Alþýðublaðið - 03.07.1976, Page 12
LAUGARDAGUR
Opinberir embættismenn:
Aukagetan var 7 bíla
virði 1974 hjá þeim
sem mest fékk
Nú er unnið að þvi i
fjármálaráðuneytinu
að semja reglugerð um
aukatekjur ýmissa
opinberra embættis-
manna.
Sýslumenn, bæjar-
fógetar, tollstjórinn i
Reykjavik og fleiri fá
ýmsar tekjur af sér-
stökum verkefnum
sem embætti þeirra
hafa með höndum.
Þessir tilgreindu embættis-
menn fá t.d. innheimtulaun af
gjöldum, sem þeir innheimta
fyrir rikissjóð. Sýslumenn og
bæjarfdgetar fá auk þess um-
boðslaun fyrir að annast inn-
heimtu og borgun bóta fyrir
Tryggingastofnun rikisins hver
i sinu héraði. Aö auki fá þeir
greidda þóknun fyrir að inn-
heimta sóknargjöld, þóknun
fyrir uppboðshald og innheimtu
uppboðsandviröis, sýslufélög
greiða sýslumönnum þóknun
fyrir umsjá sýslusjóös og sýslu-
vegasjóða.
Feitasti bitinn
Það sem gefur þessum em-
bættismönnum mest i aðra hönd
eru trúlega innheimtur rfkis-
sjóðstekna, en sýslumenn inn-
heimta persónuskatta, tekju- og
eignarskatta, sölugjald og ýms-
ar aðrar tekjur fyrir rikissjoð,
sem ekki eru nánar sundurlið-
aðar i yfirliti um innheimtur
fyrir rikissjóð i. rlkisreikningi
fyrir árið 1974 en hann er nýlega
kominn út.
Við samningu reglugerðar-
innar sem getið var um að ofan
verður leitast við að haga regl-
unum þannig aö þessir em-
bættismenn fái mest i aðra hönd
þegar innheimtir eru siðustu
hundraðshlutarnir af þvi sem
innheimta skal.
Samkvæmt þeim reglum sem
giltufengu bæjarfógetar, sýslu-
mennog tollstjórinn I Reykjavik
innheimtulaun sem hér seglr:
Fýrir 200 þúsund kr eða minna
1%, fyrir 200 þúsund til 1 milljón
1/2% af 1-2 millj. kr. greiðist
1/4%, af 2-10 milljónum sem
þeir innheimta greiðast 1/1000 i
umboðslaun og fyrir upphæðir
sem nema samtals 10 milljónum
eða hærri upphæð greiöast 1/4
prómill.
Eitt brauð betra en
annað
Þessi skipting þóknunarinnar
hefur I för með sér að tekju-
skiptingin milli embættanna er
mjög mismunandi og ekki er
beinllnis tekið tillit til þess hve
innheimtumenn rikissjóðs
leggja hart að sér við innheimt-
una.
Eins og áður sagði verður nú
reynt að finna leiðir til þess að
viðkomandi embættismenn
leggi sem harðastað sér við inn-
heimtuna og fái það goldið að
verðleikum.
Þessi háttur við innheimtuna
þýðir auðvitað nokkur útgjöld
fyrir rikissjóð en óllklegt veröur
að teljast að hjá þvl veröi kom-
ist með nokkrum leiöum.
Þó nú sé unnið að reglu-
gerðarbreytingunni þá er ekki I
ráði að þessi útgjaldaliöur
rikissjóðs verði minnkaður, en
aftur á móti verður reynt að
dreifa tekjunum meira milli
embættanna, auk þess sem áður
sagði um hærri laun fyrir sið-
ustu hundraðshlutana.
Aukagetan 1974
Blaðiö reyndi að afla sér upp-
lýsinga hjá rikisbókhaldi um
hverjar upphæðir hefðu verið
greiddar fyrir innheimtuna á
árinu 1975, en þær voru ekki
fáanlegar vegna þess að endan-
legt uppgjör einstakra embætta
liggur ekki enn fyrir.
