Alþýðublaðið - 18.08.1977, Blaðsíða 4
4»
Fimmtudagur 18. ágúst
alþýöu-
Otgefandi: Alþýftuflokkurinn.
Rekstur: Reykjaprent hf. Ritstjóri og ábyrgOarmaöur: Árni Gunnarsson.
Aðsetur ritstjórnar er I Síðumúla 11, sími 81866. Augiýsingadeild, Alþýöuhúsinu Hverfisgötu 10 — simi
14906. Áskriftarsimi 14900. Prentun: Blaðaprent h.f. Askriftarverð: 1300 krónur á mánuði og 70 krónur i
lausasölu.
nVja stjórn yfir kröflu
Kröflunefnd reynir nú að
bera af sér alla ábyrgð á
verkinu. Samkvæmt
skrifum Ingvars Gisla-
sonar kemur Kröf lunef nd
ekki við, og hefur aldrei
komið við, hvort nokkurt
vit hafi nokkurn tímann
verið í fyrirtækinu.
Orkustofnun varaði
Kröflunefnd og Iðnaðar-
ráðuneyti við á sínum
tíma. Tengslaleysi milli
þessara þriggja aðila
virðist hins vegar hafa
verið með ólíkindum. Nú
virðast allir orðnir sam-
mála um að hrikaleg mis-
tök hafi átt sér stað við
Kröflu — en enginn ber
samt ábyrgð»Og fólk spyr:
Hvernig má þetta vera?
Vegna sögu sinnar og
afskipta af Kröflumálum
eru Iðnaðarráðuneyti,
Kröflunefnd og Orku-
stofnun ófær um að bera
ábyrgð á frekari fram-
vindu mála við Kröflu.
Þessir aðilar hljóta eðli-
lega að hugsa um það
fyrst og f remst að útvega
sjálfum sér langþráða
andlitslyftingu. Og fyrir
þá andlitslyftingu eiga
skattborgarar síðan að
borga.
En það verður of dýrt.
Þetta er þegar orðið allt
of dýrt. Það verður að
leysa Iðnaðarráðuneyti,
Kröflunefnd og Orku-
stofnun undan þessari
ábyrgð, sem hefur reynzt
þeim um megn. Það verð-
uraðsetja nýja, fámenna
og óháða stjórn yf ir verk-
ið.
— VG.
UB YMSUM ÁTTUM
Úrbóta er þörf
Nú standa yfir svonefndir
Reykjavikurleikar i frjálsum
iþróttum á Laugardalsvellin-
um. Þar takast okkar færustu
keppnismenn á við sterka
erlenda frjálsiþróttamenn.
Athygli manna beinist að
sjálfsögöu mest að Hreini
Halldórssyni kúluvarpara.
Hreinn hefur nú sýnt það og
sannað að hann er meöal beztu
kúluvarpara heimsins og er
skemmst aö minnast þess er
hann sigraði á Evrópumeistara-
mótinu innanhúss i San Sebasti-
an á Spáni.
Þegar þetta er skrifað, að
afloknum fyrsta degi Reykja-
vikurleikana, hefur Hreinn enn
sýnt fram á að fáir standa hon-
um á sporði þvi hann sigraði
meðal annarra enska kúluvarp-
arann Capes, sem einnig hefur
orðið Evrópumeistari. Eftir
keppnina sagði Capes i blaða-
viðtali, að Hreinn væri, að hans
mati annar bezti kúluvarpari
heimsins, næstur á eftir Austur-
Þjóðverjanum Udo Bayer.
Þetta er Ihugunarverð stað-
reynd þegar litið er til aðstöðu-
munarþessara tveggja manna.l
Austur-Þýzkalandi hefur um
langt skeið verið unnið að upp-
byggingu iþrótta á strangvis-
indalegan háttog sýnir árangur
Austur-þýzkra iþróttamanna
beztgildi þess starfs. Ekkier að
efa aö Udo Bayer er barn þessa
kerfis og sem afreksmaöur hef-
ur hann eflaust notiö alls hins
bezta sem það hefur haft uppá
að bjóða, færustu þjálfara,
Úr því sem komið er er
ekki nema eitt að gera við
Kröflu. Það er að taka
ábyrgðina af höndum
þeirra, sem hingað til
hafa haft hana og setja
hana á hendur nýrra að-
ila, sem þá væru alger-
lega óbundnir af mistök-
um fortíðarinnar.
