Alþýðublaðið - 05.01.1978, Síða 3

Alþýðublaðið - 05.01.1978, Síða 3
3 ggr Fimmtudagur 5. janúar 1978 Skagaströnd: Læknislaust í 11 ár áSkaga- strönd Veftur eru ekki alltaf jafn blift á Skagaströnd og þegar þessi mynd var tekin. Yfir vetrarmánuöina geta samgöngur teppzt svo dögum skiptir. Nú um 11 ára skeið hefur verið læknisiaust i Ska gas tran darl æknis- héraði, eða frá árinu 1966 er Lárus Jónsson, sem siðastur gegndi læknisembætti þar, fluttist brott. Þá hafði Skagaströnd verið sér- stakt læknishérað frá árinu 1954. Skagstrendingar og aðrir Skagamenn hafa allt frá þvi að seinasti læknirinn hvarf af staðnum sent hvert áskorunarbréfið á fætur öðru til alþingismanna fjóðungsins og land- læknis um að fá aftur lækni á staðinn, en ávallt verið tjáð að eng- inn fengist til að sinna starfinu. Soffia L. Lárusdóttir á Skaga- strönd sendi okkur bréf þar sem hún rekur mál þetta. HUn getur þess aö áriö 1973 hafi veriö sam- þykkt ný lög um heilbrigöisþjón- ustu á Alþingi, sem m.a. geröu ráö fyrir þvi aö Höföahéraö sam- einaöist Blönduóslæknishéraöi. Þaö fyrirkomulag útilokar búsetu læknis á Skagaströnd. Fyrir áeggjan heimamanna lögöu þing- menn héraðsins fram tillögu um að i lögunum yrði gert ráð fyrir heilsugæzlustöö á Skagaströnd. Tillagan féll á einu atkvæöi. Næstaár varálika tillaga svæfð i nefnd. Soffia telur aö þar meö séu læknismál þar nyrðra komin i svipaö horf og var fyrir 1954 þeg- ar baráttan fyrir sérstöku læknis- héraði á Skagaströnd stóð yfir. 1 október 1975 skipaöi heilbrigð- isráðherra nefnd sem endurskoða skyldi lögin frá 1973. Nefndin hef- ur ekki enn skilað áliti um heil- brigðismál landsbyggöarinnar og að sögn Soffiu hafa engin svör borizt við beiðni Skagstrendinga um heilsugæzlustöð þar á staðn- um. Soffia tekur fram að læknis- þjónusta sú sem Skagstrendingar njóta nú sé góö svo langtsem hún nær.En vetrarveður geti oröiö slik, að þaö geti oröiö margir dag- ar yfirveturinn sem læknirkemst ekki þangað frá Blönduósi, þótt um lif eða dauöa væri aö tefla. Og jafnerfitt væri aö fara með sjúkl- ing á sjúkrahús á Blönduósi i slik- um veðrum. _...... Styrkir Vísinda sjóðs auglýstir lausir til um- sóknar Styrkir Vísindasjóðs árið 1978 hafa verið aug- lýstir lausir til umsókn- ar og er umsóknarfrest- ur til 1. marz. Sjóðurinn skiptist í tvær deildir: Raunvis- indadeild og Hugvís- indadeild. Raunvisindadeild annast styrk- veitingar á sviði náttúruvisinda, þar með taldar eðlisfræði og kjarnorkuvisindi, efnafræði, stærðfræði, læknisfræði, liffræði, lifeðlisfræði, jarðfræði, jarðeðlis- fræði, dýrafræði, grasafræði, erfðafræði, búvisindi, fiskifræði, verkfræði og tæknifræði. Hugvisindadeild annast styrk- veitingar á sviði sagnfræði, bók- menntafræði, málvisinda, félags- fræði, lögfræði, hagfræði, heim- speki, guðfræði, sálfræði og upp- eldisfræði. Hlutverk Visindasjóðs er að efla islenzkar visindarannsóknir og i þeim tilgangi styrkir hann: 1 Einstaklinga og visindastofn- anir vegna tiltekinna rann- sóknarverkefna. 2 Kandidata til visindalegs sér- náms og þjálfunar. Kandidat verður að vinna að tilteknum sérfræðilegum rannsóknum til þess að koma til greina með styrkveitingu. 3. Rannsóknastofnanir til kaupa átækjum,ritum eða til greiðslu á öðrum kostnaði við starfsemi er sjóðurinn styrkir. Umsóknareyðublöð, ásamt upplýsingum, fást hjá deildarit- urum, i skrifstofu Háskóla Is- lands og hjá sendiráðum Islands erlendis. Umsóknir skal senda deildariturum, en þeir eru Guð- mundur Arnlaugsson rektor Menntaskólanum við Hamrahlið, fyrirRaunvisindadeild, og Bjarni Vilhjálmsson þjóðskjalavörður Þjóðskjalasafni Islands, fyrir Hugvisindadeild. EFLIÐ ALÞÝÐUFLOKKINN - ÚTBREIÐIÐ ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7 GREIDENDUR vinsamlega veitið eftirfarandi erindi athygli: Frestur til að skila launamiðum rennur út þann 19. janúar, Það eru tilmæli embættisins til yðar, að þér ritið allar upplýsingar rétt og greinilega á miðana og vandið frágang þeirra. Með því stuólið þér að hagkvæmni í opin- berum rekstri og firrið yður óþarfa tímaeyðslu. RÍKISSKATTSTJÓRI

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.