum Norð-
urlöndunum. Til marks um það.
þá væru i leshringum á vegum
Bréfaskólans sænska u.þ.b. ein
milljón manns.
Islenzki Bréfaskólinn hefir
þegar komið á fót þrem les-
hringum, tveim um bókmenntir
og einum um félagsmál.
Leshring er hægt að koma á
fót hvar og hvenær sem er,
hentugast er að fjöldi þátttak-
enda sé á bilinu 5—12.
Umsjónarmaður og leiðbein-
andi i þættinum i kvöld er Gunn-
laugur P. Kristinsson frá Akur-
eyri. Hann kynntist starfsemi
leshringa i Sviþjóð, og hefir nú
undanfarin ár staðið fyrir starf-
semi sem þessari á vegum
fræðsludeildar Kaupfélags Ey-
firðinga.
H. C.
Andersen
saga a
hljóðbergi
,,Þetta er ekki venju-
legt H.C. Andersens
ævintýri, frekar saga úr
daglega Iitinu", sagöi
Björn Th. Björnsson um
söguna ,,Portnerens sön"
sem flutt verður í þættin-
um ,,Á hljóðbergi" í
kvöld.
Það er danski leikarinn ERIK
MÖRK sem les. Upptakan var
gerð á listahátið i Reykjavik i
júni 1972.
Sagan fjallar um ungan son
húsvarðarhjóna og stéttarlega
stöðu hans i þjóðfélaginu. Hann
verður heimsfrægur mynd-
listarmaður en fyrir ýmsum
sem þekktu hann i æsku er hann
og verður ætið „portnerens sön”
Lesturinn hefst klukkan 23.00
og tekur u.þ.b. 50 min. i flutn-
ingi.
„Sjónvarpsþáttur” um Lenny Bruce í Tónabíói
Lenny stakk á hræsninni og
Playboy tók upp merki hans
Kvikmyndin um Lenny Bruce
— atvinnubrandarasmiðinn og
siðgæðisskelfi ameriska bibliu-
beltisins frá þvi um miðja þessa
öld — sem Tónabió hefur nú
fengið til sýninga glænýja að
„westan” likist einna helzt góð-
um sjónvarpsþætti, heimilda-
mynd, enda greinilega ætlazt til
þess að þau áhrif komi fram.
Ég vona að það verði ekki til
að fæla neinn frá þvi að sjá
myndina þóttég noti þessa sam-
likingu, og þótt sagt sé frá þvi að
myndin sé sýnd i svarthvitu, þvi
ræki þátt sem þennan á fjörur
islenzka sjónvarpsins myndi ég
hvetja alla til að sleppa bióferð
það kvöldið.
En Lenny, er ekki aðeins sag-
an um hann sjálfan, heldur um
það þjóðfélag siðgæðishræsni,
sem hann bjó i og hvernig öfg-
arnar i eina áttina hrundu hon-
um i aðrar öfgar.
Sagöi hræsninni strið
á hendur
Þegar Lenny Bruce er orðinn
þreyttur á þvi að sleikja sitj-
anda allra þeirra, sem eru fyrir
framan hann i röðinni til að fá
skárri vinnu i skemmtibransan-
um — og meðalmennskan og
lágkúran eru farin að þrengja
að honum, þá leyfir hann sér
það sem óskráð lög starfsgrein-
arinnar leyfa ekki nýgræðing-
um að gera. Hann fer að verða
frumlegur. Og það sem verra
er, hann fer að gerast örlitið
grófur. Og það sem verst er,
Valerie Perrine, leikkonan, sem
öðlaðist heimsfrægð á mcðferð
sinni á „Hot Honev HaiTow” —
eiginkonu Lennys.
nokkrir áheýrenda kunna þvi
hreint ekki illa.
En það er sitthvað að hafa
gaman af einu og viðurkenna
það aö maður hafi gaman af þvi
sama, — og i Bandarikjum
sjötta áratugsins var blómatimi
hins tvöfalda siðgæðis — hræsn-
innar — og Lenny sagði þvi strið
á hendur.
t myndinni er það undirstrik-
að hver áhrif kona hans hafði á
hann, en það er i rauninni skilið
eftir og ósagt hvort hún varð
þess valdandi að Lenny valdi
þessa braut, hvort fall hans var
i henni falið. An Hot Honey Har-
low hefði Lenny eflaust náð
langt, þvi það duldist engum að
hann var hæfileikamaður. En i
samfylgd hennar varð leið hans
stefnulaus og lif hans rótlaust,
og i slikum jarðvegi þróast
freistingar áhrifaopinna
manna.
Upphaf Playboy
siðfræðinnar
Þar kemur bandariska karl-
mannatimaritið Playboy til sög-
unnar sem ferli Lenny Bruce
lýkur. Á sjöunda áratugnum rit-
aði Hugh Hefner, eigandi og rit-
stjóri- Playboy árum saman
fasta þætti i blað sitt þar sem
hann réðst gegn þeirri hræsni,
sem varð Lenny að falli. Play-
boy skar upp herör gegn þeim
hugsunarhætti, gegn hvers kyns
fordómum hvort sem þeir vörð-
uðu kynferðismál, viðhorf til
hernaðar eða eiturlyfja, og að
siðustu hefur þétta gamalgróna
karlmannarit orðið engu minna
talsrit mannréttindahugsjóna
rauðsokkahreyfinganna en
rauðsokkur sjálfar.
Það er ástæðulaust að gera
minna úr þætti Playboy i þeirri
hugarfarsbreytingu sem orðið
hefur i Bandarikjunum á sið-
ustu árum en efni standa til.
Lenny Bruce átti sinn þátt i þvi
að hrófla við hræsninni. Hann
gekk ef til vill of langt, en það
þurfti þá. Aðrir hafa tekið við,
og áhrifanna er farið að gæta.
En þvi fer auðvitað fjarri að
þetta sé sér-bandariskt mál.
Það er enginn eðlismunur á
hræsninni hér eða þar eða hvar
annars staðar sem er. —BS
ANGARNIR
HO-HO-HELDURÚU
AÐ WAÍ.6A VERÐl
EUKI UNDRANDl,
Í>E6AR HÚN Þ/Í.R.
DES4A SVRÓPSFÖTU
VFIR HAUSIKIN
l'liisllis lll
PLASTPOKAVERKSMIOJA
Sfcnar 82439 -82455
Grensásvegi 7.
boxtOU-
Pípulagnir
Tökum að okkur alla
pipulagningavinnu
löggildur
pipulagningameistari
74717 og 82209.
Hafnarfjarðar Apótek
Afgreiðslutimi:
Virka daga kl. 9-18.30
'Laugardaga kl. 10-12.30.
Helgidaga kl. 1M2
Eftir lokun:
Upplýsing^simi 51600.
ÚLFAR
JAC0BSEN
Ferðaskrifstofa
Austurstræti 9
Farseðlar um allan heim
Simar 13499 og