Alþýðublaðið - 04.02.1978, Qupperneq 12

Alþýðublaðið - 04.02.1978, Qupperneq 12
alþýðu- blaðiö Útgefandi Alþýöuflokkurinn I lAIJGARDAGUR Ritstjórn Alþýöublaðsnins er aö Slðumúla 11, simi 81866. Auglýsingadeild blaðsins er aö , ------ Hverfisgötu 10, sfmi 14906 — Áskriftarsfmi 14900. 4. FEBRUAR 1978 Mál Páls Líndals, fyrrverandi borgarlögmanns til rannsóknarlögreglu: Hafnadi að vera viðstaddur rannsókn á hirzlum sínum — segir í greinargerð borgaryfirvalda og borgarendurskoðanda i gær barst fjölmiölum í Ijósriti greinargerð frá skrifstofu borgarstjóra, varðandi rannsókn end- urskoðunardeildar á skil- um Páls LíndalS/ fyrr- verandi borgarlögmanns, á innheimtum bifreiðar- stæðagjöldum og sam- þykkt borgarráðs um meðferð málsins. Jafn- framt skýrsla stjórnar endurskoðunardeildar og bréf borgarendurskoö- anda með áritun kjörinna endurskoðenda. Kemur f ram í greinargerðinni að í gær var ákveðið að visa málinu til frekari með- ferðar rannsóknarlög- reglu ríkisins. Greinargerö skrifstofu borg- arstjóra er á þessa leiö: 1 byrjun desember 1977 kom upp grunur um, aö i ákveönum tilvikum hafi ekki verið gerö skil til borgarsjóðs á innheimt- um bifreiðastæöagjöldum, sem Páll Lindal, þáv. borgarlög- maður, haföi veitt móttöku i marz og október 1977. Eftir aö hafa i fyrstu neitaö vanskilum greiddi Páll Lindal föstudaginn 9. desember umræddar fjár- hæöir til borgarsjóös og sagöi jafnframt aö af hans hálfu væri ekki um frekari vanskil aö ræða. Endurskoöunardeild haföi þá hafiö nánari athugun þessara mála og strax mánu- daginn 12. desember kom fram grunur um frekari vanskil. bann dag sagöi Páll Lindal starfi sinu lausu.Var honum þá jafnframt tjáö af borgarstjóra, aö endurskoöunardeild óskaöi eftir að gera leit að skjölum i herbergi hans og honum gefinn kostur á aö vera viöstaddur, sem hann afþakkaöi. Um þetta efni fylgir skýrsla borgarendur- skoðanda. Hefur ekki gert grein fyr- ir málinu af sinni hálfu Rannsókn endurskoöunar- deildar sem nær allt aftur til ársins 1965 hefur leitt i ljós, aö á árunum 1971-1977 hefur Páll Lindal veitt móttöku bifreiöa- stæðagjöldum aö fjárhæö sam- tals kr. 5.069.729, sem ekki verö- ur séö aö skilaö hafi veriö i borgarsjóö. Inn á þessa fjárhæö greiddi Páll Lindal 9., 14. og 15. desember s.l. samtals kr. 1.973.704. Skýrslu endurskoðun- ardeildar fékk Páll Lindal 31. janúar, en hefur siöan ekki sinnt tilmælum endurskoðunardeild- ar um aö koma og gera grein fyrir málinu af sinni hálfu. Hafði verið spurður um vanskilin áður Ekki veröur hjá þvi komizt að vekja athygli á, að i bréfi til borgarráös 31.1. 1978, sem birt var i dagblöðum 2. þ.m., lætur Páll Lindal aö þvi liggja, aö á fundi borgarstjóra 12. desember s.l. hafi honum fyrst verið sagt, að hann „væri borinn alvarleg- um sökum af borgarendurskoð- anda”. Þremur dögum áöur, 9. desember s.l., hafði Páll Lindal þó greitt tæpl. kr. 774 þús., sem hann veitti viötöku i marz og október 1977. Aöur hafði starfs- maöur endurskoöunardeildar rætt nokkrum sinnum viö Pál Lindal um þessi vanskil og leit- aö eftir skýringum hans. Samtaliö 12. desember s.l. getur þvi ekki hafa komiö Páli Lindal á óvart. 1 fyrrgreindu bréfi til borgar- ráös og i blaöaskrifum undan- farna daga hefur Páll Lindal itrekaö fundið aö rannsókn end- urskoöunardeildar og jafnframt haft I frammi óljósar aödróttan- ir I garö borgaryfirvalda. Borgarráð hefur i dag ákveöið aö visa málinu til frekari meö- feröar rannsóknarlögreglu- stjóra rikisins. Vanskil á greiðslum frá 11 greiðendum bifreiða- stæðagjalda 1 skýrslu stjórnar endurskoð- unardeildar kemur fram aö samkv. 