Alþýðublaðið - 21.01.1977, Síða 9
FRÉTTIR 9
ssssr Föstudagur 21. janúar 1977.
íslendingar duglegir við tékkaskriftir:
147 ÞÚSUND TÉKKAR ÚTGEFNIR SÍÐ-
USTU TVO DAGA DESEMBERMANAÐAR
- Áætlað framleiðsluverð á hverju ávísanablaði 23 krónur
Sam vinnunefnd banka og
sparisjóöa auglýsti i gær hækk-
un á verði tékkhefta. Kosta 25
blaða hefti hér eftir kr. 375, en 50
blaða hefti kr. 750. Hækkuninni
er ætlað að stuðla að breyttri
notkun ávísana, þannig að menn
dragi úr útgáfu ávisana með
lágum upphæðum og þannig
fækki ávisunum i umferð.
Samvinnunefnd banka og spari-
sjóða gerði könnun á dreifingu
bókfærðra tékka á Reiknistofu
bankanna dagana 30. og 31. des-
ember 1976 og kom i ljós að
hvorki meira né minna en 19%
tékkanna voru útgefnir á lægri
upphæb en kr. 500! Samanlagð-
ur fjöldi ávisa þessara er 18.646,
þannig að ljóst er að áköf
ávisanaútgáfa veldur starfs-
fólki bankanna miklum erfið-
leikum I reikningshaldi. Islend-
ingar virðastmikiltékkaþjóð, ef
dæma má af ótrúlegum fjölda
ávisana sem þeir skrifa daglega
— oft meira af kappi en forsjá.
Þannig var samanlagður fjöldi
útgefinna tékka þessa tvo sið-
ustu daga siðasta árs 142.921!
Prentkostnaður ávis-
ana mikill
Björn Tryggvason formaö-
ur Samvinnunefnda banka og
sparisjóða sagði i samtali við
Alþýðublaðiö, að áætlaður
prentunarkostnaður eins 25
blaða tékkheftis væri kr. 575 eða
23 kr. pr. eyðublað. Þegar
heftin kostuöu 150 kr., eða 6 kr.
per blað, var bilið á milli fram-
leiðslukostnaðar og söluverös
afar breitt.
Samkvæmt nýju
gjaldsklránni kostar hvert eyðu-
blað 19 kr., þannig að enn vant-
ar 4 krónur upp á að reiknings-
hafi greiði að fullu framleiðslu-
kostnaðinn á ávisunum sem
hann notar.
—ARH
SAMVINNUNEFND BANKA OG SPARISJÓDA
DREIFING TÉKKAUPPHÆDA BÓKFÆRDRA TÉKKA HJÁ REI
ÁViSANAREIKNINGAR
VIKMÖRK UPPHÆDA FJÖLDI TEKKA %
0 - 500 18.696 19.0
501 - 1.000 15.356 15,6
1.001 - 2.000 15. W6 15,9
2.001 - 3.000 8.579 8,7
3.001 - (1.000 9.812 5.0
9.001 - 5.000 5.873 6.0
5.001 - EDA MEIR 29.759 30,3
98,166 100 l
ISTOFU BANKANNA DAGANA 30. OG 31.' DESEMBER 1976
HLAUPAREIKNINGAR FJÖLDI TEKKA 7 SAMTALS FJÖLDI TÉKKA 7
3.392 6,9 21.988 15,0
2.256 9,6 17,612 12,0
2.992 6,0 18.088 12,3
2.192 9,9 10.716 7,3
1.993 3.1 6.305 9.3
1.573 3.2 7.996 5.1
35.007 71.8 69.766 99,0
98.755 100 l 196.921 100 l
Kven rétti ndaf élag
Islands minnist 70
ára afmælis síns
Kvenréttindafélag ís-
lands verður 70 ára 27.
janúar n.k. Þá mun fél-
agið efna til fundar um
skattamálin, þar sem
sköttun hjóna verður
sérstaklega tekin fyrir
en einnig önnur atriði
skattafrumvarpsins.
