Alþýðublaðið - 15.12.1976, Side 4
4SJ0NJUÍMIÐ
Miðvikudagur 15. desember 1976 biattið*
Sinfóníuhljómsveit íslands
TÓNLEIKAR
i Háskólabiói fimmtudaginn 16. desember kl. 20.30.
Stjórnandi: GUNNAR STAERN
Einleikari IB LANZKY-OTTO
Efnisskrá:
Dvorak — Karneval, forleikur op. 92.
Hindemith — Konsert f. horn.
Mozart— Konsert nr. 2 f. horn KV 417
Schumann — Sinfónia nr. 4
Aðgöngumiöar i BókabúO Lárusar Blöndal og Bóka-
verzlun Sigfúsar Eymundssonar.
1111 SlNK)\íl’l IL|Ö.MS\ FII jSLANDS
f||| mKISHWHHD
L
Nýtt frá Alafoss
Væröarvoö veiöimannsins
m\Ð URVAL Q
^ÆRÐARVOÐA, gÉ
I.A. VÆRÐARVOÐ i||nfOSC
IESTAMANNSINS VESTURGÖTU 2
ÚTBOÐ
HITAVEITA SuÖUrnesja óskar eftir til-
boðum i lagningu Njarðvikuræðar.
tJtboðsgögn verða afhent á skrifstofu
Hitaveitu Suðurnesja, Vesturbraut 10A,
Keflavik og á verkfræðistofunni Fjarhitun
h.f. Alftamýri9, Reykjavik gegn 20.000 kr.
skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Hita-
veitu Suðurnesja föstudaginn 14. janúar
1977 kl. 14.00.
Alþýðublaðið mun næstu daga birta
greinaflokk, sem unninn hefur verið
af nefnd á vegum Landssambands
islenzkra barnaverndarfélaga.
Greinarnar fjalla um leikföng og
þroska — og eiga erindi til foreldra
,og annarra uppalenda og ættu að
koma að góðu gagni i kauptið
jólanna.
1 nefndinni, sem vann þessar
greinar, áttu sæti: Guðrun Ásgríms-
dóttir, fóstra, Rúna Gisladóttir,
kennari og Þórir S. Guðbergsson,
félagsráðgjafi. BS
Leikþörf og þroski barnsins
Litla barniö i vöggunni
hreyfir I sifellu handleggi og
fætur fram og aftur, upp og
niður. í fyrstu eru hreyf-
ingarnar fálmkenndar og
óöruggar, en þó eru þær góð
þjálfun fyrir smávaxna
vöðvana. Siðar verða hreyf-
ingarnar markvissari, barniö
fer að rannsaka eigin likama
sinn, t.d. með þvi að stinga
fingrum og tám upp I munninn
og sjúga. Það margendurtekur
þessar rannsóknir, og þær verða
einskonar leikur. Um svipað
leyti fer það einnig aö geta
gripið utan um og haldið á leik-
föngum. Smám saman vex
barnið og þroskast, fæturnir
fara að bera barnið — og allan
timann gegna augun og eyrun
mikilvægu hlutverki.
Leikirnir og leiktæknin veröur
flóknari, barnið lærir af
reynslunni og teygir sig æ
lengra I athugunum og at-
höfnum sinum. Þegar barniö
sjálft er orðið fært um að ná sér
i hluti og þreifa á þeim, kremja
þá, sleppa, kasta, fikta og
benda, vaknar rannsóknar- og
leikþráin fyrir alvöru.
Leikurinn er lif barnsins.
Barnið leikur sér vegna þess að
það hefur þörf á þvi, bæði til
þess að þjálfa gróf- og
fin-hreyfingar, til að þroskast
tilfinningalega, félagslega og
greindarfarslega. Leikurinn
eykur hugtakaskilning
barnsins, og hreyfingar við
leikinn þjálfa vöðva barnsins og
samæfa þá, þannig aö barnið
nær smám saman valdi yfir
hreyfingum sinum. Mikilvægt
er, að barnið þjálfi færni sina I
aðstæðum, sem það skapar
sjálft.
Endurtekningin er mjög
mikilvæg fyrir barnið. Dr.
