Alþýðublaðið - 19.03.1977, Side 3
alþýðu'
biaoið Laugardagur 19. marz 1977
FRÉTTIR 3
A næturrölti með Æskulýðsráði
Störf Æskulýðsráðs
hafa verið nokkuð und-
ir smásjá fjölmiðla að
undanförnu. Hin
frjálsu félög, skátafé-
lög og fleiri hafa sum
hver kvartað undan
þvi, að starfsemi ráðs-
ins drægi krakka frá
þeim. Þessum ásökun-
um og annarri gagn-
rýni hefur siðan verið
svarað.
En út af öllu þessu f jaörafoki
hefur vaknaö i brjóstum
margra sú spurning, hvað þaö
væri I raun og veru sem Æsku-
lýðsráð gerði. Tilað svara þess-
um spurningum og kannski
fleirum, buðu formaður Æsku-
lýðsráðs, Davið Oddsson og
framkvæmdastjóri þess, Hinrik
Bjarnason, blaðamönnum að
kynnast starfseminni litillega,
kvöld eitt i vikunni.
Tómstundastarf
i skóium
Einn þáttur starfs Æskulýðs-
ráðsins er mörgum kunnur en
það er tómstundastarf i skólum.
Eru krökkum kenndar ýmsar
tómstundagreinar, svo sem
skák, bridge, leðurvinna, borð-
tennis, svo eitthvað sé nefnt.
Alls eru greinarnar 15. Starfað
eril4skólumunglingastigs ogá
timabilinu október — desember
’76 voru 124 flokkar með 1480
þátttakendum. Siðari hluta
vetrar, janúar — marz störfuðu
88 flokkar með 957 þátttakend-
ur. Talsverð aukning er á þátt-
takendafjölda frá þvi i fyrravet-
ur.
Félagsmiðstöðvar
Ráðið rekur tvær félagsmið-
stöðvar. önnur þeirra er I
Breiðholtiog nefnist Fellahellir.
Gestafjöldinn á ári hefur verið
um 26 þúsund, en aðsóknin fer
mjög eftir árstima. Vikulegur
opnunartimi yfir vetrarmánuð-
ina er 77 1/2 klukkustund. Yfir
vetrarmánuðina l&tur nærri, að
um 5000 manns sæki Fellahelli á
mánuði. Af þessum fjölda taka
um 30% þátt i starfi á vegum
Æskulýðsráðs, 55% starfa i fé-
lögum hverfisins og um 15%
taka þátt i framboðnu starfi
hverfisskólanna i Fellahelli.
Allskyns tómstundastarf fer
fram I Fellahelli, en þessa dag-
ana hefur verið lögð mikil á-
herzla á andreykingaherferð.
Herferð þessi hófst meö þvi, að
16 manna hópur skólakrakka fór
i reykingabindindi. Flestir
krakkanna eru nú hætt aö
reykja og er hópurinn orðinn
mun stærri eða um 30 manns.
Þess má geta, að húsnæðið,
sem Féllahellir er 1 núna var
upphaflega hugsað sem kjarn-
orkubyrgi og plássið ekkert
nýtt.
Hin félagsmiðstöðin, sem
Æskulýðsráð rekur er Bústaðir
og er hún til húsa i Bústaða-
kirkju. Bústaðir voru teknir i
notkun fyrir rúmum þremur
mánuðum og er þvi litil reynsla
kominá staðinn. A þessum tima
hafa komið um 7000 gestir.
1 Bústöðum er andreykinga-
herferðin einnig rekin, en þegar
okkur bar að garði var i gangi
leiklistarnámskeið, ljósmynda-
námskeið, borðtennis og fleira.
Tónabær
Þá er komið að sjálfu vand-
ræðabarninu, Tónabæ. Deilur
hafa staðið eigi alllitlar um
þennan stað. A að reka hann eða
ekki? Hvar á aldurstakmarkið
að vera?
Verzlunareigendur i hverfinu
erekki mjög hrifnir af staðnum
vegna stöðugra rúðubrota ung-
linganna.
Þessberþóaö gæta, að aðeins
mjög litillhluti krakkanna nefur
tekiö þátt i óspektunum en alls
sóttu 51.740 gestir hinar ýmsu
samkomur i Tónabæ á árinu
1976, þar af voru milli 30-40% ut-
anbæjarfólk.
Auk fyrrnefndrar starfsemi
starfrækir Æskulýösráð báta-
smiðastöð I Nauthólsvik.
—ATA
A.S.B. Félag afgreiðslu stúlkna í brauða- og mjólkurbúðum Starfsmannafélagið Sókn heldur aðalfund sinn, þriðjudaginn22. marz 1977 kl. 20.30, i Hreyfilshúsinu við Grensásveg. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Uppsögn samninga. 3. önnur mál. Stjórnin. SALA verðtryggöra spariskírteina ríkissjóðs hefst þriðjudaginn 22. mars
\
Auglýsingasími blaðsins er 14906 W) SEÐLABANKI ÍSLANDS “ s/..\*»Vr || . ■ , ■ . . . l