Alþýðublaðið - 18.01.1978, Side 10

Alþýðublaðið - 18.01.1978, Side 10
10 Tilboð óskast i eftirfarandi fyrir Vélamiðstöð iReykja- víkurborgar. 1) Sláttuvélar. 2) Dráttarvél eða tæki Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frfkirkjuvegi 3, R. Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 14. febrúar n.k. kl. 11.00 f.h. INNKAUPASTOPNUN REYK)AVIKURBORGAR Ffij<irk)uv*qi 3 — Sim 2580C Útbod Tilboð óskast i bikaðar og vafðar stálpipur fyrir Vatns- veitu Reykavfkur. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frfkirkjuvegi 3, R. Tilboðin verða opnuð á sama stað, fimmtudaginn 16. febrúar n.k. kl. 11.00 f.h. INNKAUPASTOTNUN REYK aVIKURBORGAR Pi'iW!fkíuv#9' 3 — S*m 25800 Rannsóknarstyrkir EMBO í sameindalíffræði Sameindaliffræðistofun Evrópu (European Molecular Biology Organization, EMGO) hefur i hyggju að styrkja visindamenn sem starfa i Evrópu og ísrael. Styrkirnir eru veittir bæði til skamms tima (1 til 12 vikna) og lengri dval- ar, og er þeim ætlað að efla rannsóknasamvinnu og verk- lega framhaldsmenntun i sameindallffræöi. Skammtimastyrkjum er ætlað að kosta dvöl manna á erlendum rannsóknastofum við tilraunasamvinnu, eink- um þegar þörf verður fyrir slikt samstarf með litlum fyrirvara. Langdvalarstyrkir eru veittir til allt að eins árs i senn, en umsóknir um endurnýjun styrks til eins árs i viðbót koma einnig til álita. Umsækjendur verða að hafa lokið doktorsprófi. Umsóknir um styrki til dvalar utan Evrópu og Israels koma til álita, en þær njóta minni forgangs. 1 báðum tilvikum eru auk dvalarstyrkja greidd fargjöld styrkþega milli landa. Umsóknareyðublöð og nánari upplysingar fást hjá Dr. J. Tooze, Executive Secretary, European Molecular Biology Organization, 69 Heidelberg 1, Postfach 1022.40, Vestur- Þýskalandi. Umsóknir um skammtimastyrki má senda hvenær sem er, og er ákvörðun um úthlutun tekin fljótlega eftir mót- töku umsókna. Langdvalarstyrkjum er úthlutað tvisvar á ári. Fyrri úthlutun fer fram 30. april, og verða umsóknir að hafa borist fyrir 20. fabrúar, en siðari úthlutun fer fram 31. október, og verða umsóknir að hafa borist fyrir 31. ágúst. Vegna þess að umsækjendur eru venjulega kvaddir til viðtals, er nauðsynlegt að umsóknir berist áður en frestur rennur út. Á árinu 1978 efnir EMBO einnig til námskeiða og vinnu- hópa á ýmsum sviðum sameindaliffræði. Nánari upplýs- ingar veitir Dr. J. Tooze, póstáritun sem aö framan grein- ir. Skrá um fyrirhuguð námskeið og vinnuhópa er einnig fyrir hendi I menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik. Menntamálaráðuneytið, 16. janúar 1978. Kirkjan benda að flestir visindamenn voru nemendur kirkjunnar. Þeir voru munkar og klerkar, eöa þá menn sem numið höfðu fræði sin hjá munkum eða öðrum kirkju- mönnum. Stundum hefur kirkjan staöiö i veginum. Það er rétt. Hún hefur stundum oröiö of stór, komist I of sterka valdaaðstöðu og þá fallið i þá gryf ju aö stjórna meö hnefun- um, llkt og hver annar Idi Amin. Hins vegar læðistoft aö manni sú hugsun, aö oft hafi kirkjufeöurnir aöeins veriö að láta undan kröf- um fjöldans. Þaö er svo undarlegt þótt kirkjan hafi bannfært eitt og annaö og fordæmt einhvern vis- indamanninn, þá hafa verk viö- komandi oftkomið fram einhvers staöar annars staðar, þá varö- veitt af kirkjunni. Reitt ungt fólk i kirkju Þaö er mér ekkert launungar- mál að ég tel kirkjuna hafa geng- iö inn i myrkur, eða einskonar rökkurviöjar, sem hún verður aö losna úr. Hún er að labba frá fjöldanum og i minum huga likist þjóökirkjan okkar I dag mikiö sértrúarsöfnuöi. Sértrúarsöfnuðir eigaallanréttásér, enhins vegar á þjóökirkja aö vera frábrugöin þeim. Þaö er þó einnig ljóst aö fólkið sjálft, einkum þeir yngri, hefur að nokkru tekiö stefnu frá kirkjunni. Trúleysi er ákaflega mikiö I oröi, þótt