Alþýðublaðið - 18.08.1977, Síða 12
alþýðu-
blaðið
l'tgefandi Alþýðuflokkurinn
Ritstjórn Alþýðublaðsins er að Sfðumúla 11, simi 81866. Auglýsingadeild blaðsins er að
Hverfisgötu 10, simi 14906 — Askriftarsimi 14900.
FIMMTUDAGUR
18. ÁGÚST 1977
_____________J
VÖRUVERÐ REIKNAÐ l)T FRA FÖLSKUM FORSENDUM?:
> ___________________
AFSLÁTTUR AF FARMGJÖLDUM
GREIDDUR EFTIR ÁRIÐ
Verðið til neytanda virðist þar af leiðandi of hátt
Eftir Hauk Má
Þegar verð vöru er
ákveðið/ eru reiknuð inn í
dæmið öll þau gjöld sem
innflytjandi hefur þurft að
greiða til að koma vörunni
til landsins. Hér má tína til
kostnað við útskipun í
erlendri höfn< farmgjald
sem skipafélag eða flug-
félag það sem flytur vör-
una til landsins tekur fyrir
flutninginn, uppskipunar-
kostnað í höfn hérlendis,
vörugjald og fleiri liöi
mætti ugglaust telja.
Þegar síðan þessi áfallni
kostnaður innf lytjandans
hefur verið reiknaður út er
reiknað út hve mikil álagn-
ing smásöluverzlunarinnar
er og síðan söluskattur. út
úr þessu dæmi kemur verð
vörunnar til neytandans.
Þetta er i rauninni gott
og blessað, svo langt sem
það nær, þetta er sú regla
sem gilt hefur. En hér er
því miður ekki um það að
ræða, að öllu réttlæti sé í
hvivetna fullnægt. Þau
dæmi munu nefnilega vera
til, að verðútreikningur sé
byggður á röngum for-
sendum. Farmgjaidið til
dæmis gefið upp hærra en
það er í raun.
Hér mun sá háttur nefni-
lega vera hafður á í mörg-
um tilvikum, að fastir
viðskiptavinir skipafélaga
fá afslátt af farmgjöldum.
Sá afsláttur er þó ekki
reiknaður út í hvert skipti
sem flutningur á vegum
fyrirtækisins fer fram,
heldur er hann reiknaður
út eftir árið og endur-
greiddur innf lytjandanum.
Þetta virðist ósköp
einfaldlega þýða, að
grundvöllur verðákvörð-
unarinnar er rangur sem
nemur þeim afslætti sem
innf lytjandinn fær. Verðið
til neytandans er þvi hærra
en það ætti að vera, ef
reiknað væri út frá raun-
verulegu farmgjaldi.
Samkvæmt heimildum
Alþýðublaðsins gefur til
dæmis Eimskipafélag
Islands föstum viðskipta-
vinum sínum 5% afslátt á
farmgjöldum og er sá
afsláttur reiknaður út eftir
árið, eins og að framan er
rakið. Verður að teljast lik-
legt að sami háttur tíðkist
hjá öðrum skipafélögum,
án þess þó að það verði
fullyrt hér. Á sama hátt
gæti afslátturinn verðið
hærri i einhverjum tilvik-
um.
En hver sem afsláttur-
inn er, þá er hitt Ijóst, að í
slikum tilvikum er verðið
sem neytandinn greiðir
fyrir vöru i verzlunum of
hátt. Og — i beinu
framhaldi af því — tekjur
innflytjandans aukast að
sama skapi. Það skal þó
tekið skýrt fram, að slíkur
endurgreiddur afsláttur er
ævinlega gefinn upp til
skatts, að sögn Gests
Steinþórssonar aðstoðar-
skattstjóra, þannig að hér
er ekki verið að ýja að
skattsvikum innflytjenda.
Alþýðublaðið hefur
síðustu daga haft samband
við nokkraaðila um þetta
mál og eru viðtöl við
nokkra þeirra birt hér á
síðunni.
ÞAÐ FÁ ALLIR
5% AFSLÁTT
Blaðamaður hringdi í eitt af
elztu fyrirtækjum i Reykjavik,
sem stundar innflutning marg-
vfslegra vörutegunda, og spurði
yfirmann innflutningsdeildar
þess, hvort ekki væri unnt að
semja um afslátt, af farmgjöld-
um þegar flutt væri til landsins
með skipum og um verulegt
magn væri að ræða.
