Alþýðublaðið - 05.01.1978, Síða 9
Fimmtudagur 5. janúar 1978
9
Utvarp
Fimmtudagur
5 iam'iar
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10. Morgunleikfimi kl.
7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30,
8.15 (og forustugr. dagbl.),
9.00 og 10.00. Morgunbænkl.
7.50. Morgunstund
barnanna kl. 9.15. Geir
Christensen lýkur lestri
sögunnar um Grýlu, Leppa-
lúða og jólasveinana eftir
Guðrúnu Sveinsdóttur (3).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða. Til umhugs-
unar kl. 10.25. Þáttur um
áfengismál i umsjá Karls
Helgasonar lögfræðings.
Tónleikar kl. 10.40. Morgun-
tónleikarkl. 11.00: Sinfóníu-
hljómsveit Lundúna leikur
Forleik að óperunni
„Heilagri Jóhönnu” eftir
Verdi, Richard Bonynge stj.
Sviatoslav Rikhter og
Parisarhljómsveitin leika
Pianókonsert nr. 2 i B-dúr
op. 83 eftir Brahms, Lorin
Maazel stj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. A frivaktinni
Sigrún Sigurðardóttir kynn-
ir óskalög sjómanna.
14.40 Verð ég ailtaf i öskunni?
Þáttur um fullorðins-
fræðslu. Umsjón: Þorbjörn
Guðmundsson.
15.00 MiðdegistónleikarAndré
Watts leikur Sex Paganini-
etýðureftir Franz Liszt. Ye-
hudi Menuhin og hljómsveit
Filharmonia i Lundúnum
leika „Romance, réverie et
Caprice” op. 8 eftir Hector
Berlioz, John Pritchard
stjórnar. Heinz Holliger og
Nýja Filharmóniusveitin
leika óbókonsert i D-dúr
eftir Richard Strauss, Edo
de Waart stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Tónleikar.
17.30 Lagið mitt Helga
Stephensen kynnir óskalög
barna innan tólf ára aldurs.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Gisli Jóns-
son flytur þáttinn.
19.40 islenskir einsöngvarar
og kórar syngja.
20.10 Leikrit: „Eiginkona
ofurstans” eftir Somerset
Maugham Þýðandi: Torfey
Steinsdóttir. Leikstjóri og
sögumaður: Rúrik Haralds-
son. Persónur og leikendur:
George Peregrine... Gisli
Halldórsson, Evie Per-
grine... Margrét Guð-
mundsdóttir, Henry Blake...
Jón Sigurbjörnsson,
Daphne... Sigriður Þor-
valdsdóttir, Bóksali... Helgi
Skúlason, Klúbbfélagar:
Ævar R. Kvaran og
Þorsteinn 0. Stephensen.
Aðrir leikendur: Kristbjörg
Kjeld. Gisli Alfreðsson,
Baldvin Halldórsson, Valde-
mar Helgason, Brynja
Benediktsdóttir og Klemenz
Jónsson.
21.10 Sinfóniuhljómsveit is-
lands leikur i útvarpssal.
Einsöngvarar: Sieglinde
Kahmann og Sigurður
Björnsson. Stjórnandi: Páll
P. Pálsson. a. „Orfeus i
undirheimum ”, forleikur
eftir Offenbach b. „Still wie
die Nacht” eftir Böhm. c.
„Intermezzo úr „Cavalliera
Rusticana” eftir Mascagni.
d. „Niemand liebt dich so
wie ich” úr „Paganini" eftir
Lehar. e. „Sag 'ja, mein
Lieb, sag 'ja” úr „Maritzu
greifafrú" eftir Kalman.
21.40 Að Kleifarvegi 15 Ingi
Karl Höskuldsson ræðir við
Reginu Höskuldsdóttur og
Eirik Ragnarsson, en þau
veita forstöðu heimili fyrir
börn sem eiga við sálræn og
itíiagbieg v aiiuumui „..
striða.
22.00 Sónata I Es-dúr (K481)
eftir Mozart Ulf Hoelscher
og Maria Bergmann leika á
fiðlu og pianó.
23.30 Veðurfregnir. Fréttir.
Eiginkona ofurstans
Fimmtudaginn 5. janú-
ar kl. 20.10 verður flutt
leikritið ,,Eiginkona
ofurstans" eftir Somer-
set AAaugham. Þýðandi er
Torfey Steinsdóttir og
leikstjóri Rúrik Haralds-
son, sem jafnframt er
sögumaður. AAeð önnur
helztu hlutverk fara Gísli
Halldórsson, AAargrét
Guðmundsdóttir, Jón
Sigurbjörnsson og Sigríð-
ur Þorvaldsdóttir. Leik-
ritið er tæplega klukku-
stundar langt.
Ofurstinn George Pere-
grine er mektarmaður í
sveit sinni, en kona hans
er lítii fyrir mann að sjá
og virðist ekki líkleg til
stórræða. Það kemur
ofurstanum þvi mjög á
óvart, þegar hún verður
allt í einu fræg fyrir
Ijóðabók, sem gefin er út
undir skírnarnafni henn-
ar. Ofurstanum finnst
hann hverfa í skuggann,
því að nú vilja allir
þekkja konu hans. Sjálfur
hef ur hann lítinn áhuga á
Ijóðum, en því meiri á
ýmsu öðru, sem honum
finnst áþreifanlegra.
