Alþýðublaðið - 24.01.1978, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 24.01.1978, Qupperneq 1
ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1 9. TBL. — 1978 — 59. ÁRG. Ritstjórn blaðsins er til húsa í Sfðumúla 11 — Sími (91)81866 — Kvöldsími frétta- vaktar (91)81976 „Stjórn- málaflokk- urinn" stofnaður — Formaður hans fyrrum flokks bundinn Sjálfstædismadur //Stofnaður hefur verið nýr stjórnmálaf lokkur og bér hann nafnið Stjórn- málaflokkurinn"/ þannig hljóðaði upphaf fréttatil- kynningar sem barst inn á ritstjórnarskrifstofur Alþýðublaðsins í gær. í þessari tilkynningu kemur fram a& stjórn þessa nýstofnaða flokks hefur þegar veriB skipuö og 'er formaöur hennar Ólafur E. Einarsson forstjóri, en aðrir stjórnarmenn eru Kristmundur Sörlason iðnrekandi, Eirikur Rósberg tæknifræðingur, Stein- unn ólafsdóttir, og Tryggvi Bjarnason stýrimaður. í stuttu spjalli við formann flokksins kom fram að ekki hefur verið tekin um það endan- leg afstaða innan stjórnarinnar ennþá, hvort stefnt verður að framboði til Alþingiskosninga á vori komanda. Aðspurður kvaðst Ólafur E. Einarsson formaður flokksins vera eini meölimur stjórn- arinnar sem tekið hefði þátt I pólitisku lifi áður, en hann hefði verið flokksbundinn sjálf- stæðismaður. Að sögn Ólafs er stefnuskrá Stjórnmálaflokksins þegar mótuð, og kvað hann hana verða kynnta landsmönnum fljótlega. Helztu stefnuatriði hins nýja flokks eru skv. fréttatilkynning- unni þrjú, I fyrsta lagi að breyta stjórnarskrá lýöveldisins á þann veg, að löggjafar og fram- kvæmdavald verði aðskilið. I öðru lagi að gerbreyta skatta- fyrirkomulagi hér á landi og að auðvelda i framkvæmd. I þriðja lagi aö leggja á herstöövar NATO hér á landi aðstöðugjald, sem varið verði til vegagerðar, flugvalla og hafnarmannvirkja. GEK Þingað með fram- bjóðendum Benedikt Gröndal, formaður Alþýðuflokksins, boðaði á laugardag til fundar með frambjóðendum i efstu sætum á listum Alþýðuflokksins i næstu alþingiskosningum, stjórn flokksins og starfsmönnum. Á fundin- um vær rætt um kosningaundirbúninginn, ýmsa málaflokka og fleira. Nánar segir frá fundinum á bls. 7. (AB.mynd KIE.) Þingflokkur Alþýðuflokksins? Alþingi fái skýrslu Landsbankamálið um Sighvatur Björgvinsson (AF) kvaddi sér hljóðs utan dagskrár á Alþingi i gær, og gerði að umtals- efni fjársvikamál það sem upp hefur komið i ábyrgðardeild lands- banka Islands. Vitnaði þingmaðurinn í upphafi máls síns til fréttatil- kynninga frá bankastjórn Landsbankans og Rannsóknarlögreglu rikisins um gæzluvarð- haldsúrskurð Hauks Heiðars, forstöðumanns ábyrgöardeildarinnar, frá því í desember og sagði að fréttirnar um meint auðgunarbrot for- stöðumannsins hafi kom- ið mönnum mjög á óvart og verið umrætt manna á Sighvatur Björgvinsson. meðal. Hafi fjöimiðlar greint frá ýmsu varðandi rannsókn máls:ns síðan, sumu réttu, öðru ekki, en í raun og veru sé lítið meira vitað um málið f rá ábyrgum aðilum en það, sem sagt hafi verið í fréttatilkynningunum sem áður er getið. Mætti það þó ekki minna vera. Þingflokkur Alþýöuflokksins ræddi þetta mál á fundi i gær- morgun og samþykkti aö hefja umræöur um það I sölum Alþingis. Fól hann Sighvati Björgvinssyni að hafa um það framsögu. Benti Sighvatur á I ræðunni, að eðlilegt væri að Alþingi léti máliö til sin taka, þar sem hér væri um að ræöa rikisbanka sem hefði yfir sér bankaráð kjöriö af Alþingi, auk þess sem Alþingi kysi endur- skoöendur og setti lög fyrir starfsemina. Þá beindi hann þvi til ólafs Jóhannessonar, banka- málaráðherra, að hann upplýsti þingheim um eftirfarandi atriði: óheppilegt að rannsókn dragist á langinn 1. Hversu viðamikið Lands- bankamálið sé — hvers eðlis og hver séu takmörk þess. Ráð- herrann taki i þessu sambandi tillit til rannsóknaraðila um frá- sögn af málinu. 2. Hvaö yfirvöld hyggist gera til að rannsaka máliö á fullnægj- andi hátt. Þingmaðurinn benti á, að málið væri þess eðlis að rannsökn beri að hraða svo sem nokkur kostur sé, það sé óheppi- legt fyrir Landsbankann og almenn réttarfarssjónarmið að láta rannsóknina dragast á langinn.Benti hann á rannsókn svonefnds Alþýöubankamáls I þvi sambandi og sagði hana hafa dregist óhemju mikið. 3. Alþingi fái að vita hvaða ráð- stafanir verði gerðar til að koma I veg fyrir að mál eins og um er rætt endurtaki sig ekki. 1 lok ræðu sinnar sagði Sighvatur Björgvinsson að is- lendingum þætti nóg komið af afbrotum og alls kyns glæpum sem komiö hafi fram i dagsljós- ið undanfarið. Augljóst sé að litlar varnir séu nú tiltækar gegn t.d. auðgunarbrotum, og hafi hér verið sparað til tjóns. Löggjafaratriði, svo sem varð- andi fyrirtækjalög, bankalög- gjöf o.fl., hafi veriö vanrækt og sé þvi komið til kasta Alþingis að ákveöa á hvern hátt beri að bregðast viö fyrrgreindum fréttum. ólafur Jóhannesson, banka- mála- og viðskiptaráðherra, kvaðst ekki viðbúinn aö veita Alþingi svör við fyrirspurnum Sighvats Björgvinssonar, enda væri tæpast rétt að veita umbeðnar upplýsingar nema i fullu samráöi við aöila tengda málinu. Mun fyrirspurninni komiö á framfæri við stjórnend- ur Landsbankans og bankaráð og óskað eftir svörum þeirra. Ráðherra mun siðan gera Alþingi grein fyrir svörum for- ráðamanna Landsbankans. Ólafur Jóhannesson sagði ennfremur að hann teldi eðlilegt að Alþingi vildi fylgjast meö a.m.k. vissri hliö umrædds máls, enda ætti þingiö að hafa fullkomið færi á aö fylgjast með fjármálum þessara veigamiklu rikisstofnana. Prófkjör Framsóknar: Einar og Gudmundur í 1. og 2. sæti baksfda

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.