Alþýðublaðið - 01.06.1978, Síða 3
Fimmtudagur 1. júní 1978
3
Hörður Zophaniasson. um myndun meirihluta bæjarstjórnar Hafnarfjarðar:
Eðlilegasta niðurstaðan að þeir
sem hlutu traustsyfirlýsingu
myndi meirihluta
— en engar viðræður hafa farið fram
„Mér vitanlega hafa
ekki varið fram við-
ræður um meirihluta-
myndun”, sagði Hörð-
ur Zóphaníasson bæj-
arfulltrúi Alþýðu-
flokksins i Hafnarfirði. (
„Árni Grétar nefndi
þann möguleika i
Morgunblaðinu 30. mai
að það verði óbreytt
meirihlutasamstarf
Sjálfstæðisflokksins og
óháðra, en ekki er vitað
hvort þetta er raun-
veruleikinn eða ósk-
hyggja”-
1 gærkvöld var boöaöur fund-
ur hjá fulltrúaráöi Alþýöu-
flokksins í Hafnarfiröi, en auk
þeirra voru á fundinum allir
sem skipuöu listann viö bæjar-
stjórnarkosningarnar.og þar
voru þessi mál rædd.
„Maöur hefur heyrt þá skoöun
aö eölilegasta niöurstaöan af
kosningaúrslitunum og i sam-
ræmi viö lýöræöislegar venjur
aö þeir sem fengju traustsyfir-
lýsingu frá kjósendum eigi aö
reyna að mynda meirihluta
þ.e.a.s. Alþýðuflokkurinn,
Alþýöubandalagiö, og flokkur
óháðra kjósenda”. „Alþýöu-
flokkurinn mun hvort sem hann
verður i meirihluta eöa minni-
hluta láta málefnin ráða og
vinna i samræmi viö þá stefnu
sem fram kom hjá honum i
kosningabaráttunni”.
gbk.
Stefán Jóhann Stefánsson um úrslit
sveitarstjórnarkosninganna:
„Nýr dagur að renna upp
fyrir verkalýðshreyfinguna”
„Ég er mjög ánægður
með úrslit kosninganna.
Alþýöuf lokkurinn hefur
bætt stórlega við sig sem
og Alþýðubandalagið og
er því eðlilegt að þeir, á-
samt Framsókn myndi
meirihluta, sagði Stefán
Jóhann Stefánsson fyrr-
verandi forsætisráð-
herra, þegar blaðið hafði
tal af honum i gær.
„Ég tel, aö nú sé aö renna upp
nýr dagur fyrir verkalýöshreyf-
inguna svo og Alþýöuflokkinn
sem hefur ávallt beitt sér fyrir
þvi á Alþingi, að sett yröu lög
um bætt kjör til handa verka-
fólki. Vigi Sjálfstæðisflokksins
er falliö hér i Reykjavik, og þvi
fagnar fjöldi fólks. Til þessa
hefur borgin veriö óvinur
verkalýöshreyfingarinnar i staö
þess aö vera henni til aðstoöar
og styrktar. Ég lit á þessar
kosningar sem mikinn sigur
fyrir verkalýöshreyfinguna og
vona, aö f komandi þingkosn-
ingum veröi sigurinn enn stærri.
Ég held, að þetta hljóti að vera
skynsamlega ályktaö en ekki
óskhyggja miðaö við aöstæöur,
þvi sjaldan hefur maður heyrt
jafn illa talað um nokkra rikis-
stjórn.
gbk.
í tilefni Listahátíðar
Bók um
Það er ekki á hverjum
degi sem Islendingum
gefst kostur á að sjá verk
Errós, hann lifir út í hinum
stóra heimi, iangt frá
föðurlandinu. I tiiefni sýn-
ingar hans á Kjarvalsstöö-
um nú á Listahátíð, gefur
AB út bók um Erró í sam-
vinnu við lceland Review.
Gefst nú mönnum sem
Eigendur álverksmiðj-
unnar i Straumsvík,
Alusuisse, héldu hluthafa-
fund um miðjan apríl
síðastliðinn. Þar flótti
Emanuel R. Meyer,
stjórnarformaður, skýrslu
um afkomu félagsins.
Hagnaður varð verulegur á
síðasta ári og bjart virðist
Erró
geta ekki einu sinni látið
sig dreyma um að eignast
verk eftir meistarann,
kostur á að eignast bók
með 59 litprentunum af
verkum hans, fyrir 5,940
kr.
