Alþýðublaðið - 06.01.1978, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 06.01.1978, Qupperneq 5
sssr Föstudagur 6. janúar 1978 5 Eftir Dag Halvorsenr Umræður um mann- réttindi, slökun spennu milli austurs og vesturs og friðarumleitanir i Mið Austurlöndum eru efst á dagskrá Carters Bandarikjaforseta i sjö landa för hans sem enn stendur yfir. Sýnt er að forsetinn litur svo á, að Pólland sé — þegar Sovétrikjunum sleppir — einn þýðingar- mesti hlekkurinn i Austurblökkinni. Það er þvi ekki mót von, að hann heimsótti Pólland fyrst kommúniskra rikja. Að visu lét Gierek, flokksleiðtogi i Póllandi, það i ljós að heimsókn Carters breytti engu um viðhorf Pólverja til Sovét, en hann vonaði, að við komu forsetans hefðu vináttubönd styrkzt milli Pólverja og Bandarikjamanna. Andófsmenn i Pól- landi hafa verið þakk- látir fyrir heimsóknina og þakka henni meðal annars, að nú eru engir pólitiskir fangar lengur i pólskum fangelsum. Ferðalög Pólverja til vestrænna landa voru Gierek flokksleiðtogi og Carter viö komuna til Varsjár i \r, ' ‘ ,ww| För Carters Bandaríkjaforseta til Póllands og Mid-Austurlanda Rætt um ferðafrelsi Pólverja mjög umrædd á fundum leiðtoga rikjanna. Það var raunar engan veginn vel séð hjá stjórnvöldum i Pól- landi, að Carter krafðist þess að mega leggja blómsveig að minnismerki um Varsjárupp- reisnina forðum og talið er að stjórnvöld hafi freistað að fá hann til að falla frá þvi, en hann hélt sitt strik og þvi var ekki mótmælt opinberlega. Þaðan hélthann svo til þinghússins til umræðna við Gierek, flokksleiðtoga og Jablonski forseta. Frú Rosalynn Carter átti tutt- ugu mínútna viðtal við Stefan Vyzinski, æðsta mann pólsku kirkjunnar, og öryggisráðgjafi forsetahjónanna, sem er af pólsk- um uppruna, var i fylgd með henni. Vel mun hafa farið á með hinum tignu gestum og kirkju- höfðingjanum, sem talinn er af kunnugum áhrifamikill i pólsku þjóðlifi. Móttökur Varsjárbúa voru taldar hlýlegar, en þó ekki með neinum fádæmum. Hinsvegar er talið, að Gierek flokksleiðtogi hafi sérstaklega fagnað komu Carters og litið á hana, sem ágætan stuðning við pólska rikið og sig persónulega. Carter forseti mun og lita svoá, að Pólland geti verið þýðingar- mikill hlekkur i að vinna að spennuslökun milli austurs og vesturs, enda eru blóðtengsl milli landanna sterk, þar sem um 12 milljónir af pólskum ættum eru rikisborgarar i Bandarikjunum og fjöldi Pðlverja á vini og ætt- ingja þar í landi. Heimsókn Carters hefur þvi snert viðkvæman streng i margra brjóstum. Leiðtogarnir áttu þriggja stunda einkaviðræður, og þó þar sé vitanlega ekki vitað um allt, sem þeim fór á milli hefur þetta kvisast. Gierek dró ekki dul á, að hann væri i mörgu ósamþykkur gagn- rýni Carters vegna brota i mann- réttindamálum i Austur Evrópu, taldi þar margt yfirdrifið. Carter mun þó hafa setið við sinn keip i þeim efnum. Ennfremur mun hannhafa hvatt Gierek til að losa verulega um þær hömlur, sem hafa verið á ferðalögum Pólverja til Vesturlanda, þar með talið Bandarikjanna, enda ættu þeir þar bæði vinum og nánum ætt- ingjum að mæta. Efnahagsleg viðskipti mun hafa borið verulega á góma. Erfiðleikar Pólverja i landbún- aðarmálum hafa verið miklir og vaxandi á siðari árum. Þar til kemur og léleg uppskera. Pól- verjar hafa orðið að flytja inn kornvörur frá Canada og Banda- rikjunum i sivaxandi mæii og þó átt fullt I fangi með að ráða við óeirðir i landinu, sem stöfuðu af matvælaskorti. Taliðervist, að Gierek hafilagt hart að Carter um að auka þann árlega lánsfjárkvóta, sem verið hefur 300 millj. dollara, upp i 500 milljónir. En árangur er auðvitað ekki ljós enn. Pólskir andófsmenn hafa þakk- að það komu Carters, sem hefur átt nokkurn aðdraganda, að nú eru engir pólitískir fangar i fangelsum þar i landi og hafa ekki verið siðan i júli siðastliðnum. Vissulega mun Gierek hafa lagt áherzlu á þetta, sem augljóst dæmi um aukin mannréttindi, jafnframt