Alþýðublaðið - 15.10.1976, Síða 7

Alþýðublaðið - 15.10.1976, Síða 7
alþýðu1 biaðiA Föstudagur 15. október 1976 LISTIR/MENNING 7 Það eru hlaup og snúningar og næt- urvinna að undirbúa frumsýningu t gærkvöldi frumsýndi Litli Leikklúbburinn á Isafirði finnska nútimagamanleikinn „Við byggjum baðhús” eftir Johan Bargum, og var þessi sýning frumflutningur á verki þessa finnska höfundar hér á landi. t fréttabréfi frá Kára Halldóri Hálfdáns, sem barst fyrir frum- sýninguna segir m.a.: „Það er i mörg horn að lita sið- ustu vikuna fyrir frumsýningu fyrir þá sem starfa með L.L., og það sem gera þarf verður aðeins gert i fristundum þvi að allir eru jú i vinnu annars staðar. ÖLL tækifæri eru notuð, matartimar, kvöld og jafnvel nætur til að mála, smiða, lita og sauma. Þó að skellinaðran hafi loksins feng- ist að láni, þá á leikmunavörður eftir að finna þessa réttu skó á frk. Pajölu og Lind vantar ennþá jakka o.fl. o.fl. Smiðirnir eru að leggja siðustu hönd á Sánuna (baðhúsið), ljósa- menn að hengja upp kastara, tengja og finna þá liti sem þarf I lýsinguna. Framkvæmdastjóri er á höttum eftir aðstoðarfólki fyrir hin mannfrekari undirbúnings- störf. Verið er að undirbúa leik- skrá fyrir prentun, taka myndir, vinna auglýsingaspjöld. Hljóð- færaleikarinn æfir sig og leikar- amir stunda æfingar af kappi. En auðvitað verður öllu þessu að vera lokið fyrir frumsýningu.” I fremstu röö Höfundurinn Johan Bargum (1943) er talinn i fremstu röð ungra rithöfunda i Finnlandi i dag. Fyrsta bók hans, smásagna- safnið „Svart hvitt” kom út árið 1965 er hann var aðeins 22 ára. Siöan hegur hann sent frá sér skáldsögur og þrjú leikrita hans, sem öll voru frumflutt á „Lilla Teatern” I Helsingfors, hafa ver- ið gefin út i bókarformi, eftir að hafa hlotið hinar beztu viðtökur leikhúsgesta og gagnrýnenda um alla Skandinaviu. í riti finnska bókasafnsfélags- ins „Finnskar bókmenntir frá 1965” sem kom út á sibast liðnu ári, segir um Johan Bargum: „Styrkur hans felst i hinum hversdagslegu og hnitmiðuðu samtölum og skyldi þá engan furða að hann hafi einnig hlotið mikið lof sem leikritahöfundur I skandinaviskum leikhúsum”. Fyrir utan að hafa skrifað sög- ur og leikrit, hefur Bargum skrifað Kabarett-þætti ásamt Clars Anderson (Fjölskyldan, „Lilla Teatern”. Einmitt þessa dagana, þegar „Við byggjum Baðhús” er frumsýnt hér á Isa- firði eru beir Bargum og Ander- son að skrifa enn einn Kabarettinn Borgþór S. Kærnested hefur þýtt VIPPU - BIlSKURSHORÐIh Aðrar *U»rðir. smiSaðar eftir beiðné QLU64AS MIÐJAN Síðumúla 2(1, simi 38220 Lagerstæráir miðað vi3 jnúrop: Haeái 210 sm x brekki: 240 sra 310 - x - 270 sra leikritið fyrir Litla Leikklúbbinn og kunnum við honum beztu þakkir fyrir það og tillit hans við hinn báborna fjárhag klúbbsins. Námskeið í leiktækni Leikstjórinn Kári Halldór er L.L. ekki ókunnur með öllu, þvi að áður en æfingar hófust i byrjún september, var hann með nám- skeið í leiktækni sem stóð yfir i 2 vikur. Kári hefur fengist við alhliða leikhússtörf hér heima og erlendis m.a. við leikhús i Kaupmannahöfn og stundað framhaldsnám við Rikisleik- listarskólann I Stokkhólmi og sl.l. vetur kenndi hann við Leiklista- skóla islands. Leikarar eru Ásthildur Þórðardóttir, Birgir Edvardsson, Finnur Gunnlaugsson, Guðni Asmundsson, Guðrún Eiriksdótt- ir, Hansina Einarsdóttir, Jón Oddsson, Magnús J. Magnússon, Margrét Geirsdóttir, Reynir Ingason, Sarah Vilbergsdóttir og Trausti Hermannsson,.en alls eru það 25 manns sem vinna að þess- ari uppsetningu. Vegna mikils áhuga vina og velunnara Litla Leikklúbbsins sunnanlands, er i bigerð að skipu- leggja leikhúsferðir vestur á tsafjörð frumsýningarheigina. Hljómtæki sem allir vilja eignast BEO- SYSTEM 1800 Útvarp með FM stereo, 4 stöðvar fast- stillanlegar, Mjög hagkvæmt þegar jarðstöð kemur. Magnari 2x22 sín vött. Bjögun minni en 0,5%. Plötuspilarinn er með Magnesium armi, sem er léttari, en aluminum, og gæðin eru einstök, með léttasta tón- haus í heimi. 2 Uni-Phase hátalarar fylgja. Kynnið yður hvað Uni-Pase er. Verð 219.965. buðirnar NÓATÚNI, SÍMI 23800 KLAPPARSTÍG 26, SÍMI 19800

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.