Alþýðublaðið - 18.08.1977, Page 1
FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 1977
Askriftar-
síminn er
14-900
Er vöruverð reiknað út frá
fölskum forsendum? Sjá baksíðu
Frystihúsaeigendur vilja gengisfellingu:
ÞJÓÐHAGSSTOFNUNIN
ER AÐ KANNA MÁLIÐ
— Þjóðhagsstofnun
er að gera úttekt á mál-
um frystiiðnaðarins og
þar til þeirri úttekt er
lokið verður engin
ákvörðun tekin um úr-
ræði, hvort sem um
gengisfellingu eða ein-
hver önnur úrræði er að
ræða, sagði Jón Arn-
alds ráðuneytisstjóri i
Sjávarútvegsráðuneyt-
inu i gær, þegar blaðið
bar undir hann þau
ummæli Árna
Benediktssonar fram-
kvæmdastjóra Kirkju-
sands hf., að i fljótu
bragði virtist ekki ann-
að úrræði sýnilegt til
lausnar á vanda frysti-
iðnaðarins en gengis-
felling. Nefndi Árni i
viðtali við eitt dagblað-
anna i gær, að dollarinn
þyrfti að fara upp i 220-
235 krónur.
Jón Arnalds benti á, a6 Þjóö-
hagsstofnun gerði úttekt á fisk-
iðnaðinum i sambandi við
ákvörðun fiskverðs, þannig að
sifellt væri i' gangi Uttekt á þess-
um iðnaði. Til dæmis hefði
oddamaður Verðlagsráðs
sjávarútvegsins greitt atkvæði
með fiskseljendum — sjómönn-
um og útgerðarmönnum — við
siðustu fiskverðsákvörðun.
Oddamaður Verðlagsráðs er
forstöðumaður Þjóðhagsstofn-
unar, sem eins og Jón Arnalds
sagði, gerir úttekt á stöðu fisk-
iðnaðarins áður en verðákvörð-
un f er fram. Þannig ætti að vera
ljóst, að hann hlýtur að miða af-
stöðu sina i nefndinni við út-
komuna úr þessari úttekt. Virð-
ist sem sagt hafa metið málið
svo, að fiskiðnaðurinn gæti
greitt það fiskverð sem ákveðið
var.
Erum að skoða þetta
— Satt að segja erum við að
skoða þetta núna, og þess vegna
held ég ekki, að það sé timabært
að segja neitt um það að svo
stöddu, sagði Ólafur Daviðsson
hjá Þjóðhagsstofnun, en blaðið
ræddi við hann i fjarveru Jóns
Sigurðssonar forstöðumanns
stofnunarinnar.
Ólafur sagði, að könnun Þjóð-
hagsstofnunar miðaðist við ein-
staka landshiuta, en einnig
myndu starfsmenn hennar taka
mið af greinargerð Sölumið-
stöðvarinnar (sem birt var hér i
blaðinu i gær) þar sem segir að
grundvöllur frystiiðnaðarins á
landinu öllu sé brostinn. Þannig
yrði gerð heildarmynd af land-
inu auk landshlutakannana.
Ólafur kvaðst ekki geta sagt
hvenær niðurstöður kannana
Þjóðhagsstofnunar myndu
liggja fyrir, en af skiljanlegum
ástæðum yrði reynt að hraða
málinu.
Ólafur staðfesti að úttekt væri
gerð fyrir hverja verðákvörðun
Verðlagsráðs sjávarútvegsins,
bæði fyrir veiðar og vinnslu,
eins og hún virtist vera þá
stundina. Hins vegar væri yfir-
leitt mjög erfitt að meta fram-
tiðina i málum eins og þessum.
Þegar Ólafur var spurður
hvort Þjóðhagsstofnun myndi
leggja til gengisfellingu sem úr-
ræði i vanda frystiiðnaöarins,
sagði hann, að þegar slikar at-
huganir væru gerðar á vanda-
málum þjóðarbúsins, væri auð-
vitað reynt að leita þeirra leiða
sem taldar væru færar til að
leysa þann vanda sem við væri
að etja. — Þá þarf náttúrulega
að vega og meta kosti hverrar
leiðar og við leggjum lið við
slikt mat. Akvarðanir þar um
eru að sjálfsögðu teknar af
stjórnvöldum, en við eigum að
vera þeim til aðstoðar og ráðu-
neytis, sagði hann. —hm
Hola 11 vid Kröflu:
Verkfrædingar hjá Borginni:
Sofnaói og
vaknaði aftur
Nokkrar tafir urðu i gær á
prófunum á vélasamstæðunni
við Kröflu, vegna þess að eina
holan, sem gefur nýtanlega gufu
um þessar mundir, hola 11,
sofnaði i fyrrinótt. 1 gærdag
tókst hins vegar að koma hol-
unni i gang á ný. Þetta kom
fram i viðtali sem Alþýðublaðið
átti við Einar Tjörva Eliasson,
verkfræðing Kröfluvirkjunar.
Eins og sagt hefur verið frá
hér i blaðinu áður er þetta ekki i
fyrsta skiptið, sem hola 11 fær
sér blund. Einar Tjörvi Eliasson
sagði, að ekki væri fullljóst af
hverju þetta stafaði, en hugsan-
legt væri að opnað hefði verið of
hratt fyrir holuna og hitamis-
munur tveggja hitakerfa henn-
ar hefði valdið stoppinu.
—ES
Kref jast 23% launa-
hækkunar, eda 250
þús. kr. meðallauna
Talsverð harka er nú aö fær-
ast i kjaradeilu Reykjavikur-
borgar og Stéttarfélags verk-
fræðinga. Hafa Launamála-
nefnd og borgarráð ákveðið, að
setja verkbann á þá meðlimi fé-
lagsins, sem vinna hjá Borginni
eða stofnunum hennar, i fram-
haldi af boðun verkfalls fjög-
urra verkfræðinga hjá Raf-
magnsveitunum. Verkbannið
hefst 25. ágúst n.k. og stendur
meðan áðurnefnd vinnustöðvun
verkfræðinganna er ekki aftur-
kölluð.
Launamálanefnd Reykjavík-
urborgar hefur gert verkfræð-
ingum tvö tilboð. Hið fyrra var
um 7.5% hækkun á júlikaup og
samningstima til 1. nóv. n.k. Er
það miðað við nýgerðan samn-
ing BHM, svo og samning
sjúkrahússlækna. Er þessu til-
Framhald á bls. 10
Reykjavíkurleikarnir Sjá 3. síðu