Alþýðublaðið - 20.03.1976, Síða 4
4
Laugardagur 20. marz 1976 g{^f"
OR VMSUM ATTUM
Ertu búinn að kynna þér
„OKKAR VERO”?
Ef ekki - þá er sýnishorn hér:
RITZ kex
Molasykur
Flórsykur
LIBBY'S tómatsósa
ORA grænar baunir
FLÓRU appelsínusafi
REGIN WC-pappír
INGLIS tekex
ORA fiskibollur
HEINZ spaghetti
ORA fiskibúöingur
KOMID I KAUPGARÐ
og játið feröina borga sig
Kaupgarður
Smiöjuvegi 9 Kopavogi
Fermingarföt
frá Herratízkunni
*
Mikið úrvai af fermingarfötum
Fermingarfötin sem nýtast
eftir ferminguna
*
Það er þér í hag að koma
strax í dag -
LAUGAVEG 27 - S ( M I 12303
Hafnarfjörður
Hafnarstjórn Hafnarfjarðar óskar eftir
tilboðum i smiði steypts kants (186 m)
ofan á stálþil i suðurhöfninni i Hafnarfirði.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
bæjarverkfræðings Strandgötu 6, gegn
5.000 kr. skilatryggingu. Tilboðin verða
opnuð á sama stað mánudaginn 5. april
- kl. 11.
Hafnarstjórn Hafnarfjarðar.
Volkswageneigendur
Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Huröir — Vélarlok —
Geymsiulok á Wolkswagen i allflestum litum. Skiptum á
einum degi meö dagsfyrirvara fyrir ákveöið verö.
Reyniö viöskiptin.
Biiasprautun Garðars Sigmundssonar.
Skipholti 25 Simar 19099 og 20988.
Krónur:
110 pr. pk.
146 pr. kg.
88 pr. 1/2 kg.
146 pr. flaska
146 pr. 1/1 dós.
555 pr. 21 Itr. brúsi
1320 pr. 24 rúllur (55)
88 pr. pk.
192 pr. 1/1 dós
191 pr. 15 oz. dós
272 pr. 1/1 dós
Betra útlit á freðfisk-
markaði - Orð og gerðir
- Þegar Brown datt...
Útlit á
freðfiskmarkaði betra
en áður
Norska blaðið Fiskaren
skyrði frá þvi á mánudag, að
söluhorfur á freðfiskmarkaði
væru nú betri en þær hefðu verið
um langt skeið. Er bar átt við
markaðinn i Bandarikjunum,
Vestur-býskalandi og vi'ðar.
Blaðið segir, að sölusamtök
Nordic Group A.L. i Noregi hafi
aukið hlut sinn i sölu á norskum
fiskafurðum. I fyrra seldu sam-
tökin 40 þúsund lestir af frystum
fiskflökum, en það erum 40 af
hundraði heildarframleiðsl-
unnar. Verksm iðjutogarar
framleiddu um helminginn af
þessu magni.
Þessi norsku sölusamtök
segjast hafa tapað stórfé á
framleiðslunni. Ekkert sam-
ræmi hafi verið á milli hráefnis-
verðs og söluverðs og gengisfall
sterlingspundsins og Banda-
rikjadollars hafi valdið' erfið-
leikum.
Jákvæðar breytingar.
Samtökin segja birgðir i
Noregi eðlilegar og bæði eftir-
spurn og verð hafi á siðustu
mánuðum tekið stefnu i já-
kvæða átt. Hins vegar sé
hagnaðarvonin takmörkuð, þar
eð framleiðslukostnaður hafi
aukizt mjög. Samtökin segjast
hafa einbeitt sér að sölu á fisk-
flökum tilbúnum til matreiðslu,
en hins vegar dregið úr fram-
leiðslu á fiskblokk.
Nordic Group hefur einkum
flutt út til Bandarikjanna, Bret-
lands, Finnlands, og Vestur-
Þýzkalands, en kvartar mjög
undan þvi að geta ekki selt til
Sviþjóðar.
I
Svei-fcai?
stjói?ii.ax>
xxiál
Orð og gerðir.
Páll Líndal, formaður Sam-
bands islenzkra sveitarfélaga er
þungorður i garð rikisvaldsins i
stuttri grein, sem hann ritar i
siðasta hefti Sveitarstjórnar-
mála, undir heitinu „Orð og
gerðir.”
Hann byrjar greinina á þessa
leið: ,,..leggur áherzlu á, að
sjálfstæði sveitarfélaga verði
eflt og þeim fengin i hendur
aukin verkefni og auknir tekju-
stofnartil að standa undir þeim,
sköpuð verði skýr skipting verk-
efna og tekjustofna milli rikis og
sveitarfélaga. Stuðlað verði að
valddreifingu o.s.frv. Haftverði
i þessum efnum náið samstarf
við sveitarfélögin og samtök
þeirra.”
Siðan segir Páll: „Hvað oft
skyldi maður búinn að sjá og
heyra ályktanir ogyfirlýsingar i
þeæa átt?
Það skorti heldur ekkert á
slikt, þegar núverandi rikis-
stjórn tók við völdum. En
hvernig hefur svo tekizt að
sinna þessum fögru fyrirheit-
um? Vitur maöur sagði fyrir
ekki mjög löngu: „1 upphafi var
það orðið, en nú er það frasinn.”
Þetta virðist eins og sniðið eftir
þvi, sem gerzt hefur.
Þegar ríkisstjórnin tók að
sinna málefnum sveitarfélag-
anna, var það með þeim hætti,
að þjarmað var að þeim fjár-
hagslega. Það hefur komið i
ljós, að hin fögru fyrirheit voru
bara frasi i hefðbundnum stil.”
Innantómt hjal!
Páll Lindal heldur áfrám
gagnrýni sinni á rikisvaldið.
Hann segir, að gengið hafi verið
framhjá ábendingum stjórnar
Sambands sveitarfélaga. Hann
segir, að svo langt sé gengið, að
jafnvel mótmæli ráðherra
sveitarstjórnarmála séu að,
engu höfð. Nefnir hann einkum
sjúkrasamlög og fræðsluskrif-
stofur.
Hann lýkur greininni með þvi
að segja: ,,En það er vist engin
von til þess, að þeir, sem að
þessu standa, hætti við frasana
um sjálfstæði sveitarfélaga,
aukin verkefni og sjálfstæða
tekjustofna, valddreifingu og
annað í þeim stil. Þess er hins
vegar að vænta, að mikið verði
lagt upp úr sliku eftirleiðis.”
Þegar Brown féll
Hinn litriki og umdeildi
stjórnmálamaður George
Brown sagði sig úr brezka
Verkamannaflokknum fyrir
skömmu. Þegar hann kom út úr
þinghúsinueftiraðhafa tilkynnt
ákvörðun sina datt hann illa.
Nokkrir fréttamenn, sem
nálægt stóðu, reistu þingmann-
inn á fætur.
Þetta fall Browns þótti nokkur
fyrirboði, enda hefur Wilson nú
sagt af sér. Hins vegar hefur
Brown, sem orðinn var
lávarður, gefið þá skýringu á
ákvörðun sinni, að flokkurinn
hafi ekki tekið nægilegt tillit til
einstaklingsins. Það hafi verið
sovézki rithöfundurinn
Solsjenitsyn, sem hafi gert hon-
um þetta ljóst.
Verkamannaflokksþingmenn
hafa aðra skýringu á brottför
George Brown. Þeir segja, að
^amkomulag hans og annarra
þingmanna og ráðherra flokks-
ins hafi verið mjög slæmt, enda
Brown ráðrikur og fljótfær.
—AG