Alþýðublaðið - 09.03.1976, Side 16

Alþýðublaðið - 09.03.1976, Side 16
(111 Air Viking var rekið undir eftirliti kröfuhafa ÞRIÐJUDAGUR Allt frá þvi á siöasta hausti hefur Air Víking verið rekið undir sérstöku eftirliti Olíufélagsins og Alþýðubankans/ sem eru stærstu kröfuhafar enn sem komið er við gjald- þrot flugfélagsins. Sér- stakur endurskoðandi á- samt Ragnari Aðalsteins- syni hæstaréttarlög- manni hefur haft náið eftirlit með starfsemi fé- lagsins/ væntanlega í þeim tilgangi að kanna hvort möguleiki væri að ná inn skuldunum. Alþýöublaðið fékk þessar upplýsingar staðfestar hjá Unn- steini Beck skiptaráðandá i gær. Þá hafði ekkerl nýtt komið fram i þessu gjaldþrotamáli. Eftir er að lýsa eftir kröfum og skipta- ráðandi tók fram, að fjórir mán- uðir þyrftu að liða frá siðustu lýsingu þar til hægt væri að taka málið endanlega fyrir. bar sem Air Viking var að méstum hluta i eigu Guðna Þórðarsonar og fjölskyldu hans, sömu aðila og eiga Sunnu, hafa margir velt þvi fyrir sér hvort gjaldþrot Air Viking hefði ekki nein áhrif á rekstur férðaskrif- stofunnar. Unnsteinn Beck sagði aðspurður, að hér væri um tvö aðskilin félög að ræða og samkvæmt lögum um hlutafé- lög ætti gjaldþrot eins félags ekki að hafa áhrif á annað þótt eigendur væru þeir sömu. En þá þyrfti lika að sanna, 'að ekki væri um sameiginlegan rekstur að ræða. Eftir væri að kanna bókhald Air Viking, en skipta- ráðandi sagöist ekki vita annað en viðskipti þessara aðila hefðu eingöngu verið þau, að Sunna hefði tekið flugvélar á leigu hjá Air Viking. —SG VOR I LOFTI! Það var ekki laust við að mönnum fyndist vor vera í lofti í gær. Það var hlýtt og Reykvíkingar sáu snjóinn hverfa úr Esjunni. — Götulíf færist alltaf i aukana, þegar veður batnar og strákarnir verða meira áberandi. Nýtt flugskýli á Rvíkurflugvelli: Hagstæðasta til- boð var brezkt og því hafnað! Það er algjör nauð- syn á að koma þessu flugskýli upp hið fyrsta og töfin sem hefur orðið á þessu máli er alls ekki réttlætanleg. Að- búnaður flugvirkja hef- ur verið þannig siðan gamla skýlið brann, að það er alls ekki hægt að tala um það. Á þessa leið fórust Agnari Ko- foed-Hansen flugmálastjóra orð i samtali við Alþýðublaðið i gær. Hann hefur ritað byggingar- nefnd borgarinnar bréf og spurt hvort leyft verði að endurreisa flugskýli á grunni þess flugskýl- is sem brann fyrir liðlega ári siðan á Reykjavikurflugvelli. Þessari fyrirspurn var visað til skipulagsnefndar til umsagnar. Flugmálastjóri lagði áherzlu á, að hraða þyrfti afgreiðslu þessa máls, þar sem það tæki allt sumarið að reisa skýlið og ekki mætti bregðast að það yrði til- búið fyrir verstu veður næsta haust. Norsku tilboði tekið Flugskýlið verður stálgrind- arhús og hefur útboð farið fram á efni. Fjölmörg tilboð bárust og það sem var einna hagstæðast var frá brezku fyrirtæki. Hljóð- aði það upp á liðlega 42 milljónir króna. En eins og flugmála- stjóri tók fram eru menn litt hrifnir af samningum við Breta um þessar mundir. Norskt til- boð var aðeins