Alþýðublaðið - 14.10.1976, Blaðsíða 16
Aætlun um víðtækar
rannsóknir vegna álvers
við Eyjafjörð
&orsk Hydro a.i
Eins og fram hefur komiö I
Alþýðublaðinu, hefur Rann-
sóknarstofnun Norðurlands og
Veðurstofu íslandsverið falið aö
framkvæma rannsóknir við
Eyjafjörð, vegna hugmyndar
urn byggingu álvers þar um
slóðir. 1 bréfi frá hringnum
NorskHydro, dagsettu 15. marz
1976 er greint frá þeim rann-
sóknum sem norska fyrirtækiö
vill aö fram fari hér með þetta I
huga. Fylgir hér lausleg þýðing
bréfsins:
„Náttúru- og
umhverfisaðstæður
Rannsóknir sem
hefja ber þegar f stað:
1. Veðurfræði-, loftslag og
úrkoma
Samvinna verði höfð við
Veðurstofu Islands.
a) Kanna starfssemina við
veðurathugunarstöðina á
Akureyri: rannsóknaraðferðir
og upplýsingar sem fyrir liggja.
b) Hefja veðurfræðiathuganir
við Gæsir og mæla og kanna
hita, úrkomu, skýjafar, vind-
hraða og vindátt. Bera saman
niðurstöður frá Akureyri og
Gæsum.
c) Ef Veðurstofa Islands æsk-
ir þess, skal komið á fót rann-
sóknarstöð á Akureyri eða við
Gæsir, til þess að mæla loftslag
og úrkomu. Er þá höfö i huga
hliðstæðstöð og þær sem gerter
ráð fyrir i áætlun OECD um
rannsóknir á loftmengun I Norð-
ur-Evrópu.
Ahugavert væri t.d. að mæla
leiðni og sýru, og innihald flú-
ors, brennisteins og ryks i úr-
komunni.
2. Gróður
Samvinna við landbúnaðar-
yfirvöld.
a) Framkvæma almennt mat
á gróðurríki og vaxtar-
skilyrðum við Gæsir og næsta
umhverfi.
b) Kanna F-innihald (flúor ?)
i sinum af beitargrasi hey og á
ákveðnum stöðum á ákveðnum
timum við Gæsir og næsta um-
hverfi.
c) Rannsaka vaxtarhraða
trjáa við Gæsir og i næsta um-
hverfi.
3. Landbúnaðarframleiðsla
Samvinna við landbúnaðar-
yfirvöld.
a) Framkvæma almennt mat
á búskap á Gæsum og nágrenni,
m.a. bera saman mjólkurfram-
leiðslu, sláturþunga o.s.frv.
b) Kanna flúormagn i beinum
búfjár og nautgripa frá Gæsum
og nágrenni. Aldur dýranna
verður að vera þekktur.
c) Sé flúormagn i beinum
óvenju hátt, skal það staðfest
með mælingu á flúor i hlandi.”
Undir bréf þetta skrifar LA.
Conradi. —arh
Natur- op. mil.i cfrorhold
Unders^kelser som b0r ta til straks:
1. Meteorolop.i, luft op: nedb'/r
Samarbeid med Islands meteorolociske institutt
a) Finne ut hva slags virksomhet so
meteorologiske stasjoner^^^^^
metoder oE husdyrholdet pá
b) Etab^^^^“Ítae ^^eproduhsjon.
^en) Irl°k?nh°ldet 1 kn°kler bahre
•’ zæznæ :r~
°slo, 15. mars 1976
--i Q
L-A. Conradi
Hér getur að lita bréf frá Norsk Hydro, þar sem’
fjallað er um umhverfisrannsóknir við Gæsir i
Eyjafirði, vegna áætlunar um byggingu álvers
þar um slóðir. Bréfið er dagsett hinn 15. mars
1976.
NORSK HYDRO GERIR LITIÐ ÚR MENGUNAR
HÆTTU FRA ÁLVERUM
Þann 29. janúar 1976,
sendi Norsk Hydro
hingað til lands tillögur
að umhverfisrannsókn
vegna áætlana um
álversbyggingu
Þar sem plagg þetta
er hin fróðlegasta lesn-
ing fyrir leikna jafnt
sem lærða, er ætlunin
að birta hér alllangan
texta úr þvi. Þar segir
i upphafi:
„Alver hafa oft leitt af sér
töluverðar breytingar og skað-
leg áhrif á umhverfið, vegna
mengaðs úrgangs — i langflest-
um tilfeUum á þetta við um flú-
orsambönd sem sleppa út I and-
rúmsloftið. A síöustu árum
hefur orðið geysiör þróun, hvað
varðar það að draga úr flúor-
mengun frá álverum. betta hef-
ur orðiö til þess, að flúorinn er
ekki lengur rlkjandi i úrgangi
verksmiðjanna, heldur finnst
hann i samhengi við önnur úr-
gangsefni, svo sem brenni-
steinsdioxið, hydrokarbón og
venjulegt ryk.
