Alþýðublaðið - 15.10.1976, Blaðsíða 9
8 0R YMSUM ATTUM
VETTVANGUR 9
Tilfinningalaus
og hrottaleg
aðför veitinga-
valdsins
Dagblaðið Tim-
inn tilkynnti i gær
með stórri fyrir-
sögn og mynd á 3.
siðu, að dóms-
málaráðherra
hefði skipað dr.
BragaJósepsson i
mætir umsagnaraöilar
um viökomandi starf, þ.e.
yfirsakadómarann í
Reykjavik og fleiri
starfsmenn sakadóms,
sem eindregiö höföu mælt
með öðrum manni i
starfið.
Þarna er leikinn sami
leikurinn og þegar
menntamálaráöherra
Auövitað má leiða aö
þvi getum, aö dómsmála-
ráðherra hafi viljaö bæta
dr. Braga þá meðferö
sem hann hefur hlotið hjá
menntamálaráðuneytinu
og á þann hátt að kveöa
niöur gagnrýnina, sem
komið hefur fram á
menntamálaráðuneytið.
En þetta var þá ekki að-
ferðin.
Auövitað mun dr. Bragi
ekki taka þessari skipun.
Honum er fullkunnugt
um, að mælt hefur verið
með öörum i starfið.
Hann mun ekki stuðla að
þvi að gengið.verði á rétt
^__
stöðu rannsóknar-
lögreglumanns við
Sakadóm Reykja-
vikur. Hvorki dr.
Braga né saka-
dómi var tilkynnt
u m þe s s a
ákvörðun áður en
Timinn birti frétt-
ina. Það eitt er
forkastanlegt at-
hæfi og sýnir ljós-
lega af hvaða
hvötum þessi skip-
un er ákveðin.
A þennan hátt er verið
að reyna að litillækka og
auðmýkja einstakling,
sem um langt skeið hefur
átt i höröu striði við kerf-
ið. Þetta er gert i blóra
viö þá aöila, sem eru rétt-
setti mann i starf að-
stoðarskólastjóra fjöl-
brautarskólans i Breið-
holti. Þar var umsögn
Fræðsluráðs Reykjavik-
ur, réttmæts umsagnar-
aðila, látin lönd og leið:
ekkert mark á henni tek-
ið, en leitað til annarra i
trausti þess, að þeir hefðu
aðra skoðun á málinu.
1 báðum þessum tilvik-
um hefur veitingavaldið
hunzað umsagnir réttra
aðila og látið eigin geð-
þótta ráða feröinni.
Dómsmálaráðherra má
vera fullkunnugt um, að
dr. Bragi hefur sótt um
fjölmargar stöður til aö
láta reyna á það hvort
veitingavaldið hefur al-
gjörlega úthýst honum.
Stundum hefur þetta ver-
ið gert meira i gamni en
alvöru, enda maðurinn
næsta sannfærður um að
umsóknir hans verði ekki
teknar til greina.
þess einstaklings, eins og
gengið hefur verið á hans
rétt.
Dr. Bragi hefur mennt-
un til að starfa að
fræðslumálum. Hann
hefur með framkomu
veitingavaldsins, veriö
sviptur þeim rétti, sem
hver maður hlýtur aö
hafa, að vinna það verk,
er menntun hans segir til
um og áhugi.
Með þessari siðustu
ákvörðun i málefnum dr.
Braga hefur veitinga-
valdið bitið höfuðið af
skömminni. Það hefur f
raun réttri sparkað
manninum á millisin: til-
finningalaust og hrotta-
lega, reynt að litilsvirða
hann á þann hátt aö lengi
mun i minnum haft.
„Mikill” er sómi þeirra
manna er aö þessu standa
og munu þeir vafalaust
standa eftir keikir og
brosandi og hælast um af
„klókindum” sinum. 'A.G.
Selja perur og
styðja líknarmál
Lionsklúbbur Garða- og
Bessastaðahrepps efnir
til söiu á Ijósaperum á
morgun, iaugardag.
Hagnaðurinn af þessari
sölu rennur til félags- og
liknarmála.
Nýlega, þegar samein-
uð voru hrepps- og skóla-
bókasöfnin gaf klúbbur-
inn talsvert af bókum.
sem á skorti. Þá hafa
félagar merkt ýmis
hverfi i umdæmi sinu, og
hyggjast nú styðja starf
fyrir fjölfötluð börn, sem
er i undirbúningi.
