Alþýðublaðið - 15.10.1976, Blaðsíða 11
alþyou-
b!aöíó Föstudagur 15. október 1976
FRÉTTIR 11
Ólöf K. Harðardóttir
Fær styrk
til
söngnáms
- úr minningarsjóði
Kjartans
Sigurjónssonar
Nýlega var veitt úr minningar-
sjóöi Kjartans Sigurjónssonar
söngvara kr. 90.000, til styrktar
við söngnám ólafar K. Harðard.
söngkonu, sem nú stundar nám i
Vínarborg.
Minningarsjóöur þessi mun
vera um 30 ára gamall. Sjóðinn
stofnaði Bára Sigurjónsdóttir til
minningar um mann sinn er lézt
ungur aö árum frá söngnámi.
Aður hefur verið veitt nokkrum
sinnum úr sjóðnum til styrktar
söngvurum. Meðal styrkþega má
nefna Arna Jónsson, Erling Vig-
fússon, Sigurveigu Hjaltested og
Sigriði E. Magnúsdóttur. Allir
styrkþega hafa stundaö áfram-
haldandi söngnám erlendis.
Asamt umsókn um styrk verður
umsækjandi að senda inn með-
mæli, og tekur Bára Sigurjóns-
dóttir siðan ákvörðun um hver
styrkinn skuli hljóta.
Þeim sem styrkja vilja minn-
ingarsjóðinn er bent að snúa sér
til Báru Sigurjónsdóttur I
verzluninni hjá Báru, Hverfisgötu
50, R. Þar liggja frammi minn-
ingarspjöld, og einnig er tekið á
móti gjöfum á sama stað.
—AB
Starfsemi
Mjölnis f
miklum
blóma
Starfsemi skákfélags-
ins Mjölnis hefur verið
með miklum blóma und-
anfarið, og er nú vetrar-
starf að hefjast. Fyrir
skömmu gekkst skákfé-
lagið fyrir hraðmóti,
sem haldið var til fjár-
öflunar vegna væntan-
legrar komu stórmeist-
arans M. Taimanovs, en
hann mun væntanlega
þjálfa skákmenn á veg-
um félagsins. Þátttak-
endur voru um 30 tals-
ins, en sigurvegari varð
Magnús Sólmundarson.
Vetrarmót Mjölnis hefst mánu-
dagskvöldið 25. október n.k. en
þaö er einn af meginþáttum starf-
semi félagsins. Veröur teflt einu
sinni i viku, en mótinu lýkur
seinni hluta vetrar. A hraðskák-
móti, sem haldiö veröur mánu-
dagskvöldið 18. okt. veröur hægt
að láta skrá sig á vetrarmótiö.
Einnig má tilkynna þátttöku i
sima 42367 og 27320. öllum er
heimil þátttaka, og sama máli
gegnir um aöra starfsemi félags-
ins.
A fimmtudagskvöldum gengst
félagið fyrir svokölluðum ,,15
minútna mótum” i skákstofunni
við Hagamel og á laugardögum
sér það um unglingastarfsemi á
vegum æskulýðsráös i Fellahelli.
Þá mun Mjölnir taka þátt i
deildakeppni Skáksambands ís-
lands, eins og verið hefur.
JSS
N0RRÆN MENNINGARVIKA
í KÓPAV0GI
Leiksýningar, kvikmyndasýningar,
myndlistarsýningar, kvöldvökur,
fyrirlestrar og ráðstefnuhald
ÞráNdheimur
'ANGMAGSSALIK
TAMPERE
KLAKKSVÍK
marieham^
OHj
Á morgun hefst i
Kópavogi norræn
menningarvika.
Aðdragandi vikunnar
er sá, segir i frétt frá
framkvæmdanefnd
að á sl. ári bauð
Norræni menningar-
sjóðurinn i Kaup-
mannahöfn fram styrk
meðal sveitarfélaga á
Norðurlöndum, til þess
að efla kynningu á sviði
menningarmála þeirra
á milli.
