Alþýðublaðið - 01.12.1976, Blaðsíða 1
I
1
(
\*
Engin hækkun á landbúnaðarvörum í dag
Nokkur atriði sem þarf að skoða betur, segir landbúnaðarráðherra
Það verður engin
verðhækkun á landbún-
aðarafurðum þann 1.
desember, eins og gert
var ráð fyrir, sagði
Agnar Guðnason hjá
Framleiðsluráði land-
búnaðarins, þegar Al-
þýðublaðið hafði sam-
band við hann i gær.
Hið nýja verð á landbúnaðar-
vörunum átti að taka gildi á
morgun, þ.e. 1. desember, þar
sem siðasta hækkun varð 1.
september siðastliðinn. Hefði
mátt gera ráð fyrir að hækk-
unútsöluverðs yrði á bilinu 6-8,
sem reiknaðist inn i verðlags-
grundvöll búvara.
Eftir hádegi i gær kom rikis-
stjörnin saman til að ræða mál-
ið, og þá var ákveðið að engin
veröhækkun yrði aö svo stöddu.
Hins vegar hyggst rikisstjórnin
taka verðhækkunina aftur til
umfjöllunar næstkomandi
þriðjudag, en verð á landbúnað-
arvórum, verður semsagt
óbreytt til þess tima.
Alþýðublaðið náði tali af Hall-
dóri E. Sigurðssyni landbúnað-
arráðherra og sagði hann að
ekki væri búið að ganga endan-
lega frá verðhækkuninni enn.
,,Það eru ýmis atriði, sem
þarf að skoða betur, áður en
nokkuð er ákveðið, sagði ráð-
herra, og þvi verður engin
hækkun á landbúnaðarafurðum
að svo stöddu.
—JSS
Setinn bekkurinn á Keflavíkurflugvelli:
FJÓRAR RISAÞOTUR A VELLIN-
- auk fjögurra íslenzkra þota
Undanfarna daga hafa
nokkrar jumbóþotur frá er-
lendum f lugfélögum komið við
á Keflavikurflugvelli til að
kaupa eldsneyti. Astæðan er
sú, að einhvers konar hæga-
gangsaðgerðir eru i gangi á
Lundúnaflugvelli og þvi erfitt
að fá eldsneytiþar
1 gær gerðist svo það, að
fjórar slikar flugvéiar voru
samankomnar á Keflavikur-
flugvelli, og hafa þær aldrei
^____
verið þar fleiri i einu, að sögn
Boga Þorsteinssonar, flugum-
ferðarstjóra. Auk þess kom sú
fimmta siðar um daginn, en
þá var ein hinna farin. Einnig
voru þarna staddar Boeing-
þotur Flugfélags tslands og
tvær DC-8 þotur frá Loftleið-
um, þannig að bekkurinn var
þétt setinn þar syða.
Nokkur vandræði eru með
að koma fólki frá þessum risa-
vélum, þar sem ekki eru til
nægilega langir stigar fyrir
þær á flugvellinum og verður
að nota venjulega stiga með
framlengingu. Hins vegar
tjáði Bogi okkur, að litið hefði
verið um að farþegar þessara
véla færu inn i flughöfnina,
þar sem timínn, sem þvi gefst
til þess, er svo stuttur.
Lendingargjöld fyrir er-
lendu vélarnar einar munu
hafa verið um ein milljón
króna. —hm.
MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER
|MtstJ6rn Sföumúla II - Sfml
Múrarafélagið mót-
mælir misrétti og
valdaníðslu ASI
- telur slík vinnubrögð ekki hæfa
samtökum launþega
Múrarafélag
Reykjavikur hefur
samþykkt að mótmæla
harðlega misrétti og
valdniðslu, sem mið-
stjórn ASÍ hefur sýnt
gagnvart inntökubeiðni
Múrarasambands ís-
lands i ASÍ frá 18. sept.
1973.
Inntökubeiðnin hefur ekki
fengist afgreidd fyrr en 18. nóv.
1976, og þá er beiðninni hafnað á
þeirri forsendu að hún stangist á
við lög ASI. Múrarafélagið telur
þar tylliástæð ella hefði hún átt
að koma fram strax og leggjast
tafarlaust fyrir félagsdóm.
Múrarafélagið itrekar einnig
mótmæli félagsfundar frá 29.
nóv. 1972 vegna þeirrar ólýð-
ræðislegu meðferðar sem kjör-
bréf fulltrúa Múrarafél. Rvk.
fengu á 32. þingi ASI 1972, sem
leiddi til þess að fulltrúar fé-
lagsins gengu af þingfundi eftir
að hafa setið á þriðja dag án at-
kvæðisréttar.
Slik vinnubrögð eru ekki
sæmandi hjá þeim aðilum sem
stjórna heildarsamtökum laun-
þega i landinu, segir i frétt frá
Múrarafélaginu.
—AB
Sterkur
Nú hefur Alþýðusambands-
þing staðið i tvo daga. Setn-
ingarfundurinn fór fram i Há-
skólabiói i fyrradag. Það var-
virðuleg athöfn þar sem jafn-
framtvar fluttur stefnumark-
andi boðskapur.
Kjarninn i stefnuræðu for-
seta Alþýðusambandsins var
sá, að nú væri nóg komið.
Verkalýðshreyfingin hefði
reynt að koma til móts við við-
semjendur sina, atvinnurek-
endurog rikisvald. Þetta hefði
þvi verið varnarbarátta.
Björn Jónsson sagði að nú
væri þessari varnarbaráttu
lokið. Frámundan væri sókn
og verkalýðshreyfingin mundi
standa einhuga að þvi að lyfta
lægstu launum upp úr þeirri
smánarlegu stöðu sem þau
væru i.
Forseti Alþýðusambandsins
sagði: „Mikilvægasta verk-
efni þessa Alþýðusambands-
þings hlýtur að vera það, að
fjaila um þá stórfelldu lifs-
tónn frá
kjara-og launaskerðingu, sem
orðið hefur hjá islenzku
verkafólki til sjós og lands á
siðustu tveim, þrem ,árum.
Einnig að undirbúa gagnsókn
verkalýðshreyfingarinnar
fyrir endurheimt þess, sem af
henni hefur verið hrifsað sið-
ustu árin og sem varnarbar-
átta hreyfingarinnar hefur
ekki megnað að hindra á þessu
timabili.”
Það verður varla sagt að
það andi hlýju frá forystu Al-
þýðusambands Islands til
rikisstjórnarinnar, enda engin
ástæða til. Meðal fulltrúanna
er einnig megn óánægja með
stanzlausa lífskjaraskerðingu
og stjórnleysi i fjármálum.
Það má þvi ef til vill segja að
verkalýðshreyfingin hafi sýnt
langlundargeð.
Nú verður ekki annað séð en
að verkalýðshreyfingin hygg-
ist gripa til sinna ráða og
krefjist þess að vinnandi fölk
fái greidd viðunandi laun.
Þetta er tónninn, sem al-
menningur hefur fengið frá
Alþýðusambandsþingi að heldureinnig af þeim umræð- Sjá fréttir af þinginu bls. 8
þessu sinni, ekki aðeins af um, sem fram hafa farið á og 9.
setningarræðu forseta ASl þinginu þessa tvofyrstu daga. b.J.
Alþýðusambandsþingi