dýrara og hefur flugráð nú ákveðið að taka þvi. Mikill munur var á þeim tilboð- um sem bárust og það dýrasta nam um 100 millj. króna. Flugmálastjóri sagði, að ráð- stafanir hefðu verið gerðar til að fá efnið mjög fljótt að utan, en þá væri eftir að bjóða út verkið við að reisa skýlið. Nú væri veður farið að batna og þvi þyrfti að hefjast handa sem fyrst. Dráttur á þessu máli væri orðinn óhæfilegur enda hefðu menn gert sér vonir um á sinum tima, að hægt yrði að reisa nýtt skýli fyrir siðustu áramót. Nýja flugskýlið verður af svipaöri stærð og það sem brann og verður.i eigu rikisins eins og það gamla. Flugleiðir munu sið- an byggja verkstæði skammt frá eða fastupp við. Flugvirkjar félagsins hafa ekki búið við mannsæmandi skiiyrði á nokk- urn hátt siðasta ár og eru að vonum orðnir mjög óþreyjufull- ir eftir viðunandi aðstöðu. Að lokum sagðist flugmálastjóri vona að þessi beiðni yrði ekki látin ganga milli Heródesar og Pilatusar. alþýöu blaðiö FRÉTT: Að til standi að skera niður framlög til raf- orkumála um 600 m. kr. Engin heimild er til sliks i fjárlögum svo ef þetta verður gert þá er hér um að ræða einhliða ákvörðun embættismanna i andstöðu við samþykkt al- þingis. HEYRT:. Að Guðni i Su%u hyggist stefna Seðlábankan- um fyrir þau afskipti, sem Guðni telur að Seðlabankinn hafi haft af rekstri fyrirtækja hans honum til fjárhagslegs tjóns. TEKIÐ EFTIR: Að liðið hafa ár og dagár siðan Vilmundur Gylfason kom sið- ast fram i Kastljósi. útvarps- ráði virðist hafa tekizt að bola þessum vinsælasta og eftir- tektarverðasta sjónvarps- manni okkar út úr sjónvarpinu eins og til mun hafa staöið. HEYRT: Að þótt vinsældum og fylgi stjórnarflokkanna hafi farið ört hrakandi sé þó að finna ákveðna götu i Reykja- vik, þar sem Framsóknar- mönnum hafi farið talsvert fjölgandi að undanförnu. Al- mannarómur i Reykjavik kann að nefna þá götu. TEKIÐ EFTIR: Að Olafur Jóhannesson, sem mætti ekki á dómþingi þar sem mál Visis- manna gegn honum var tekið fyrir, hefur valið þann kostinn að birta vörn sina i opnu bréfi til Þorsteins Pálssonar. Fyrsti hluti varnarinnar birtist með þeim hætti i Timanum sl. sunnudag. SPURT: Hvort forsætisráð- herra sé alveg „stikkfri” i þeim athugunum á auknum skipakostnaði Landhelgis- gæzlunnar, sem dómsmála- ráðherra (Framsóknarmað- ur) hefur falið utanrikisráð- herra (öðrum Framsóknar- manni) að leita eftir hjá Bandarikjastjórn? LESIÐ: 1 norska blaðinu „Fiskaren”, að um sl. mán- aðamót hafi vetrarveiðin á loðnu numið yfir 5 millj. hektólitrum. HEYRT: Að mikill kurr sé i stjórnarliðinu vegna þess framtaks Guðmundar Garðarssonar að flytja frum- varp um einn sameiginlegan lifeyrissjóð fyrir alla lands- menn. Þykir mörgum bæði i Sjálfstæðisflokknum og i Framsóknarflokknum þetta hafa verið allsendis óþarft framtak hjá Guðmundi enda fengu hugmyndir hans mun betri viðtökur stjórnarand- stæðinga en stjórnarþing- manna þegar frumvarp hans var til fyrstu umræðu á al- þingi. -

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.