Hlaut Kópavogs-
kaupstaður styrk frá
sjóðnum til þessa, og
fól bæjarstjórn Kópa-
vogs fulltrúum frá
Leikfélagi Kópavogs,
Lista- og menningar-
sjóði Kópavogs, Nor-
ræna félaginu i Kópa-
vogi og Tómstundaráði
Kópavogs að annast
framkvæmd og skipu-
lagningu vikunnar,
ásamt bæjarstjóranum
i Kópavogi.
Sú hugmynd kom fljótlega
fram, aö bjóöa vinabæjum
Kópavogs á Norðurlöndum
þátttöku i vikunni, og þáðu þeir
allir boðiö, en þeir eru Ang-
magssalik á Grænlandi, Klaks-
vik i Færeyjum, Mariehamn á
Alandseyjum, Norrköping i Svi-
þjóð, Odense i Danmörku,
Tampere i Finnlandi og Þránd-
heimur i Noregi.
Meginþættir menningarvik-
unnar verða sýning að Hamra-
borg 1 frá fyrrnefndum vina-
bæjum og ráðstefna i Félags-
heimili Kópavogs um tóm-
stundamálefni og hlutdeild
sveitarfélaga i þeim. Veröa
fyrirlesarar frá öllum vinabæj-
unum og kynna þeir framlag
sinna sveitarfélaga til tóm-
stundastarfsemi. Til ráöstefn-
unnar er boöið fulltrúum allra
félaga i Kópavogi, auk ýmissa
annarra. Ráðstefnan, sem er
opin almenningi til áheyrnar
eftir þvi sem húsrúm leyfir,
veröur á sunnudag.
Grafik sýning verður að
Hamraborg 1 (neöri sal) meö
verkum eftir listamenn frá
Norrköping, Odense og íslandi.
Sýning þessi er tilkomin vegna
samvinnu Lista- og menningar-
sjóðs viö Norrköpings Museum
og Fyns stiftmuseum i Odense
og hafa verkin veriö sýnd á
þeirra vegum i Norrköping og
Odense.
Ýmislegt annað veröur um aö
vera i vikunni i Félagsheimili
Kópavogs.
Laugardaginn 16. októberfrum-
sýnir Leikfélag Kópavogs verk
Williams Heinesens, „Glataðir
snillingar”.
Sunnudaginn 17. októberveröur
norræn kvöldvaka meö dagskrá
um Angmagssalik, Klaksvik,
Mariehamn og Kópavog.
Mánudaginn 18. október verður
kvikmyndasýning og sýnd
danska myndin „Man sku’være
noget ved musikken”.
Þriöjudaginn 19. október verður
norræn kvöldvaka meö dagskrá
um Norrköping, Odense, Tamp-
ere og Þrándheim.
Miövikudaginn 20. októbersýnir
leikflokkur Þjóðleikhússins
Inúk.
Fimm tudaginn 21. október
verður önnur sýning Leikfélags
Kópavogs á Glötuöum snilling-
um eftir William Heinesen.
Föstudaginn 22. október verður
seinni sýningin á dönsku kvik-
myndinni „Man sku’være noget
ved musikken”.
Mánudaginn 17. október flytur
Clifford Long fornleifafræöing-
urerindiá vinabæjarsýningunni
að Hamraborg I um fornleifa-
uppgröft i Þrándheimi.
I tengslum viö menningarvik-
una efnir Norræna félagiö i
Kópavogi til ritgerðarsam-
keppni um vinabæina meðal
skólanema i Kópavogifrá 11 ára
aldri.
Einstaklingar og félög hafa
gert sitt til að gera „Norrænu
menningarvikuna” i Kópavogi
mögulega. Þaö er von þeirra,
sem aö vikunni standa, að hún
megi verða til aö stuöla að
auknum kynnum og vaxandi
samvinnu hinna norrænu þjóða,
og er þvi ástæða til að hvetja
sem flesta til aö kynna sér þáð,
sem þar er boöiö fram.
KVIKMYNDA-
SÝNINGAR
Menningarstofnun
Bandarikjanna verður
með kvikmyndasýn-
ingar með nýju sniði i
vetur. Hverjum mánuði
verður tileinkað
sérstakt efni: t.d. i
oktober verða sýndar
myndir sem eru tengdar
dansi og tónlist -
nóvember verður um
kvikmyndagerð, og
desember um ferðalög.