íslenzka upplagið af bókinni er
4500 eintök, þau eru ekki enn
komin til landsins en eru þó upp-
seld. Er þaö algjört met i sögu AB
aö bók seljist upp á svo skömm-
Meyer gat þess sérstaklega, að
verksmiöjur félagsins á Noröur-
löndum, þ.e. i Noregi og á Islandi,
heföu gengiö áfallalaust. Afköst
verksmiöjunnar i Noregi, miöaö
viö afkastagetu, heföu veriö 90%
og á íslandi 97%.Hagnaður heföi
orðiö af rekstri beggja verk-
smiðjanna.
um tima. Iceland Review er meö
enska upplagiö á sinum snærum
og mun gera ráöstafanir til aö
koma þvi á markaöi erlendis.
Á blaðamannafundi sem hald-
inn var i gær til þess aö kynna
bókina lýsti Erró þvi yfir aö hann
væri mjög ánægður meö hana,
sérstaklega þótti honum uppsetn-
ingin góð en það er Edda Sig-
uröardóttir á Auglýsingastofunni
h.f., sem á heiöurinn að henni.
Sagöi Erró aö þetta væri ein
stærsta bók sem gefin hefur veriö
út um hann i lit.
Inngangsorö að bókinni skrifar
Bragi Asgeirsson, en Matthias
Johannessen skrifar einnig um
listamanninn og list hans.
EI
Meyer tók fram, að nú væri
nauðsynlegt að fjárfesta i báöum
verksmiðjum til aö koma I veg
framundan um söluáhrááli. fyrir umhverfismengun.
Afköst Alusuisse-verksmiðjanna
Stúdentaráð krefst þess að:
Menntamálaráðherra
ógildi skipan fulltrúa
sinna í stjóm Lánasjóðs
Stjórn Stúdentaráðs Há-
skóla Islands hefur með
bréfi dagsettu þann 25.
mai beint þeirri áskorun til
menntamálaráðherra, að
hann ógildi skipan núver-
andi fulltrúa menntamála-
ráðuneytisins í stjórn
Lánasjóðs islenzkra náms-
manna.
Þessari áskorun fylgja þeir eft-
ir meö röksemdafærslu, þar sem
þess er meöal annars getiö, að
samkvæmt dómi, sem féll i máli
sem ungur námsmaöur höföaöi
gegn Lánasjóönum, séu ýmis
veigamikil atriöi núverandi út-
hlutunarreglna um námslán i
andstööu viö gildandi lög og
reglugerðir um þessi efni. Þrátt
fyrir þessa niðurstööu dómsins
hafi fulltrúar menntamálaráöu-
neytisins lagt fram tillögur viö
hina árlegu endurskoöun á úthlut-
unarreglum, sem nú stendur yfir
og megi af þessum tillögum
marka að þeir ætli sér ekki aö
taka hiö minnsta tillit til niður-
stööu dómsins. Af þessari ástæöu
telur stjórn Stúdentaráös þá van-
hæfa til áframhaldandi setu i
stjórn LIN og skorar á mennta-
málaráðherra aö skipa nýja i
þeirra stað.
Sameiginlegir fram-
boðsfundir í
Vesturlandskjördæmi
Flokkar þeir sem bjóða
fram í þingkosningunum i
Vesturlandskjördæmi
munu eins og venjulega
standa fyrir sameiginleg-
um framboðsfundum fyrir
kosningarnar. Á fundum
þessum komafram fram-
bjóðendur allra flokkanna.
Ætlunin er að fundirnir
verði 8 talsins og þar koma
fram fulltrúar allra flokk-
anna. Fyrsti fundurinn að
þessu sinni verður í Búðar-
dal, miðvikudaginn 7. júní.
Siðan verður röð fund-
anna sem hér segir:
8. júni i Stykkishólmi
9. júni i Grundarfirði
10. jún: á Hellissandi
15. júni i félagsheimilinu Breiöa-
bliki á Snæfellsnesi
19. júni aö Logalandi i Borgarfiröi
20. júni i Borgarnesi
22. júni á Akranesi.
Ætlunin er aö útvarpa frá fund-
unum i Búðardal, Hellissandi,
Borgarnesi og á Akranesi.
Ræðuumferöir verða 3, 20,15 og
10 minútna langar. Fundirnir
hefjast allir kl. 21.00 nema fund-
urinn á Hellissandi laugardaginn
10. júni, en hann hefst kl. 14.00.
Trúnaðarfólk og væntanlegt starfsfólk
í komandi alþingiskosningum
Trúnaðarfólk og annað væntanlegt starfsfólk A-
listans f komandi Alþingiskosningum er boðað til
fundar í Kristalssal Hótels Loftleiða fimmtudaginn
8. júní klukkan 20:30.
Kosningastarfið undirbúið.
Fjallað um skipulag kosninganna.
Kosningastjórn A-listans í Reykjavík.