Alþýðublaðið - 06.01.1978, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 06.01.1978, Blaðsíða 1
Stjómarmönn- um Dósagerð- arinnar var alls ókunnugtum hjálpsemi Hauks við forstjórann ,, Ég teldi ástæðu til að gera rannsókn á málum Landsbankans sjálfs, — hvernig stendur á að þeir láta manninn sitja á sama stað i áraraðir, þegar sagt er að þeir hafi haft grun á honum í lang- an tima? Við í stjórn Rannsakið málefni Landsbankans Björgólfur — Rekstrarfjárskortur hjá fyrirtækinu vegna húsakaupa Dósagerðarinnar höfum lagt öll mál hreint fyrir, spyrjið rannsóknardóm- arann, já, og Jónas Haralz! Þannig fórust Björgólfi Guðmundssyni orð i viðtali við Alþýðublaðið i gær, en á fundi stjórnar Dósagerðarinnar ný- lega var samþykkt að leggja öll gögn opin fyrir rannsóknardóm- ara til athugunar. í stjórn Dósagerðarinnar sitja sem aðalmenn fyrir hönd Sölustofnunar lagmetis, sem á 25% eignarhlut, þeir Gylfi Þór Magnússon og Kristján Jónsson frá Akureyri, en Eysteinn Helgason til vara. Aðrir aðal- menn i stjórninni eru svo þeir Jóhann Ólafsson, Björgólfur Guðmundsson og Tryggvi Jóns- son og er Eyjólfur K. Sigurjóns- son þeirra varamaður. Núverandi forstjóri er Jóhann Ólafsson, sem áður var formað- ur stjórnar, eða til 1. des. sl. og gerðist Björgólfur fyrrum for- stjóri, þá stjórnarformaður. Björgólfur starfar nú hjá Haf- skip hf. Samkvæmt viðtali og upplýs- ingum fengnum hjá stjórnar- mönnum hjá Dósagerðinni er þó alljóst orðið að Björgólfur hefur útvegað ýmsa fyrirgreiðslu hjá forstöðumanni ábyrgðardeildar Landsbankans, Hauki Heiðari, án vitundar samstjórnarmanna sinna, sem i engu gátu séð að þar væri neitt tortryggilega til komið, öll gögn með réttum stimplum og áritunum bankans. Hvað sem þessari leynd liður er samt ekki hægt að vita að svo stöddu hvort um ókjör á þessum fyrirgreiðslum hefur verið aö ræða. t samtali við Gylfa Þór Magnússon kom fram að stór- Eramhald á bls. 10 Endurskodun f bankakerfinu öll í ólestri? Endurskoöun i banka- kerfinu er yfirleitt ekki í höndum manna sem hafa til aö bera sérþekkingu eða sérmenntun á sviöi endur- skoöunar. Reglur um endurskoðun i innlánastofnunum eru úr- eltar. Framkvæmd endurskoð- unar i innlánastofnunum er ekki í samræmi við það sem hægt er að kalla góða endurskoðunarvenju. Alþýðublaðið leitaði í gær svara við fáeinum spurningum hjá Sveini Jónssyni, forstöðumanni bankaeftirlits Seðlabanka íslands. Sjá bls. 3. ■ ■■ í dag er þrettándi og siðasti dagur jóla Framkvæmdastjóri Járnblendiverksmiðjunnar: 860.000 i — auk hlunninda í mánadarlaun! Sjá baksíðu Árskaupiö hærra en samkvæmt Samið á Vestfjörðum: ASI-samningum Verka lýðsf élögin á Vestfjörðum sömdu um miðnættið í fyrrinótt við mótaðila sína, og gildir samningurinn fyrir öll verkalýðsfélögin vestra nema þrjú, sem eru aðilar að aðalkjarasamningi Alþýðusambands islands. — Þetta voru nú engin ósköp, enda vildum við ekki sprengja ramma- samninginn, sagði Pétur Sigurðsson, forseti Alþýðusambands Vestfjarða, þegar blaðið ræddi við hann í gærmorgun. — Við sömdum um hækkun á áfangahækkun- inni í janúar, 7.800 krónur í stað 5.000 eins og gamli samningurinn hljóðaði upp á, auk viðbótahækkunar semnemur 1.500 krónum á alla taxta. Auk þessa kemur svo 3.500 króna hækkun á alla taxta I marz- mánuði, f staö áfangahækkunar 1. júli, sem við höföum samið um áður. Þessar hækkanir verkalýðs- félaganna á Vestfjöröum þýöa, að fram að miðju ári veröur kaup verkafólks vestra hærra en þeirra sem taka kaup samkvæmt samn- ingi Alþýöusambands tslands. Frá miðju ári verður kaupið hins veg^r það sama hjá báðum aðil- um. En þegar allt er tekið með f reikninginn þýöa þessir samn- ingar á Vestfjöröum, að tima- kaupiö er sem nemur 3.20 krónum hærra á alla taxta allt áriö, aö meðaltali. Pétur sagðist ekki vera neitt sérstaklega ánægöur með þessa samninga, en hins vegar hefði það verið mat samninganefndar verkalýðsfélaganna, aö meiri árangri væri ekki unnt aö ná nema með átökum, sem vart hefðu borgaö sig. Samningarnir verða bornir undir verkalýðsfélögin til afgreiðslu i kvöld, en eins og fyrr segir eru öll verkalýðsfélögin nema þrjú aöilar að þessum samningi. Þau þrjú sem ekki eru aöilar að honum eru félögin á Þingeyri, Reykhólum og I Tálknafirði.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.