Viðmælandinn kvað að visu
hugtakið „verulegt magn”
nokkuð á reiki. — Við erum eng-
in alúminbræðsla eða eitthvað
svoleiðis, hér hjá þessu fyrir-
tæki. Þannig að okkar viöskipti
eru svo sáralitil.
— En nú hlýtur eitthvað að
vera til sem þið kallið „verulegt
magn", þegar um ykkar
innflutning er að ræða, ekki
satt?
— Jú, en við erum bara svo
litlir. Þó við flytjum til dæmis
inn 2000 kassa af appelsinum, þá
eru það ekki nema 40 tonn.
— Þannig að þið gætuð þá
ekki samið um afslátt I sam-
bandi við ykkar flutninga?
— Já, það fá allir afslátt hjá
skipafélögunum held ég, fimm
prósent. Ef þeir eru fastir við-
skipavinir hjá þeim. Ég held að
þaö sé algengt.
— Er sá afsláttur dreginn frá
farmgjaldinu jafnóðum, eða...?
— Nei, nei, þetta er afsláttur
sem menn fá eftir árið, sem er
endurborgaöur. Þetta er eini
afslátturinn sem ég hef heyrt
talað um.
VERÐLAGSSTJÓRI:
Gæti komið neyt-
andanum tii góða
Málinu vísað til forstjóra
— Verðlagsnefnd ákveöur
hámarksverð vöru og þjónustu,
sagði Georg ólafsson verðlags-
stjóri, þegar blaðið haföi sam-
band við hann i gær um þetta
mál. — Hins vegar skiptum við
okkur ekki af þvi, þótt fyrirtæki
veiti afslátt af þvi hámarks-
verði sem þau hafa heimild til
að taka fyrir sina þjónustu, eða
sinar vörur. Persónulega finnst
mér að ekkert þurfi að vera
athugavert við það, að fyrirtæki
veiti afslátt af sinni þjónustu, ef
um mikil viðskipti er aö ræða.
— En i þessu tilviki veldur
afsátturinn þvi aö verð vöru er
reiknað út frá röngum prósent-
um, þannig að afslátturinn
kemur néytendum vörunnar
ekki til góða.
— Það er rétt, og raunar er
þetta mál i athugun hjá nefnd-
inni i tengslum við beiðni, sem
liggur fyrir henni frá Eimskipa-
félaginu um hækkun farmgjalda
og vöruafgreiðsluverðs. Raunar
tel ég að sá möguleiki sé fyrir
hendi, að afsláttur sem þessi
geti komið neytandanum til
góða, þvi i krafti þessa afsláttar
á farmgjöldum gæti
innflytjandinn veitt afslættinum
áfram, til verzlana og áfram til
neytenda.
Að öðru leyti vildi Georg ekki
tjá sig um málið, en vlsaði til
þess, að erindi Eimskipaféiags-
ins yrði afgreitt innan tiðar frá
Verðlagsnefnd.
Þegar Alþýðublaöiö
hafði samband við Eim-
skipafélag islands í gær-
morgun og spurðist fyrir
um afslátt af farmgjöld-
um fyrirtækisins til ein-
stakra viðskiptavina,
fullyrti sá starfsmaður
fyrirtækisins, sem blaða-
maðurinn talaði við, að
slíkur afsláttur væri aldr-
ei veittur. Gjaldið væri
ákveðið á kíló eða kúbik-
metra og það stæði. Eng-
in afsláttur.
Þegar hins vegar blaðið hafði
fengið það staöfest hjá innflutn-
ingsfyrirtæki, sem telja má vist
að sé stór viðskiptamaður
Eimskipafélagsins og ef til vill
fleiri skipafélaga, að allir fastir
viðskiptavinir félagsins fengju
5% afslátt af farmgjöldum og sá
afsláttur væri reiknaður eftir
árið og endurgreiddur, hafði
blaöamaðururinn aftur sam-
band við Eimskipafélagsmann-
inn. Hann visaði þá á annann,
sem eftir að hafa ráðfært sig við
þriðja aðila visaði málinu alfar-
ið til forstjóra Eimskipafélags
ins, Óttars Möller. Hann var
hins vegar i frii en er væntan-
legur til starfa i dag. Verður
væntanlega unnt oð birta viötal
við óttar i blaðinu á morgun.