Alþýðublaðið - 26.01.1978, Page 9

Alþýðublaðið - 26.01.1978, Page 9
Fimmtudagur 26. janúar 1978. 9 Lftur Lísa Minelli út eins og sorg- mæddur hundur Aðdáendur Liza Minelli í New York ná ekki upp f nef ið á sér fyrir reiði. Or- sökin er leikdómur eins af þekktustu og jafnframt einum harðsvíraðsta leik- gagnrýnanda New York borgar um leikritið /Jhe Act" þar sem Minelli fer með aðalhlutverkið. Gagn- rýnandinn John Simon hreinlega rífur bæði leik- ritiðog Minelli í sig og segir hana helzt likjast sorgmæddum hundi. „Eg hef ætib veriö þeirrar skoðunar að fröken Minelli ætti að fá fyrstu verðlaun i hunda- fegurðarsamkeppni fyrir andlitið á sér”, segir Simon i leikdómn- um. En það eru ekki allir á sama máli og fólk streymir að til að sjá leikritið. Simon skýrir álit sitt svolitið nánar og segir: „... andlit hennar virðist leitast við að falla i þrjár áttir. Nefið er á takmörkum þess að mega kallast þokulúður. Siið- Hér er sve liur myné af leik- konunni. Svona ae'rJohn Simon fröken Lixa Minelli andi varirnar eru allt of stórar til þess að geta barizt gegn þyngdar- lögmálinu og hakan leitast sifellt viö að draga sig til baka og er oft á tiðum alveg viö það að hverfa ofan i hálsinn, — auðsýnilega til að firra sig allri ábyrgö á þvi sem fram fer fyrir ofan hana. Þetta andlitgæti svo sem gengiö eins og önnur andlit ef bak við það væru raunverulegir hæfileikar, en allt sem fröken Minelli hefur til brunns að bera blaðaskellandi ákafi og kraftur.” Þetta eru hörð orð.en þannig er John Simon. Hann er mjög per- sónulegur i skrifum sinum, en virðist þrifast bezt þegar hann er mest hataður. Fjölmörg leikhús i New York hafa neitað að senda honum boðs- miða likt og öðrum meiriháttar gagnrýnendum. En þá stendur hann bara sjálfur i biöröð svo timum skiptir. Inn skal hann! „Þá vilég heldur Streis- and" Árás hans á Liza Minelli i „The Act” lýkur á þessum orðum: „Mestan hluta sýningarinnar hélt ég út með þvi aö segja viö sjálfan mig i sifellu: Jæja, þetta er þó að minnsta kosti ekki Barbra Streis- and. En þetta breyttist og undir lokin var ég farin að segja við sjálfan mig: Bara þetta væri nú hún Barbra Streisand!” Það fylgir náttúrlega sögunni að Simon hefur hingað til ekki hatazt við aðra leikara meira en einmitt Barbra Streisand. Hann hefur fariö enn rækilegar út I út- litslýsingar á henni en Minelli og verið enn háðskari. Mótmæli Fokreiðir aðdáendur Liza Minelli hafa mótmælt kröftug- lega, bæði við „The New York Magazine”, þar sem Simon vinn- ur og við hann sjálfan. Eitt viðtal aðdáanda Minelli við Simon birtist i blaöinu. Gagnrýn- andinn réttlætir dóma sina með þvi að benda á aö andlit og likami leikara séu hlutar af þvi sem hann notar til aö ná til áhorfenda. Leikarar hafi kosið hlutskipti sitt sjálfir, að selja likama sinn og sál og eigi þvi ekki einir að dæma um útlit sitt, áhorfendur þeirra hafi þar einnig nokkuð til málanna að leggja. Útvarp Þau koma til ókunnrar borgar Fimmtudaginn 26. janúar kl. 20.40 verður flutt leikrit efstir enska rit- höfundinn J.B. Priestley, sem nefnist „Þau komu til ókunnrar borgar.” Þetta er endurflutningur frá árinu 1958. Þýðinguna gerði Ásgeir Hjartar- son, en leikstjóri er Lárus Pálsson. Með hlutverkin fara Róbert Arnfinns- son, Helgi Skúlason, Arndis Björnsdóttir, Herdis Þorvaldsdóttir, Lárus Pálsson, Kristbjörg Kjeld, Valur Gislason, Hólmfriður Pálsdóttir og Anna Guðmundsdóttir. í leiknum segir frá fólki, sem hittist á óþekktum stað, að þvi er virðist fyrir tilviljun. Þetta er talsvert ólik blanda. Þarna eru kaupsýslumaður, miðstéttarfólk og verkafólk og hugsjónamaður, sem sennilega á að túlka skoðanir höfundar. Skuggsýnt er umhverfis i fyrstu, en þegar birtir sést stór og glæsileg borg, sem enginn kannast við. Ekki er fólkið á