Alþýðublaðið - 14.10.1976, Blaðsíða 8
8 UR YMSUM ATTUM
Fimmtudagur
14. október 1976
Iþýöu-/
laöiö ’
al
blái
Fimmtudagur 14. október 1976
VETTVANGUR 9
Matreitt fyrir
nýja markaði
Þarna er réttilega vikiö
að einni hlið málsins, sem
ekki hefur verið mikið
rædd — a.m.k. ekki eins
mikið og ástæða er til.
Jafnhliða þvi, sem aukin
er sókn i aðra stofna, sem
ekki eru til jafn góðir
markaðir fyrir, þá þarf
að leita allra leiða til að
auka verðmæti þeirra
fiskafuröa. Þar kemur til
samstarfa allra kunn-
áttusamra manna á sviði
fiskifræði, sölumennsku
og matvælafræði.
Fyrr á árum lögðu
menn sér ekki til munns
ýmsar fisktegundir, sem i
dag þykja lostæti séu þær
rétt matreiddar. Þannig
er til dæmis djúpsteiktur
skötuselur seldur á veit-
ingastöðum sem „humar-
liki” og er afbragð. Enn
eru gerðar tilraunir með
vinnslu kolmunna og
margarhugmyndireru til
um frekari vinnslu ým-
issa fisktegunda svo auka
megi verðmæti þeirra til
muna. Það er liðin tiö að
bræða allan fisk, sem á
land er dreginn, i lýsi og
mjöl.
—BS
linuveiðarnar, rætt er um
möguleika á veiðum á
langhala og gulllaxi og
þannig blasa nú við fjöldi
verkefna fyrir fiskiflot-
, ann til aukinnar dreifing-
Afram í þessa átt! ar á sókninni.
Með þessari fyrirsögn
hefst ritstjórnargrein i
siðasta tölublaö timarits-
ins Ægis, rits Fiskifélags
tslands, en ritstjórn þess
annast Már Elisson, og
Jónas Blöndal. Forystu-
greinin er svohljóðandi:
Þegar það lá ljóst fyrir
að minnka þyrfti sóknina
i þorskinn, brugðust
menn mjög misjafnlega
við. Æði margir einbeittu
hugsun sinni að þvi með
hvaða hætti flotinn yrði
sem bezt stöðvaður i
Gerum sóknina
fjölbreytilegri
En kálið er ekki sopið
þótt i ausuna sé komið.
Þessum tilraunum til
nýrra veiða og vinnslu
þarf að fylgja eftir af
krafti. Við megum með
engu móti láta deigan
siga i þvi efni að gera
sóknina fjölbreyttari en
hún hefur verið. Hún hef-
ur alla tið verið alltof ein-
hæf. Við höfum einhvern
veginn tekið þeirri órjúf-
andi tryggð við veiðar á
þorskfiskinum, að það er
! ekki langt siöan að fólk
svalt heldur en að leggja
sér til munns krækling
eða annan átfisk, sem
auðvelt var að fanga. Hin
mikla þorskgengd og hið
háa verðlag miðað við
ýmsan annan fisk, hefur
vissulega valdið þvi hin
siðari ár, að menn hafa
ekki talið neina gilda á
stæðu til að þreifa fyrir
sér á öðrum sviðum.
Þetta hefur nú breytzt.
Þorskgengdin hefur
minnkað og sá möguleiki
er nú fyrir hendi, sem
ekki var áður, að hægt er
með réttri vinnslu að gera
annan fisk, sem minna á-
lits hefur notið mönnum
ætilegan, ekki siður en
þorsk.
sókninni og virtust álita
að með minnkandi þorsk-
sókn væru okkur öll önnur
sund lokuð en stöðva sókn
flotans um skeið.
Aörir voru þeir, sem
leiddu ekki hugann að
þeirri aðferð, heldur vildu
aö útgerðarmenn og
rikisvaldið einbeittu sér
að breyttri sókn, og
minnkaði með þeim hætti
smám saman sóknina i
þorskinn. Athafnasamir
einstaklingar og ýmsir
ráðamenn, svo sem
sjávarútvegsráðherrann,
vildu ákveðið einbeita sér
að siðari aðferðinni. öll-
um er sagan kunn.
