Alþýðublaðið - 07.01.1978, Qupperneq 12
alþýðu-
blaðið
tltgefandi Alþýðuflokkurinn
Ritstjórn Alþýðublaðsins er að Sfðumúla 11, slmi 81866. Auglýsingadeild blaðsins er að -
Hverfisgötu 10, slmi 14906 — Áskriftarslmi 14900. . ,
LAUGARDAGUR
7 JANÚAR 1978
Krefjast nokkurra milljóna í skadabætur:
Fylkingin aetlar í mál
vid Reykjavíkurborg
Fylkingin, samtök
trotskýista, á húseign og
tilheyrandi lóðarrými að
Laugavegi nr. 53A i
Reykjavik, en hér er um
að ræða baklóð. Undan-
farið hefur einkaaðili
einn staðið að byggingu
skrifstofu- og verzlunar-
húss á annari lóð,
skáhalt framan við
Fylkingarhúsið við
Laugarveginn, en sá
hinn sami hefur fengið
lóð við hliðina hjá borg-
inni, i skiptum fyrir aðra
lóð, og hyggst hann reisa
þar annað verzlunar-
stórhýsi.
Að sögn Ragnars Stefánssonar,
jarðskjálftafræðings, virðist svo
sem að forkaupsréttur á lóðinni
framan við Fylkingarhúsið hafi -
fallið niður með nýjum skipulags-
reglum frá þvi húsið komst i eigu
Fylkingarinnar og að ekki sé
sjáanlegt að byggingin verði
stöðvuð, nema með þvi að Fylk-
ingarmenn legðust fyrir vélskófl-
umar i grunninum!
— Auðvitað er ógeðfellt að fá
þarna svona kinverska múra sem
loka mann af, sagði Ragnar, en
þetta á við mörg önnur hús sem
standa á baklóðum þarna. Fylk-
ingin er félagasamtök með tals-
vert umfangsmikla starfsemi og
til dæmis er illt ef á að Utiloka
okkur frá þvi að geta komið bilum
heim að húsinu vegna tilvonandi
stórhýsis. Auk þess veldur bygg-
ingin þvi að illmögulegt verður að
selja húsið, ef út i það yrði farið.
Við munu þvi lögsækja borgina
vegna byggingu þessa húss og
bera skaðabótakröfu upp á
nokkrar milljónir, en þau mál
komast ekkialvegá hreintfyrren
formlega hefur verið veitt bygg-
ingarleyfi á lóðinni. Við höfum
Húsið bakatil lengst til hsgri er f eigu Fyikingarinnar. Lengst til
vinstrier nýreist verzlunar-og skrilstofuhús, en nú er ætlunin að
byggja annað álika þar sem gamla húsið á miðri myndinni
stendur- Mynd—GEK
rættþessimál við borgarstjóra og
fleiri aðila hjá borginni, en þrátt
fyrir það er ekki horf á öðru en
staðið verði við fyrri áform, sagði
Ragnar Stefánsson.
—ARH
Handrit af Al-
þingisbókum
1667-1762
komin heim úr
Fiskesafni
Komin er til Islands veg-
leg gjöf Fiskesafns til
Þjóðskjalasafnsins. Hér
ræðir um Alþingisbækur
1667-1762 og er þetta mikill
fengur fyrir safnið, sem
fyrir á bezta safn Alþingis-
bókanna allra stofnana.
Það var Vilhjálmur Bjarn-
ar, bókavörður við Fiske-
safnið, sem gjöfina af-
henti, en hann hefur dvalið
hér að undanförnu í boði
islenzkra stjórnvalda.
Gjöfin var afhent í gær við
hátíðiega athöfn.
Handrit þessi taka til 37 ára Al-
þingisbókarinnar á árabilinu
1667-1762. Frá nokkrum árum eru
fleiri en eitt handrit. Handrit
þessi eru alls á 594 heilum og 6
hálfum blöðum. Mörg handrit-
anna eru með hendi og/eða staö-
festingu Alþingisskrifara á hverj-
um tima og eru þvi vafalaust bein
Utskrift úr frumriti Alþingisbók-
arinnar, en önnur eru annars kon-
ar eftirrit.
Reglulegt Alþingisbókhald
hefst árið 1631, er ráðinn var fast-
ur Alþingisskrifari, en byrjað var
að prenta Alþingisbókina i lok 17.
aldar. Pretun hennar er þó raun-
ar slitrótt fram yfir 1740: og
meira að segja eru skörð i hina
prentuðu árganga fram til 1773.
Frumrit Alþingisbókanna, er að-
eins varðveitt frá 1766 og fram til
loka Alþingis árið 1800. Hins veg-
ar eru viða til i söfnum og jafnvel
enn i einkaeign ýmist staðfest eða
óstaðfest eftirrit Alþingisbókar-
innar, eftir að Alþingisskrifari
kemur til sögunnar 1631. Þessi
eftirrit eru misjafnlega heilleg,
bæði vegna varðveizlu og eftir
þvi, hverju hver embættismaður
eða einstaklingur, sem eftirritin
fékk i hendur, þurfti á að halda i
það og það skiptið.
Hið aldna og virftuiega Safnahús við Hverfisgötu, sem hýsir
Þjóöskjaiasafn tslands, fær Alþingisbækurnar til varftveizlu, en
þaft á mesta safn Alþingisbóka allra stofnana.
