Alþýðublaðið - 14.10.1976, Blaðsíða 14
14 FRÁ MORGNI..
Fimmtudagur 14. október 1976
FRETTA-
GETRAUN
1. Hver er maðurinn?
2. Einkennilegur misskilningur
hefur komið upp varðandi veiði-
samninga við V-Þjóðverja. 1
hverju er hann fólginn?
3. Hverjir urðu fyrst varir við
leirgosið við Kröflu?
4. Hvaða stórfyrirtæki hefur
hug á að reisa álver á íslandi?
5. Enn einn hópur starfsmanna
innan rikiskerfisins hefur boðað
til aðgerða vegna óánægju i
launamálum. Hvaða hópur er
þetta?
6. Og i framhaldi af þvi.hvenær
er fyrirhugað að gripa til mót-
mælaaögerðanna?
7. Hvaöa snillingur skrifaði
dagbók blaðamanns i gær?
8. Fyrirhugað er að a.m.k. ein
ný námsbraut taki til starfa við
Háskólann i haust. Hvað verður
kennt þar?
9. Hvað kostar nýi Volvóinn?
10. Hvaða sjúkdómar eru það,
sem einkum hrjá drykkjusjúkt
fólk?
Og svo sagöi hún, vertu nú
engillog lofaöu mér aö keyra
/029
Bezti bfll, en hann titrar bara
Iþegar ég er á 190 km hraöa.
S V 0 R : -jeuiop^nts
-jejjji 8o jipuiuia^sepaH '01
008 0S0 2 JBjsoii uubh ’6
jnQBUQieiæAjeHi'8
-uossQjnSis Jeuia •£
•jaqtuaAQU J!1J3 '9
•euueui
ejQeiuu3Uie[9}fspq Sejepueg 'S
•ojpj<H nsjON 't
luipr p uuamjog •£
■U|S iQaBASiQiaA eqjeuije Qe jij
je8uipua(sj ua ejqundjeunQiui
e jqb ejou jefjaAQpftj 'z
•Suid-aHSH '0E Jlis nu jnjis
uubh -uossuiApiea 'a uPÍQOO 'l
í upphafi skyldi endinn skoða
Skoðanir manna á
köttum og kattahaldi
eru skelfing skiptar.
Sumum finnst virki-
lega notalegt að hafa
góðan heimiliskött,
meðan aðrir segjast
vart geta hugsað sér
óhjrálegri kvikindi en
einmitt ketti. í þriðja
hópnum eru þeir, sem
hugsa yfirleitt ekkert
um ketti og láta sér á
sama standa.
Og það er einmitt spurningin,
hvort það sé ekki þetta fólk, sem
ætti aldrei nálægt köttum að
koma.
Það kannast flestir foreldrar
við þau vandræði sem skapast
þegar barnið i næsta húsi fær
kött. Þá hefst ófriðurinn á heim-
ilinu, þvi auðvitað vill barnið
þitt lika eignast kött. Þvi miður
láta margir undan þessu nöldri
barnsins, án þess að gera sér
grein fyrir, hvað slikt dýrahald
hefur i för með sér.Oft er bætt
við að börnin verði leið á hús-
dýrunum, þegar nýjabrumið fer
af þeim, en um þetta gilda sömu
lögmál og um ný leikföng.
Hver á að hugsa
um köttinn?
Og þá er það stóra spurningin.
Hver á að hugsa um köttinn?
^Það þarf að gefa honum reglu-
lega, skipta um sand i kassan-
um og fleira og fleira sem fylgir
sliku dýrahaldi. Oft er það svo,
að þegar barnið hættir að hugsa
um köttinn sinn sjálft, þá fyrst
kemur i ljós, að enginn á heimil-
inu hefur tima til að sinna dýr-
inu, eins og þörf krefur. Það
væri þvi vissulega skynsamlegt,
að hugsa fyrir þessum mögu-
leika, áður en látið er undan
þrábeiðni barnsins, um að fá
húsdýr.
Þrifnaður er eitt af þvi sem
köttum er meðfætt. En ef trass-
að er að skipta um sand í kass-
anum, og hirða matarleifar, þá
getur farið svo, að kötturinn
verði hinn mesti sóði, og geri
þarfir sinar hvar sem vera skal.
