Alþýðublaðið - 28.04.1977, Page 2
2 STJÚRNMÁL/ FRÉTTIR
Fimmtudagur 28. apríl 1977 b K&"
Útgefaadi: Alþýftuflokkurinn.
Reksoir: Reykjaprent hf. Ritstjóri og ábyrgftarmaftur: Arni Gunnarsson.
Aftsetur ritstjórnar er I Siftumúla 11, simi 81866. Auglýsingadeild, Aiþýftuhúsinu Hverfisgötu 10 — simi 14906.
Askriftarsimi 14900. Prentun: Blaftaprent h.f. Askriftarverö: 1100 krónur á mánuði og 60 krónur i lausasölu.
BYGGÐASTEFNA OG
BYGGÐAJAFNVÆGI
Undanfarinn manns-
aldur hefur orðið stór-
breyting á byggð lands-
ins. Fólk hefur flutzt úr
sveitum í kauptún og
kaupstaði og umfram allt
frá öllum landshlutum til
Reykjavíkur og
Reykjaness. Þessu hafa
fylgt margvíslegir erfið-
leikar og óhagræði fyrir
þjóðina, og hefur það
einu nafni verið kallað
byggðavandamál, en
byggðastefna, sem á að
vinna gegn þessari þróun.
Á áratugunum 1950-70
jókst hlutur Reykjavíkur
og Reykjaness af íbúa-
f jölda landins úr 49,1% í
58,6%, en íbúum annarra
landshluta fækkaði sem
þessu nam. Mest var
fækkunin á Vestf jörðum,
úr 7,8% af þjóðinni 1950 í
aðeins 4,9% árið 1970.
Lítið hefur verið rætt
um þá staðreynd, að þessi
breyting í skiptingu ibú-
anna milli landshluta
hefur lítið sem ekkert
breytzt síðan 1970, heldur
staðið í stað. Reykjavík
og Reykjanes höfðu
58,9% fyrir sjö árum,
komust upp í 59,4% en
lækkuðu síðastliðið ár í
59,2%. I öðrum landshlut-
um hefur breytingin á
þessu tímabili verið sára-
lítil. Þessar tölur bera
vott um, að hlutfaIIsleg
skipting þjóðarinnar milli
landshluta hafi verið
nálega óbreytt allan
þennan áratug.
Skipuleg starfsemi
ríkisins á sviði byggða-
mála er talin hafa byrjað
árið 1964 í Efnahags-
stofnuninni með gerð
Vestf jarðaáætlunar.
Framkvæmdastofnun
rikisins tók til starfa 1972
og hefur vaxið hægt en
sigandi síðan. Byggða-
sjóður fær nú allmikið fé
á f járlögum, 2% af heild-
arútgjöldum, og mun það
nema yf ir 1600 milljónum
á þessu ári.
Ekki hefur þessum
stofnunum eða Alþingi
auðnast að móta skýra
byggðastef nu. Hefur
aldrei tekizt að skil-
greina, hvaða aðstæður
þurfi að vera fyrir hendi
til þess, að byggðarlag fái
aðstoð. I þess stað hafa
stjórnmálamennirnir,
sem úthlutað hafa
byggðafé, farið auðveld-
ari leið. Hefur yfirleitt
verið fylgt þeirri reglu,
að lána til byggða um allt
land, nema í Reykjanes-
kjördæmi og Reykjavík.
Þetta er harla ónákvæm-
ur mælikvarði, því að
víða á landinu eru sem
betur fer blómlegar
byggðir, þar sem fólki
hefur stöðugt fjölgað.
Þær hafa fengið aðstoð
ekki síður en þau héruð,
þar sem byggð hefur
verið að flosna upp.
Byggðasjóður hefur
unnið gagnlegt starf sem
eins konar fjárhagslegt
brunalið. Þegar veiga-
mikil atvinnufyrirtæki
eða heil byggðalög hafa
lent í erfiðleikum, sem
hefðu getað leitt til stöðv-
unar atvinnutækja og
brottf lutnings, hefur
verið brugðið skjótt við,
og þá oft tekin f járhags-
leg áhætta til að ná skjót-
um árangri.
Ökleift er að meta, hve
Byggðasjóður innan
Framkvæmdastofnunar
ríkisins hefur átt mikinn
þátt í því, að jafnvægi
hef ur verið í byggð lands-
ins þennan áratug. ótrú-
legt er, að þessi starfsemi
hafi ráðið úrslitum, þar
sem útlán Byggðasjóðs
hafa aðeins verið um 10%
af útlánum f járfestinga-
lánasjóða, en þó hefur
hún vafalaust haft veru-
leg áhrif.
Ljóst er af þessum
staðreyndum, að útlána-
reglur Byggðasjóðs eru
orðnar úreltar og svara
ekki til þess ástands, sem
nú rikir. Verður að endur-
skoða þessa starfsemi,
íhuga hvort réttlætanlegt
sé að taka 2% af útgjöld-
um ríkissjóðs á fjárlög-
um til þessara útlána og
hvernig byggðastefna
eigi að vera í næstu fram-
tíð.
Á höfuðborgarsvæðinu
var íbúafjölgun f fyrra
minni en meðalfjölgun
yfir allt landið, og er það
ólíkt þeim árum, er þús-
undir flykktust til
Reykjavíkur og ná-
grennis ár eftir ár.
