Alþýðublaðið - 01.02.1978, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 01.02.1978, Blaðsíða 10
Miðvikudagur 1. febrúar 1978 fflág- Aðstoðarframkvæmdstjóri Véladeild Sambandsins óskar að ráða að- stoðarframkvæmdastjóra. Viðskipta- menntun og reynsla við innflutning og stjórnun fyrirtækja nauðsynleg. Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist starfs- mannastjóra, sem gefur nánari upplýs- ingar, fyrir 15. febrúar næst komandi. $ SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA ® Útboi Tilboö óskast i aö klæöa siálgrindarhús og innrétta stækk- un bækistöövar Rafmagnsveitunnar viö Armúla 31. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, R. gegn 15.000,- kr. skilatryggingu. Tilboðin veröa opnuö á sama staö, þriðjudaginn 28. febrú- ar n.k. kl. 11.00 f.h. ÍNNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuv*gi 3 — Sími 25800 Varnarliðið Óskum eftir að ráða lærðan kjötiðnaðar- mann i matvöruverslun vora á Keflavik- urflugvelli. Góð enskukunnátta nauðsyn- leg. Nánari upplýsingar um starfið veittar á Ráðningarskrifstofu Varnarmáladeild- ar á Keflavikurflugvelli. Simi 92 — 1973 frá 9-5. Stýrimannafélag íslands heldur félagsfund að Hótel Loftleiðum i kvöld, miðvikudaginn 1. febrúar kl. 20.30. Fundarefni: Félagsmál Stjórnin. Staða aðstoðarlæknis við lyflækningadeild Landakotsspitala er laus þann 1. mars 1978. Ráðningartimi til 1. árs i senn, upplýsingar veita læknar deildarinnar. Umsóknir sendist til yfir- læknis lyflækningadeildar fyrir 15. febrú- ar n.k. lítsaja. Útsala: Útsalan byrjaði í morgun, miðvikudag Mikil verðlækkun Elízubúðin, Skipholti 5, Markaðsnefnd landbúnadarins Könnun á sölu dilkakjöts, sem sérstakrar gæðavöru erlendis Að frumkvæði Búðn- aðarþings var komið á fót á siðastliðnu ári Markaðsnefnd landbún- aðarins. í nefndinni iga sæti fulltrúar tilnefndir af Búnaðarfélagi íslands, Framleiðslu- ráði landbúnaðarins, Stéttarsambandi bænda, Sambandi tslenzkra Samvinnufélaga og Landbúnaðarráðuneyt- inu. Formaður nefndar- innar er Sveinn Tryggvason fram- kvæmdastjóri. Markaðsnefndin hélt sinn fyrsta fund 9. ágúst s.l., siðan hef- ur nefndin komið saman 15 sinn- um. Margvisleg málefni hafa verið tekin fyrir á þessum fundum, en þýðingarmestu málin, sem nefndin hefur fjallað um er út- flutningur landbúnaðarafurða, enda var tilgangur með stofnun nefndarinnar, fyrst og fremst sá að kanna, sem itarlegast alla þá möguleika, sem um væri að ræða, til að koma landbúnaðarafurðum okkar i sem bezt verð erlendis. Haldið hefur verið uppi fyrir- spurnum erlendis og haft sam- band við innflytjendur i mörgum löndum, en þetta er aöeins upp- hafið, sem vonandi ber verulegan áranguráðurenlangurtirrii liður. okkar i sem bezt verð erlendis. Haldið hefur verið uppi fyrir- spurnum erlendis og haft sam- band við innflytjendur i mörgum löndum, en þetta er aðeins upp- hafið, sem vonandi ber verulegan árangur áður en langur timi liður. Hafin er könnun innan kjötiðn- aðarins um möguleika á fram- leiðslu sérstakra kjötvara, sem gætu orðið eftirsóttar á erlendum mörkuðum. A þann hátt telur nefndin meiri möguleika