Alþýðublaðið - 05.01.1978, Síða 2

Alþýðublaðið - 05.01.1978, Síða 2
2 Dýrtíð víðar en hérlendis Þorskur á fimmtán hundr- uð krónur hvert kílógramm Þaft er vist viftar en hérlendis sem verftlag hefur risiö og þanizt þannig að ýmsum þykir nú nóg um. Svo er i þaft minnsta aö sjá af frétt í blaðinu Aktuelt, sem gefift er út i Danveldi. Þar er þann 29. désember 1977 fjallað um þorskverð-Danir hafa þann sið að eta þorsk um áramót, þá væntanlega með góðum sósum og fleiru, þvi þeir eru flestir hinir mestu sælkerar, að þvi er sögur herma. Nú leizt þeim þó ekki meir en svo á blikuna, þvi kilóið af þorski var verðlagt á allt að fimmtán hundruð krónum islenzkum. Kom fram i fréttinni að verð þetta væri mest til komið vegna skorts á þorski á mark- aðinum. Þvi má reikna með að ára- mótabitinn hafi verið Dananum dýr. Jafnvel dýrari en steikin var okkur. Kvennadeild Reykja- vikurdeildar Rauða Kross íslands afhenti Landspitalanum veg- lega gjöf þann 29. desember. Hér var um að ræða hjartagæzlu- tæki, móðurstöð fyrir hjartagæzlukerfi. Stöðin samanstendur af sveiflusjá og skrifara. Til íslands? Annemarie Lorentzen, launa- og verðlagsmála- ráðherra Noregs (56 ára) mun trúlega verða útnefnd sendiherra Nor- egs á íslandi, að þvi er norsk blöð skýra frá. Útnefningin mun þá eiga sér stað nú i janúar, eftir að frúin hefur yfirgefið ráðuneyti Odvars Nordli. Skrifarinn fer i gang og skrifar niður mynd af hjartslætti sjúklinga, þegar hjartslátturinn verður óreglulegur. Þetta hjartagæzlukerfi mun vera meðal fullkomnustu slfkra kerfa, sem völ er á og mun tækið kosta liðlega 4 milljónir. Þá hefur Kvennadeildin einnig gefið 350.000 krónur til bókasafns sjúklinga Landspitalans. Annemarie Lorentzen Annemarie Lorentzen hefur gegnt ráðherraembættinu i 2 sið- astliðin ár. Aður gegndi hún ráð- herraembætti i stjórn Tryggve Bratteiis á árunum 1973-76. HUn hefurverið fulltrúi Finnmerkur á norska stórþinginu siðan 1969. Fimmtudagur 5. janúar 1978 SSSS" Finnski dansarinn Matti Tikkanen Á þrettándanum, n.k. föstudag veröur sjötta sýning á Hnotubr jótnum í Þ jóöleikhúsinu og að sínu leyti einskonar ný frum- sýning þar sem miklar breytingar verða á hlut- verkaskipan. Þá dansar Auður Bjarnadóttir í fyrsta skipti hlutverk Plómudísarinnar með finnska gestinum Matti Tikkanen sem dansar prinsinn dísarinnar. Hlut- verk Snædrottningar og snækóngsins dansa þá einnig í fyrsta sinn Ásdís Magnúsdóttir og Þór- arinn Baldvinsson. Ýmsar fleiri hlutverka- breytingar verða, t.d. dansar Helga Berhard nú forystuhlutverkið í Blómavalsinum. Misti McKee Judy í fyrsta þætti, ólafía Bjarnleifs- dóttir í indverska dansin- um og Guðmunda Jóhannesdóttir í rússneska dansinum. Viðbúið er, að siðar verði aðr- ar breytingar á hlutverkaskipun i Hnotubrjótnum. Misti McKee og Matti Tikkanen munu dansa snævaratriðið, Helga Bernhard og örn Guðmundsson hafa einn- ig æft það og Ólafia Bjarnleifs- dóttir hlutverk plómudisar- innar. Finnski dansarinn Matti Tikkanen er nú i fyrsta skipti gestur Þjóðleikhússins og Islenzka dansflokksins. Hann er i hópi fremstu dansara Norðurlanda og hefúr verið aðaldansari finnsku óperunnar, óperunnar i Zurich, Deutsche Oper am Rein, og Houston Ballet i Bandarikjunum og verið gestur i LondonFestival Ballet, San Fransisco-óperuna, á Salz- burgarhátiðinni, i Ballet Russe de Monte Carlo, i Genece og i Ráðstjórnarrikjunum. Hann hefur farið með aðalhlutverk i flestum helztu sigildu ballett- verkum eins og t.d. Svanavatn- inu, Þyrnirósu, Hnotubrjótnum, Rómeó og Júliu, Don Quijote, Coppeliu og yngri verkum eins og Þrihyrnda hattinum, Petruska, Les Biches, Dapnis og Klói, Othello, o.s.frv. Hann hefur starfað með danshöfund- um eins og Brigit Cullberg, Serge Lifar, Nicholas Berizoff, Rudolf Nurejev o.s.frv. Hnotubrjóturinn hefur fengið feikna góðar viðtökur og hver miði verið seldur á sýningarnar og svo er einnig á sýninguna á föstudag. Athygli skal vakin á þvi, að aðeins geta orðið tvær siðdegissýningar á þessari sýn- ingu, sem er ætluð fyrir alla fjölskylduna. Sýningar geta heldurekki verið nema frameft- ir janúar vegna gestanna sem taka þátt i Hnotubrjótnum. Háskóla- tónleikar Háskólatónleikar verða haldnir í Félagsstofnun Stúdenta við Hringbraut laugardaginn 7. janúar kl. 17. Jónas Ingimundarson píanóleikari leikur þrjár sónötur eftir Beethoven, Tunglskinssónötuna. Wald- steinsónötuna og sónötu op. m, sem er síðasta píanó- sónatan sem Beethoven samdi. Tónleika þessa átti að halda 17. des. sl., en þeim varð að fresta. Tónleikarnir hefjast núna kl. 5 síðdegis og verður svo um þá Háskólatónleika sem eftir eru í vetur. Aðgangur er öllum heimill og kostar 600 kr. Jónas Ingimundarson

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.