Út á gaddinn
Þegar slikt kemur fyrir, þá
gripa margir til þess ráðs, að
losa sig við dýrið, og ósómann
þar með. Og þvi miður, fara
alltof margir auðveldustu leið-
ina, þ.e. sleppa kettinum út á
guð og gaddinn og vonast til að
. sjá hann aldrei meir.
Það hefur meir að segja kom-
ið fyrir, að fundist hafa blindir
kettlingar úti á viðavangi,
matar- og hjálparlausir. Það
hlýtur að þurfa talsvert hug-
rekki til að skilja dýrin eftir,
svona á sig komin, einkum þeg-
ar hugssð er til þess, að þvi fylg-
irhreint ekki mikil fyrirhöfn, að
koma þeim til dýralæknis, sem
leysir vandann á skjótan og
kvalalausan hátt.
Hér á þvi vel við að minna á
gamla máltækið, sem enn er i
fullu gildi og á ekki hvað sist við
þama, nefnilega að ,,i upphafi
skyldi endinn skoða”.
Enginn ætti að taka kettling
inn á heimili sitt, án þess að
gera sér grein fyrir, hvort ein-
hver aðstaða sé fyrir slikt hús-
dýr, hvort einhver á heimilinu
hafi tima til að sinna þvi og um
fram allt, að koma þvi fyrir
fljótt og þjáningalaust, ef svo
reynist ekki vera.
FRAMHALDSSAGAN
Staðgengill stjörnunnar * *
eftir Ray Bentinck
Shirley heyrði Luke bölva. Hún sá
móta fyrir honum i rökkrinu. En
nú var hann á leið til dyra. Um
leið og hann opnaði sást i dags-
skimunni, að hann hélt á byssu.
Svo fór hann til að finna þann i
fjöru, sem skotið hafði. En hann
kæmi aftur, og sú tilhugsun
örvaði Shirley til dáða. Hún þaut
eins og elding út úr kofanum og út
i móana, en hún var ekki komin
nema fimmtiu metra frá kof-
anum þegar þrekinn maður kom
til hennar og dró hana með sér.
Hann tók fyrir munn hennar til að
þagga niður i henni, og þegar hún
barðist um til að losna, ýtti hann
henni lengra niður. — Þegiðu, ef
þú vilt lifi halda! Þetta var rödd
Glen Mallorys, sem hvislaði i
eyra hennar. Bandarikja-
maðurinn lá á hné við hlið hennar
og starði skelfingu lostinn á hana.
— Þetta er ekki Paula! Þetta er
staðgengill hennar!
Um ieið heyrðu þau fótatak i
nágrenninu. Luke var aö leita
þeirra, og Shirley sá það á
Mallory, að hann var hræddur við
bófann. Þau lágu grafkyr, uns
fótatakið fjarlægðist.
— Þér... björguðuð mér! hvisl-
aði Shirley þakklát.
— Ég hélt, að þér væruð Paula,
útskýrði hann. — Ég vissi, að
þessi skepna ætlaði að ná f hana
fyrr eða siðar, svo að ég fylgdist
með honum. Þetta er aðsetur
hans. Ég sá gegnum rifurnar,
hvað hann gerði við yður, og þá
skaut ég.
Luke nam staðar smáspöl frá
þeim og þau heyrðu hann kalla:
— Komið þið! Ég sé ykkur!
— Gabb! tautaði Mallory. —
Ég átti að skjóta svinið, en þorði
ekki!
— Hver eruð þér? hvislaði
Shirley. — Þér heitið ekki Glen
Mallory og eruð ekki fararstjóri.
— Ég get ekkert sagt yður!
— Þér verðið! sagði Shirley
ákveðin. — Þér hafið bjargað
mér, og ég get kannski bjargað
yður, þegar lögreglan nær yður.
— Lögreglan? spurði hann
skelkaður.
— Já, lögreglan leitar að ykkur
Luke Castle báðum, sagði Shir
ley. — Ef þeir finna yður vilja
þeir fá að vita, hvers vegna þér
komið alltaf, ef einhver hætta
vofir yfir Paulu.
Hann svaraði engu, en lagði
hlustirnar við. Þau heyrðu vélar-
hljóð frá kofanum og skömmu
seinna fjarlægðist það. — Þetta
var Castle, sagði Mallory rólega.
— Ég sá hann. Nú erum við
örugg.
Shirley reis skjálfandi á fætur.