á sölu dilkakjöts, sem sérstakri gæða- vöru, sem gæfi hærra verð, en verið hefur fram að þessu. Ræddar hafa verið ýmsar hug- myndir, s.s. mismunandi mikið reykt dilkakjöt, saltkjöt og mis- munandi tilbúnir réttir úr kinda- kjöti. Markaðsnefndin hefur mik- inn áhuga á að sem flestir komi fram með hugmyndir, sem gætu komið að gagni, til aukinnar og bættrar sölu á landbúnaðarafurð- um. Jón R. Björnsson hjá Fram- leiðsluráði landbúnaðarins, starfsmaður Markaðsnefndar, tekur fegins hendi við öllum til- lögum og væntir þess að þeir, sem telja sig geta bent á nýjar leiðir i markaðsöflun, hafi samband við Markaðsnefndina sem fyrst. Landsbankamálið: Gæzluvardhald framlengt til 1. marz Seint i gærkvöldi var kveðinn upp i sakadómi Reykjavikur úrskurður um framlengingu gæzlu- varðhaldsvistar Hauks Heiðars, fyrrum deiidar- stjóra i Landsbanka íslands. Það var Birgir Þor- mar sakadómari sem kvað upp úrskurðinn, en hann gildir til 1. marz n.k. Sveinn Snorrason lögmaður Hauks hefur kært úr- skurð sakadómara til Hæstaréttar. Sameiníng 1 ekkert komið fram, sem benti til að þessi sameining væri tíma- bær. Þótt viðurkenna bæri að margt hefði breyzt á þeim tima, sem liðinn væri, og allt gott væri að segja um þá stefnu að fækka bönkum og sparisjóðum, horfði það til hagræðingar og sparnað- ar, væri engan veginn ljóst enn, að sú væri raunin hvað þetta mál varðaði, þ.e. sameiningu þessara tveggja banka. „Hér er um mjög flókin mál að ræða”, sagði Magnús Jóns- son, „meðal annars sú hlið, sem að starfsfólki bankanna snvr.” SKIPAUTGeRO KÍKISINS. m/s Esja i fer frá Reykjavik þriðjudag- inn 7. febrúar austur um land til Seyðisfjarðar. Vörumóttaka alla virka daga nema iaugardaga til 6. febrúar til Vestmannaeyja, Hornafjaröar, Djúpavogs, Bre iðda ls víkur, Stöðvar- fjarðar, Fáskrúðsfjarðar, Reyöarfjaröar, Eskifjarðar, Neskaupstaðar og Seyðis- fjarðar. Enn benti hann á að á Alþingi hefði sú verið raunin fram til þessa, að fjölgun banka en ekki fækkun, hefði átt mestu fylgi að fagna, og teldi hann þessa hug- mynd þurfa miklu nánari at- hugunar við, áður en nein lög- gjöf yrði sett hér um. — AM Vísitölu 2 heimilt að miða leigu- gjald við breytingar á visitölu húsnæðiskostn- aðar. Leigugjald myndi þvi hækka í samræmi við visitöluna, ef svo er kveðið á um i samningi leigutaka og leigusala. Það er þó að sjálfsögðu komið undir verðlagsnefnd hvort leyfi til húsaleiguhækkunar er veitt á hverjum timar, þar sem húsa- leiga er undanþegin verðstöðv- unarlögum. Annað veifið hefur verðlagsnefnd þvi tilkynnt að hún láti ótalda hækkun húsaleigu i samræmi við visitöluhækkun. Með tilliti til þess má geta þess að verðlagsnefnd hefur ákveðið að láta ótalda þá húsaleiguhækk- un er nú á sér stað i samræmi við nýorðna hækkun visitölu, séu visitöluákvæði i samningum. Hækkunin nemur i þeimtilfellum 27.75% fyrir ibúðarhúsnæði og 28,27% fyrir atvinnuhúsnæði. ENDURSKINS- MERKI ERU NAUÐSYNLEG FYRIR ALLA UMFERÐARRÁÐ HRINGAR Fljót afgreiðsla jsendum gegn póstkröfu Guðmundur Þorsteinsson j gullsmiður ^Bankastræti 12, Reykjavik. J\

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.