Alþýðublaðið - 01.06.1978, Síða 1

Alþýðublaðið - 01.06.1978, Síða 1
alþýöu- FIMMTUDAGUR l.JÚNÍ 1978 102.TBL. — 59. ÁRG. 12-19% búvöru- verðshækkun i dag hækkar verð ýmissa búvara um sem svarar 12-19%. Mest hækk- un verðurá kjöti, 1. flokks, súpukjöti, frampörtum og siðum, eða 18.8% og verð hvers kílós eftir hækkun- ina nemur 1099 krónum en var 925 krónur fyrir hækk- un. Nýmjólk hækkar um 18.3% og kostar héðan i frá 155 krónur hver litri, i stað 131 króna áður. 30% ostur hækkar um 13.5%, rjómi i lausu máli um 13.3% og undanrenna í líters umbúð- um kostar þvi 121 krónu i stað 108 áður. Verðhækkanir i öðrum flokkum kjöts og mjólkur- vara verða hliðstæðar því sem hér er frá greint. Flokksstjórnar- fundur a mánudag Ákveðið hefur verið, að boða flokksstjórn Alþýðuflokksins til fundar i Iðnó uppi klukkan 17:00 mánudaginn 5. júni. — Á fundinum verð- ur rætt um úrslit sveitarstjórnakosninganna og baráttuna, sem nú er framundan. — mikilvægt er, að sem flestir flokksstjórnarmenn sæki fundinn. Það hefur um nokkurn tíma verið heitt í kolunum í Bæjarútgerð Hafnarf jarð- ar en í gær sauð upp úr. Kona var rekin fyrir engar sakir og starfsfólk mót- mælti því með setuverkfalli. A baksíðu er frásögn blaðamanns af verkfallinu og viðtal við verkafólk auk fleiri mynda. A þessari —ATA-mynd er trúnaðarkona verkakvenna að ræða við verkfalls- menn. Verkamannasambandið skorar á aðildarfélög sín: YFIRVINNUBANN110. JÚNI A fundi, sem haldinn var meðal formanna félaga innan Verka- mannasambands Islands, var gerðályktun, þar sem skorað er á öll aðildarfélög innan VMSI að boða til yfirvinnubanns dagana 10.-30. júní hafi samningar ekki tekizt við ríkisstjórnina og Vinnuveit- endasambandið. Þá var og samþykkt að halda áfram yfirstand- andi útskipunarbanni og var framkvæmdastjórn sambandsins fal- ið að framkvæma það í samráði við viðkomandi félög. I ályktuninni segir m.a.: „Fundurinn mótmælir bráðabirgðalögum ríkisstjórnarinnar og þeim vinnubrögðum, að rifta löglega gerðum kjarasamningum æ ofan í æ með lagaboðum. Þó að lagasmíð rikisstjórnarinnar sé ákveðið undanhald frá fyrri lagasetningu, felast engu að síður í henni svo stórfelidar árásir á — Hafi samningar ekki tekizt fyrir þann tíma kjör verkafólks, sérstaklega með ákvæðum um skerðingu álaga fyrir yfirvinnu og vaktavinnu, en það bitnar hvað harðast á þvi fólki, sem vinnur við grunnframleiðslustörf þjóðarinnar, að Verkamannasambandið getur með engu móti við unað". I niðurlagi yfirlýsingarinnar segir síðan: „Fundurinn vekur athygli á því, að það er yfirlýst stefna núver- andi stjórnarflokka, að skerða enn frekar siðar á árinu núgildandi kaupgreiðsluvísitölu, þannig að með óbreyttri stjórnarstefnu, eru frekari kjaraskerðingar áformaðar. Fundurinn skorar því á verkafólk að veita þeim stjórnmálaflokkum, sem staðið hafa að áðurgreindum lagasetningum og hafa yfirlýstað þeir hyggja á enn frekari árásir á kjör verkafólks, ekki lið í komandi Alþingiskosn- ingum". —GEK Karl Steinar: „Fyrst og fremst mótmæli gegn bráðabirgðalögunum” — Við munum leita efir viðræðum við okkar við- semjendur og er stefnt að því, aðendurheimta aftur það hlutfall eftir- og næt- urvinnu sem var, en sem nýsett lög hafa skert stór- lega. Með lögunum stefn- ir að því að eftir- og næt- urvinna verði metin til jafns við dagvinnu, sagði Karl Steinar Guðnason varaformaður Verka- mannasambands tslands í samtali við Alþýðublað- ið i gær. Sagði hann ennfremur að yfirvinnubannið væri fyrst og fremst mótmæli gegn nýsettum bráða- birgðalögum ríkisstjórn- arinnar. „Yfirvinnubann er ekki það versta sem fyrir getur komið” — segir Baldur Guðlaugsson framkv.stj. VSÍ. „Við hljótum að sjálf- sögðu að harma að Verkamannasambandið skuli halda fast við út- flutningsbannið sem þeg- ar hefur valdið atvinnu- rekstri í landinu umtals- verðum erfiðleikum og stofnað atvinnuöryggi í hættu", sagði Baldur Guðlaugsson, annar af tveimur framkvæmda- stjórum Vinnuveitenda- sambands tslands, i sam- tali við Alþýðublaðið í gær. Hann sagbi jafnframt, að þótt svo aö yfirvinnubann væri I sjálfu sér erfitt viöureignar viba um land, þá sýndi fengin Framhald á 6. siöu

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.