Alþýðublaðið - 21.03.1978, Page 9

Alþýðublaðið - 21.03.1978, Page 9
9 wi22*,'Þriðjudagur 21. marz 1978 Frívilji eða fyrirskipanir! Fús eöa ófús. Um nokkuö langan aldur hef- ur saga gengiö um siöar vestur. islenzka þjóðskáldið, Stephan G. Stephansson. A táningaaldri-eins og þaö mundi nú kallaö-dvaldi hann i Viömýrarseli, einum af vest- ustu býlum f Skagaf jarðarsýslu, þar sem þjóöleiðin liggur vestur og suöur um. A einhverju hausti varö hann þess var, að flokkur manna reiö vestur þjóögötuna. Það voru skólapiltar á leiö til náms i höfuöborginni, eða þar I grennd. Honum segist svo frá i endur- minningabrotum, að þegar hann fór að hugleiöa, hvaö lægi framundan hjá hinum gázka- fullu skólapiltum og bera þaö samán viö, hvert væri hans hlutskipti, hafi hann brostiö I grát. Honum var vitanlega ljóst, aö efnahagur fjölskyldunnar var ekki slikur að nokkur minnsta von væri, að hann gæti fyllt slikan flokk, sem hann horföi nú á eftir. En honum var einnig ljóst þó ungur væri-aö einkum móöir hans myndi sárlega hryggjast af þvi að sjá hinn efnilega son svo niöurbrotinn. Hann brá þvi á það ráö, aö fara út i móa í hvarf við kotið og gráta þar I einrúmi. Móðir hans, sem var einstök merkiskona, komst samt á snoðir um hugrenningar drengsins sins. Og það er haft eftir henni, ab þetta hafi veriö ein af þyngstu hugraunum, sem hún hefði átt viö aö striöa, og vera einskis megnug til úrbóta. Hér er hvorki staður né stund, til aö rekja æfiferil Stephans G. Stephanssonar, þó á þaö megi drepa, að fáum-ef nokkrum- varð jafn mikið úr sjálfum sér og þessum alls ólæröa manni, hvaö skólagöngu viðvék, heldur en honum „Stebba frá Seli”, eins og hann kallaði sig stund- um. Áratuga dvöl i framandi landi, landnám i hálfgerðum óbyggðum og fjölskylduþyngsli, megnuöu ekki aö slá fölskva á eldinn, sem honum brann i brjósti frá vöggu til grafar. Ekkert basl náöi aö smækka hann. bessi stutta harmsaga má koma okkur oft i hug, þegar viö litum yfir svið þjóð- Iifsins nú. Enginn getur vissu- lega um það fullyrt, hver hefði orðið æfiferill Stephans G, ef hann heföi oröið þess umkominn aö setjast viö þann Mimisbrunn, sem hugur hans stóð til. Eitt er þó nokkuö öruggt. Hann heföi ekki dregið af sér við róðurinn á sævi námsins, hvað sem ööru liður. Nú þarf enginn aö gráta úti i móum vegna þess, að hann eöa hún eigi ekki þess kost, að nema þaö, sem geta og hugur stendur til, og meira en það. Nú er svo komiö, aö unglingar eru beinlin- is krafðir um aö mæta i skólum landsins fram undir sextán ára aidur. Vissulega er allt gott um þaö að segja, að ungu fólki gefist kostur á, aö afla sér fræöslu, hvort heldur almennrar eöa sérhæfðrar. Með þvi ráðslagi ætti að vera fyrir það girt, að viö glötum engum vegna lærdómsskorts, og þurfum ekki að naga okkur i handarbökin fyrir það. Þaö mætti samt sem áöur vera okkur ihugunarefni, hvort hér sé ekki lengra gengiö en skynsamlegt er. Þegar núverandi skólalöggjöf var kreist fram á sinum tima voru engan veginn allir á eitt sáttir, vegna umgerðarinnar, sem um hana var sett, auk ýmislegs fleira. Reyndir skólamenn-sem raunar var varast