Alþýðublaðið - 03.07.1976, Síða 4

Alþýðublaðið - 03.07.1976, Síða 4
4 VETTVANGUR Laugardagur 3. júlí 1976 bla&fö Svæðisrannsókn á byggð sunnan Skarðsheiðar - yfirgripsmikil rannsókn á sögu heils byggðarlags Hafin er hér á landi rannsókn á menningar- sögu byggða sunnan Skarðsheiðar. ( þessari rannsókn, sem nær til minja, þjóðf ræða og þjóð- hátta, verður reynt að kanna forsendur breyt- inga í atvinnulífi, efna- hagsafkomu fólks í hér- aðinu og félagslegar afleiðingar breyttra at- vinnuhátta. Þar sem telja ma' að hér sé um nokkra frumraun í þjóðlífsrann- sóknum á íslandi að ræða fengum við þá Þorstein Jónsson nemanda i þjóð- háttum og fornleifafræð- um við háskólann í Lundi og Þorlák Helgason sem er útskrifaður í hagfræði og mannfræði til að segja okkur um aðdragandann að þessari rannsókn, en þeir Þorsteinn og Þor- lákur munu báðir taka þátt í rannsókninni. Aðdragandinn aö þessari rannsókn er sá, að um nokkurra ára skeið hefur þjóöminjasafn- iö sent út spurningarlista til heimildamanna sinna i sveitum landsins og eru þessir spurn- ingarlistar nú orðnir þrjátiu og tveir að tölu. 1 þessum spurningarlistum hefur verið safnað upplýsingum um hina ýmsu þætti i hinu gamla Islenzka bændasamfélagi svo sem fráfærur, heyvinnu, smölun og svo framvegis. Hefur hér verið nær eingöngu verið um söfnun aö ræöa, en minna verið unnið úr þeim fróð- leik sem borizt hefur. Hafa þessar upplýsingar veriö færðar inn i spjaldskrá, sem fræðimenn hafa siðan haft aðgang aö. baö er siðan ekki fyrr en á síðustu árum, með auknum áhuga á fornum fræðum að svo virðist sem skriöur sé aö komast á þessi mál. Hafa nemar i þjóð- hátta- og fornleifafræðum i Lundi, stofnaö með sér félag, og sendi þetta félag frá sér á sið- asta ári plagg sem nefndist Hugmynd aö stofnun þjóð- minjastofnunar á Islandi. Var plaggið sent þeim aöilum sem unniö hafa að þessum fræðum hérlendis. I framhaldi af þvi voru um siöustu jól haldnir fjöl- mennir fundir þessara manna. A fundunum var skipuð nefnd til undirbúnings frekari rannsókn- um á þessu sviði og til að hafa frumkvæði að nánara samstarfi innan hinna ýmsu mannlifs- greina, en hingað til hefur slikt samstarf ekki tfðkazt svo telj- andi sé. í þessari nefnd voru fulltrúar frá Háskólanum, Þjóð- minjasafni, Arbæjarsafni og stúdenta i Lundi. Það var niöur- staða nefndarinnar, að stefnt skyldi að þvi að geröar yrðu svokallaðar svæðisrannsóknir á menningarsögu afmarkaðs landsvæðis, en i nágrannalönd- unum hefur sú aðferð reynzt notadrýgst I mannlifsrannsókn- um. Þess má geta að einn nefndarmanna Nanna Her- mannson er eina manneskjan hérlendis sem einhverja reynslu hefur af svæöarannsóknum, en hún fékkst viö slikar rannsóknir i Færeyjum og Sviþjóð. Að sögn þeirra Þorsteins og Þorláks, er það von manna að meö nánu samstarfi fólks innan forleifa- fræði, þjóðháttafræöi, sagn- fræði, hagfræöi, félagsfræði og þjóðsagnafræði ætti að vera hægt að gera ýtarlega úttekt á svæðinu frá mörgum hliðum i senn. Fyrir frumkvæöi námsmanna i Lundi, var strax farið að leggja grundvöll aö þvi, aö hægt væri aö hef ja þessar rannsóknir