William Somerset
AAaugham fæddist í París
1874. Hannstundaði nám I
heimspeki og bókmennt-
um við háskólann í
Heidelberg, og læknis-
fræðinám um skeið í
Lundúnum. Fyrsta saga
hans, ,,Liza frá
Lambeth" kom út árið
1897 og fyrsta leikritið
nokkrum árum síðar.
hann hafði lengstum átt
búsetu síðustu tvo ára-
tugina.
,,Eiginkona ofurstans"
er ekki skrifuð sem leik-
rit, heldur gerð eftir einni
af sögum AAaughams, en
hann var snillingur í smá-
sagnagerð. Þetta hefur
Stór brotnasta saga
AAaughams er vafalítið ,, í
fjötrum", sem er sjálfs-
ævisaga að nokkru leyti.
Á stríðsárunum dvaldi
AAaugham í Bandaríkjun-
um, en henn lézt í Frakk-
landi árið 1965, þar sem
verið vinsæll höfundur
hér, því að fjölmörg
verka hans hafa verið
flutt bæði á leiksviði og í
útvarpi. ,,Eiginkona
ofurstans" er 21. leikrit
hans, sem útvarpið flyt-
ur.
— 21. leikrit Somerset Maughams
sem útvarpið flytur
Danmörk:
Ungir eiturlyfja-
neytendur
deyja í hrönnum
Rannsóknir, sem
gerðar hafa verið i Dan-
mörku sýna, að fjölda-
margir, sem hafa farið i
Metadon-meðferðina
svokölluðu, taka jafn-
hliða önnur eiturlyf, og
missa þar með stjórn á
neyzlunni.
Á stór-Kaupmanna-
hafnarsvæðinu einu eru
a.m.k. 3000: manns, sem
misnota iyf, og helm-
ingur þeirra sem tók inn
Metadon 1975, hefur nú
enga stjórn á lyfja-
notkuninni. Fjölmargir
þeirra, sem á þennan
hátt hafa ánetjazt eitur-
lyfjunum, forðast allar
lækningastofnanir eins
og heitan eldinn, og
segjast ekki fá þá hjálp
sem þeir þurfi þar.
Rannsóknirnar hafa sem sagt
leitt iljós, að efla verður þær leið-
ir, sem færar eru til þess, að veita
þessu fólki aðstoð til að snúa til
baka. En hverjar eru þær?
Hafa tvær einkum þótt
vænlegar til árangurs. Hin fyrri
er, að koma öllum eiturlyfjaneyt-
endum á skrá, vakta þá, og reyna
á þann hátt, að halda neyzlunni i
lágmarki. Hin siðari er, að koma
á fót svokölluðum metadon-stofn-
unum, þar sem eiturlyfjaneyt-
endur geta fengið lágmarks-
skammt, án þess að um eiginlega
afvötnun sé að ræða.
Þessar tvær hugsanlegu
aðferðir hafa mælzt mjög mis-
jafnlega fyrir, einkum hin siðari.
H.E. Knipschildt læknir, sem
viðkunnur er fyrir rannsóknir
sinar á misnotkun eiturlyfja
hefur varað mjög við Meta-
don-stofnunum, jafnframt þvi
sem hann bendir á áhættuna, sem
f:ylgir slikri meðferð.
— Ef slikum stofnunum er
komið á fót, að einhverju marki,
er viðbúið að sjúklingarnir nái sér
aldrei upp úr þessum vitahring,
segir hann. t stað þess má gera
ráð fyrir fleiri dauðsföllum, þar
sem margir munu bæta skammt-
inn með annars konar lyfjum. —
Þvi má bæta við, að siðasta
rannsókn sem gerð var á eitur-
lyfjaneyslu i Danmörku sýnir, að
73% neytenda eru karlmenn, og
tæpur helmingur þeirra er á aldr-
inum 22-25 ára. Rúmur
fjórðungur er svo fyrir neðan
þessialdursmörk, eða yngri en 22
ára. Dauðsföllum af völdum
eiturlyfjaneyzlu hefur stöðugt
farið fjölgandi, og þykir þeim, er
hafa kynnt sér málin, þróunin
orðin svo iskyggileg, að ekki megi
dragast miklu lengur að gripa til
raunhæfra aðgerða.
Skák
Hvítur leikur og vinnur.
Steinmeyer-Bernstein, U.S.A. 1944.
1. Hxh7!, Kxh7 2. Df7+, Kh6 3. Bg7+, Kg5 4. f4+,
Kh5 5. g3, Rh6 6. Re5+! Svartur gafst upp, þvi ef
6...Rxf7 7. Be2+ og mát i næsta leik.
Umsjðn Baldur Fjölnisson
Ritstjórn Alþýðublaðsins
er í Síðumúla 11 - Sími 81866