að hafa veru- legt samráð við-voru á þeirri skoðun, að i stað svo og svo langrar skólaskyldu ætti að koma fræðsluskylda. betta ber vitanlega að skilja þannig, að fólk hafi nokkurt frjálsræöi um, hvernig það vill verja æskuárunum. Mikið djúp er staðfest á milli þeirrar kvaðar, að þurfa hvort sem mönnum er ljúft eða leitt, aö ganga i skóla, eða menn viti, aö þeir eiga þess kost, hvenær sem er á æfinni, að auka nokkuð viö hæö sina og breidd I kunnáttu. Við erum auðvitað öll þvi undirorpin, að verða að meta æ og ætið hverjar séu þarfir okkar og jafnframt skyggnast um bekki eftir mögu- leikum, til að uppfylla þær. Þá er komið aö þeim sterkasta hvata, til þess að láta sér verða eitthvaö verulegt úr tækifærun- um. Þess ber einnig að gæta, aö þroski fólks-ekki hvað sizt námsþroski- næst á mjög svo misjöfnum aldri. Trúlegt er, að þeir kennarar séu færri, sem hafa ekki fengið þær spurningar hjá nemendum: „Hvaða not get ég haft af þvi, aö læra þessa, eða hina greinina? Og ef hún kemur ekki að gagni, hversvegna þá að eyða i hana tima ?” Hér er vitanlega um að ræöa talsverðan vanda, sem enginn samvizkusamur kennari getur látið sem vind um eyru þjóta án þess að gera heiðarlega tilraun til svara. Vissulega er það ekki á nokk- urs manns færi, að gefa hér við tæmandi svör. Nú má það öllum vera vitan- legt, að slikar spurningar þurfa alls ekki að spretta af neinni löngun til að þvarga. Langoftast munu þær spretta af þvi, að þó fólk geri sér grein fyrir lær- dómsþörf, eru samt ekki allar greinar jafn hagnýtar, ef miðað er við takmarkað svið. Það mundi þó skipta miklu máli, að leitandi hugur ungs fólks, rekist ekki á lokaðar dyr. En þaö leiðir hugann aftur að þeirri spurningu, hvað þaö sé, sem hagnýtt sé að vita og kunna nokkur skil á. Litlar likur eru til, aö fólk á mjög ungum aldri hafi gert sér grein fyrir hvað I þvi býr og auðvitað þvi takmarkaðri, sem þroskinn er minni. Almennt talað-auövitað eru undantekningar, sem sanna regluna-ætti þvi nám að beinast að sem almennustum kunnáttu- atriðum, unz menn hafa fundiö sjálfa sig. bá-fyrst er hægt að tala um hagnýti sérhæfingar, enda trú- legt að viljinn sé þá fyrir hendi og hann dregur oftast hálft hlass og vel það. Þessar hugleiðingar eru fram settar i þeim tilgangi einum, að benda á hversu fráleitt það er að umgangast lifandi fólk eins og aligæsir, sem á að fita fyrir jólaveizlur. Við heyrum oft talað um námsleiða og vissulega er hann of viða fyrir hendi. Er ekki full ástæða til, að freista þess að virkja vilja til náms, vilja, sem fyrr eða siðar bærist i hugum flestra? Aðrar leiðir verða torsóttar aö umtalsverðu marki. Oddur A. Sigurjónsson 1 HREINSKILNR SAGT Böm þurfa að læra að tapa — svo ekki fari illa sidar f lífinu Margir taka ósigri þannig að þeir láta hann bitna á náunganum. Þessi vanþroski ýtir óneitanlega undir árásarhneigð unglinganna. Harmleikurinn, í Arós- um, þegar 11 ára drengur hengdi sig vegna þess að hann hafði tapað í kúlu- spili, vakti óneitanlega umræðu um vissar ríkjandi uppeldisskoðanir. Einkum var þó spurningin um viðhorf foreldra til samkeppnisformsins