SVIPMYNDIR AF 30. ÞINGI BANDALAGS STARFSMANNA RÍKIS OG BÆJA
Kristján Thorlacius, formaður BSRB:
KVEÐIÐ
Á ÞINGI
Á þingf undi hjá BSRB í gær var lesin upp vísa, sem
einhver karlmanna þingsins hafði ort til Valborgar
Bengtsdóttur, og hnýtir þar í kvenréttindabaráttu
Valborgar:
Ef hún Valborg, vænust fljóða,
væri konan mín,
skyldi hún verða að skúra og sjóða
og skeina börnin sfn.
Valborg var ekki sein til svara, gekk þegar í
ræðustól og svaraði fyrir sig:
Heillakarl meðal huldumanna,
heldurðu að ég vildi þig!
Nema þú lærðir að skúra og skeina
og skyldurnar bærir til jafns við mig?
Mikið var um að menn kvæðust þannig á í þing-
hléum, og létti það lund manna meðan beðið var
áframhalds á störfum.
SKATTAMÁLIN RÆDD Á SÍÐASTA DEGI
Stjórn BSRB
Við stjórnarkjör á þingi BSRB í gær urðu úrslit þau,
að Kristján Thorlacius var endurkosinn formaður,
Hersir Oddsson 1. varaformaður og Haraldur Stein-
þórsson 2. varaformaður.
Meðstjórnendur voru kosnir:
Ágúst Geirsson, FlS
Albert Kristinsson St. Hafnarf jarðar,
Einar Ólafsson,( SFR
Guðrún Helgadottir, SFR
Jónas Jónasson, Landss. lögr.m.,
Kristín Tryggvadóttir, SÍB,
Sigurveig Sigurðardóttir, Hjúkr.fél. (sl.
örlygur Geirsson, Fél. starfs. stjórnar.
i varastjórn voru kjörin:
1. Vilborg Einarsdóttir, Ljósm. fél. ísl.
2. Ásgeir Ingvarsson St. Kóp.
3. Magnús Björgvinsson, Fél. flugmálast.manna rík
4. Paíl R. Magnússon,St. sjónv.
5. Helga Harðardóttir, Póstm.fél. (sl.
6. Helga Guðjónsdóttir, St. Keflav.
7. Bergmundur Guðlaugsson, Tollv.fél. (sl.
30. þing Bandaiags starfs-
manna rikis og bæja lauk i gær.
Aður en stjórnarkjör hófst fóru
fram umræður um skattamál og
voru þær hinar hressilegustu,
eins og umræður um fleiri mál
hafa raunar verið á þinginu.
Mest var deilt um þann lið i
tillögu skattamálanefndar, sem
gerði ráð fyrir þvi að „tekju-
skattur og tekjuútsvar á laun-
þega falli niður i núverandi
mynd. Þess i stað verði tekinn
upp brúttóskattur, sem hæst
gæti orðið 20% af tekjum laun-
þega. Þessum skatti yröi siðan
skipt eftir ákveðnum reglum á
milli rikis og sveitarfélaga.
(Eftir álagninu komi persónu-
frádráttur.) — Réttur láglauna-
fólks og barnmargra fjöl-
skyldna verði tryggður með
persónuafslætti og fjölskyldu-
bótum.”
Það sem mest fór i taugar
þeirra sem fréttamaður Al-
þýðublaðsins hlustaði á var
þessi fasta tala 20%. Þeir bentu
rettilega á að með þvi að hafa
aðeins eina tölu væri veriö að
gefa þvi undir fótinn, að há-
tekjumenn meðal iaunþega —
þeir væru til þótt ekki væru þeir
i BSRB — slyppu hlutfallslega
betur úr skattamálum sinum
heldur en lágtekjumenn, þar
sem þeir þyrftu að borga sömu
prósentutölu af mun hærri laun-
um. Þá kom einnig fram sú
skoðun, að hafa bæri þennan
brúttóskatt i þrepum eftir laun-
um.
Tillagan um skattamál var i
niu töluliðum, og verður ekki
farið nánar út i umræður um
hana hér, en ályktunum þings-
ins verða gerð nánari skil þegar
þær hafa borizt blaðinu i endan-
legri mynd.
Rétt er þó að geta ályktunar
þingsins um kaupmátt launa,
sem samþykkt var i gær, en hún
hljóðar svo:
Þar sem viðskiptakjör
þjóðarinnar hafa á undanförn-
um mánuðum stórbatnað og allt
útlit er fyrir framhald þeirrar
þróunar, skorar 30þing BSRB á
rikisstjórn og Alþingi að gera
ráöstafanir til þess að kaup-
máttur launa verði þegar á
þessu hausti verulega bættur,
annað hvort með efnahagsráð-
töfunum eða beinni launahækk-
un.”