Ennfremur verður sýnd aöra
hvora viku, biómynd tengd aðal
efni mánaöarins t.d. i okt veröur
sýnd „The Wisard of Oz” meb
Judy Garland — ein af frægustu
söngleikamyndum sem gerö
hefur veriö.
Myndirnar veröa sýndar alla
þriðjudaga kl. 17.30 og 20.30.
Aðgangur er ókeypis.
Dagskrá er sem hér segir:
Október
19. „The Wizard of Oz” (Judy
Garland)
26. „Classical Ballet”, „Dance
Theater of Harlem” og „Western
Symphony”
November
2 „Nanook of the North”
„Kinestasis”. „The making oof
Butch Cassidy and the
Sundance Kid”, og „White House
Festival of Art”
16 „Charlie Chaplin’s Essanay
Films”
23 „ART3 The Gift of Ourselves
og „Origins of the Motion
Picture”
30 „The Hustler” (Paul
Newman)
7 „So Sights of San Francisco”,,
„A Trail for All Seasons” og
„Yellowstone”
14 Those Magnificent Men in
Their Flying Machines
Innréttingabúðin
í nýtt húsnæði
Gítarskóli
Yamaha
Fyrir einu ári hóf Orgelskóli
Yamaha starfsemi sina. Kennir
hann eftir sérstöku kerfi, sem
byggist á þvi, aö nemandinn sjái
sjálfur sem fyrst árangur af nám-
inu og öðlist sem fyrst leikni til aö
geta leikiö sjálfstætt á hljóöfæriö.
A bessu eina ári hafa hátt á
fimmta hundrað nemendur öðlazt
fyrstu leiðsögn i hljómlistarnámi
með ágætum árangri.
Nú mun Gitarskóli Yamaha
hefja starfsemi sina. Forstöðu-
maður þess skóla er Kjartan
Eggertsson gitarkennari. Mun
hann kenna eftir hinu þaulreynda
Yamaha-kerfi þar sem allt nám
og öll vinna fer fram I litlum hóp-
um, þvi þar er auðveldara að
nema frumatriði tónlistarinnar.
Stjórnandi hvers hóps er tónlist-
arkennari, sem hlotiö hefur sér-
þjálfun fyrir Yamaha-kerfið.
Hann skipuleggur samvinnuna og
vinnur með hverjum einstökum
þátttakanda. Kennt verður eftir
sérstakri Yamaha-kennslubók i
gitarleik, sem nýkomin er út á is-
lenzku. Er hún að mestu leyti
þýdd eftir norskri kennslubók,
sem starfað hefur verið eftir I
mörg undanfarin ár.
Innréttingabúðin, sem
undanfarin 9 ár ( frá
stofnun) hefur verið til
húsa að Grensásvegi 3,
hefur nú flutt starfsemi
sina að Grensásvegi 13,
sem er nýbygging á
horni Miklubrautar og
Grensásvegar.
Hin nýja verzlun, sem er i alla
staöi hin glæsilegasta, er senni-
lega stærsta sérverzlun landsins
meö gólfteppi. Þar má velja á
milli rúmlega 70 mismunandi
gerða og lita af gólfteppum af
breiðum rúllum, sem sýndar eru
á rafknúnum sýningarstöndum
og dregnar fram á gólfið ef óskaö
er.
Innréttingabúðin hefur ávallt
kappkostaö aö veita viöskipta-
vinum sinum fyrsta flokks þjón-
ustu og mun það kjörorö áfram i
hávegum haft. Vanir teppalagn-
ingamenn annast ásetningu gólf-
teppa frá verzluninni.
Aðgangur allur aö verzluninni
er auðveldur og i þvi sambandi
flyzt
hefur m .a. verið hugsað fyrir þörf
fatlaðra til aö komast i verzl-
unina. Bygging þessa mikla húss
tók aðeins 15 mánuöi.
Forstjóri Innréttingabúðar-
innar er Viðir Finnbogason, en
framkvæmdastjóri er Jón' H.
Karlsson.
— ATA.
Jón H. Karlsson, framkvæmdastjóri, Vilhjálmur Þórhallsson,
byggingarstjóri, og Viðir Finnbogason, forstjóri, fyrir framan nýja
húsnæöi Innréttingabúöarinnar.