Alþýðublaðið - 15.03.1977, Síða 16
BYRJUNARVIÐRÆÐUR ASÍ
OG RÍKISSTJ ÓRNARINNAR
Fundur með samn-
inganefnd ASt og ríkis-
stjórninni var haidinn i
gær i ráðherrabústaðn-
um og stóð hann i 1 1/2
klukkustund. Björn
Jónsson forseti ASl
sagði að loknum fund-
inum i gær, að þetta
hefði verið byrjunar-
viðræður, þar sem
samninganefnd
Alþýðusambandsins
hefði farið yfir helztu
kröfur sinar gagnvart
stjórnvöldum og lagt
áherzlu á skjótar að-
gerðir af hendi rikis-
stjórnarinnar.
Björn sagöi að forsætisráö-
herra heföi tekið vel ábending-
urr. samninganefndarinnar án
þess aö vfkja aö einstökum
atriöum. Sagöi Björn, aö for-
sætisráöherra heföi sagt aö til-
lögur og ábendingar samninga-
nefndarinnar yröu skoöaöar -
meö opnum huga.
Auk forsætisráöherra mættu á
fundinum þeir Olafur Jóhannes-
son, Gunnar Thoroddsen,
- Matthías Mathiesen og Halldór
E. Sigurösson. Þá mættu einnig,
auk ráðherranna og samninga-
nefndar ASI, sáttasemjari og
forstööumaöur Þjóöhagsstofn-
unar.
Ekki hefur veriö ákveöiö um
framhald þessara viöræöna viö
rlkisstjórnina, en sáttasemjara
faliö aö setja upp áætlun um
frekari meöferö málsins og
áframhaldandi viöræöur. — BJ.
Heilbrigðisyfirvöld:
ALLT GERT TIL AÐ BÆTA VINNU-
AÐSTÖÐU OG HEIBRIGDISEFTIRLIT í
STRAUMSVÍK
alfarið fullyröingum um aö þau studdum og ekki til þess föllnum
hafi verið „dragbitar á þvi sem aö bæta samvinnu þeirra aöila
þurft hefur aö bæta f Straumsvik” sem mál þessi varöa.
sem ábyrgðarlausum og órök- —AB.
— Voru ekki dragbítar á því
sem þurft hefur að bæta
þar, þrátt fyrir fullyrðingar
um hið gagnstæða
Heilbrigðiseftirlit rik-
isins vill vekja athygli á
38. gr. 4 i heilbrigðis-
reglugerð fyrir ísland
frá 1972, vegna yfirlýs-
inga fulltrúa þeirra
launþegafélaga sem að-
ild eiga að kjara-
samningum við Islenzka
Álfélagið i Straumsvik,
og fram komu á fundi
með fréttamönnum ekki
alls fyrir löngu.
I heilbrigöisreglugerö þar sem
vitnaö er til, segir svo:
Sérstakur fulltrúi verkafólks
„umsjónarmaöur vinnustaöa”
eða varamaður hans, tilnefndur
af fulltrúaráöi eöa fjóröungssam-
bandi skal eiga þess kost að sitja
heilbrigöisnefndarfundi meö
málfrelsi eöa tillögurétti. Þar
sem ekki starfa sérstakir
heilbrigöisfulltrUar skal
„umsjónarmaður vinnustaöa” i
heilbrigöisnefnd hafa meö hönd-
um eftirlit vinnustaða undir yfir-
umsjón héraöslæknis.Jafnan skal
hann hafa samráö viö trúnaöar-
mann verkamanna um allt sem
aö bættum aðbúnaöi og hollustu
lýtur og gefa honum kost á aö
fylgjast meö þvi hvaö umbótum
liöur.
Heilbrigöiseftirliti rikisins er
ekki kunnugt um aö fyrrnefnd
launþegasambönd hafi notfært
sér þessi réttindi sin til þess aö
hafa áhrif á og fylgjast meö
framkvæmd heilbrigðis- og
hollustumála við Aiveriö I
Straumsvik.
Heilbrigöisyfirvöld hafa ætiö
gert allt sem i þeirra valdi hefur
staöiö til aö fá fram bætta vinnu-
aöstöðu og heilbrigöiseftirlit viö
Álveriö I Straumsvik og mótmæla
ALÞÝÐUSAMBAND VESTURLANDS VÍTIR
RÍKISSTJÓRNINA
Stofnfundur Alþýðu-
sambands Vesturlands
haldinn i Borgarnesi
12. marz 1977 lýsir
fyllsta stuðningi við
kröfur Alþýðusam-
bands íslands i þeim
kjarasamningum sem
nú eru hafnir, og heitir
þvi að standa sem
órofaheild að þvi að
fullur árangur náist.
Jafnframt vitir fund-
urinn harðlega þá
kjaraskerðingastefnu
sem núverandi ríkis-
stjórn hefur rekið
gagnvart öllum laun-
þegum i landinu.
Fundurinn heitir á
samninganefnd Al-
þýðusambands íslands
að standa fast á kröf-
unni um 100 þúsund
króna lágmarkslaun og
fullar visitölubætur.
Norræna verkalýdssambandið:
Samningar og
kjaramál efst á baugi
Næsti fundur verður
I siöustu viku var haldinn I
Kaupmannahöfn stjórnarfund-
ur Norræna verkalýössam-
bandsins, en Alþýöusamband
Islands er aðili aö sambandinu
ásamt sjö öörum samböndum á
hinum Noröurlöndunum. Full-
trúar ASÍ á þessum fundi voru
þeir óskar Hallgrimsson og
Ólafur Hannibalsson.
Olafur sagöi aö Kjaramál og
samningamál aöildarlandanna
heföu veriö ofarlega á baugi, en
samningar væru nú útrunnir I
öllum hinum löndunum og
mundu renna Ut hjá okkur I mai,
sem kunnugt væri.
