Alþýðublaðið - 18.01.1978, Síða 2

Alþýðublaðið - 18.01.1978, Síða 2
2 Miðyikudagur 18. janúar 1978 Finnland, menning þess og þjóð A morgun fimmtudaginn 19. janúar kl. 20.30, flytur Fil. mag. Ritva-Liisa Elomaa, frá finnska utanrikisráðuneytinu erindi i Norræna húsinu. Erindið fiallar um Finnland i dag, menningu þess og þjóð. Með erindinu verða sýndar litskuggamyndir. Finnsk menning er um margt ólik annarri norrænni menn- ingu. Slavnesk áhrif að austan hafa haft þar mikil áhrif. Enn- fremur hefur það sitt að segja að i Finnlandi eru talaðar tvær þjóðtungur, finnska og sænska. Sænskumælandi hluti þjóöar- innar er miklu fámennari og fer sifellt fækkandi. Þó hafa menn- ingarleg áhrif hans verið mjög mikil, einkum á sviði bók- mennta. Ritva Liisa Elomaa er blaða- fulltrúi við finnska utanrikis- ráðuneytið og sér um kynningu á kvikmyndum, tónleikum og annarri menningarstarfsemi sem ráðuneytið beitir sér fyrir. §40 ára afmælisfagnaður Kvenfélags fllþýðuflokksins í Reykjavík Verður haldinn að HÚTEL ESJU, föstudaginn 20. janúar kl. 20.30. DAGSKRÁ: 1. Samkoman sett af Sonju Berg formanni afmælisnefndar 2. Ávörp gesta 3. Einsöngur, Magnús Jónsson, óperusöngvari 4. Nokkrar félagskonur heiðraðar 5. Baráttusöngvar 6. Ávarp formanns félagsins Kristínar Guðmundsdóttur 7. Saga félagsins, Helga Möller Veizlustjóri verður Helga Einarsdóttir. Miðar verða seldir á Skrifstofu Alþýðuflokksins kl. 1-5 daglega, hjá flldísi Kristjáns- dóttur Bergþórugötu 16, sími 10488, (fyrir hádj hjá Kristínu Guðmundsdóttur Kóngsbakka 12, sími 73982 og Sonju Berg, Krummahólum 6, sími 75625 (á kvöldin) Verð miða er kr. 2000,- Kvenfélag Alþýðuflokksins alþýðu- blaðið Ritstjórn Alþýðublaðsins erí Síðumúla 11 - Sími 81866 Fjármálaráðherra um gildis- töku staðgreiðslukerfis skatta: Ekkert maelir gegn gildis- töku um næstu áramót Eins og komiö hefur fram í fréttum hafa marg- ir látið í Ijósi efa um að sú ráðagjörð ríkisvaldsins að taka upp staðgreiðslukerf i skatta um næstu áramót nái fram að ganga vegna ónógs undirbúningstíma, Matthías Á Mathiesen en þetta er viðamikið verk, sem krefst skipulagningar i nánara samstarf i um inn- heimtu bæjar- og sveitar- féiaga á flestum stöðum á landinu,en verið hefur til þessa. Sem kunnugt er hefur rikis- skattstjóri sjálfur látið i ljósi nokkurn ugg, vegna þessa máls, en i samtali við Alþýðublaðið nú nýlega minnti hann á þau stór felldu mistök, sem til dæmis Dön- um urðu á við breytingu skatta- greiðslufyrirkomulags i þessa átt og stöfuðu af ónógum undirbún- ingi málsins. Reyndist þar nauð- synlegt að koma á endurgreiðslu- stofnunum, vegna óteljandi leið- réttinga og ágalla, sem i ljós komu. Alþýðublaðið hafði i gær tal af Matthiasi A. Matthiesen og spuröi hvað undirbúningi liði. Ráðherra sagði að unnið væri að málinu ó- sleitilega, en hér ræddi um mikið starf. Þessi ásetningur hefði þeg- ar komið fram i stefnuræðu for- sætisráðherra og væri nú verið að undirbúa gerð frumvarpsins i ráðuneytinu, en óvist væri enn hvenær það yrði lagt fram. Væri það unnið i samvinnu við formenn fjárhagsnefnda beggja deilda og héldu yfirmenn þeirra stofnana rikisins, sem þessi mál snertu, með sér reglulega starfsfundi. ,,Enn tel ég ekkert það hafa kom- ið fram, sem mælir gegn þeirri fyrirætlun, að þessi breyting geti tekið gildi um næstu áramót”, sagði fjármálaráðherrann að lok- um. AM & listaskáld Þessir herramenn heita Keith Armstrong (t.v.) og Peter Mortimer frá Norð- ur-Englandi, en þeir eru Ijóðskáld og rithöfundar og ætla að leyfa landanum að njóta verka sinna á Kjar- valsstöðum kl. 20.30 í kvöld. Félagarnir munu einnig koma fram í MR á föstuHagskvöld og trúlega einnig . AH, fyrir eða eftir helgina. Keith og Peter voru hér á ferð fyrir tveimur árum og lásu þá m.a. upp snjöll ádeilu- kvæði á brezka Ijónið og fengu prýðis móttökur. A blaðamannafundi í gær léku þeir félagar á alls oddi og létu háðsglósur og brandara rigna yfir við- stadda, þannig að óhætt er að mæla með samkomu þeirra i kvöld, verði hún í svipuðum dúr! Þá kom fram á fundinum, að ann- ar þeirra, Peter Mortimer, vinnur nú að gerð óhemju langrar skáldsögu — ef til vill þeirra lengstu sem skrifuð hefur verið. Fjall- ar hún um ævi James Jer- ame yngri og koma við sögu u.þ.b. 400 persónur í 400.000 orða verki! Skáldið kvað aðalpersónuna nú vera 21 árs gamlan og orð- in vera komin yfir 100.000. Hann gerir ráð fyrir að gera út af við James yngri um sjötugt, þannig að ófá- ar stundir og pappírsarkir eiga enn eftír að fara í samningu þessa einstaka ritverks! — ARH. Mynd: Ammen- drup

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.