Loðnuleit og loðnuveiðar
voru hafnar af krafti fyrir
Norðurlandi og hafa nú
skilað yfir milljarð i verð-
mæti, kolmunnaleit var
hafin samfara veiöitil-
raunum, sem hafa lukk-
ast vel, svo og vinnsla
kolmunnans, þótt annir i
vinnslustöðvunum hafi
valdið nokkrum örðug
leikum, spærlingsveiöar
hafa gefið góða raun,
þeim sem hófu þær, aukin
rækjuleit hefur borið góð-
an árangur og möguleik-
ar til að auka rækjusókn-
ina eru miklir, ekki sizt
vegna hækkandi mark-
aðsverðs á meginlandinu,
aukin karfaleit á djúp-
miðum lofar einnig góðu,
hin aukna tækni við linu-
veiðar getur átt eftir aö
færa sóknina frá afkasta-
meiriþorskveiðarfærum i
HVAÐ ERU
MÚTUR?
Óendanleg dæmi mætti
nefna um mútur. Sumt
hefur þó lengi talizt
sjálfsögð greiðasemi.
Eins og til dæmis þegar
erlendir auðkýfingar
bjóða áhrifamiklum
stjórnmálamönnum
með sér i lax hingað til
íslands
Gjaldeyrir. Þótt peningagreiðslur opni margar dyr, þá á erlendur gjald-
eyrir oft greiðari aðgang.
Fyrirgreiðsla í bönkum hefur lengi talizt tengjast mútustarfsemi. Yfir-
mönnum banka berast góðar gjafir — og stjórnmálamönnum hefur verið
veitt lánsfjárfyrirgreiðsla, sem óeðlileg getur talizt.
Beinharðar greiðslur
eru sýnilegasta formið.
Bjórkassi vinsæll...
..eða flaska i vasann.
Hvað þá um sólarlanda-
ferð?
ER ÞÖRF A LÖGUM SEM^
BANNA MÚTUGREIÐSLUR -
í fyrradag var lögð fram á Alþingi tillaga til þingsályktunar um samningu
afdráttarlausari lagaákvæða er banni opinberum starfsmönnum, alþingis-
mönnum, ráðherrum, sveitarstjórnarmönnum, starfsfólki sveitarfélaga og
öðrum þeim er gegna opinberum störfum að veita viðtöku umtalsverðum
gjöfum, endurgjaldslausri þjónustu eða óvenjulegri fyrirgreiðslu er meta
má til peningaverðs umfram það, sem starfsréttindi kveða á um.
Flutningsmenn tillögunnar
eru: Sighvatur Björgvinsson,
Benedikt Gröndal, Eggert G.
Þorsteinsson, Gylfi Þ. Gislason
og Jón Ármann Héöinsson.
Endurskoðun
á starfsreglum
opinberra
starfsmanna
Tillaga þingmanna Alþýðu-
flokksins um þetta mál er svo-
hljóðandi:
„Alþingi ályktar að óska eftir
þvi við dómsmálaráðherra, að
hann feli þeim aðilum, sem starfa
við endurskoðun á lögum um rétt-
indi og skyldur opinberra starfs-
manna, að þeir geri sérstaklega
tillögur um ný og afdráttarlaus-
ari fyrirmæli, en nú er að finna i
lögum, er banni opinberum
starfsmönnum aö veita viðtöku
umtalsverðum gjöfum, endur-
gjaldslausri þjónustu, sérstökum
friðindum eða óvenjulegri fyrir-
greiðslu umfram starfsréttindi,
er meta má til peningaverös, frá
opinberum aöilum, einstakling-
um eða fyrirtækjum, sem við-
komandi starfsmaður hefur
starfsleg samskipti viö. Auk þess
skal i tillögunum kveöið á um
skyldu opinbers starfsmanns til
þess að upplýsa til réttra aðila um
þau friðindi, gjafir, endurgjalds-
iausa þjónustu o.s.frv., er hann
kynni að hafa þegið svo og um
viðurlög viö brotum.
Aukið aðhald
með starfsháttum
ráðherra,
þingmanna og
svei tars tj órnar-
manna
Jafnframt verði þeim aðilum, ~
er þessa endurskoðun á lögum um
réttindi og skyldur opinberra
starfsmanna hafa meö höndum,
falið að gera tillögur um sam- '
bærilegar reglur varðandi ráð-
herra og alþingismenn, sveitar-
stjórnarmenn og starfsfólk
sveitarstjórna svo og um aðra þá,
sem ráðnir eru eöa kjörnir til
opinberra starfa, og þá um sér-
staka lagasetningu þar um, ef
þurfa þykir, svo og að gera tillög-
ur um þær breytingar á öðrum
lögum, s.s. eins og almennum
hegningarlögum, sem gera þyrfti
þessu samfara.”