Á árinu 1974 voru tekjur
helztu embættismannanna sem
hér segir:
Tollstjórinn I Reykjavik —
5.512.945.00. Bæjarfógetinn á
Akueyri og sýsium. I Eyja-
fjarðarsýslu 419.129.00. Sýslum.
i Gulibr,- og kjósars. og bæjar-
fóg. I Hafnarfiröi — 379.472.00.
Bæjarfógetinn i Keflavlk —
203.968.00. Þau þrjú embætti
sem lægstan hlut báru frá borði
eru : Sýslumaðurinn i Stranda-
sýslu— 23.641.00. Bæjarfógetinn
i Ólafsfiröi — 18.576.00. Sýslu-
maðurinn i Dalasýsiu —
15.365.00.
Þessar tölur eru reiknaðar
samkvæmt rlkisreikningi fyrir
árið 1974 og eru þannig fengnar
að hlutföllin sem aö framan
greinir eru reiknuð af innheimtu
viðkomandi embætta I sam-
ræmi við tölur i rikisreikningn-
um.
Hér má sjá glfurlegan mun
milli einstakra embætta og er
hann kominn til vegna þess að
fáir Ibúar eru á viðkomandi
stöðum eða i viðkomandi sýsl-
um, auk þess aö fá stór fyrirtæki
eru þar staðsett.
Þannig hafði sýslumaðurinn i
Dalasýslu aðeins 0,2% af auka-
tekjum tollstjórans IReykjavIk.
A það skal bent að hér hefur
aöeins verið rætt um aukatekjur
viðkomandi embættismanna,
þeir hafa auðvitað sin föstu
mánaðarlaun þar fyrir utan.
—EB
Könnun á vöruverði:
Viðskipti í stórverzlunum ekki
eins hagstæð og af er látið
Verðlagsskrifstofan
sendi i gær frá sér
niðurstöður könnunar á
verðlagi á ákveðnum
vörutegundum i verzl-
unum um allt land.
Þetta er i annað sinn
sem Verðlagsskrifstof-
an sendir frá sér slika
könnun og er hún m.a.
gerð i þeim tilgangi að
efla verðskyn hins al-
menna neytanda og
gera honum ljósan
þann mun sem verið
getur að verði sömu
vöru eftir þvi hvar hún
er keypt.
1 stórum dráttum má
segja að niðurstaðan
hnekki að nokkru
marki þeirri trú að það
sé miklum mun hag-
kvæmara að verzla i
svokölluðum stórmörk-
uðum. Kannaðar voru
19 vörutegundir i 31
verzlun á Reykjavikur-
svæðinu dagana 14. og
15. júni sl. og að auki 5
vörutegundir dagana
28. og 29. júni i sömu
verzlunum.
10 gegn 18
1 ljós kom að i svokölluðum
stórmörkuðum voru aðeins 10
vörutegundir seldar á lægsta
veröinuí þeim búðum i Reykja-
vlk, en 18 vörutegundir voru
seldar á lægstu verði i verzlun-
um sem ekki er hægt að kalla
stórmarkaði.
Þess ber þó að geta að ekki
var alls staðar sama vöruvalið
þannig að vart er hægt að bera
nákvæmlega saman verð á ein-
stökum vörutegundum I öllum
verzlunum.
Þar sem sú vörutegund sem
ákveðið var að kanna hvað kost-
aði ekki fékkst var ekki tekin
önnur vörutegund sem var sam-
bærileg.heldur var könnunin al-
gerlega bundin við þau vöru-
merki og stærareiningar sem
ákveðnar höfðu verið.
Gifurlegur munur.
Mjög mismunandi verð kom í
ljós á einstökum vörutegundum
t.d. munaði allt að 350 kr. á kilói
af kindahakki. Mestur var þó
munurinn á sömu einingu af
rækjum. Hæsta verð sem hægt
er að fá að borga fyrir kg af
þeim I verzlun i Reykjavik er kr
1750 en lægsta verðiö er kr 980.