ólafur Hannibalsson sagöi aö
umræöur um samningamál
hinna aöildarrlkjanna væru
mjög gagnlegar, enda væri til-
gangurinnfyrstog fremst sá, aö
menn bæru saman bækur sinar.
Viöfangsefnin væru auk þess
svipuö, enda þótt aöstæður og
skipulag væru meö ýmsum
hætti I hverju landi um sig.
Annað höfuömál fundarins
varöandi málefni Suöur-Afriku,
og gerði stjórn Norræna verka-
lýössambandsins samþykkt um
það. Samþykktin um málefni
Suöur-Afriku mun birtast I blað-
inu á morgun.
I viötali Alþýöublaösins við
ólaf Hannibalsson kom fram aö
næsti stjórnarfundur Norræna
verkalýðssambandsins hefur
veriö ákveðinn I júni n.k. og
veröur sá fundur haldinn I
Reykjavik.
Norræna verkalýðssam-
bandiö var stofnaö áriö 1972 og
hefur Alþýöusamband lslands
veriö þátttakandi I sambandinu
frá upphafi.
1 ræöu sem Richard Trælnæs,
fulltrúi Norræna verkalýös-
sambandsins, flutti á 33. þingi
í Reykjavík í júní
ASl s.l. haust komst hann svo aö
oröi um markmiö og verkefni
NVS: „Stefnu okkar i þessu
samstarfi hefur hingaö til veriö
skipt niöur I þrjá aöalþætti. I
fyrsta lagi upplýsingaskipti og
samvinna milli heildarsamtak-
anna, sem I raun þýöir skipti á
hugmyndum, skoöunum, af-
stöðu og lausnum á einstökum
vandamálum, I tengslum viö
þaö aðalverkefni sem þessi
heildarsamtök glima viö á
hverjum tima.
I ööru lagi hefur þörfin á hag-
ræöingu gagnvart hinum ýmsu
stofnunum Norðurlanda stööugt
veriö aö færast I aukana. Hér er
aöallega um aö ræöa Norrænu
Ráðherrafundina, Noröur-
landaráö, Norrænu Menningar-
málaskrifstofuna og hinn ný-
stofnaða Fjárfestingarbanka
Noröurlanda.
1 þriðja lagi hagræðingin á
afstööu norrænu samtakanna til
annarra alþjóölegra félagssam-
taka. Hér er átt viö Evrópska
verkalýðssambandiö og
Alþjóöasamband frjálsra
verkalýðsfélaga og fjölda ann-
arra félaga og stofnana.”
í þessari ræöu á Alþýöu-
sambandsþingi lýsti fulltrúi
Norræna verkalýössambands-
ins þvi hvernig dagleg störf
heildarsamtakanna heföu leitt
til umfangsmikilla ályktana-
geröa og stefnumótunar, m.a.
varöandi vinnuumhverfi, at-
vinnustefnu, fjölskyldumál og
fjölþjóöaauöhringa. Dagskrá
fundarins, sem haldinn verður I
Reykjavik I júni hefur enn ekki
verið ákveöin, en telja má vist,
aö þar veröi tekin til umræöu
málefni, sem varöa kjör og llfs-
afkomu islenzks verkafólks.
—BJ
ÞRIÐJUDAGUR
15. MARZ 1977
alþýðu
blaðiðl
Tekiö eftir: Aö síöustu vik-
ur hefur Alþingi veriö
nánast verklaust. Þar hef-
ur verið f jallað um nokkur
minni háttar mál, en að
ööru leyti hefur doði og
verkefnaskortur einkennt
störf þess. Viö eölilegar aö-
stæöur heföi veriö hægt aö
ljúka störfum á þingi fyrir
páska. En allt strandar á
þvi, aö stjórnarliöið getur
ekki komiö sér saman um
skattafrumvarpiö, þaö
damlar I nefnd og enginn
árangurer sýnilegur. Þá er
einnig ljóst, aö samninga-
málin hafa mikil áhrif á orö
og geröir þingmanna og
ráöherra.
*
Séö: I Lögbirtingablaöinu,
aö staða vitavaröar
Reykjanesvita er laus til
umsóknar. Umsöknar-
frestur er til loka þessa
mánaðar, og vafalaust
munu margir sækja um,
enda Reykjanesviti ekki
eins einangraöur og margir
vitar landsins, þar sem
verðir eru.
Tekið eftir: Einnig I Lög-
birtingablaöinu, að
menntamálaráöuneytiö
hefur veitt Jakobi
Benediktssyni lausn frá
starfi forstööumanns oröa-
bókar Háskólans fyrir
aldurs sakir frá 1. janúar á
næsta ári aö telja. Þetta
hljóta aö vera nokkur tiö-
indi, þar eö Jakob hefur
veriö lifiö og sálin I starfinu
viö Oröabókina.
☆
Séö: Og enn i Lögbirtinga-
blaöinu, aö um siöustu ára-
mót sótti Union Carbide
Corparation, 270 Park
Avenue, New York, Banda-
rikjunum um einkaleyfi
hér á landi á aöferö til aö
bæta strontium I málm-
blendi. Þetta var eftir aö
samningar viö þetta
bandariska fyrirtæki um
smiöi járnblendiverk-
smiöju fóru Ut um þúfur.
Hins vegar er ljóst, aö
Union Carbide ætlar aö
tryggja aö hér veröi ekki
notaöar neinar þær að-
feröir ókeypis, sem félagið
hefur einkarétt á. Þaö
hefur sem sagt haft trú á
því aö fyrirtækiö myndi
rlsa. En heldur er óhugn-
anlegt aö lesa orðiö
STRONTIUM I þessu sam-
bandi.