Alþingisbókin er gerðabók Al-
þingis. Mest fer þar fyrir alþing-
isdómum, konungsbréfum, til-
skipunum ýmsum og þinglýsing-
um.
Engin stofnun á jafnmikið safn
af handritum Alþingisbóka og
Þjóðskjalasafn Islands, enda hef-
ur Utgáfa Alþingisbóka Islands,
allt frá þvi að Sögufélagið hóf
prentun þeirra árið 1912, verið
unnin i meiri eða minni tengslum
við Þjóðskjalasafnið. Það er þvi
Þjóðskjalasafninu mikið fagnað-
arefni, hvenær sem þvi bætist
nýtt Alþingisbókarhandrit, hvað
þá þegar þvi er færð slik stórgjöf
sem þessi. Hvert og eitt þessara
handrita þarf svo að rannsaka til
að sjá, hvaða gildi þau hafa til að
komast að hinum upphaflega Al-
þingisbókartexta.
Vilhjálmur Bjarnar komst svo
að orði við afhendingu handrit-
anna, að hún væri vottur þeirrar
vináttu, sem rikti milli Banda-
rikjanna og Islands, milli Cornell-
háskóla og tslands og þá sérstak-
lega milli hins islenzka Fiske-
safns og safna á tslandi. Þjóð-
skjalavörður þakkaði Vilhjálmi
Bjarnar þessa rausnarlegu gjöf
og bað hann tjá þakkir forráða-
mönnum Cornell-háskóla, sem
samþykktu gjöfina, og ekki sizt
Fiske-safninu, sem bæði fyrr og
siðar hefur unnið stórvirki i þágu
islenzkrar bókfræði, bókmennta-
sögu og sagnfræði.
Lausnin er
fundin:
Fyrir
hönd
Novosti...
Eins og fram hefur
komið i Alþýðublaðinu
hefur útgáfu Frétta frá
Sovétríkjunum nú ver-
ið breytt. Á blaðið að
koma út hálfsmánað-
arlega i dagblaðabroti.
Upp kom, að siik breyting á
útgáfu Frétta frá Sovétrikjun-
um striðir gegn landslögum, þar
sem útgefendur slikra blaöa
verða að vera islenzkir. Þess
vegna hefur málið verið i athug-
un hjá utanrikis- og dómsmála-
ráðuneytunum, þar sem nú hef-
ur fundizt lausn á vandamálinu.
Framvegis mun standa i blað-
hausnum rtJtgefandi og ábyrgð-
armaöur fyrir hönd Fréttastofu
Novosti: Maria Þorsteinsdóttir.
Þar með er útgefandinn orðinn
islenzkur og allt klappað og
klárt.
— hm.
Skýrsla um Félagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar:
Tveim árum á
eftir áætlun
í fyrrakvöld var lögð
fram á fundi borgar-
stjórnar skýrsla um út-
tekt, sem gerð hefur
verið um Félagsmála-
stofnun Reykjavíkur-
borgar.
Skýrsla þessi er samin i
framhaldi af tillögu, sem borgar-
fulltrúi Alþýðuflokksins, Björgvin
Guðmundsson, flutti i nóvember
árið 1974. 1 tillögunni fólst, að
gerð skyldi Uttekt á Félagsmála-
stofnun Reykjavikur, i þvi skyni
að gera endurbætur á starfsemi
hennar.
Tillagan var siðan samþykkt á
fundi borgarstjórnar i marz 1975
og borgarráði og Félagsmála-
stofnun falið að annast slika út-
tekt, en hagsýslustjóra siðan
fengið það verkefni að mestu.
Þessari úttekt ætti að ljUka fyrir
árslok 1975, en það var ekki fyrr
en um siðustu áramót að henni
lauk, — tveimur árum eftir áætl-
un.
Þegar skýrslan var lögð fram i
fyrrakvöld, fylgdi Markús örn
AntonssonhenniUrhlaði, en siðan
var henni visað til 2. umræðu
siðar, án frekari umræðna.
40%
Kækkun
gjaldskrár
- er á óskalisfa
Pósts og síma
Fyrir gjaldskrárnefnd
liggja nú beiðnir nokk-
urra opinberra fyrir-
tækja um hækkanir á
gjaldskrám/ en beiðni
Pósts og síma mun þó
stærsta málið. Er þar
óskað eftir 40% hækkun
á gjaldskrá/ en áður hafi
fyrirtækið óskað eftir
mun meiri hækkun.
Hækkunarbeiðnin var
endurskoðuð eftir 500
milljón króna niður-
skurð á framkvæmda-
áætlun fyrirtækisins.
Innflutn-
ingur
notadra
bifreiða
háður
leyfum
Ákveöið hefur verið
að hér eftir verði inn-
flutningur á notuðum
fólksbifreiðum háður
innflutnings- og gjald-
eyrisleyfum. Þetta
kemur fram í frétt frá
Viðskiptaráðuneytinu.
Eftir sem áður verður
heimiil innflutningur á
bifreiðum þeirra sem
flytjast búferlum til
landsins.
Jaf nframt hef ur verið
ákveðið að framvegis
verði unnt að flytja inn
sykur og rúgmjöl án
leyfa.
— ES.