Alþýðublaðið - 07.01.1978, Síða 1

Alþýðublaðið - 07.01.1978, Síða 1
 LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 5. TBL. — 1978 — 59. ÁRG. Ritstjórn blaðsins er til húsa í Síðumúla 11 — Sími (91)81866 — Kvöldsími frétta- vaktar (91)81976 íburdur í einkalífi: Þangað nær hönd skatt- rannsókna ekki — rætt vid skattrannsóknarstjóra verið forsenda þannig könnun- ar. Enn benti Garðar á hve tor- velt væri að fylgjast með óhófs- lifnaði á mörgum sviðum. HUs- eign, sem á skattframtali væri talin fram á hóflegu verði, gæti verið svo kostuleg að innri bUn- aði að þær lægju í ógrynni fjár. Daglegri einkaneyzlu væri lika erfitt að hafa neitt eftirlit með, svo augljóslega ræddi hér um það grundvallaratriði, hve langt skuli ganga i að fylgjast með fóiki, hvort farið skuli inn á heimili manna og þar fram eftir götunum. Þannig er vandlifað fyrir rétt- lætið i heiminum. AM „Hér ræðir um grundvallaratriði, það er að segja hve langt skal gengið i þvi að fylgjast með fólki”, sagði Garðar Valdi- marsson, skattrann- sóknarstjóri, þegar rætt var við hann i gær i framhaldi af umræðu i blaðinu i fyrradag um göt á eftirliti með ríkis- mönnum, sem á skattaskýrslu eiga ekki meira en hver mið- lungsmaður. Garðar sagði að skattarann- sóknir beindust venjulega meir að fyrirtækjum en einstakling- um, og minnti á þær skyndi- kannanir, sem embættið hefur iðjulega staðið fyrir. Hins vegar væru lifshættir einstaklinga stundum rannsakaðir. Að visu kæmu það varla til nema þegar sérstök mál kæmu upp á, ekki væri spjótum beint að mönnum, sem ekki vektu á sér sérstaka athygli. Rannsóknir á einstakl- ingum hafa gengið það langt að grennslazt hefur verið fyrir um fjölda utanferða, og gæti gjald- eyriseign i útlöndum til dæmis Landssmiðjan er sjálfstætt fyrirtæki I eigu rlkisins. LandssmiOjan er ekki á fjárlögum. Fyrir- tækið skilar hagnaði. I Smiöjunni vinna um 90 manns. Svo sem mönnum mun kunnugt lagöi nefnd skipuð af Fjármálaráðherra til að Landssmiðjan skuli lögð niður. Ef til þess yrði gripið myndi þaðógna llfsafkomu nálægt 90 fjöiskyldna, — a.m.k. um tima. Blaðamenn Alþýðublaðsins heimsóttu Landssmiðjuna og leituðu álits starfsmanna þar á þessari hugmynd. — AB-mynd:GEK Sjá myndirog texta á bls.6 og 7. Mynd: —GEK Hreinn kjörinn ,, íþróttamadur ársins” Hreinn Halldórsson var kjörinn ,,lþróttamaður ársins" af samtökum í- þróttafréttaritara í gær. Þetta er annað árið í röð sem Hreinn hlýtur þetta sæmdarheiti. Hreinn er sannarlega vel að þessari nafnbót kominn og kom þetta val fáum á óvart. Hreinn er með allra beztu kúluvörpurum heims i dag og hæst ber hið frá- bæra afrek hans, er hann varð Evrópumeistari i kúluvarpi inn- anhúss. Hreinn fékk 70 stig af sjö- tiu mögulegum. Tiu efstu i kosningunni urðu þessir: 10. sæti: Ingi Björn Albertsson, knattspyrnumaður, 10 stig. 9. sæti: Björgvin Þorsteinsson, golfmaður, 11 stig. 8. sæti: Guðmundur Sigurðsson, lyftingamaður, 18 stig. 7. sæti: Ingunn Einarsdóttir, frjálsiþróttakona, 20 stig. 6. sæti: Gisli Þorsteinsson, júdómaður, 21 stig. 5. dæti: Gústaf Agnarsson, lyftingarmaður, 24 stig. 4. sæti: Geir Hallsteinsson, handboltamaður, 39 stig. 3.sæti: Vilmundur Vilhjálmsson, frjálsiþróttamaöur, 52 stig. 2. sæti: Ásgeir Sigurvinsson, knattspyrnumaður, 53 stig. 1. sæti: Hreinn Halldórsson, frjálsiþróttamaður, 70 stig. Margir munu sakna skák- mannsins snjalla, Jóns L. Arna- sonar, i þessum hópi. Skýringin er sú, að á tslandi telst skák ekki til iþrótta og þar af leiðandi er Skáksamband tslands ekki aöili að tSI. —ATA Björgvin Guðmundsson í borgarstjórn: Borgin leiti samstarfs um rekstur Landssmidju Á fundi borgarstjórnar i fyrrakvöld hvatti Björg- vin Guðmundsson, borg- arfulltrúi Alþýðuf lokks- ins, til að Reykjavikur- borg beitti sér fyrir á- framhaldandi rikis- rekstri Landssmiðjunnar. Slíkt væri í rökréttu framhaldi af þeirri stefnu borgaryf irvalda, að efla þyrfti fram- leiðsluiðnað i Reykjavik. Björgvin kvað sér hljóðs utan dagskrár á fundinum i fyrra- kvöld, vegna yfirlýsingar fjár- málaráðherra 20. desember sl. um hugsanlega stöðvun á rekstri Landssmiðjunnar. Vakti hann athygli á ályktun Félags járniðnaðarmanna um þetta mál, þar sem mótmælt er að Landssmiðjanverði lögö niður, auk þess sem hann vitnaði til yf- irlýsingar samstarfsnefndar Landssmiðjunnar.sem vakti at- hygli á, að sú stefna rikisins að hætta rekstri smiðjunnar gengi þvert á yfirlýsta stefnu borgar- yfirvalda um eflingu iðnaðar i höfuðborginni. Björgvin gat þess, að 80—100 manns ynnu hjáLands’smiðjunni Framhald á bls. 10

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.