Við birtum hér nokkrar
myndir frá þinginu. sem ekki
hefur verið pláss fyrir ; blaðinu
þá daga sem þingið hefur
starfað. Þær þarfnast yfirleitt
ekki skýringa.
—hm
STÓRKOSTLEGUR
FJÁRHAGSVANDI
LAUNAFÓLKS
— Kjaramálin hafa
borið hæst á þessu
þingi og þar hefur
verið efst á baugi sá
stórkostlegi fjárhags-
vandi sem heimili
launafólks eiga við að
striða. Það er mál
dagsins í dag að úr
þessu verði bætt á
næstu dögum eða vik-
um. Það verður að
skera upp herör
meðal launafólks til
þess að skapa það al-
menningsálit sem Al-
þingi skilur. Það
verður, annað hvort
með efnahagsráð-
stöfunum eða öðrum
aðferðum að koma til
móts við launþega
Astandiðer þannig i dag, að
fólk biður eftir þvi aö forystu-
menn þjóðarinnar geri ein-
hverjar slikar ráðstafanir.
Meira aö segja atvinnurek-
endur eru farnir að halda þvi
fram ab launin séu of lág.
Þar sem samningar laun-
þegasamtakanna eru nú fastir
fram á næsta ár er það Alþingi
sem veröur að taka ákvörðun.
Og sú ákvörðun verður að tak-
ast i ljósi þess, að viðskipta-
kjör hafa stórbatnað að und-
anförnu og Þjóðhagsstofnun
spáir áframhaldandi bata.
Þess vegna er réttlátt að
brugðið verði við til að bjarga
heimilunum frá efnahagslegu
hruni, á sama hátt og Alþingi
framkvæmdi fjármunatil-
færzlu á sinum tima til að
bjarga við fjárhag fyrirtækja
landsins. Ég segi að sjálfsögðu
ekki að sú tilhögun hafi átt rétt
á sér á sinum tíma, en það
verður að sýna eitthvert sam-
ræmi i þessu máli og færa nú
fjármunina til baka aftur.
— Telur þú að inngangan i
Alþýðusamband Evrópu og
Alþýðusamband Norðurlanda
sé þýingarmikil fyrir BSRB?
— Já, þessi innganga er
mjög þýðingarmikið spor. Al-
þýðusamband Islands er aðili i
báðum þessum samtökum og
þar gætum við og ASÍ átt
þýðingarmikla samvinnu, eins
og raunar vonandi á fleiri
sviðum. Björn Jónsson forseti
ASÍ sagði i sinni ræðu við
setningu þessa þings, aö sam-
tök okkar þyrftu að snúa bök-
um saman. Þetta vil ég ein-
dregið taka undir. Þessi tvö
stærstu hagsmunasamtök is-
Valborg Bengtsdótlir kvað sér hljóðs á síðasta fundinum og kvað þetta þing verða hið siöasta sem hún
sæti. Hún heföi setió Otal mörg þing til þessa og kvaðst ekki nenna að vinna nægilega lengi til þess aö
öðlast seturétt á næsta þingi. Hún kvaddi þingheim með visu, sem fól það i sér að BSRB væri hollast aö
leita ráða hjá konum ef stjórnin lenti i vanda. Sagði raunar að þetta virtust menn hafa komið auga á,
þar sem konum hefði fjöigað úr tveim í sex istjórninni á þessu þingi
Dóra Ingvadóttir fuiltrúi Starfsmannafélags rikisútvarpsins notaði timann dyggilega á þinginu til að
prjóna. (AB-myndir: —hm)
Tveir af fulltrúum Sambands Isienzkra barnaskóiakennara.
lenzks launafólks ættu
sameiginlega að verða mjög
sterkt afl alþýðunnar i barátt-
unni fyrir bættum kjörum. Og
ég fullvissa fólk um það, að
vilji hefur komið fram hér á
þessu þingi, aö slikt verði.
— Ætla opinberir starfs-
menn aö beita þeim tak-
markaða verkfallsrétti sem
þeir hafa fengið i komandi
samningum?
— Ég vona sannarlega að
rikisvaldið sýni skilning á
kjörum okkar og stórbæti þau.
En verði svo ekki, er ekki um
annað að ræða en að beita
verkfallsréttinum. Opinberir
starfsmenn láta ekki bjóða sér
slik smánarlaun aftur.
—hm
Kristján Thorlacius