Simon Jóh. Ágústsson segir I
bók sinni Leikir og leikföng:
„Klaufaskapur, fákunnátta og
misheppnun, sem hafa myndu
hættulegar afleiðingar I þjóð-
félagsllfinu, hafa engin slík
eftirköst I leikjunum. Þar fær
barnið tækifæri til þess að æfa
sig og gera tilraunir, leiðrétta
sig og afla sér nytsamlegrar
llfsreynslu á mörgum sviðum,
án þess að þessi reynsla verði
þvl of dýrkeypt. Leikirnir hafa
aðallega uppeldisgildi vegna
þess, að þeir æfa ýmsa hæfi-
leika: Þeir hafa aðallega
æf ingargildi. Aðalatriöi
leikjanna er ekki árangurinn
eða verkið, heldur sú æfing og
færni, sem þeir veita.”
Litum á litla barnið, sem
reynir að stinga kubbi niður um
gat af sömu stærð. Það snýr
kubbinum og ýtir á eftir honum,
snýr honum aftur, þar til þvl
tekst að' koma honum rétt I
gegn. En það lætur ekki við svo
búið standa. Það hafði gaman
af, og þess vegna endurtekur
það leikinn, enn og aftur.
Þegar hingað er komiö þarf
líkast til ekki að nota sterk orð
um það, hvert gildi leikfangið
hefur. 1 stuttu máli: Það er til
þess ætlað að mæta athafna- og
rannsóknarþrá barnsins. Það er
eins konar hjálpargagn I ómeö-
vitaðri eftirsókn barnsins eftir
þroska og þjálfun. Og ekki
aðeins hjálpargagn, heldur snar
þáttur í heimi barnsins. Þess
vegna er að sjálfsögðu mikil-
vægt, að leikföng barnsins séu
valin af kostgæfni en ekki af
handahófi.
Næstu greinar I þessum
flokki munu fjalla um leikföng
og leikþörf barna I hverjum
aldursflokki, og þá hvaða leik-
föng henta á hinum ýmsu
þroskaskeiðum.
Höfum hugfast: Leikur er
nám með jákvæðu móti. Barnið
lærir með leiknum að þekkja
sjálft sig, umheiminn, bæði
menn, hluti og aöstæður úr dag-
lega llfinu. Barniö er óþreytandi
við að setja á svið atvik og at-
burði I leik sinum. Og hver
leikur er lærdómur, ný reynsla
og ávinningur fyrir barniö.
Leikurinn gefur barninu tæki-
færi til að nota andlega hæfi-
leik sina við að endurskoöa og
skilja eigin afstöðu. Mikilvægt
er, að barnið hafi gott svigrúm
til að athafna sig I leik slnum,
góða möguleika á frjálsum leik,
þvl að hann skapar barninu
tilfinningafullnægju, gefur tak-
markalausa möguleika til mál-
þjálfunar, útrás fyrir hugsanir
og fmyndanir, og hann er
hreinlega mjög mikilvægur
þáttur til þess að mynda
persónuleika barnsins.
Þaö er því mikil alvara sem
fylgir leik barna, og markmið
þeirra I leik er oft engu minna
virði en I störfum fullorðinna.
Stuðlum að heilbrigðum og
óþvinguðum leik barna okkar.
Hringið til okkar
og pantið föst '■
hverfi til að
selja blaðið í-
Alþýðublaðið -
afgreiðsla
sími 14900
#
SAFNRIT
GUÐMUNDAR
BÖÐVARSSONAR
I—VII
Heildarútgáfu á verkum
Guðmundar Böðvarsson-
ar er lokið. Sjö bindi í
samstæðri útgáfu. Frá-
söguþættir og Ijóð.
Safnritið skipar nú þegar
heiðurssess á mörgum
heimilum.
Þarft þú ekki að eignast
það líka?
Ný bók
eftir a
Jóhann Hjálmarsson 2T
DAGBÓK 5
BORGARALEGS a
SKÁLDS £
Hrífandi skáldskapur, 5
sem allir skilja, gæddur?
góðlátlegri kímni. Fjallar1®
m.a. um umhverfi®
skáldsins í Reykjavík. ®
Hinn kunni listamaðurS
Alfreð Flóki
myndskreytti bókina.
HÖRPUÚTGÁFAN®