Alþýðublaðið - 02.02.1978, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 02.02.1978, Blaðsíða 5
SK»v Fimmtudagur 2. febrúar 1978 5 Þannig hugsa arkitektarnir sér nýja miöbæinn. Hver er afstaða minni hlutaflokkanna? A borgarráðsfundi i fyrradag var samþykkt að fresta af- greiðslu tillagna um nýtt skipu- lag fyrir miðbæinn i Reykjavik, nánar tiltekið Hallærisplan, Steindórsplan og hluta Austur- strætis. Eins og fram hefur komið áður gerir tillagan ráð fyrir að rifið verði um 5000 fm húsnæði sem nú er að langmestu leyti i notkun og i stað þess komi 5000 fm. atvinnuhúsnæði, 6000 fm. ibúðahúsnæði og tveggja hæöa stórhýsi yfir allt Hallæris- planið og vestasta hluta Austur- strætis. Þessar hugmyndir hafa vakið athygli Reykvikinga og fleiri og menn greinir mjög á um ágæti þeirra. ótai fundarsam- þykktir hafa verið gerðar gegn framkvæmdum i samræmi við tillöguna og greinar hafa verið ritaðar i blöö, i meirihluta á þann veg að lagzt er gegn fram- kvæmdum. Þá var ónefndur fjöldafundur á Hallærisplani sl. laugardag, þar sem hart nær 2000 manns komu saman og Iögðust eindregið gegn þessum hugmyndum. Arkitektar þeir sem unnið hafa umræddar skipulagstillög- ur, sögðu i viðtali I vikunni, aö gagnrýni Torfusamtakanna og fleiri á verk þeirra væri á mis- skilningi byggð. Þetta væri að- eins tillaga að skipulagi, ,,hug- mynd sem gæti verið ein af þús- undum sem kæmu til greina”. Væru þessar hugmyndir ein- ungis lagðar fram til þess að fá viðbrögð almennings og þeirra aðila sem hagsmuna eiga að gæta. Alþýðublaöið leitaði eftir af- stöðu þriggja fulltrúa minni- hlutaflokkanna i borgarstjórn Reykjavikur til skipulagstillög- unnar. Þeir eru: Björgvin Guðmundsson, fulltrúi, Alþýðu- flokks, Kristján Benediktsson, fulltrúi Framsóknarflokks og Adda Bára Sigfúsdóttir, fulltrúi Alþýðubandalags. Svör þeirra fylgja hér með: -ARH Kristján Benediktsson þeim þáttum sem varða um- ferðina. Stóraukið verzlunar- rými og 80 nýjar ibúðir austan við Aðalstræti hlýtur að leiða til aukinnar umferðar i nágrenni þessa svæðis. Hið jákvæða við umrædda deiliskipulagstil- lögu er það, að eigendur lóðanna geta á hana fallizt og eru reiðu- búnir að hefja framkvæmdir á grundvelli hennar”. ARH Kristján Benediktsson: Heildarskipu lagid vantar Kristján Benediktsson, borg-' arfulltrúi Framsóknarflokks visaði til bókunar á fundi borg- arráðs 10. janúar s.l. varðandi afstöðu til skipuiagstillagna i miðbænum. Bókun Kristjáns er svohljóðandi: „Eins og fram kemur i bókun Helga Hjálmarssonar i skipu- lagsnefnd frá 19. desember s.l. og 26. júli s.I., eru á þvi augljósir annmarkar að fullvinna einstök takmörkuð svæði i gamla mið- bænum (Kvosinni), án tillits til framkvæmda i næsta nágrenni og meðan engin heildarmynd liggur fyrir um framtiðarskipu- lag miðbæjarsvæðisins. Þá hef- ur ekki enn verið gengið frá skipulagi Grjótaþorps, né ákvörðun tekin um hverju hlut- verki það eigi að gegna i mið- bæjarstarfseminni i framtið- inni. Virðist mér mjög hæpið að ganga frá endanlegu skipulagi austan Aðalstrætis án þess að gera sér um leið grein fyrir hvað gert verður i skipulags- málum vestan götunnar. Eðli- legra hefði verið að deiliskipu- leggja þessi svæði sem eina heild. Hefði þá mátt ætla bygg- ingu fyrir bifreiðageymslu nyrzt i Grjótaþorpi meðfram Vesturgötu og Garðastræti i stað þess að gera slika geymslu neðanjarðar i Kvosinni austan Aðalstrætis, en slik bygging hlýtur að vera bæði dýr og óhag- kvæm. Þá er að minum dómi ekki gerð fullnægjandi grein fyrir Adda Bára Sigfusdóttir: Vil sjá aðra skipu- lagstil- lögu — Borgarf uI Itr úar Alþýðubandalagsins hafa þá sameiginlegu afstöðu, að hafna þessari skipu- lagstillögu, eins og hún nú liggur fyrir, sagði Adda Bára Sigf úsdóttir, veður- fræðingur. Við viljum sjá aðra skipulagstillögu þar sem gert yrði ráð fyrir því að nota þau hús á svæðinu sem nothæf eru og byggja í stíl við um- hverfið, ef á annað borð verður þarna bygggt: Adda Sigfusdóttir Þá kom fram i samtalinu við borgarfulltrúann, að fulltrúar Alþýðubandalagsins hafi ekki reynt að ná samstöðu með öðr- um fulltrúum minnihlutans i — Ég vil sjá þarna hæfilega endurnýjun i ibúðarbyggingum, en engar stórframkvæmdir á borð við þær sem tillagan gerir ráð fyrir. borgarstjórn i málinu, en af- staða borgarfulltrúa flokksins væri hins vegar byggð á grund- vallarstefnu þeirra i skipulags- málum Reykjavikur. _ Björgvin Guðmundsson: Vantar líf- Alþýðublaðið bað Björgvin Guðmundsson, borgarf ulltrúa Alþýðu- flokks, að segja skoðun sína á skipulagstillögun- um á Hallærisplani. Hann sagði m.a.: — Ég get ekki fallizt á skipulagstillöguna óbreytta. Ég tel að hún þurfi endurskoðunar við. Til dæmis er ég andvigur því að Hótel Vik verði rif- ið. Auk þess tel ég rétt að athuga hvort fleiri hús á svæðinu beri að varð- veita. Björgvin Guðmundsson legri midbae A hinn bóginn eru hugmyndir um að byggja yfir torg i mið- bænum mjög athyglisverðar og tel að með réttri útfærslu slikra hugmynda væri hugsanlega unnt að gæða miðbæinn auknu lifi. A þvi er mikil þörf. Miðbær- inn, eins og hann er i dag, er mjög liflaus eftir að almennum vinnudegi lýkur og að minu viti vantar þarna allt það kvöldlif sem áður var. Ef til vill væri unnt að skapa slikt lif með þvi að byggja yfir Hallæris- og Steindórsplanið og koma þar upp fjölbreyttum veitinga- og kaffihúsum sem myndu laða fólk að miðbænum. -ARH

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.