sem hann er talinn hafa viðurkennt, að enn betur mætti gera. A þaö mun hafa verið sæzt i bili. För Carters til Póllands og ákvörðun Bandarikjamanna að senda Ungverjum hina fornhelgu Stefánskórónu um þessi áramót, gefur bendingu um, hvaða riki i Austurblökkinni Bandarikja- menn telja sér hagkvæmt að hafa greiðust og bezt sambönd við. Þetta eru einnig þau riki austan- tjaldssem reka sin stjórnmál hóf- legast. Báðir aðilar mun- ha a lagt á það nokxuð þunga áherzlu að þeir væntu þess, að fundur yrði meö þeim Carter og Brésnev ein- hverntima á árinu 1978, enda væri hér alls ekki um að ræða neina storkun við Sovétrikin. Þetta væri hinsvegar vináttuheimsókn, gagnleg fyrir samband beggja. Eftirfarandi grein er endursögð úr danska blaðinu Aktúelt, en hún er skrifuð af einum af foringjum jafnaðar- manna i Danmörku, Karsten Soltau. ,,Kinverjar reikna með þvi sem gefinni staðreynd að þriðja heimsstyrjöldin brjótist út innan 10 ára. Þess vegna má sjá stórkost- legar framkvæmdir út um allt Kina. Þeir eru að undirbúa sig fyrir strið- ið. Meðan á heimsókn minni i Kina stóð, kom ég til borgarinnar Dari- en (i norðausturhluta Kina) og kom þá i neðanjarðar loftvarnar- byrgi. Byrgið rúmar 60.000 manns i 20 km löngum jarðgöngum, þar sem eru setustofur, svefnherbergi, snyrting- ar, barnaheimili, verk- stæði, sjúkraskýli, vatnsforðageymslur og fullkominn loftræst- ingarbúnaður. Lofthæð i göngunum er 2 m og þau eru 1.3-2.5 m á breidd. Yfirleitt eru göngin 10 metra undir yfirborði jarðar, en sums staðar jafnvel 17-18 metra. Bæinn Darien byggir nú um 1 milljón manna og rúma loft- varnarbyrgin undir henni alla ibúana! 300 vinnuflokkar hafa annast allan gröftinn undir borg- inni, en þessi einstæðu neðan- jarðarbyrgi eru byggð sam- kvæmt leiðsögn Maos Tsetungs: Hann sagði eitt sinn: „Grafið djúp jarðhýsi og komið upp korn- geymslum um allt landið”. Állir Kinverjar sem á annað borð hafa aðgang að svona göng- um vita nákvæmlega hvernig þeir eiga að fara niður i jörðina og á hvaða stað, ef til þess kemur. Inngangurinn sem ég notaði var undir stórri verzlun á stærð við Daells-vöruhúsið i Kaup- mannahöfn. Þó að verzlunin væri full af fólki þegar viðvörunar- merki væri gefið, yrði fólkinu öllu komið niður í göngin á innan viö 10 minútum. Með mikilli skipu- lagningu hefur tekist að byggja upp kerfi sem gerir 1 milljón ibúa Dariens kleift að hverfa niður i jörðina á 10 minútum! Hvar sem menn koma i Kina, má sjá brunna meðfram vegum þar sem hægt er að komast inn i jarðhýsin, annars staðar sjást steinstöplar með bogadregnum inngangi 'sem biða eftir þvi aö verða huldir jarðvegi. Allt starfiö við þennan undirbúning Kinverja vegna yfirvofandi heimsstyrjald- ar er unnið eftir að venjulegum vinnutima lýkur. Hvar sem var hittum við Kin- verja sem voru fullvissir um að heimsstyrjöld/stæði fyrir dyrum. Þeir ætluðu ekki að láta koma sér að óvörum. Jarðhýsunum var ætlað að verja fólkið fyrir atóm- styrjöld og alls kyns kemiskum vopnum sem heimsvaldasinnar hafa yfir að ráða. Ef svo fer að atómsprengja hittir kinverskar borgir, koma hin diúpu jarðgöng aö góðum not- um. Þá er hurðunum að umheim- inum einfaldlega lokað og litio flyst niður i jörðina. Ef við spurðum hverjir væru óvinir fólksins, sem það væri að búa sig undir að mæta, var svarið svohljöðandi: „heimsvaldastefn- an og sósialheimsvaldastefnan" (Bandarikin og Sovétrikin). Hafi Kinverjar rétt fyrir sér varðandi styrjaldarspána, þá horfir illa fyrir okkur Dönum. Hin gömlu loftvarnarbyrgi sem hér eru leifar af munu varla koma að miklum notum ef kæmi til atómstriðs eða striðs þar sem bakterium og kemiskum efnum væri beitt. Þau nægðu ekki einu sinni ef einföld tæknimilstök ættu sér stað i kjarnorkuverum Sviþjóðai eða i efnaiðnaði i Danmörku! Eigum við að treysta þvi, að Kinverjar hafi á röngu að standa?”. Kínverjar búa til neóanjaróarborgir

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.