Kröflunefnd, Iðnaðar-
ráðuneyti og Orkustofnun
eru komin i hár saman og
kenna hver öðrum um.
En þessir aðilar eiga það
allir sammerkt að reyna
að breiða yfir mistök,
sem þegar hafa verið
gerð. Fyrir þau mistök
hafa skattgreiðendur
þegar borgað nær tíu
milljarða króna. íslenzkir
skattgreiðendur hafa
hvorki efni á Kröflu-
nefnd, Iðnaðarráðuneyti
né Orkustofnun. Það er
þegar nóg komið.
Fyrir helgina var
fyrstu gufunni hleypt á
trúbínurnar við Kröflu.
Það er auðvitað sjónar-
spil fyrst og fremst, og
enda hefur eina nýtan-
lega holan við vikjunina
dottið niður síðan. Það er
því enn langt í land með
rafmagnsframleiðslu, ef
hún verður þá nokkurn
tímann. Og enginn mark-
aður til.
beztu hugsanlegu læknisaöstbð-
ar þegar eitthvað hefur bjátað á
og þeirrar beztu æfingaaðstöðu
sem völ hefur verið á á hverjum
tima. Þvi er Udo Bayer i dag
talinn bezti kúluvarpari heims-
ins.
Strandamaðurinn sterki,
strætisvagnabilstjórinn Hreinn
Halldórsson hlýtur þvi að koma
mönnum á óvart þegar litið er til
þeirrar aðstöðu sem honum hef-
ur verið búin. Með þrotlausum
æfingum sinum hefur hann allt
fram á siðasta vor þurft að
vinna fullan vinnudag. Iþrótta-
þjálfarar hér á landi eru fáir og
þeim vart búin sú aðstaða að
geta staðið stéttarbræðrum sin-
um erlendis á sporði. Og ekki er
æfingaraðstaða fyrir kúluvarp-
ara hér á landi upp á ýkja
marga fiska. Þrátt fyrir J»tta
telur Geoff Capes, hinn heims-
frægi brezki kúluvarpari að
Hreinn Halldórsson sé næst
bezti kúluvarpari i heiminum i
dag.
Það hlýtur þvi að verða að
þakka meðfæddum hæfileikum,
þrautseigju og dugnaði Hreins
þann árangur, sem hann hefur
náö. En það er ljóst að ef við
ætlum okkur stóra hluti á
iþróttasviðinu er ekki unnt að
treysta á að allir iþróttamenn
okkar verði tilbúnir að leggja
eins mikið að mörkum og
Hreinn Halldórsson. Þvi er brýn
nauðsyn að huga betur aö að-
stöðu iþróttamanna, það mun
eflaust skila sér i betri árangri i
framtiðinni.
ES
Allt situr fast. Þetta
steinsteypta stöðvarhús
er hins vegar dæmigert
fyrir ákvarðanatökuna
alla. Þess vegna, meðal
annars er, Kröfluævin-
týrið dýrasta fjármála-
hneyksli Islandssögunn-
ar.
Það vakti of litla at-
hygli F siðustu viku, þegar
Páll Flygering, ráðuneyt-
isstjóri í Iðnaðarráðu-
neyti, bar það upp á
Jakob Björnsson, Orku-
málastjóra, að rök hans
fyrir því að f lytja boranir
væru ekki vísindaleg,
heldur byggju annarlega
hvatir á bak við. Þetta
var dæmi um það lága
stig, sem ásakanir og
gagnásakanir vegna
Kröflu eru komnar á.
Við Kröflu er stein-
steypt stöðvarhús, sem
fyrirtæki tengt Jóni G.
Sólnes reisti, án þess þar
færi fram nokkurt útboð.
Annars staðar hafa verið
byggð járngrindarhús
fyrir slík fyrirtæki. Þau
hafa það fram yfir stein-
steypt hús að vera færan-
leg. Steinsteypt stöðvar-
hús verður hvergi hreyft.