Alþýðublaðið - 15.10.1976, Page 5
FRÉTTIR 5
fflsr Föstudagur 15. október 1976
Ráðstefna Kaupmannasamtaka Islands:
Um málefni smásölu-
verzlunarinnar
- var haldin nú um helgina
Um helgina gengust
Kaupmannasamtök
íslands fyrir ráðstefnu
um málefni smásölu-
verzlunarinnar i land-
inu. Fundinn sóttu um 80
manns og ráðstefnu-
stjóri var Magnús E.
Finnsson.
A laugardag voru haldin 3
erindi. Þar töluöu Gunnar
Snorrason formaður Kaup-
mannasamtakanna um málefni
smásöluverzlunarinnar, Albert
Guðmundsson um innheimtu
smásöluverzlunarinnar á opin-
berum gjöldum (söluskatti), og
Georg ölafsson um ný viðhorf
til verðlagsmála
Eftir fyrirlestraflutninginn
voru settirá stofn 3 umræðuhópar
sem fjölluðu um efni fyrirlestr-
anna.
Að morgni sunnudags voru
siðan frjálsar umræður og fyrir-
spurnir um það efni sem um var
rætt i fyrirlestrunum.
Þá komu fram ritstjórar dag-
blaðanna og skýrðu frá viðhorfi
sinu og blaðs sins til smásölu-
verzlunarinnar. Eftir þær
greinargerðir urðu snarpar um-
ræður.
Þá voru bornar upp ályktanir
og ráðstefnunni siðan slitið.
Nánar verður greint frá efni til-
lagnanna siðar. ES.
Nýr vagn í bílaflotann
Nýr og giæsilegur stærtisvagn
hefur bætzt i bilaflota Strætis-
vagna Kópavogs. Þetta er vagn af
Leyland-gerð og er framleiddur i
Danmörku. Yfirbygging vagnsins
er úr áli. A1 þetta er keypt hjá
svissneska álfélaginu, og þvi
meira en mögulegt, að þetta sé
islenzkt ál.
Vagninn er allur hinn rúmbezti,
sætin þægileg og rúmt fyrir fæt-
urna.
Vagninn tekur 83 farþega,
43 i sæti en 40 i stæði. Alþýðublað-
ið óskar Strætisvögnum Kópa-
vogs til hamingju með þennan
glæsilega farkost.
—ATA
Félag sem vinnur að
málefnum vistmanna
á Kópavogshælinu
1 sumar var stofnað Foreldra
og vinafélag Kópavogshælis.
Tilgangur félagsins er að vinna
að málefnum Kópavogshælis,
hagsmunum vistfólks foreldra og
aðstandenda, og efla samheldni
foreldra, aðstandenda og starfs-
fólks.
Sildveiðar Norðmanna i
Norðursjó meiri en á sl.
ári.
Heildarsíldveiðar Norðmanna
á Norðursjávarsild námu hinn 12
september sl. samtals 31.410
smál. en 26.581 smál. á sama tima
i fyrra.
Sfldin hefir verið nýtt sem hér
segir:
242 smál. isuö til útflutnings
23.360 smál. hraðfryst til
manneldis
6.413 smál til söltunar
1.394 smál. til bræðslu.
Fram til 15. ágúst höfðu Norð-
menn flutt út samtals 42.380 tunn-
ur af saltaðri sild.
Sildársöltun
Hollendinga.
Hinn 4. september s.l. nam
heildarsöltun Hollendinga 102.112
„fiskipökkuðum” tunnum. A
sama tima 1975 nam söltun Holl-
lendinga 127.141 tunnum.
Félagið stóð fyrir útiskemmtun
á Kópavogshæli þann 14. ágúst i
sumar og tókst það með miklum
ágætum. Ætlunin er að slikar
skemmtanir verði árlegur
viðburður á komandi árum.
Ákveðið hefur verið að hafa kynn-
ingarkvöld i Bjarkarási laugar-
daginn 16. október kl. 8:30 til að
efla kynni félaganna.
Félagsmenn eru nú orðnir um
200 talsins, og'óskar félagið eftir
að nýir félagar bætist i hópinn á
kynningarkvöldinu. Seinni hlut-
ann f nóvember er áætlað að hafa
fræðslufund og fengnir hafa verið
sérfræðingar til að svara fyrir-
spurnum. Vonast er til að hægt
verði að halda fleiri slika fundi i
vetur.
Hreint É
{£&land I
fagurt I
land I
LANDVERIMD
Umræðuhópur á ráðstefnu Kaupmannasamtaka íslands
V.
Alyktun ráðstefnu
Kaupmannasamtaka
íslands
9.-10. október
I. Verðlagsmál.
Núverandi verðlagsákvæði
verði þegar leiðrétt til hagsbóta
fyrir þær greinar smásölu-
verzlunarinnar, sem verst eru
settar. Alþingi setji nýja verð-
lagslöggjöf á næsta þingi, sem
feli i sér frjálsa verðmyndun.
Ráðstefnan skorar á alla for-
'N
svarsmenn frjálsrar verzlunar,
sem sitja á Alþingi, að stuðla
eftir mætti að framgangi þessa
máls.
II. Fjármál.
Sett verði löggjöf um lang-
lánasjóð verzlunarinnar þannig
að hún sitji við sama borö og
aðrir atvinnuvegir þjóðfélags-
ins.
III. Skattamál.
Skattalöggjöfin verði endur-
skoðuð, með það sem markmið,
að skattlagning allra verzlunar-
fyrirtækja, hvort heldur þau eru
rekin i félagsformi eða sem
einkaverzlun, verði á sama
hátt.
LAUGAVEGI 103 SIMI 26055
Húseigendatryggingin
innifelur eftirfarandi
tryggingar:
Vatnstryggingu
Glertryggingu
Foktryggingu
Brottflutnings- og
innbrotstryggingu
Húsaleigutryggingu
Sótfallstryggingu
Ábyrgðartryggingu
húseigenda
I húseigendatryggingunni eru
sameinaðar i eina tryggingu
fasteignatryggingar, sem hægt
hefur verið að kaupa sérstak-
lega undanfarin ár.
Með þessari sameiningu hefur
tekist að lækka iðgjöld
verulega.
ATH.: 90% af iðgjaldi er frá-
dráttarhæft við skattframtal.
Kynnið yður hin hagkvæmu
tryggingarkjör.
Brunabótafélag íslands