Alþýðublaðið - 01.06.1978, Page 1
alþýöu-
FIMMTUDAGUR l.JÚNÍ 1978 102.TBL. — 59. ÁRG.
12-19% búvöru-
verðshækkun
i dag hækkar verð
ýmissa búvara um sem
svarar 12-19%. Mest hækk-
un verðurá kjöti, 1. flokks,
súpukjöti, frampörtum og
siðum, eða 18.8% og verð
hvers kílós eftir hækkun-
ina nemur 1099 krónum en
var 925 krónur fyrir hækk-
un. Nýmjólk hækkar um
18.3% og kostar héðan i frá
155 krónur hver litri, i stað
131 króna áður. 30% ostur
hækkar um 13.5%, rjómi i
lausu máli um 13.3% og
undanrenna í líters umbúð-
um kostar þvi 121 krónu i
stað 108 áður.
Verðhækkanir i öðrum
flokkum kjöts og mjólkur-
vara verða hliðstæðar því
sem hér er frá greint.
Flokksstjórnar-
fundur a mánudag
Ákveðið hefur verið, að boða flokksstjórn
Alþýðuflokksins til fundar i Iðnó uppi klukkan
17:00 mánudaginn 5. júni. — Á fundinum verð-
ur rætt um úrslit sveitarstjórnakosninganna og
baráttuna, sem nú er framundan. — mikilvægt
er, að sem flestir flokksstjórnarmenn sæki
fundinn.
Það hefur um nokkurn tíma verið heitt í kolunum í Bæjarútgerð Hafnarf jarð-
ar en í gær sauð upp úr. Kona var rekin fyrir engar sakir og starfsfólk mót-
mælti því með setuverkfalli. A baksíðu er frásögn blaðamanns af verkfallinu
og viðtal við verkafólk auk fleiri mynda.
A þessari —ATA-mynd er trúnaðarkona verkakvenna að ræða við verkfalls-
menn.
Verkamannasambandið skorar á aðildarfélög sín:
YFIRVINNUBANN110. JÚNI
A fundi, sem haldinn var meðal formanna félaga innan Verka-
mannasambands Islands, var gerðályktun, þar sem skorað er á öll
aðildarfélög innan VMSI að boða til yfirvinnubanns dagana 10.-30.
júní hafi samningar ekki tekizt við ríkisstjórnina og Vinnuveit-
endasambandið. Þá var og samþykkt að halda áfram yfirstand-
andi útskipunarbanni og var framkvæmdastjórn sambandsins fal-
ið að framkvæma það í samráði við viðkomandi félög.
I ályktuninni segir m.a.:
„Fundurinn mótmælir bráðabirgðalögum ríkisstjórnarinnar og
þeim vinnubrögðum, að rifta löglega gerðum kjarasamningum æ
ofan í æ með lagaboðum.
Þó að lagasmíð rikisstjórnarinnar sé ákveðið undanhald frá fyrri
lagasetningu, felast engu að síður í henni svo stórfelidar árásir á
— Hafi samningar ekki
tekizt fyrir þann tíma
kjör verkafólks, sérstaklega með ákvæðum um skerðingu álaga
fyrir yfirvinnu og vaktavinnu, en það bitnar hvað harðast á þvi
fólki, sem vinnur við grunnframleiðslustörf þjóðarinnar, að
Verkamannasambandið getur með engu móti við unað".
I niðurlagi yfirlýsingarinnar segir síðan:
„Fundurinn vekur athygli á því, að það er yfirlýst stefna núver-
andi stjórnarflokka, að skerða enn frekar siðar á árinu núgildandi
kaupgreiðsluvísitölu, þannig að með óbreyttri stjórnarstefnu, eru
frekari kjaraskerðingar áformaðar. Fundurinn skorar því á
verkafólk að veita þeim stjórnmálaflokkum, sem staðið hafa að
áðurgreindum lagasetningum og hafa yfirlýstað þeir hyggja á enn
frekari árásir á kjör verkafólks, ekki lið í komandi Alþingiskosn-
ingum". —GEK
Karl Steinar:
„Fyrst og fremst
mótmæli gegn
bráðabirgðalögunum”
— Við munum leita efir
viðræðum við okkar við-
semjendur og er stefnt að
því, aðendurheimta aftur
það hlutfall eftir- og næt-
urvinnu sem var, en sem
nýsett lög hafa skert stór-
lega. Með lögunum stefn-
ir að því að eftir- og næt-
urvinna verði metin til
jafns við dagvinnu, sagði
Karl Steinar Guðnason
varaformaður Verka-
mannasambands tslands
í samtali við Alþýðublað-
ið i gær.
Sagði hann ennfremur
að yfirvinnubannið væri
fyrst og fremst mótmæli
gegn nýsettum bráða-
birgðalögum ríkisstjórn-
arinnar.
„Yfirvinnubann er
ekki það versta sem
fyrir getur komið”
— segir Baldur Guðlaugsson framkv.stj. VSÍ.
„Við hljótum að sjálf-
sögðu að harma að
Verkamannasambandið
skuli halda fast við út-
flutningsbannið sem þeg-
ar hefur valdið atvinnu-
rekstri í landinu umtals-
verðum erfiðleikum og
stofnað atvinnuöryggi í
hættu", sagði Baldur
Guðlaugsson, annar af
tveimur framkvæmda-
stjórum Vinnuveitenda-
sambands tslands, i sam-
tali við Alþýðublaðið í
gær.
Hann sagbi jafnframt, að þótt
svo aö yfirvinnubann væri I
sjálfu sér erfitt viöureignar viba
um land, þá sýndi fengin
Framhald á 6. siöu