þaö sé ef til vill minna en fólk heldur sjálft, þegar allt kemur til alls. Viö sjáum oft sterk merki trúar hjá þeim sem sjálfir segjast trúlausir, eða litt trúaöir. Reitt ungt fólk I dag er til dæm- is ákaflega strangt siöferöilega. Þaö vill láta rétt kallast rétt og hneykslast á þvi sem þaö telur rangt. Vill láta leiörétta allt sllkt, jafnvel refsa fyrir það. En, hver er mælistikan sem þetta fólk leggur á rétt og rangt? Aöspurt segist þaö nota sina eigin samvisku og réttlætiskennd, sem það viröist álita sér meöfædda eiginleika. Staöreyndin er hins vegar sú aö samviska er ekki meöfædd, heldur ásköpuö. Þaö eru foreldrar okkar, skólarnir og aörir áhrifavaldar i umhverfi okkar, sem gefa okkur samvisk- una. Þar fer Kristur meö ákaf- lega stórt hlutverk hjá okkur, hugsanlega einna stærst og mest hjá þessu reiða unga fólki. Viö göngum nefnilega erinda hans þótt viö gerum okkur þaö ef til vill ekki ijóst og þótt viö ekki fylgjum kirkjunni aö málum eins og hún er i dag. Þegar hugaö er aö þvi hvers vegna þetta fólk, sem i raun vill berjast fyrir sömu umbótum og Kristur kraföist, nær ekki til kirkju hans I dag, má jafnframt leiöa hugann ofurlitiö aö hugsan- legum orsökum þess aö kirkjan fyrir tvö þúsund árum þoldi hann ekki sjálfan nema um þriggja ára skeið. AUGLÝSIÐ í ALÞÝÐUBLAÐINU AUGLÝSINGASÍMINN ER 14906 SKIPSTJORAR ÚTGERDARMENN VIÐ FRAMLEHDUM Á ÞORSKANET Teinatóg (PEP, staple fibre og filmukaðall) Færatóg (grænir PE - kaðlar) Kúluhankaefni (blár 5,5 mm filmukaðall) Steinahankaefni (blár 6,5 mm filmukaðall) Kynnið ykkur verð og gæði / hjá dreifiaöilum okkar. ÞVÍ SKYLDUM VIÐ EKKI KAUPA ÍSLENZKU VÖRUNA ÞEGAR HÚN ER BETRI? HAMPIÐJAN HFIk Miðvikudagur 18. janúar 1978 SSKö' spékoppurinn Jæja, allt i lagi. Þá haföi ég ekki vit á þvf sem ég var aö tala um. En ef ég heföi haft vit á þvl, þá hefði ég haft rétt fvrir mér, ekki satt? Samtakamaetti verði beitt gegn áfengisbölinu Eftirfarandi samþykkt var gerö á aöalfundi Félags áfengis- varnanefnda i Suöur-Þingeyjar- sýslu 16. desember 1977. „Fundurinn lýsir þungum á- hyggjum vegna hins alvarlega á- stands er rikir I landinu sökum of- neyslu áfengis og annarra fikni- efna. Þess vegna telur hann brýna nauösyn bera til aö barátt- an gegn böli þessu færist yfir á vlöfeðmara sviö en veriö hefir um skeiö. Fundurinn skorar á stéttasam- tökin aö beita samtakamætti sin- um i baráttu gegn þessu böli og beinir þar sérstaklega máli sinu til þeirra sem sterkust eru svo sem Alþýöusamband Islands og Bandalag starfsmanna rikis og bæja svo og annarra félagasam- taka. Þá skorar fundurinn á allar menntastofnanir svo og forsvars- menn þeirra aö halda vöku sinni meö virkari baráttu gegn áfeng- isbölinu”. Ihaldsstjórnin á íslandi Hin ágæta handbók ,,The World Almanac & Book of Facts <1978" er nýkomin út. Þar er að vanda smá-kafli um Is- land og getið ýmissa stað- reynda um land og þjóð. Þar er sérstaklega tek- ið fram, að íhalds-sam- steypustjórn hafi komizt til valda árið 1974. Hún hafi komið í veg fyrir á- ætlanir um að reka á brott NATO-flug- og sjó- her, sem í hafi verið 2900 manns árið 1975. Æskulýdsstarf þjóðkirkjunnar boðar til fundar Æskulýösstarf þjóökirkjunnar hefur boöaö til almenns umræöu- fundar um efniö Söfnuöurinn og unga fólkiö. Umræöufundur þessi veröur haldinn i Reykjavik tvö kvöld 23. og 24. janúar n.k. bæöi kvöldin i Bústaöakirkju. Markmiö fundar- ins eru tviþætt, annars vegar aö gera sér grein fyrir þvi hvernig ástandiö er og hins vegar aö kom- ast aö einhverjum niöurstööum um hvaö gera megi til aö byggja upp árangursrikara starf meðal unga fólksins. Enginn formleg erindi veröa flutt, aöeins stuttur inngangur, en siöan veröur unnið i hópum, þar sem umræöupunktar veröa lagöir fram.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.