Alþýðublaðið - 12.10.1976, Blaðsíða 7
7
Þriðjudagur 12. október 1976
Gjaldheimtustjóri almennt hlynntur upplýsingaskyldu stjórnvalda - en með fyrirvara:
,,Frábið mér aö leggja til
efni í skítkast dagblaðanna”
Reglur um upplýsinga
skyldu stjórnvalda er eitt
af áhugamálum blaða-
manna. Gjaldheimtan er
fyrirtæki, sem hefur með
höndum náin afskipti af
fjárhag almennings. Al-
Lögberg-Heimskringla
Lifandi tengi-
liður við ís-
lendinga
vestan hafs
Talsveröur áhugi hefur vaknaö
meöal Islendinga hér heima á aö
efla tengslin viö þá landa, sem
fluttu vestur um haf fyrr á árum
og afkomendur þeirra. Hafa
ýmsir oröið fastir kaupendur
blaösins Lögberg.Heimskringla,
sem gefið er út i Winnepeg.
Svo hljóöandi frétt barst Alþýöu-
blaöinu frá aðstandendum
blaösins:
Asiðustu árum hafa mjög færzt
I aukana öll samskipti Islendinga
við landana i Vesturheimi eins og
kunnugt er meö hinum marg-
vislegustu tengslum. M.a. vegna
hinna vaxandi tengsla aukinna
ferðalaga o.fl. hafa æ fleiri
islendingar gerzt áskrifendur aö
blaöinu Lögberg-Heimskringlu,
sem Ut er gefið i Winnipeg, til aö
fylgjast með málefnum V-
Islendinga um leið og á þann hátt
er á raunhæfan hátt stutt aö
eflingu blaösins, sem mjög hefur
átt i vök aö verjast fjárhagslega.
Allir þeir sem til þekkja eru ein-
róma þeirrar skoöunar, aö blaöiö
megi ekki hætta aö koma út og
reyna veröi aö styöja útgáfu þess
á allan hátt, en aukinn fjöldi
áskrifenda hér og i Vesturheimi
er ein bezta leiðin til eflingar út-
gáfunni.
í haust verða nokkur þáttaskil I
sambandi við blaðið. Eins og
fram hefur komiö hefur islenzk
blaðakona veriö ráðin til starfa
hjá blaðinu og eins hefur oröiö aö
ráöi, m.a. i hagræöingarskyni og
til að tryggja sem greiöasta
sendingu blaösins til isl. áskrif-
enda, aö flytja afgreiöslu blaðsins,
spjaldskrá o.fl. er varðar út-
sendingu til isl. áskrifenda,
hingaö heim, þannig aö hver
blaðasending veröur stimpluö og
afgreidd héöan til innlendra
áskrifenda, en fram aö þessu
hefur þessi afgreiðsla veriö i
Kanada og af ýmsum ástæöum
oröiö i nokkrum tilvikum mis-
brestur á þvi, aö islenzkir áskrif-
endur blaðsins fengju blaöiö
nægilega fljótt og reglulega. Er
þaö von útgáfustjórnar blaösins,
aö þessi nýja tilhögun veröi til
þess aö leysa meö öllu þá
erfiöleika.
Askrift að Lögberg-Heims-
kringlu kostar nú kr. 2.500,- á ári
og er þaö von aöstandenda
blaösins hér heima og vestan
hafs, aö sem flestir áhugamenn
um' málefni Islendinga i Vestur-
heimi gerist nú áskrifendur aö
blaðinu, nýtt blað eftir sumarfri
er nú um þaö bil aö berast hingaö
og áskriftarbeiðni er hægt aö
senda i pósthólf 1238, merkt Lög-
berg-Heimskringla eöa sima til
afgreiöslunnar c/o Birna
Magnúsdóttir, Dúfnahólum 4,
simi 74153. Æskilegt væri, en ekki
skilyröi, aö greiösla fylgi pöntun.
Útgáfan býöur hugsanlegum
áskrifendum ókeypis kynnis-
eintak til athugunar, ef þess er
óskaö.
þýðublaðið leitaði til for-
stjóra hennar, Guðmundar
Vignis Jósefssonar, og
spurði hann um viðhorf
hans til upplýsingaskyldu í
fyrirtæki hans og almennt.
