Alþýðublaðið - 01.12.1976, Blaðsíða 9
iWlÝrtll)
Miðvikudagur 1. desember 1976
s
Miðvikudagur 1. desember 1976
alþýöu-
'hlaöiö
VERKALÝDSMÁL 9
F ALÞYÐUSAMBANDSÞINGi
,,Held þetta verði
kröftugt þing''
— sagði Guðjón Jónsson
AF ALÞYÐUSAMBANDSÞINGi
Guöjón Jónsson, formaöur Fé-
lags járniönaðarmanna sagöi,að
það væri ýmislegt setn væri að
brjótast um i hugum fólks. „Þessi
umbrot geta leitt til góðs,” sagði
Guðjón, ,,Og þannig gæti þetta
þing og þaö sem hér er að gerast,
orðiö til þess aö efia starfið og
færa nýjan kraft i baráttuna.”
Guðjón sagði, að kjaramálin
væri mál númer eitt, fyrst og sið-
ast.
Hann lagði einnig áherzlu á
að ákveðin hæta fylgdi þvi að skil-
greina launahópa eftir starfs-
greinum. Sagði Guðjón að hér
ætti auðvitað að ganga úr frá um-
sömdum kauptöxtum.
Guðjón sagðist vera ánægður
með þingið og upphaf þess. „Eg
held að þetta verði kröftugt þing
og við þurfum þess með,” sagði
Guðjón Jónsson að lokum.
Björgvin Sigurðsson.
Þjóðstjórnarsam
vinnan í Alþýðu
sambandinu
Björgvin Sigurðsson, forseti Al-
þýöusambands Suðurlands, sagði
á Alþýöusambandsþingi í gær, að
þjóöstjórnarsamvinnan I Alþýðu-
sambandinu virkaði deyfandi á
öll störf þess.
„Það er nauðsynlegt að gera
hlut láglaunafólks meiri heldur
en hann er,” sagði Björgvin Sig-
urðsson. Hann sagði að mikil þörf
væri á að gera samband hins al-
menna félaga við miðstjómina
sterkara og nánar.
„Þettaerpólitísktstarf sem við
erum að vinna og þess vegna fer
ekki hjá þvi að verkalýðshreyf-
ingin taki pólitiskar ákvarðanir,”
sagði Björgvin.
' \
Vv'
1 ■ V :
lV' v-r''
Ólafur Hannibalsson.
Margrét Auðunsdóttir
Það þarf að
ókveða lóg
markslaun
„Þetta eru grundvallaratriði,
sem menn verða að skilja og þess
vegna er nauðsynlegt fyrir verka-
lýðshreyfinguna að ná sem
mestri pólitiskri samstöðu,”
sagði forseti Alþýðusambands
Suðurlands þegar blaðamaður
Alþýðublaðsins ræddi stuttlega
við hann á Hótel Sögu i gær.
Margrct Auðunsdóttir, fyrrvcr-
andi formaður Sóknar og núver-
andi miðstjórnarmaður, sagði, að
sér hefði fundist setning þingsins
takast mjög vel og allt fara þar
virðulega fram. „Dagurinn i gær
skilaöi mikilli vinnu,” sagði Mar-
grét. „Annars veit ég ekki hvort
þetta þing verður eitthvað öðru-
vísi en hin. Og þó. Þaö á að ræða
um stefnuskrána. Og þetta er
pólitisk stefnuskrá, sú fyrsta frá
þvi Alþýðusambandið og Aiþýðu-
flokkurinn voru eittog hið sama.”
— Er eitthvað meira um rót-
tækar raddir nú en áður?
„Nei, þaðheld ég ekki. Róttæk-
ar raddir hafa alltaf verið á Al-
þýðusambandsþingi og ég vona
að svo verði áfram,” sagði Mar-
grét Auðunsdóttir.
„Það er mikið talað um lág-
launahópa og Island sem lág-
launasvæði. Lifsgæðakapphlaup-
ið heldur áfram, fólk vill þetta og
fólk vill hitt og samt erum við
með lægstulaun sem þekkjast. Ég
held að þetta ástand stafi ekki
bara af þvi að við höfum slæma
rikisstjórn. Ég held að sökin liggi
einnig hjá okkur sjálfum,” sagði
Margrét Auðunsdóttir. V
Margrét sagðist vera san|ifærð
um að nauðsynlegt væri að ná
samstöðu um ákveðin lágmlarks-
laun. „Við þurfum að gera þajð að
stefnuskrárkröfu að sett jyerði
lágmarkslaun. Þetta tekst ein-
ungis með þvi að verkalýðshreyf-
ingin standi einhuga saman.”