Hin merkjanlega minnkun
loftmengunar frá álverum,
ásamt aukinni umhverfisvit-
und, hefur svo einnig leitt til
þess að mengaður úrgangur
sem rennur i' sjó og vötn, hefur
verið dreginn meira fram i
dagsljósið.
I seinni tið hefur svo athygli
manna beinst mjög mikið að
heilbrigðisástandi á vinnustöð-
unum.
Þau atriði sem hér hafa verið
nefnd, er ekki hægt aö skoða
einangruð hvert frá öðru, þar
sem sömu þættir orka á þau öll.
Til þess að ná sem beztum
árangri, hvað varðar
umhverfismálin innan aðgengi-
legra fjárhags- og tæknimarka,
cr mikill styrkur af bráða-
birgðarannsókn. (min undirstr.
— Þessi niðurstaða Hydro-
manna veldur tæplega straum-
hvörfum i sögu visindanna! 1
frumheimild hljóðar þessi
merkilega setning þannig: „Til
a oppna miljömessing optimale
resultater innen en akseptabel
ökonomisk-teknisk rammer en
forundersökelse til god hjelp”).
Slik bráðabirgðarannsókn
mun auk þess hafa verulega
þýðingu fyrir hugsanlega skoð-
anamyndun um málið og varð-
andi staðsetningu fyrirtækis á
borð við álverið."
„Gagnaðgerðir” verði
áætlaðar
Siðan er i áætluninni gerð
grein fyrir svæðisrannsóknum
sem gera á þar sem fyrirhugað
er að reisa álver. Er þar gert
ráð fyrir „kortlagningu” i lik-
ingu við þá sem talað er um i
bréfi þvi sem birt er á öðrum
stað i blaðinu og varðar fyrir-
hugað álver við Gæsir. Athuga á
búskaparhætti, gróöur, veður-
lago.s.frv. Einnig á að „áætla”
magn eitraðs Urgangs frá verk-
smiðjunum út frá fengnum upp-
lýsingum. I þeim tilfellum er
mengun virðist ætla að fara yfir
hættumörk, skal hafin vinnsla á
tillögum til úrbóta og „gagnað-
gerða”.
„Alvarleg mistök”
Sfðan segir i plagginu:
,,1 framhaldi af þvi sem fyrr
greinir, er viö hæfi að segja frá
reynslunni af skipulagningu,
stofnun og rekstri af Karmöy-
verksmiðjum Norsk Hydro
(áður ALNOR Aluminum Nor-
way A/S), og þá er aðgengi-
legast að draga fram þau atriði
sem litið eða ekkert hefur verið
minnst á áður.
Alvarlegustu mistökin sem
gerð voru, vörðuðu útreikn-
ing/áætlanir um reykhreinsun,
magn mengaðs úrgangs og áhrif
hans. Þetta leiddi til alvarlegra
óvæntra vandamála og skað-
legra áhrifa. Þaö skal nefnt til
„hræðslu og aðvörunar”, að
magn flúorsambanda varð
tvöfalt meira en gert haföi verið
ráð fyrir.
Einnig sýndi sig, að rann-
sóknir á vissum atriðum varö-
andi búskap og skógrækt, voru
ekki nægilegar. Til dæmis sýkt-
ist sumt sauðfé af völdum flú-
ors, þrátt fyrir að flúorinnihald
fóðursins væri ekki ofan þeirra
hættumarka, sem dýralæknis-
menntaðir menn töldu vera.
Skýringin er liklega sú, að
dýrin voru i slæmu ásigkomu-
lagi og höfðu ekki fengið full-
komið fóður með tilliti til bæti-
efna, og þess vegna voru þau
mjög næm fyrir þessu tiltölu-
lega litla flúormagni (min
undirstr.)”
Vindafar verði
kannað....