einu máli um, hvort það eigi að fara inn i borgina, enda óvist hvað þar er að finna. Leikritið er samið á striðsárunum (árið 1943), en þrátt fyrir það, eða kannski vegna þess, lýsir höfundur bjartsýni sinni á framtið mannkynsins, ef það nýtir gæði jarðar á réttan hátt. Hann metur manngildi, ekki verð- gildi. John Boynton Priestley fæddist árið 1894 i Bradford i Yorkshire. Hann stundaði nám i Cambridge. Fyrsta bókhans var ljóðasafnið ,,The Chapman of Rhymes”, sem kom út 1918. Frá þvi um 1930 skrifaði hann einkum leikrit. Auk þess hefur Priestley starfað sem gagnrýnandi og blaðamaður og haft mikil afskipti af alþjóðaleikhúsmálum. Útvarpið hefur flutt eftir hann allmörg leikrit: ,,Gift eða ógift”, ,,Hættu- legthorn”, ,,óvænt heimsókn”, sem einnig var sýnt i Þjóðleikhúsinu, ,,Tvö- falt lif” og „Timinn og við”. Utvarp Fimmtudagur 26. janúar 7.00 Morgunútvarp Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttirkl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.50 Morgunstund barnanna kl. 9.15: Þórhallur Sigurðsson les „Marx bragðaref” eftir Sven Wernström (3) Tilkynningar kl. 9.30. Þing- fréttir kl. 9.45. Létt lög miili atriða. Tónleikar kl. 10.25. Morguntónieikar kl. 11.00: Hege Waldeland og hljóm- sveitin „Harmonien” i Björgvin leika Sellókonsert i D-dúr op. 7 eftir Johan Svendsen, Karsten Ander- sen stj. / Alicja de Laroccha og Filharmoniusveit Lund- úna leika Píanókonsert i Des-dúr eftir Aram Katsja- túrjan, Rafael Friihbeck de Burgos stj. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veöurfregnir og fréttir. Tilkynningar. A frivaktinni Sigrún Sigurðardóttir kynn- ir óskalög sjómanna. 14.30 „Þaðertil lausn”Þáttur um áfengisvandamál tekinn saman af Þórunni Gests- dóttur, fyrri hluti. 15.00 Miðdegistónleikar Wilhelm Kempff leikur Pianósónötu i A-dúr eftir Franz Schubert. Vinarokt- ettinn leikur Oktett i Es-dúr fyrir strengjahljóðfæri op. 20 eftir Felix Mendelssohn. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Tónleikar. 17.30 Lágiö mitt Helga Þ. Stephensen kynnir óskalög barna innan tólf ára aldurs. 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir, Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 Dagiegt mál. Gisli Jóns- son flytur þáttinn. 19.40 Islenskir einsöngvarar og kórar syngja. 20.00 Heimsmeistarakeppnin i handknattleik Hermann Gunnarsson lýsir,frá Arós- um, siðari hálfleik milli Islendinga og Sovétmanna. 20.40 Leikrit: „Þau komu til ókunnrar borgar” eftir J. B. Priestley. Aður flutt 1958. Þýðandi: Asgeir Hjartar- son Leikstjóri: Lárus Páls- son. Persónur og leikendur: Joe Dinmore... Robert Arn- finnsson, Malcolm Stritton ... Helgi’. Skúlason, Cud- worth ... Valur Gislason, Sir George Gedney ... Lárus Pálsson, Alice Forster ... Kristbjörg Kjeld, Philippa Loxfield ... Herdis Þor- valdsdóttir, Lafði Loxfield Anna Guðmundsdóttir, Dorothy Stritton ... Hólm- friður Pálsdóttir, Frú Bat- ley ... Arndís Björnsdóttir. 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. 22.50 Rætt til hlitar.Sigurveig Jónsdóttir blaðamaður stjórnar umræðuþætti, þar sem leitað verður svara við spurningunni: Stefnir að at- vinnuleysi meðal mennta- manna? Þátttakendur: Guöni Guðmundsson rektor, Halldór Guðjónsson kennslustjóri háskólans, Hörður Lárusson deildar- stjóri i menntamálaráðu- neytinu og Kristján Bersi Olafsson skólameistari. Einnig rætt við nokkra stúdenta. Umræðuþátturinn stendur u.þ.b. klukkustund. Fréttir. Dagskrárlok. Skák dagsins Hvítur leikur og vinnur Kico-Ballbé, 1955. Svartur hótar cxb2 + . Hvitum duga þvi engin vettlingatök. 1. Bc5 + , (ekki 1. Hg8:?, Dxg8!) Dxc5 2. HgS+', Kf7 (Kxg8 3. Dxg6+ ) 3. Dxg6, Ke6 4. f7 + , svartur gafst upp. Umsjón Baldur Fjölnisson

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.