Mútur í
efnahagslífinu
1 greinargerð með tillögunni
segir svo:
„Það er kunnara, en frá þurfi
að segja, að þróunin hefur orðið
sú bæði hérlendis og erlendis, að
hið opinbera og stofnanir þess
ásamt ýmsum hálf-opinberum
stofnunum, fyrirtækjum og
sjóðum hafa stöðugt eflzt að
áhrifum og itökum — þá ekki
hvað sizt á sviöi efnahags- og
fjármála. Hvort heldur er um ein-
stakling eða atvinnufyrirtæki að
ræða er vart til sú framkvæmd,
sem hann eða það þarf ekki að
sækja undir a.m.k. einn slikan
opinberan aðila og viðtökurnar,
sem umleitunin hlýtur, ráða oftar
en ekki algerum úrslitum um
hvort af hinni ráðgerðu
framkvæmd getur orðið. Þekk-
ing, dugnaður og hæfni einstak-
lingsins ásamt eiginfjárhagsgetu
hans o.s.frv. skipta að visu máli i
slikum tilvikum, en undirtektir
opinberra stofnana og ráða-
manna við erindinu eru þó mjög
oft þyngri á metunum. Undir slik-
um kringumstæðum gera menn
sér að sjálfsögðu fulla grein fyrir
þvi, að hætta er á að önnur atriði,
en að framan voru talin — s.s.
þjóöfélagsstaöa einstaklings,
„aðstaða” hans eða fyrirtækis,
sem hann veitir forstöðu, eða enn
önnur atriði, ráði erindislokum.
Það er alkunna, að slik aðstaða
t.d. atvinnufyrirtækis er iðulega
metin til peningaverðs t.d. við
eigendaskipti (good-will) og ýmis
alkunn siðari tima dæmi úr
heimsfréttum sanna, svo ekki
verður um villst, að menn eru
reiðubúnir til þess aö verja
nokkrum fjármunum til þess að
skapa sér eða fyrirtæki sinu sllka
góðvild með ýmsum hætti, og þá
ekki einvöröungu með þvi að
verja fé til aö kynna hugsanleg-
um viðskiptavinum framleiðsl-
una og fyrirtækið i auglýsingum.
Umboðsmenn
fjármagns
í áhrifastöðum
þjóðfélagsins
Jafnframt þvi, sem opinberar
stofnanir og sjóðir vaxa með
þessum hætti að áhrifum og Itök-
um aukast að sjálfsögðu völd
þeirra einstaklinga, sem fara
eiga með forsjá þessara mála i
umboði almennings — hvort held-
ur sem þeir eru ráðnir eða valdir i
kosningum. í raun og veru hefur
þróunin orðið sú, að gifurleg völd,
fjárhagslegs og stjórnmálalegs
eöiis, hafa safnast i hendur til-
tölulega mjög fárra einstaklinga,
sem gegna ábyrgðarmestu störf-
unum i efnahags- og stjórnmála-
lifi þjóöarinnar. Aldrei i sögu
islenzka lýðveldisins hafa jafn fá-
ir ráöið jafn miklu um jafn
margra hag og nú og það liggur
mikið við að allur almenningur
geti treyst þvi, að engin óeðlileg
og óæskileg atriði hafi áhrif á
hvernig þessu mikla valdi er
beitt.
Hvar eru mörkin ?
Að sjálfsögðu er ekki nema
mannlegt, að aðili — einstakling-
ur eða fyrirtæki — sem á allan
sinn hag undir þvi kominn, hverj-
ar viðtökur erindi hans fær hjá
forráðamönnum eða umsjár-
mönnum þessara stofnana al-
mannavalds, leiti ýmissra leiöa
til þess að tryggja sér velvild þess
eöa þeirra, sem málum ráða.
E.t.v. smávægilegur jólaglaön-
ingur til forstöðumanns lána-
stofnunar? Kannski boð um sér-
staka „kynnisferö” til forstöðu-
manns opinberra framkvæmda
frá fyrirtæki, erlendu eöa
innlendu, sem viðkomandi for-
stööumaður stendur i samningum
við um stórframkvæmdir fyrir
hönd islenzkra skattborgara?
Ellegar þá kurteislegt og velvilj-
að tilboð frá aðila, sem þarf á sér-
stakri fyrirgreiðslu fjárveitinga-
valdsins að halda, að það væri
e.t.v. ekki úr vegi fyrir þá, sem
um eiga að fjalla, að kynna sér
starfsemina þeim að kostnaöar-
lausu? Allt þetta og ýmislegt
fleira getur verið fyrir hendi. Allt
kann þetta að vera ósköp saklaust
og eðlilegt. En hvenær er svo ekki
lengur? Hvar eru mörkin?