Fara svör hans hér á eftir:
„Hvert er viðhorf þitt, Guö-
mundur, til upplýsingaskyldu
stjórnvalda?”
„Almennt séð er ég hlynntur
upplýsingaskyldu. Mér þykir sem
það sé eölilegur réttur borgar-
anna, að fá upplýsingar um þaö,
sem er að gerast i þjóðfélaginu.
Um þetta þarf aö setja fastar
reglur og nokkuð ótviræöar.”
„Telurðu þörf á, ð opinberir
aðilar hafi einhvers\onar upplýs-
ingafulltrúa, sem fóik almennt og
fjölmiðlar geti snúiö sér til?”
„Nei, Ég tel ekki þörf á þvi.”
„Hvert er viðhorf þitt til spurn-
inga um einkaskuldir manna eöa
skuldir fyrirtækja hjá gjald-
heimtunni?
„Mér þykir rétt áður en þessari
spurningu er svarað, að vitna i 49.
grein skattalaga.en hún er svo-
hljóðandi:
„Skattstjórum, umboðsmönn-
um skattstjóra, rikisskattstjóra,
skattrannsóknarstjóra, rikis-
skattanefnd og nefnd samkvæmt
6 mgr. 48. gr. er bannað, að við-
lagðri ábyrgð eftir ákvæðum al-
mennra hegningarlaga um brot i
opinberu starfi, að skýra óvið-
komandi mönnum frá þvl, er þeir
komast að i sýslan sinni um tekj-
ur og efnahag gjaldþegna.
Hið sama gildir um þá, er veita
aðilum samkvæmt 1. mgr. aðstoð
við starf þeirra eða á annan hátt
fjalla um framtalsskýrslur
manna’,’
Ef við hjá gjaldheimtunni föll-
um undir þessa grein, varðaði
það refsiábyrgð að svara slikum
spurningum.
Væri beiðzt úrskurðar og hann
felldur á þann veg, að við heföum
ekki þagnarskyldu, er það per-
sónuleg skoðun min, að skatt-
greiðendur eigi þá kröfu, að
starfsmenn greini ekki frá
greiðslustöðu hvers og eins hjá
gjaldheimtunni.
Ég álit það heyra undir sæmi-
lega háttvisi i samskiptum opin-
berra stofnana og borgaranna.
Þegar öllu er á botninn hvolft,
ber ekki aö lita á skattgreiðendur,
þó þeir skuldi opinber gjöld, sem
ótinda sakamenn.
Þeir ættu þvi ekki aö þurfa að
gera ráð fyrir þvi, að sjá nöfn sin,
eða fyrirtækja sinna birt i ein-
hverju dagblaði af þvi einu tilefni,
að þeir hafi ekki staðið i fullum
skilum með gjöld sin hér utan
auglýsingadálka.
Að öðru leyti, vil ég frábiðja
mér og mínu starfsfólki, aö þurfa
að leggja til efni i þaö sérkenni-
lega skítkast, sem lesendur blaða
hafa orðið vitni að þessa dag-
ana.”
„Nú hafa ýmsir réttarlegan að-
gang að upplýsingum hjá gjald-
heimtunni. Hverjir eru þeir?”
„Að sjálfsögðu eru . það allir
aðilar, sem að gjaldheimtunni
standa og þá fyrst og fremst riki,
borg og Tryggingarstofnun, og
réttmætir fulltrúar þeirra svo og
endurskoðendur.”
„En telur þú þá ekki, að sömu
reglur ættu að gilda um þá og
starfsmenn gjaldheimtunnar?”
„Séum við bundnir þagnar-
skyldu, starfsfólkið hér, þykir
mér liklegt, að hún ætti einnig að
ná til þeirra. Ef við hinsvegar
höfum ekki þagnarskylduna, yrði
það að fara eftir geðslagi hvers og
eins, hvernig hann færi með
vitneskju sina, hvaða reglur, sem
við hér höfum, eða temjum okk-
ur”, lauk Guðmundur Vignir
Jósefson, forstjóri gjaldheimt-
unnar, máli sinu.
Höfum opnað nýju stöðina við
Álfabakka. Verið velkomin.
OLÍUVERZLUN ÍSIANDS HE