Hlutur Reykjavíkur og
Reykjaness í botnf iskaf la
þjóðarinnar hefur farið
ört minnkandi síðustu
árin. Árið 1968 hafði
höfuðborgin 13,4% af
lönduðum botnf iskaf la,
en árið 1975 aðeins 8,8%.
Hlutur Reykjaness var
árið 1968 25%, og komst
upp í 28%, en var 1975
kominn niður í 22,5%.
Ýmislegt hefur valdið
þessu, en staðreynd er, að
uppbygging skipastóls og
fiskiðjuvera hefur dreg-
izt af tur úr á þessu svæði,
sérstaklega Reykjanesi.
Atvinnu- og byggða-
stefna má ekki festast í
farvegi gamalla stað-
reynda, sem menn taka
að meðhöndla sem sígild
lögmál. Verður að fylgj-
ast með þróun byggðanna
og laga stefnuna eftir
breytilegum þörfum.
Framkvæmdastofnun
rikisins hefur unnið mjög
gott starf og hlutverk
hennar við áætlunargerð
er mikilvægt. Af verkefn-
um byggðasjóðs er
brunaiiðshlutverkið al-
gerlega óhjákvæmilegt,
því hann tekur við, þar
sem viðskiptabankar
draga sig í hlé. En
byggðastefnu sem heild
þarf stofnunin að móta
betur eftir byggðastað-
reyndum, því að hún má
ekki verða að almennri,
pólitískri lánastofnun.
BGr.
Vmsum þykir sem eplinu sé misskipt
íslendingar í Munchen:
Afléttið
óviðunandi
neyzlubanni
á bjór
Aldrei verfta allir á eitt sáttir.
' Fyrir skömmu bar Jón nokkur
Sólnes upp þá tillögu á Alþingi aft
leyfö yrfti sala á sterkum bjór hér
á landi og taldi aft af þvl myndi
gott eitt hljótast. 1 skoftanakönn-
unum sem geröar hafa verift og
hljóta aö teljast marktækar út frá
tölfræftilegu sjónarmiöi kemur
hinsvegar i ljós aö meirihluti
Islendinga á kosningaaldri er
andvigur þvi aft tekin verfti upp
sala á sterkum bjór hér á landi.
Nú hefur blaöinu borizt tilskrif ,
frá fundi Félags íslendinga I
MÖnchen, þeirri frægu bjórborg,
þar sem kveöur viö annan tón en
kom fram I umgetnum skoftana-
könnunum. Fer bréfiö hér á eftir:
1 tilefni af „bjórfrumvarpi”
Jóns Sólness, sem nú liggur fyrir
Alþingi og þeim umræftum, sem
spunnizt hafa um leyfi til sölu á
áfengum bjór á tslandi, vfir á
fundi Félags tslendinga i MÚnch-
en nýlega samþykkt eftirfarandi
ályktun:
„Meö leyfi til sölu á áfengum
bjór á tslandi yrfti, aö áliti
fundarins, aflétt óviftunandi
neyzlubanni, sem beinzt hefur
gegn þeim fjölda landsmanna, er
vilja neyta léttra áfengra
drykkja, auk eöa I staft, sterkra
drykkja. Misnotkun áfengis er
ekki nægileg ástæfta fyrir algjöru
efta afmörkuöu banni á neyzlu
áfengra drykkja. Misnotkun fylg-
ir flestri neyzlu og má i þvl sam-
bandi nefna ofneyzlu lyfja, tó-
baks, kaffi og sælgætis. Þykir þó
ekki ástæöa til aft bregöast vift
þeirri ofnotkun meft róttækum aft-
geröum. Aft áliti fundarins gæti
bjór dregiö úr þeirri heilsuspill-
andi ofnotkun á svefnlyfjum, ró-
andi töflum, kaffi og gosdrykkj-
um, sem tíökast á Islandi.
Fundurinn telur, aö óhófleg
verölagning á bjór (I þvl tilfelli aö
sala hans yrfti leyfft) miöuft vift
verft á kaffi, te og gosdrykkjum,
yrfti ólýftræftisleg athöfn stjórn-
valda gagnvart neyzluvenjum
hluta landsmanna. Sömu skoöun-
ar er fundurinn hvaö varftar rlkj-
andi óhóf á álagningu á veröi ann-
arra áfengra drykkja enda stuöl-
ar slíkt óhóf aft ólögmætu bruggi,
braski og smygli áfengis
Flestþau vandamál,sem fylgja
áfengisneyzlu, eiga rætur slnar
aft rekja til félagslegra vanda-
mála, sem ekki veröa leyst meft
boöum og bönnum. Enn fremur er
fundurinn sammála um, aft 1 áliti
andstæöinga bjórsins komi fram
furftanlegt vantraust á siftþroska
og dómgreind Islendinga.
Aft slftustu vill fundurinn hvetja
fylgjendur bjórsins til aö berjast
fyrir málstaftnum af meiri sam-
stöftu og krafti I framtlöinni en
þeir hafa gert til þessa.”
Fundur Félags islendinga I
Munchen,
3. aprll 1977.
VIPPU - BltSKÚRSHURÐIN
I-karaur J
Lagerstærðir miðað við múrop:
Hæð: 210 sm x breidd: 24Ó sm
210 - x - 270 sm
Aðrar stærðir. smfflaðar eftir beiðni.
GLUGGAS MIÐJAN
Síðumúla 12 - Sími 38220