Víða erlendis eru
lög sem banna
mútur
1 sumum rikjum eru þau dregin
isérstakri löggjöf. Sem dæmi má
nefna, að i Bandarikjunum gilda
þau lög að opinber starfsmaður
hvort heldur hann er ráðinn eöa
kjörinn til starfans má ekki taka
við persónulegum gjöfum, eöa
ókeypis þjónustu frá erlendum
eða innlendum aðila i sambandi
við starfa hans, sem er meira
virði, en 50 $. Þá má hann heldur
ekki þiggja sérstakan greiða eða
umtalsverða fyrirgreiöslu s.s.
eins og ókeypis boðsferöir frá
aðilum, sem hann hefur starfsleg
smskipti við og ætla má, aö hann
þurfi að fjalla um erindi frá, sem
viðkomandi aðili hefði fjárhags-
legan ávinning af hverfa
afgreiöslu hlyti. 1 öörum rikjum
eru ákvæði um þessi efni ekki jafn
afdráttarlaus, en þess i stað
stuðzt við trausta hefð, sem er svo
sterk, að hverjum þeim opinber-
um starfsmanni, sem uppvis yröi
að þvi að þiggja álika greiða, gjöf
eða fyrirgreiöslu og refsiverð er
skv. bandariskum lögum, væri
ekki stætt á öðru en greiða gjöf-
ina, gjalda greiðann eða jafnvel
að hverfa úr starfi. Svo eru auð-
vitaö til enn önnur riki þar sem
samskipti eins og hér um ræöír
eru talinn sjálfsagður þáttur i
opinberri þjónustu.
Tímabært
umhugsunaref ni
á íslandi
Hér á landi eru aðeins mjög
lausleg og almennt orðuö ákvæði I
lögum, er banna slikt framferði
opinbers starfsmanns, sem hér er
gert að umtalsefni. Þau er að
finna i almennum hegningarlög-
um og i lögum um réttindi og
skyldur opinberra starfsmanna.
Þá virðist heldur engin sérstök
hefö hafa skapast hér á landi um
hvaö megi teljast eðlilegt og hvað
ekki i þessum efnum heldur er
matið i þvi efni algerlega
persónubundið — það, sem einum
þykir allt i lagi finnst öðrum
óhæft. Markalinan hefur ekki
verið dregin i lögum né heldur
skapast fyrir siðgæðishefð.
En að sjálfsögðu verður slik
markalina aö vera til meö þjóð,
sem vill telja sig siðmenntaða, og
flm. hafa þá trú, að þvi fyrr, sem
hún verður dregin, þvi betra.
Eölilegast og öruggast er að það
sé gert i löggjöf, þar sem mörk
séu dregin á milli eðlilegrar
kynningastarfsemi, vináttu? og
virðingarvottar við opinberan
starfsmann, ráðinn eða kjörinn,
annars vegar og óeðlilega og
óæskilega „góðvildarkaupa” hins
vegar. Einmitt nú um þessar
mundir vill svo til, að yfir stendur
endurskoöun á lögum um réttindi
og skyldur opinberra starfs-
manna og flm. hafa frétt af þvi,
að fyrir dyrum standi að hraöa
þeirri endurskoöun. Þingsálykt-
unartillaga þessi gerir ráð fyrir
þvi, að Alþingi óski eftir þvi við
dómsrr.álaráðherra að þau
vandamái, sem aö framan hefur
verið rætt um, verði sérstaklega
tekin til meðferðar við þá endur-
skoðun og geröar tillögur um
skynsamlega lagasetningu um,
hvað sé eðlilegt og hvað óeðlilegt i
þvi sambandi. Að sjálfsögðu eiga
slik ákvæði um hvað sé siölegt og
hvað ósiðlegt i opinberri stjórn-
sýslu ekki að ná einungis til ráð-
inna starfsmanna rikisins heldur
einnig kjörinna svo sem alþingis-
manna og ráðherra og sömu leiðis
til sveitarstjórnarmanna og
starfsfólks sveitarfélaga svo og
annara þeirra, sem gegna opin-
berum störfum. E.t.v. er ekki
hægt aö koma þvi viö að láta lögin
um réttindi og skyldur opinberra
starfsmanna ná yfir allar þessar
stéttir I þjónustu hins opinbera,
en þá gerir þingsályktunartil-
lagan ráð fyrir þvi, að sérstök lög
meö sambærilegum lagaákvæð-
um og hér hafa verið gerð að um-
talsefni, verði sett varðandi þess-
ar starfsstéttir. Einnig er gert ráð
fyrirþvi I tillögunni, að önnur lög,
s.s. almenn hegningarlög, verði
endurskoöuö meö tilliti til þeirra
nýju og afdráttarlausu reglna um
siðgæði i almennri stjórnsýslu,
sem óskað er að sett verði.”
—BJ