25. gr. byggingasam- þykktarinnar, geti borgarstjórn heimilað, i þeim tilvikum, þar sem ekki verður komiö fyrir á lóö nægum bifreiöastæöum aö leysa lóðarhafa undan þeirri kvöö, ef hann greiðir andvirði þess lóöarhluta, sem á vantar. Skal andviröiö miöaö viö verö- mæti þeirrar lóöar sem byggt er á. Voru það greiðslur samkv. þessari heimild, sem borgarlög- maður missá sig á. Eru i skýrslunni tilteknir 11 aöilar, sem inntu þessar greiðslur af hendi, en ekki voru gerö full skil á i borgarsjóð og nam upphæðin, svo sem segir i greinargerö borgarstjóra, 5.069.729. Páll hefur nú greitt hluta upphæöarinnar, svo eftir standa 3.096.025. Kemur fram að stjórn endur- skoðunardeildar hefur haldiö átta fundi vegna þessa máls. Er oftast um aö ræöa ávisan- ir, sem Páll hefur tekiö við sem greiöslu á gjöldunum og svo framvisað, án framsals borgar- gjaldkera. Hafnaði að vera viðstaddur rannsókn í hirzlum skrifstofu sinnar. „1 bréfi Bergs Tómassonar, borgarendurskoðanda, segir svo um rannsóknina á skrifstofu Páls Lindals, sem Páll hefur fordæmtopinberlega hvernig að var staðiö: 1 byrjun rannsóknar á máli Páls Lindals, varöandi meöferö innheimts fjár vegna bifreiöa- stæðagjalda, kom fram, að ekki voru nein gögn fyrir hendi um greiöslumáta, samkomulag eöa útreikninga á þvi tilviki, sem varö upphaf aö rannsókn þess- ari, svo og siöari mála, sem upp komu. Páll Lindal haföi veriö inntur eftir gögnum i málum þessum oftar en einu sinni og kvaö hann engin gögn um þetta vera I sinum fórum og gæti hann engar upplýsingar gefið. Þegar svo Páll segir starfi sinu lausu 12.12. 1977, skýröi borgarstjóri Páli frá þvi, að borgarendurskoðandi teldi nauðsynlegt að hirzlur Páls yrðu skoöaöar til þess aö ganga úr skugga um aö ekki væru þar gögn til upplýsingar i málinu. Borgarstjóri spuröi Pál hvort hann vildi vera viðstaddur, en hann kvaö nei við. Að svo búnu fór Páll af skrifstofu sinni en borgarendurskoöandi ásamt Birni Kristjánssyni, starfs- manni endurskoöunardeildar, og skrifstofustjóra deildarinn- ar, Kjartani Gunnarssyni, könnuöu gögn i skrifboröi Páls meö vitund borgarstjóra og skrifstofustjóra borgarstjóra. Teknir voru úr skrifboröinu fjórir vlxlar varðandi bifreiöa- stæöagjöld samkvæmt meðfylgjandi kvittun i n n h e i m t u d e ild a r , en innheimtudeild voru afhentir vixlarnir til varöveizlu og innheimtu. Ennfremtir gögn um þær greiðslur er þeir þrir aðil- ar, sem samþ. vlxlana, áttu aö - greiöa fyrir bifreiðastæöagjöld. Aö ööru leyti varöandi atvik þennan dag vegna þessa máls, visast til minnisblaðs Björns Kristjánssonar, sem fylgir hér meö. Þaö er rangt, að ég hafi nokk- urn tima sakfellt Pál Lindal i blaðaviðtölum, en ég get ekki borið ábyrgð á uppslætti orða og fyrirsögnum blaða.1* Minnisblað Björns Mánudag 12. desember 1977, kl. 14.30 til 15.00 afhenti ég borgarstjóra ný gögn i máli borgarlögmanns og ræddi þá um það, aö endurskoöunardeild þyrfti aö sjá öll þau gögn, sem Páll hefði undir höndum eöa i skrifborði sinu, um mál þetta. Borgarendurskoöandi var fjarverandi vegna jaröarfarar. Um kl. 16.00 hringdi borgar- stjóri og sagði aö borgarlög- maöur hefði sagt upp starfi sinu og aðspurður af borgarstjóra kvaöst Páll ekki vilja vera viöstaddur, þegar endur- skoöunardeild færi i skrifborð hans. Borgarstjóri taldi bezt, að i skrifborð Páls yrði skoöað eftir vinnutima. Kl\16.15 mætti ég á skrifstofu borgarstjóra og þar voru mættir auk\borgarstjóra, borgarritari og skrifstofustjóri. Nokkru