Margrét sagðist telja,að ef ekki
næðist samstaða um þetta mundu
sterku hóparnir halda áfram aö
fá sinu framgengt, en þeir sem
verst stæðu yrðu undir.
„Ef verkalýðshreyfingin verö-
ur ekki fyrri til þá mun ihaldið ná
undirtökunum og setja lágmarks-
laun,” sagði Margrét. „Þaðer
þess vegna nauðsynlegt að verka-
lýðshreyfingin haldi vöku sinni og
krefjist þess skijj ðislaust að sett
verði lágmarkasiun.”
Hefur farið
vel af stað
Ólafur Hannibalsson, skrif-
stofustjóri ASÍ, var mjög ánægð-
ur með upphaf þingsins. „Ég held
að þetta hafi farið nokkuð vel af
stað,” sagði Ólafur, en benti jafn-
framt á að margar hendur hefðu
unnið mikið og gott starf við und-
irbúning þingsins.
Þegar blaðamaður spurði Ólaf
hvort nokkuð sérstakt hafi borið
til tiðinda fyrsta dag þingsins
nefndi Olafur allsherjaratkvæða-
greiðsluna um Múrarasamband-
ið.
Það var Pétur Sigurðsson frá
Sjómannafélagi Reykjavikur,
sem óskaði eftir allsherjarat-
kvæðagreiðslunni, en eins og áður
segir var aðild Sambandsins felld
með 30.625 atkvæðum gegn 10.900.
Eitt félag var tekið inn i ASÍ, en
það er Félag leiðsögumanna..
Enginn ágreiningur varð um inn-
töku þess félags.
Forsetar þingsins voru kjörnir
Eðvarð Sigurðsson, Karl Steinar
Guðnason og Auður Torfadóttir,
en ritarar þau Gretar Þorleifs-
son, Hafnarfirði, Björk Thomsen,
VR.,Hannes Helgason Trésmiða-
félagi Reykjavikur og Halldóra
Sveinsdóttir, Sókn.
Sigfinnur Karlsson, Guðjón Jónsson og fleiri
Það á ekki að beita
láglaunafólki
fyrir vagninn
Sigfinnur Karlsson var i ræðu-
stól þegar blaðamaður og Ijós-
myndari Alþýðublaðsins litu inn á
Aiþýðusambandsþing I gærmorg-
un.Sigfinnur var að senda fram-
sóknarmönnum tóninn. Hann
sagði að það væri eitt dálitið sér-
stakt með framsóknarmenn og
það væri að það væri aldrei hægt
að treysta þeim. Þeir hefðu tckiö
þátt i rikisstjórnum til hægri og
vinstri, cn hlaupið af hólmi þegar
þeir hefðu talið sér það hcppilegt.
Þegar blaðam. spurði Sigfinn
hvort hann teldi ekki að einhverj-
ir „réttlátir” kynnu að finnast i
röðum framsóknarmanna, brosti
hann við og sagði: „Jú auðvitað
finnast þar lika ýmsir ágætis
menn.”
Það var auðheyrt á umræðun-
um i gærmorgun að stjórnmálin
voru komin á dagskrá. Yfirgnæf-
andi meirihiuti þingfulltrúa litur
svoá.aðá tslandi sitji nú duglaus
og mjög slæm rikisstjórn.
En meðal fulltrúa á Alþýðu-
sambandsþingi eru einnig raddir
sem eru að burðast við að réttlæta
gjörðir stjórnarinnar. En allar
eruþærmeira ogminna hjáróma.
„Ég held að þetta þing verði
mjög mótandi fyrir nýja stefnu i
kjaramálunum,” sagði Sigfinnur.
„Það á ekki að beita láglauna-
fólki fyrir vagninn til þess að
draga alla aðra upp. Ég er á móti
sliku,” sagði Sigfinnur Karlsson,
forseti Alþýðusambands Austur-
lands.
Sigfinnur sagði að raddir fólks-
ins utan af landi hefðu ekki heyrst
nógu vel. „Þetta fólk hefur ýmis-
legt tilmálanna aðleggja, og þeir
sem stjórna hafa gott af þvi að
hlusta á hvað þetta fólk hefur að
segja.”