,,A þeim tíma er áætlun var
gerð um Karmöy-verksmiðj-
uraar, voru aðeins til lög um
flúormagn i úrgangi sem fór
beint út i andrúmsloftið..
Organgur sem rann i sjó, var
háðurlögum, og þarsem ákveð-
ið var að hann væri hættulaus,
voru engar rannsóknir gerðar i
sjónum og með ströndinni.
Upplýsingum varðandi þetta
hefur þó verið safnað núna, þó
svo það hafi ekki haft fnikla
þýðingu.
Atriði sem ekki beinlínis
snertir ytri aðstæður, en er þó
nefnt i þessu sambandi, er stað-
setning verksmiðju með hlið-
sjón af vindafari á staðnum sem
hún á að standa á. Sé þetta ekki
kannað nægilega og tekið tillit
til þess, þá er hætta á þvi að
mikil vandamál kunni siðar að
koma upp varðandi endurnýjun
lofts á vinnustaðnum.AKramöy
varstaðsetningin ákveðin án til-
lits til vindafarsins, og það varð
dýrkeypt reynsla. Þvi er ráðlegt
að rannsaka aðstæður með að-
stoð módels, sé fyrirhugað að
reisa álver á vindasömum stöö-
um”.
Norsk lög um
vinnuvernd ófullkomin
1 lok áætlunarinnar frá Norsk
Hydro, er gerð grein fyrir
norskum lögum um úrgangsefni
og vinnuvernd. Segir að engin
lög nái beinlinis yfir vinnuað-
stæður á vinnustöðunum.
„I lögum um vinnuvernd eru
þó ákvæði sem orka ákvarðandi
á einstaka þætti ástands á
vinnustöðum. En þrátt fyrir
það, er liklegt að ný lög um
vinnuskilyröi verði sett á þessu
ári. Þau munu taka yfir ástand
á vinnustöðum á ákveðnari
hátt.”
Undir þessa áætlun skrifar
Per nokkur Ravn, en bréfið er
dagsett i janúar á þessu ári,
sem fyrr segir.
—ARH
FIMMTUDAGUR
14. OKTÓBER 1976
alþýöu
blaðiö
Lesið: I Dagblaðinu: „Niu
skiluðu auðu, þegar Ragn-
hildur Helgadóttir (S) var i
gær kjörin forseti neðri
Alþingis. Ókyrrð var i
þingflokki Sjálfstæðis-
flokksins vegna þessa og
talið var, að nokkrir stjórn-
arliðar hefðu ekki kosið
Ragnhildi.
o
Heyrt: Að Kjartan
Ólafsson, ritstjóri Þjóð-
viljans, sé liklegasta for-
mánnsefni Alþýðubanda-
lagsins, þegar Ragnar Arn-
alds lætur af þvi starfi á
næsta landsfundi flokksins,
sem haldinn verður á næsta
ári. Alþýðubandalagsmenn
telja Kjartan duglegan og
greindan, og að hann hafi
þá yfirsýn yfir landsmálin,
sem formaður þurfi að
hafa. Andstæðingar
Alþýðubandalagsins munu
einnig fagna þvi mjög, ef
Kjartan nær kjöri: hann
muni endurnýja „komma-
stimpilinn” á flokknum.
o
Séð: 1 Visi i gær er birt
yfirlýsing frá Vilhjálmi
Hjálmarssyni, mennta-
málaráðherra, með þess-
um formála: „Alþýðublað-
inu hefur borizt eftirfar-
andi frá Vilhjálmi
Hjálmarsyni, mennta-
málaráðherra:. „Margir
munu spyrja hvort Alþýðu-
blaðið sé að verða of
áhrifamikið i rekstrarsam-
starfi blaðanna tveggja. En
gamanlaust! Þarna munu
hafa orðið mistök i prent-
smiðju.
o
Lesið: 1 smáauglýsingum
Visis i gær: „Ég er sjálfur
40 ára og óska eftir að
kynnast liflegum stúlkum á
aldrinum 18-25 ára. Hef
ekki aðlögun fyrir eldri
konur. Svarið fljótt og vel
af hreinskilni...”
o
Séð: Að bæjarstjórn Akur-
eyrar hafi samþykkt, að
fela húsameistara bæjarins
að gera kostnaðaráætlun
um nauðsynlegar endur-
bætur til tryggingar
öruggri varðveizlu
Laxdalshúss við
Hafnarstræti. Þar með
mun vera ákveðið að húsið
verði varðveitt.