siðar mætti borgar- endurskoðandi og skrifstofu- stjóri hans. Um kl. 17.00 rædd- ust þeir við borgarstjóri og borgarendurskoðandi og var þá rætt um leit i skrifboröi borgar- lögmanns. Lyklar að skrif- boröinu voru á staönum, nema aö einni skúffu, sem hægt var að opna á auöveldan hátt, án þess þó aö sprengja upp lásinn og i þeirri skúffu voru þau plögg, sem leitað var aö. Véfengja útgáfurétt Braga hf. á verkum Einars Benedikiss. — Magnús Víglundsson eini núlifandi stjórnarmaður Braga hf. Mái erfingja Einars Bene- diktssonar gegn Braga hf. þingfest í fyrradag: 1 fyrradag var þingfest mál fyrir bæjarþingi, sem erfingjar Einars Benediktssonar skálds, höföa gegn hlutafélaginu Braga. Fyrir bæjarþinginu kveöast stefnendur munu gera þær dóm- kröfur aöallega, aö viöurkennt veröi meö dómi aö Bragi hf. hafi ekki öölast eignarrétt og höfund- arrétt að verkum Einars Bene- diktssonar, skálds, en til vara aö eignarréttursá og höfundarréttur aö verkum Einars Benediktsson- ar, sem félagið telur sig hafa ööl- ast meö samningi viö Einar Benediktsson 17. janúar 1938, sé niöur fallinn. Þá er og krafist málskostnaöar úr hendi stefnda, Braga hf. Hlutafélagið Bragi Málavextir eru þeir, aö hinn 13. janúar 1938 var stofnað I Reykja- vik hlutafélagiö Bragi. I stofn- ' samningi og lögum félagsins seg- ir, aö tilgangur félagsins sé sá aö kaupa af fyrrverandi sýslumanni, Einari Benediktssyni i Herdisar- vik, eignarrétt aö öllu þvi, sem hann hefur samiö, meö þeim tak- mörkunum, sem leiöir af áöur- geröum ráöstöfunum hans, svo og að birta ritin á hvern hátt sem vera skal eöa ráöstafa þeim á annan hátt. Greint félag telur sig hafa gert samning viö Einar Benediktsson hinn 17. janúar 1938, þar sem hann hafi selt og afsalaö Braga hf. eignarrétti á öllu þvi, sem hann hafi samið og hafi andvirði hins selda verið kr. 7000. Einar Benediktsson lézt i Herdisarvik hinn 12. janúar 1940. Málshöfðun 1944 Hinsvegar höfðuöu erfingjar Einars Benediktssonar mál á hendur Braga hf., meö stefnu út- gefinni 11. sept. 1944 til ógildingar á „samningi” frá 17. janúar 1938. Mál þetta var hafið meö dómi bæjarþings Reykjavikur aö kröfu erfingjanna hinn 5. mars 1947, en Bragi hf. hafði ekki uppi gagn- kröfur um efnisdóm til viöur- kenningar á meintum rétti sinum. Véfengja undirritun Ein- ars Stefnendur kveöast byggja aö- alkröfugerö i máli þessu á hendur Braga hf. á þeim málsástæöum, að samningur sá frá 17. janúar 1938, sem stefndi mun byggja rétt sinn á, hafi ekki verið undirritaö- ur af Einari Benediktssyni. Telji dómurinn hinsvegar að stefnend- um beri aö sanna aö Einar Bene- diktsson hafi ekki undirritað samninginn og komist aö þeirri niöurstööu aö slik sönnun hafi ekki tekist, þá kveöast erfingj- arnir byggja á þvi aö Einar Bene- diktsson hafi ekki verið svo heill heilsu, andlega og likamlega i ársbyrjun 1938, aö hann hafi verið fær um aö ráöstafa fjárhagsleg- um og persónulegum hagsmun- um sinum, og samningurinn sé þvi ekki bindandi. Fleira færa stefnendur fram, m.a. aö réttur- inn, sem Bragi telur sig eiga, sé úr gildi fallin sökum vanrækslu félagsins á útgáfuskyldu sinni og dreifingarskyldu, og að samning- ur þess gangi I berhögg viö góöar venjur i höfundaréttarmálum. Allir núlifandi erfingjar höfða málið Stefnendur skýra aöild sina þannig aö Hrefna Benediktsson og Benedikt örn Benediktsson séu börn Einars Benediktssonar, en aörir stefnendur séu börn Stef- áns Más Benediktssonar, sonar Frh. á 10. slöu

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.