„Það er þó alger misskilningur
að stjórn Alþýðusambandsins
hafi á einn eða annan hátt brugð-
ist láglaunafólki. En það þarf
meira samband og meiri skiln-
ing.”
Ásmundur Stefánsson meö starfsfólki þingsins.
Undirbúningsstarf-
ið í fullum gangi
Undirbúningurinn fyrir 33. þing
Alþýðusambandsins hefur staðið
yfir allt frá þvi i sumar. Hagræð-
ingarnir Bolli Thoroddsen og Sig-
urþór Sigurðsson éru hér við störf
ásamt Sigurði Guðgeirssyni,
starfsmanni hjá Dagsbrún.
Það er t.d. ekki svo litil vinna i
þvi að koma 390 fulltrúum fyrir i
Súlnasalnum. Á borðunum má
lesa nöfn þeirra verkalýðsfélaga,
sem þar eiga fulltrúa Þarna má
sjá nöfn eins og Félag mat-
reiðslumanna, Bilst jórafélag
Rangæinga, Verkamannafélagið
Fram, Sauðárkróki, Verkalýðsfé-
lag Stykkishólms, Verkamanna-
félagið Hlif, Hafnarfirði og
Verkakvennafélagið Snót, Vest-
mannaeyjum.
Sum þessara félaga eiga marga
fulltrúa á þinginu, eins og t.d.
Verzlunarmannafélag Reykja-
vikur, sem telur 6.429 félags-
menn, Dagsbrún með 3.814 og
Iðja i Reykjavik með 2.627 félags-
menn.
Þegar allsherjaratkvæða-
greiðsla fer fram á ASl þingi
þurfa starfsmenn þingsins að
hafa sig alla við. Að visu hafa öll
gögn verið útbúin fyrirfram, en
samt er mikið stúss og stapp i
kring um þetta allt saman, sögðu
þeir Bolli og Sigurþór.
Vægihvers félags er i samræmi
við félagaf jölda og er lægsta vægi
25 en hámarksvægi 175. Vægið er
reiknað út með þvi að deila fjölda
fulltrúa i félagafjölda og hleypur
vægið á tölunni 25.
Þannig eru t.d. VR, Dagsbrún
og Iðja i Reykjavik öll með há-
marksvægi 175. VR. er með 35
íulltrúa, Dagsbrún með 22 og Ið.ja
16. Ef litið er á þetta frá hinni
hliðinni er t.d. Bilstjórafélag
Rangæinga með lágmarksvægið
25, einn fulltrúa, en félagar i þvi
félagi eru einnig 25 talsins. Bók-
bindarafélag Islands er með 159
félagsmenn og tvo fulltrúa. Vægi
þess félags við allsherjarat-
kvæðagreiðslur er 75.
Það sem hér hefur verið sagt
frá er tiltölulega einfalt. En það
er langt frá þvi að það sé auðvelt
að vinna úr svona uppsetningu
þótt við hendina séu bæði hag-
fræðingarog mikill fjöldi annarra
góðra starfskrafta.
Og svo er það skrifstofustjóri
ASt, Ölafur Hannibalsson. Hann
er búinn að vera á eiiifum þönum
út af undirbúningi þingsins. Hann
hefur einnig orðið að hafa ofanaf
fyrir, og aðstoða. erlendu fulltrú-
ana, sem mættir eru á þinginu.
Einnig hefur komið i hans hlut að
veita ýmiss konar almennar upp-
lýsngar, bæði til fulltrúanna utan
af landi og svo auðvitað til forvit-
inna fréttamanna, sem áhuga
hafa á störfum þingsins.
1 einum hliðarsal á annarri h.æð
HótelSögu rákust blaðamaður og
Ijósmyndari Alþýðublaðsins á
hóp manna, sem unnu við frágang
gagna til þingfulltrúa.
Þarna mátti sjá, auk Asmundar
Stefánssonar, hagfræðings ASt,
þau: Auði Styrkársdóttur, Björn
Björsnsson, Úlfar Hjörvar, Berg-
ljótu Stefánsdóttur og Kristinu
Mantyla. Þarna var greinilega
allt á fullu og ekki ástæða til að
tefja mannskapinn frá þvi að
koma út skýrslum, ræðum og öðr-
um gögnum þingsins.
“ya ■
Bolli Thoroddsen, Sigurþór Sigurðsson og Sigurður Guogeirsson.
Myndir: Axel T. Ammendrup