Alþýðublaðið - 01.02.1978, Qupperneq 1
MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR
26. TBL. — 1978 — 59. ÁRG.
JRitstjórn blaðsins er
til húsa f Síðumúla 11
— Sími (91)81866
— Kvöldsími frétta-
vaktar (91)81976
Gengisfell
ingar-
skjálftinn
grípur
um sig:
Óttinn við nýja geng-
isfellingu er tekinn að
gera vart við sig og
miklar annir hjá þeim
fyrirtækjum, sem á
boðstólum hafa dýrari
vaming, svo sem bif-
reiðar og heimilistæki
hvérs konar. Alþýðu-
blaðið hafði i gær sam-
band við tvö bifreiða-
umboð og tvö fyrirtæki,
sem verzla með heimil-
istæki, og spurðist fyrir
Feiknaleg sala á bflum
og heimilistækjum
— birgðir teknar að þynnast hjá fyrirtækjum
um ástand mála.
Finnbogi Arnason, hjá
SVEINI EGILSSYNI, sagöi að
þar væru áberandi miklar annir
nú. Fólk hraðaði sér að ganga
frá pöntunum, þ.e. festa verð
með að greiða í banka og legg ja
i toll, enda von mikillar hækk-
unar, ef gengisfelling verður
skjótlega. Hjá fyrirtækinu er nú
von á á þriðja hundraði bifreiða
af gerðinni Ford Fairmouth, en
sá bill stendur Ford Cortina
ekki fjarri hvað verð snertir.
Ford Fairmouth er ameriskur
og kostar um 3 milljónir, en
Cortina 2.750 þús. Hefur verið
minni sala i evrópskum bilum
að undanförnu, sem hafa hækk-
að verulega. Finnbogi sagði að
hjá þeim hefði siminn varla
þagnað frá sl. fimmtudegi, en
von er á 70 Fairmouth bifreiðum
með Bifröst á næstunni. Væri
augljóst að fólk vænti tiðinda i
verðlagsmálum.
Georg Georgsson, hjá
HEKLU sagði að áberandi mikil
sala væri i öllum tegundum bif-
reiða, sem fyrirtækið hefði um-
boð fyrir, nú. Taldi hann liklegt
að þegar svo stæði á sem nú, að
gengisfellingar væri talin von,
hætti mörgum til að tefla djarft
og um efni fram. Væri þetta
skiljanlegt, þar sem um háar
upphæðir gæti verið að tefla og
þvi mikilvægt að festa verðið.
Þeir, sem heföu verið að
„spekúlera” fram að þessu,
hættu ekki á að biða lengur, en
létu til skarar skriða. í morgun
(gærmorgun)hefði verið feikna
mikiðum að vera ogsalanmik-
il, svo og dagin áður. Taldi
Georg ekki óliklegt að dauður
tími kynni að koma, eftir slika
öldu.
Birgir örn Birgisson hjá
HEIMILISTÆKJUM kvað söl-
una mjög liflega hjá þeim þar,
einkum á þvottavélum, kæli-
skápum og öðrum dýrari raf-
tækjum og kvaðst hann vita að
sömu sögu væri að segja af lita-
sjónvarpstækjum, sem fyrir-
tækið er með umboð fyrir. Væri
útlit fyrir að birgðir væru farnar
að þynnast á þessum hlutum i
borginni, enda annars varla
von, þegar búið væri að auglýsa
þá miklu verðbólgu, sem vænta
mætti á næsta ári. Óttinn við
gengisfellingu væri lika augljós
og kæmi hann fram I miklum
önnum og sölu siöustu daga.
Hildegard DURR hjá
BRÆÐRUNUM ORMSSON,
sagði að hjá fyrirtækinu heföi
verið mikil hreyfing það sem af
er árinu og væri reyndar svo á
flestum timum. Þó kvað hún á-
berandi að fóik hefði siöustu
daga gert sér far um að festa
verð og hraða frágangi á pönt-
unum sinum.
AM
Skýrsla um
stöðu dómsmála
lögð f ram
t skýrslu dómsmála-
ráðherra um meðferð
dómsmála i landinu
kemur fram að 1. októ-
ber sl. voru 493 mál til
meðferðar hjá dóms-
stólum landsins. Einka-
mál þau er um er getið i
skýrslunni eru 113 tals-
ins og hið elsta þeirra
frá árinu 1966. Sakamál
sem talin eru í skýrsl-
unni eru 480 talsins. Sjá
nánar frétt á baksiðu.
t gær varð harður árekstur á horni Skúlagötu og Vatnsstigs með
þeim afieiðingum að annar bilanna flaug niður f fiæðarmál viö
Skúlagötu, ökumenn beggja bifreiðanna voru fluttir á slysavarð-
stofu, en fengu báðir að fara heim eftir rannsókn. (AB mynd ATA)
Sameining Búnadar- og Utvegsbanka:
Búnadarbankann langar ekki í
skuldbindingar Útvegsbankans
Nú eru til umræðu á Al-
þingi að nýju þau mál,
hvort stefna beri að sam-
einingu útvegsbankans
og Búnaðarbankans.
Þetta kom til umræðu
ásamt mörgu viðvíkjandi
bankamálum á árinu
1972, þegar bankamála-
nefnd sat að störfum, en
hún samdi itarlegt frum-
varp um bankamál þá,
sem þó hefurdregist að
lagt yrði fyrir Alþingi.
Taliðer að þessi hugmynd um
sameiningu Búnaðarbankans og
Útvegsbankans, strandi meðal
annars á þvi, að Búnaðarbank-
inn mun ekki hafa mikinn hug á
að taka að sér allar þær miklu
skuldbindingar, sem Crtvegs-
bankinn er hlaðinn vpgna sjáv-
arútvegsmála. Sem vunnugt er
hefur Otvegsbankinn átt við
mikla erfiðleika að striða, af
þessum sökum, sem hinn mun
ekki áfjáður i að axla með hon-
um, en hér ræðir um afurðalán
og útgerðarlán, sem Útvegs-
bankinn veitir o.fl. Hefur Út-
vegsbankinn haft þessa fyrir-
greiðslu á hendi að 50-60% hluta,
en Landsbankinn um það bið
30%. Hefur staðið til að Lands-
bankinn tæki meiri hluta á sig
en nú, svo bilið jafnaðist, en
ekki mun af þvi hafa orðið enn.
Útvegsbankinn á miklar eignir
að sönnu, en þessar kvaðir
valda þvi að hagurinn er ekki
rúmur.
A Norðurlöndum hefur sú
stefna verið tekin að sameina og
fækka þannig bönkum og spari-
sjóðum og inn á þau mál kom
bankamálanefnd einnig, 1972.
Hafði blaðið tal af Magnúsi
Jónssyni, bankastjóra i Búnað-
arbankanum, og innti hann álits
á þessum málum, en hann átti
sæti i bankamálanefndinni.
Magnús sagði að hann hefði
vissulega verið sammála i höf-
uðdráttum þvi sem bankamála-
nefndin lagði til á sinum tima,
en i athugunum hennar þá hefði
iFramhald á bls. 10