Grasið var döggvott. — Þér
verðið að koma með mér til
Tolbury og hreinsa mannorð
yðar, sagði hún biðjandi —
Lögreglan trúir yöur, ef ég
styð framburð yðar.
Hann kinkaði kolli. — Sækið
kápuna og við göngum yfir
móana til þorpsins.
Hún þaut inn i kofann, þreif
kápuna og stökk út. Glen Mallory
var horfinn. Shirley skimaði i
kringum sig. Hún skildi nú, að
hann hafði aldrei ætlað til lög-
reglunnar. Kjökrandi af hræðslu
og þreytu staulaðist hún yfir
móana i þá átt, sem Mallory hafði
bent áðan. Sem betur fór hafði
hún heppnina með sér, þvi að hún
hitti mjólkurbil við veginn, og
bilstjórinn leyfði henni að sitja
i...
16. kafli
Það var að koma morgunverð-
ur, þegar Shirley gekk inn um
hliðið. Max kom æðandi þangað.
Hann nam snögglega staðar, þeg-
ar hann sá þessa útgrátnu og úfnu
stúlku, sem hann hafði leitað að
alla nóttina. — Shirley! sagði
hann. — Guði sé lof! Hvað kom
fyrir? Hvar hefurðu verið.
HUn lét fallast i faðm hans, og
hann þrýsti henni að sér. — Luke
Castle, hvislaði hún. — Hann lét
ræna mér i stað Paulu.
Max hélt fast utan um hana. —
Hvað gerðu þeir við þig?
— Ekkert! Mer liður .....vel!
stundi hún. Þegar Max sá, að hún
varalvegaðleka niður, lyfti hann
henni upp og bar hana að húsinu,
en þar náði hann strax i Paulu og
Walt Silverstein. Walt hlynnti að
Shirley, en Paula byrjaði strax að
spyrja hana spjörunum úr. —
Láttu hana i friði, skipaði Max. —
Ég hringi umsvifalaust i lögregl-
una. Luke Castle rændi henni. Ég
sagði ykkur, að hún hefði aldrei
farið og skilið mig eftir einan.
Hann brosti bliðlega til Shirley.
Shirley var að jafna sig, þegar
rannsóknalögreglumaðurinn
kom. Hún sagði honum alla sög-
una, og lýsti bófunum tveim og
kofanum. Þegar hún hafði lokið
máli sinu, sagði Paula og hrollur
fór um hana: —-Þetta hefði getað
verið ég! Það endar með þvi, að
Luke nær mér!
— Ekki ef við fáum hann fyrst#.
frk. Langton, sagði rannsóknar-
lögreglumaðurinn. — Og það ger-
um við með yðar hjálp. Þér gætið
t.d. sagt okkur, hvort þér hafið
svona fæðingarblett.
— Og hvað með það? spurði
Paula hvasst.
— Þér sögðuð, að Luke Castle
væri geðsjúkur aðdáandi yðar en
hann virðist samt hafa góða hug-
mynd um... dálitið persónulegt,
sagði rannsóknarlögreglumaður-
inn.
— Aðdáendur stjörnu vita allt
um hana! sagði Paula stórbokka-
lega. — Fæðingarbletturinn sést,
þegar ég er í bikini, og það hefur
verið minnzt á hann i mörgum
blaðagreinum, svo að þetta er
ekki jafnpersónulegt og þér
reynið að gefa i skyn.
— Og þessi Glen Mallory er að-
dáandi yðar? spurði rannsóknar-
lögreglumaðurinn.
— Eftir þvi sem Shirley segir,
sagði Paula hæðnislega. — Ég hef
aldrei hitt hann sjálf, en hann
birtist i hvert skipti, sem Castle
kemur fram á sjónarsviðið. Ég
KOSTABOÐ á kjarapöllum KJÖT & FISKUR Breiðholti Simi 7 1200 — 74201 V’ POSTSENDUM TROLOFUNARHRINGA Jolj.iiiiirs Utifsson U.uifl.iutai femii 19 209
DUflA
Síðumúla 23
sími 64900
Heimiliseldavélar,
6 litir - 5 gerðir
Yfir 40 ára reynsla
Rafha við Óðinstorg
Símar 25322 og 10322
Birgir Thorberg
málarameistari
simi 11463
önnumst alla
málningarvinnu
— úti og inni —
gerum upp gömul húsgögn >