nú I sumar. En vegna hins stutta fyrirvara voru ýmsir vantrúað- ir á að þaö tækist. Var það fyrst og fremst fjármagnið sem skorti. Var leitað eftir stuðningi ýmissa stofnanna, en sökum þess hve seint var farið af stað gekk það ekki sem skyldi. Var víðast hvar búið að ganga frá fjárhagsáætlunum, og þvi óhægt um vik að styrkja þessa starfssemi þó svo að áhugi væri fyrir hendi. Þaö mun hafa riðið baggamun að styrkur fékkst úr Visinda- sjóði upp á 600 þús. kr., en auk Visindasjóös hafa nokkrir aðrar stofnanir veitt eða gefið vilyrði fyrir aðstoð. Má þar nefna Sagnfræðistofnun Háskólans, Þjóðminjasafn tslands og Stofn- un Árna Magnússonar. 1 sumar mun einkum unniö að söfnun gagna um hinn byggðar- sögulega og minjafræðilega þátt rannsóknarinnar. Beinist sú vinna að frumsöfnun ritaöra heimilda og skipulagðri skrán- ingu þeirra. Hefur verið leitað fanga á söfnum f Reykjavík, Akranesi og Borgarnesi. Einnig hefur verið fariö i gegnum ör- nefnaskrá en þar koma fram mörg örnefni við hvern bæ, sem eru bundin sögulegum minjum. Vikuna 3.-9. júli verður fariö i könnunarleiðangur þar sem afl- að veröur upplýsinga um fornar minjar og aðrar sögulegar leif-. ar, og er þess vænzt að með þvi móti fáist nokkur mynd af menningarsögu héraðsins. Að þessari rannsókn munu vinna sex nemar og fullnemar i fornleifafræði, þjóðhátta- og þjóöfræðum, þjóðfélagsfræðum og sagnfræði, enda er þetta mjög yfirgripsmikið verk. Aö sögn þeirra Þorsteins og Þorláks eru á þessu svæði um 100 bæir að Akranesi undan- skildu. Er við spurðum þá hven- ær mætti búast við að niöur- staöa fengist úr þessum rann- sóknum sögðu þeir að vegna umfangs þeirra gæti það tekið langan tima. Það væri hins veg- ar markmiðið að gefa út eitt- hvað á prenti og mætti búast við þvi eftir 3 til 4 ár. Einnig mætti búast við að einhver hluti þess- ara rannsókna yrði tekin sem verkefni til lokaprófs. GEK. Þorsteinn Jónsson og Þorlákur Helgason mótorhjól Nýja RD 50 hjólió frá Yamaha er án efa eltt glæsllegasta og sterkbyggóasta 150 cc mótorhjólió á markaönum / dag. ) / þessu hjóli nýtir Yamaha tll fullnustu ’ þá reynslu, sem þelr hafa öölast af sigrum k i kappökstrum um um víöa veröld. ^ Yamaha RD 50 hefur ýmsa kosti, sem ||b> aöeins stærri og dýrari hjól höföu [tk yfirieitt áöur, svo sem diskabremsu LJwK- — .... á framhjóli meö vökvaátaki, snúningshraöamæii og fi. Ennfremur er hægt aö fá i Þetta hjól sem torfæruhjól og A heitir haö Þá MR 50. Komiö, hringiö eöa skrifiö og biöjiö um nánari upplýsingar. Leiguf lug—Neyöarflug HVERT SEM ER HVENÆR SEM ER I-karaax ■] Lagerstærðir miðað við inúrop:, |Jæð;210 sm x breidd: 240 sntv 340 - x - 270snrt FLUGSTÖÐIN HE Simar 27122-11422 TRCfcOFUNARHRINGAR Fljót afgreiðsla. " • ■ "“‘7 ’' yiry Sendum gegn póstkröfu GUÐM. ÞORSTEINSSON . gúllsmiður, Bankastr. 12 Aðrar stáarðir. smíOaðar eftir beiðné 1 GLUG^ASMIf Siöumúla 2(h simj :i8220. En ég get alls ekki farið heim i dag læknir, ég á von á heimsóknum bæði i dag og á morgun Svo sannarlega litur sjónvarpið yðar nokkuð þreytulega út

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.