Alþýðublaðið - 05.10.1976, Qupperneq 16

Alþýðublaðið - 05.10.1976, Qupperneq 16
KEYPTU MALVERK MILLJÓNIR KRÓNA FYRIR 7,8 ASUNNUDAG 9- i í;' • - • "" Ji'c f Sl? ;< , •>'; - > • • . v> - <v. Mp'X* !&'■** >****’*&'W'* '•■ v->' »•-.rárth'• i Á sunnudag hélt Guðmundur Axelson i Klausturhólum mál- verkauppboð i Hótel Sögu. Þar voru seldar 85 myndir fyrir 6,5 milljónir króna, eða 7,8 milljónir, ef söluskatt- ur er reiknaður með. Meðalverð myndanna, án söluskatts, var lið- lega 76 þúsund krónur, en með söluskatti 91 þúsund krónur hver mynd. A þessu málverkauppboði voru margar góðar og jafnvel nafnkunnar myndir. Má þar nefna mynd eftir Gunnlaug Blöndal „model”. stór mynd merkt. Allmargir buðu f hana i byrjun, en þegar boðin voru komin yfir 400 þúsund voru að- eins tveir eftir. Kepptu þeir um myndina, og var hún slegin konu á 580 þúsund krónur. Með söluskatti er verð myndarinnar rétt um 700 þúsund krónur. Að- eins einu sinni áður hefur Guð- mundur Axelson selt svo dýra mynd, en það var stór Kjarvals- mynd, sem fór á 732 þúsund krónur með söluskatti. Auppboðinu á sunnudag seld- ist mynd eftir Kjarval úr Borgarfirði eystra, Dyrfjöll, á 530 þúsund krónur, eða 636 þúsund með söluskatti. Yfirleitt fóru myndir Kjarvals fyrir mjög hátt verð. önnur Kjarvalsmynd, Vordans, var slegin á 290 þúsund krónur, og ein „Landslagsverur” á 310 þúsund, og er söluskattur þá ekki talinn með. Lítil mynd eftir Ninu Tryggvadóttur, 24x30 senti- metrar fór fyrir 150 þúsund krónur, eða 180 þúsund með söluskatti. Fremur litil mynd eftir Þórarinn B. Þorláksson frá 1911, „Við Breiöaf jörð,'' var slegin á 300 þúsund krónur. Tvær litlar myndir eftir Kristinu Jónsdóttur fóru á 105 og 110 þúsund krónur, sem þótti fremur lágt verð. Mynd af Hafnarfjalli eftir Snorra Arin- bjarnar, 46x40 sentimetrar var slegin á 145 þúsund krónur. A uppboðinu vakti talsverða athygli hve myndir eftir Alfreð Flóka voru seldar fyrir hátt verð. Ný mynd eftir hann, „Óvænt heimsókn” seldist á 170 þúsund' krónur og önnur ný, 50x70 sentimetrar fór á 120 þúsund krónur. Þá fór litil mynd eftir Sverri Haraldsson frá 1951 fyrir 60 þúsund krónur. Mjög stór mynd eftir Kristján Daviðsson liðlega 2x2 metrar var slegin á 180 þúsund krónur. Jóhannes heitinn Kjarval. vinsælda listunnenda. Þá má geta þess, að mynd eftir Gunnlaug Blöndal „Frá Snæfellsnesi” seldist á 310 þúsund krónur. Ljóst er af þessu, að gömlu meistararnir eiga langmestum Myndir hans njóta ávallt sömu vinsældum aö fagna. — A sunnudaginn kemur heldur Guðmundur Axelsson listmuna- uppboð I Tjarnarbúð og verður forvitnilegt að fylgjast með sölu þar. —AG. Siglfirðingar hafa litla trú á olíumöl Á Siglufirði hefur ver- ið næg atvinna i sumar, en þar eru nú búsettir 2052 ibúar. Hefur þar vaiitað fólk til starfa enda verkefnin næg. Þar eru starfrækt tvö frysti- hús auk loðnubræðslu, þá eru þar tvær niðurlagningarverk- smiðjur, Sigló síld og Egils sild. Af öðrum fyr- irtækjum má nefna hús- einingarfyrirtæki og þrjú trésmiðafyrirtæki. 1 viðtali við bæjarstjórann, Bjarna Þór Jónsson kom fram, að i sumar hefur verið unnið að hita- veitu framdvæmdum þar auk þess sem bæjarfélagið stendur i virkjunarframkvæmdum við Skeiðsfoss. Þá hefur verið unnið að undir- búningi fyrir lagningu varanlegs slitlags á nokkrar götur á Siglu- firði og er áætlað að það verði lagt næsta sumar. Ekki verður það oliumöl heldur munu Siglfirð- ingar steypa og malbika sinar götur og sagði bæjarstjórinn að þeirtreystu ekki oliumölinni fyrir þvi álagi sem hvildi á þessum götum auk þess væru þær snjó- þungar á vetrum og teldu þeir að betri árangurs væri að vænta ef notuð væri steypa og malbik. I gær var verið að salta sild á Siglufirði og var Reykjaborgin þá nýkominn með annan farm sinn af