Sólveig ólafsdóttir
formaður Kvenréttinda-
félags Isiands sagði i
viðtali við Alþýðublaðið
i gær, að félagið mundi
minnast þessa merkis-
afmælis með þvi að boða
til umræðufundar um
skattafrumvarpið með
aðilum vinnumarkaðar-
ins.
Sagði Sólveig að
Kvenréttindafélag Is-
lands hefði boðið átta
aðilum að taka þátt i
þessum umræðum og
senda fulltrúa.
Þeir eru: Alþýðusam-
band íslands, BSRB,
BHM, Stéttarfélag
bænda, Vinnuveitenda-
samband íslands, Kven-
félagasamband íslands,
Jafnréttisráð og Fjár-
málaráðuneytið. —BJ
Ráðherra skipar nefnd:
Athugar rekstur og
þjónustu flóabátanna
Samgönguráöherra hefur skip-
að nefnd til að gera athugun á
rekstri og þjónustu flóabátanna.
Nefndin skal athuga reikninga
bátanna.sérstaklega hvaö varðar
launagreiðslur og annan út-
gerðarkostnað, svo og hvort
tekjustofnar þessara abila séu
eðlilegir miðað viö tilkostnað.
Jafnframt er nefndinni faliö að
kanna möguleika á endurskipu-
lagningu samgangna til og innan
einstakra svæða i þvi skyni að
ná sem ódýrastri tilhögun
flutninga fyrir samfélagið i heild,
með eöa án opinberra styrkja.
t nefndinni eru Halldór S.
Kristjansson, deildarstjóri, sem
jafnframt er formaður hennar:
Friðjón Þóröarson, alþm.,
Guömundur Einarsson, forstjóri
Skipaútgerðar rik., Jón Helga-
son, alþm., og Tómas H. Sveins-
son, viðskiptafræðingur, i áætl-
anadeild Framkvæmdastofnunar
rikisins.
Samgönguráðherra skipar nefnd:
A aðsemja
frumvarp
til laga
- um stofnlánasjóð
Á grundvelli þings-
ályktunar sem sam-
þykkt var á Alþingi sl.
vor hefur samgönguráð-
herra nú skipað nefnd til
að semja frumvarp til
iaga um stofnlánasjóð
vegna kaupa á vörubif-
reiðum, langferða-
bifreiðum og stórvirkum
vinnuvélum.
1 nefndinni eru Ólafur S. Valdi-
marsson, skrifstofustjóri, sem
jafnframt er formaður hennar,
Agúst Hafberg, framkvæmda-
stjóri, Bjarni Bragi Jónsson, hag-
fræöingur, Guðmundur Olafsson,
forstöðumaður, Gunnlaugur M.
Sigmundsson, fulltrúi, Jón G.
Halldórsson, framkvæmdastjóri,
Ólafur Daviðsson, hagfræðingur,
og Stefán Pálsson, framkvæmda-
stjóri.
Frá Navimor, Póllandi
Tveggja þilfara línuveiðarar, neta og togskip
Helztu mál: lengd 32.50. breidd 7.60, dýpt frá efra þilfari 5 70
Byggð í klassa + 1A1 Norsk Veritas úthafsísklassa ,7c". ' '
(búðir fyrir 15 menn. Fiskilest_ 185fúmm. Frystilest 19 rúmm.
Aðalvél MWM 810 hp á 750 snún. Tvær hjálparvélar 70 KVA 3x380 v.
Háþrýstidekkbúnaður frá KarmöyMek. Verksted.
Fullkomnustu f iskileitar-, siglinga- og f jarskiptatæki.
Verð m|og hagstætt og afgreiöslutimi stuttur,
samskonar skip eru í smíðum Ti|á Navimor fyrir Færeyinga.
Leitið nánari upplýsinga
GUNNAR FRIÐRIKSSON
Garðastræti 6 — Símar 1-54-01 & 1-63-41