Þar munar kr 770. Þess ber þó
aögeta að hér er aðeinsrætt um
verðið i þeim verzlunum þar
sem þaö var kannaö.
EB.
Verökönnun, sem gerð var á vegum Verölagsskrifstofunnar
dagana 14. og 15. júni sl.
Hæsta og lægsta verð.
Reykjavik
og nágrenni:
Landið:
WC pappir Regin 56 — 71 60 — 74
Man Flösusjampoo 160 — 186 113 — 194
Handy Andy 17fl. oz 163 — 187 152 — 191
Dixan 600 gr. 263 — 362 261 — 365
Niveakrem N. 368 93 — 123 92 — 120
1 kg strásykur 129 — 167 135 — 189
Lyles’s 500 gr.
Golden Syrup 281 — 375 282 — 394
River Rice 454 gr. 99 — 117 101 — 122
Pearl sagógrj. 400 gr. 91 — 123 98 — 143
Rækjur 1 kg 980 —1750 1100 — 1625
Sardlnur f olfu
3 3/4 oz 103 — 122 107 — 127
Rowntrees Cocoa 1 lbs 320 — 440 240 — 440
Ritz-kex 7 ox 113 — 137 131 — 142
Kellog’s Kornflakes
375 gr. 197 — 257 206 — 255
Vals tómatssósa I
plastbrúsa 480 g'r. 246 — 295 249 — 305
Vilko, sveskjusúpa 138 — 177 146 — 172
Ikgegg 420 — 598 400 — 580
1 kg kindahakk 460 — 928 600 — 950
21. Egils appel-
sinusali 580 — 716 604 — 788
1 kg appelsinur 135 — 196 150 — 220
x) Tropicana 1,891 292 — 369 345 — 445
x) Fiskbollur 1/1 dós 185 — 227 213 — 248
x) Vlnarpylsur 1 kg 590 590 — 625
x) Smjör 1 kg 816 — 860 816 — 860
x) Lambakótelettur 1
kg 680 — 720 720
alþýðu
blaöið
Séð: Að Sigfúsarkvöld
sem Þjóðleikhúsið efndi til
i Þjóðleikhúsinu hafi verið
afbragðs leiksýning, og að
kabaretthugmynd þessi
hafi falliðáheyrendum vel i
geð. Slika kabaretta má
gera i kringum tónlist ann-
arra lagasmiða, svo sem
Jóns Múla Árnasonar og
Oddgeirs Kristjánssonar.
o
Lesið: 1 ræðu Björns
Þurhallssonar á aðalfundi
Dagblaðsins: Það þarf þvi
engan að undra, þó Dag-
blaöið hafi frá upphafi gætt
þess vandlega að kasta
aldrei óþverra eða troöa
illsakir við þá, sem áður
höfðu talizt félagar okkar!
o
Lesið: Að Friðrik Ólafs-
son og Guðmundur Sigur-
jónsson séu á leið til Hol-
lands til að taka þátt i
sterku skákmóti, en Frið-
rik Ólafsson mun vera sér-
staklega vinsæll i Hollandi.
Hann hefur oft teflt þar i
sterkum skákmótum.
o
Frétt: Að ýmsum þyki
það fullmikið að þvi góða,
þegar kommisararnir hjá
Spilverki sjóðanna, Fram-
kvæmdastofnun rikisins,
eru farnir að gefa stórfé til
menningarmála, þótt um
virðingarverð fyrirtæki sé
að ræða.
o
x) 28. og 29. júnf 1976.
Lesið: Að Guðmundur G.
Þórarinsson gerði smygl i
kringum Keflavikurflug-
völl að umræðuefni á fundi
Framsóknarflokksins i
Stykkishómi. Hafi Halldór
E. Sigurðsson verið á fund-
inum. Verður sennilega
erfitt lyrir hann að svara
næst þegar hann verður
spurður um þessi mál, en
sem kunnugt er er Halldór
einn þeirra ráðamanna
sem svarar sjálfvirkt að
um slika hluti hafi hann
aldrei heyrt.