sild. Sagði Bjarni að nú væri Reykjaborgin langt kominn með að fylla þann kvóta sem skipiö mætti veiða og myndi hann trú- lega verða fylltur i næstu ferð. A þessu ári hafa veriö bræddar um 50 þúsund lestir af loðnu á Siglufirði og hafa um 37 þúsund lestir af þvi magni veriö bræddar á sumarvertiöinni. Hafði bæjarstjórinn orð á þvi að það væri von þeirra Siglfirðinga sem annarra að i framtiðinni næðu sumar- og vetrar- loðnuveiðar saman. —GEK. Á Grundarfirði byggja menn nær eingöngu einbýlishús í kauptúninu i Grundarfirði og i sveitinni i kring, bjuggu sam- kvæmt siðasta manntali 801 ibúi. Þaðan eru gerðir út á milli 12 og 15 bátar auk skuttogarans Run- ólfs. Að sögn sveitarstjórans Ama Emilssonar, hefur atvinna þar verið næg og ef eitthvað er þá vantar þar fólk til vinnu. Til dæmis er þar skortur á iðnaðar- mönnum, enda mikið byggt. 1 sumar og haust hefur verið unnið að hafnarframkvæmdum innan hins nýja hafnargarðs sem byggður var i fyrra. Hefur nú verið rekið niður 45 metra langt stálþil sem klæðir nýjan viðlegu- kant sem áætlað er að verði i fullri lengd 100 metra langur. 1 sumar hefur verið unnið að þvi aðskipta um jarðveg I nokkr- um helztu umferöargötunum og verður lögð oliumöl á þær næsta sumar. Hefur Grundarfjörður i samvinnu við fleiri sveitarfélög á Snæfellsnesi fest kaup á 30.000 tonnum af oliumöl sem lögð verð- ur i viðkomandi sveitarfélögum þegar nauðsynlegri undirbún- ingsvinnu er lokið. í sumar var leitað eftir heitu vatni i Grundarfirðiog bar sú leit jákvæðan árangur og vonaðist sveitarstjórinn eftir þvi að ekki þyrfti að liða allt of langur timi þar til hægt yrði að hita upp hús þar á staðnum með jarðvarma. Það kom fram i viðtalinu við Ama Emilsson, að mikiö hefur verið byggt i Grundarfirði und- anfarin ár og eru þar nú um tutt- ugu hús i smíöum. Þess má geta að i Grundarfirði byggja menn nær eingöngu einbýlishús og eru nú liðin ein þrjú ár frá þvi sfðast var reist sambýlishús þar á staðnum. —GEK ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1976 alþýðu blaðið Heyrt: Að tilraunir með ýmsar nýjungar i slátur- gerð og geymslu sláturs fari nú viða fram á heimil- um i borginni. Fólk hefur komiztað raun um, að hægt er að viðhafa ýmsar aðrar aðferðir við að matbúa slátur heldur en hinar hefð- bundnu. o Frétt: Að nú sé unnið við að koma upp fleiri biðskýlum á vegum Strætisvagnanna og er ekki vafi á að slíkt verður vel þegið, enda oft kulsamt að biða eftir vagni án þess að geta leitað skjóls. Rætt hefur verið um að minnsta kosti 10 ný skýli. o Tekiö eftir: Að i næsta mánuði mun Sjúkraliða- skólinn halda kjarnanám- skeið fyrir Sóknarkonur. Námskeið þetta er haldið samkvæmt samningi Sókn- ar við vinnuveitendur i febrúar og mun fara fram á vegum heilbrigðis- og tryggingarráðuneytisins. Námsskeiðið mun standa yfir i 7-8 vikur. o Lesið: 1 Suðurnesjatiðind- um i viðtali við blaðafull- trúa Varnarliðsins, aö um miðjan þennan mánuð verði 66 ibúðir teknar i notkun á Keflavikurflug- velli. En þetta þýðir samt ekki það, að 66 ibúðir muni losna úr leigu i Keflavik og * nágrenni. Sennilega munu margir varnarliðsmenn sem búa i einstaklingsher- bergjum á flugvellinum fá fjölskyldur sinar hingað. Þó segist blaðafulltrúinn reikna með að nokkuð af fólki sem býr i Keflavik flytji uppá völlinn. o Tekið eftir: Að um siðustu áramót reyndist félags- mannafjöldi i BSRB vera 12.131. Þar af voru konur 6.247 eða 51,5%. Er þetta i fyrsta sinn sem konur eru fjölmennari en karlar inn- an samtakanna. o Hierað: Að Timinn sé enn að ihuga að birta mynd af sumarbústað Lúðviks Jósepssonar á Þingvöllum, en þó séu vaxandi likur á að það blað kæri sig ekki um frekari skrif um eigendur sumarbústaða á þessum stað.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.