áleit- in, og þá aðallega hvort kenna ætti börnum að tapa, eða ala þau upp í því að hafa betur í öllum leikjum. Það skólakerfi, sem nú hefur víða verið tekið upp, dregur mjög úr samkeppni meðal nemenda miðað við það sem áður var. Börnin mega ekki keppa hvert við annað, sumstaðar ekki einu sinni i íþróttatímun- um, að sögn. En hvernig eiga þau að fá að læra að tapa Hið frjálslega uppeldi, sem hefur reynst jákvætt að mörgu leyti, krefst einnig tiðra ósigra á heimilunum, þótt þeir séu oftar i formi boða og banna en hreinnar keppni. Arangurinn verður sá, að börn- in sem koma úr skólunum, eru ósjálfstæðar kveifar. Vitaskuld gjalda þau lika allra þeirra tæknilegu „dásemda” sem viö getum boðið þeim. En þegar lifið fer að verða eilit- ið meira spennandi og erfiðara um leið, byrja sigrarnir og ófar- irnar. Baráttan um menntun, baráttan um vinnu, baráttan um félaga af hinu kyninu, um ástina gefur álika marga sigra og ósigra i aðra hönd. Þó er liklega einna mest um ófarir á vinnumarkaðnum og hjónaböndum um þessar mundir og bitnar það mest á hinum yngri, eða þeim sem aldrei hafa lært að berjast og tapa. Harmleikurinn i Arósum var i fyrirboði, segir forsvarsmaður afbrotadeildarinnar I Danmörku, Erik Zacho, en ekki slysatilfelli, eins og margir álita. Þetta átti ekki að verða sjálfs- Frh. á 10. siðu Leikfanga-byssur sem þessi hafa tlðum veriö not; öar viö alls kyns auögunarbrot. Leikfangabyssur mikið notaöar við auðgunarbrot Vopnuö rán eru orönir daglegir viöburðir í Danmörku. Lögreglan á fullt i fangi með aö halda uppi lögum og rétti, þar sem talið er vist, aö f jöld- inn allur af óleyfilegum vopnum sé í umferð. En ræningjarnir notast viö fleira en vopn. Það er, að sögn, orðið talsvert algengt, að notað- ar séu leikfangabyssur við ránin. I hverri einustu leik- fangaverzlun fást byssur, sem eru svo nauðalíkar „alvöruvopnum", að engin leið er að greina þar á milli i fljótu bragði. Rikislögreglan hefur oft reynt að fá leikfangasölu af þessu taginu bannaða, en — hingað til — án árangurs. — Það er næstum ómögulegt, að fá þvi framgengt að þessi leik- föng verði bönnuð, segja talsmenn hennar. Og þótt það tækist, þá þyrftum við að hafa náiðeftirlit með að banninu yrði hlýtt, en til slíks höfum við engan mannafla. Það er staðreynd, að margir fullorðnir kaupa leikföng af þessu tagi. Auðvitað er mögulegt að ræna banka með því einu, að beina reykjarpipu í vasanum i stað byssu að þeim sem á að taka úr um- ferð. En það myndi vissu- lega hjálpa lögreglunni í störfum og þar með þjóðfélaginu öllu, efþessar nákvæmu eftirlíkingar væru teknar af markaðin- um og sala þeirra bönnuð." HíísUm IiI* Grensásvegi 7 Simi 32655. IVtOTOFtOLA Alternatorar i bila og báta 6, 12, 24 og 32 volta. Platinulausar transistor kveikjur i flesta bila. Hobart rafsuöuvélar. Haukur og Ólafur h..'. Armúla 32 — Simi 3-77-00. ___________________________________j Auc^sencW! AUGLYSINGASIMI BLADSINS ER 14906 Svefnbekkir á verksmiðjuverði SVEFNBEKKJA Höfðatúni 2 — Simi 15581 Reykjavik. 2- 50-50 Sendi- bfla- stödin h.f.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.