Alþýðublaðið - 01.06.1978, Page 5

Alþýðublaðið - 01.06.1978, Page 5
hÍShT Fimmtudagur 1. júní 1978 5 Úr grein eftir Jan Myrdal: t blaöaviðtali voriö 1952 i franska vikublaðinu L. Ecran francais sagöi Charlie Chaplin: Ég trúi á vald hlátursins og táranna sem móteitur gegn hatri og ángist. Góöu kvikmyndinar bregöa upp mynd af alþjóölegu tungumáli, þær fullnægju þörfum mannanna meö gleöi, samúö, og skilningi. Þær stuöla aö þvi aö brjóta niður öldur grumsemda og hræöslu sem ganga yfir heiminn i dag. Viö höfum gert ailt of marg- ar kvikmyndir, sem eru án innri nauðsynjar, fullar af sjúku kynlifi, styrjöldum, drápum og óþolinmæöi. Þær gera spennuna i heiminum ennþá óbæriiegri. Ef viö bara gætum milli þjóöa skipst i stórum skömmtum á kvikmynd- um, sem ekki eru liöur i ofbeldis- áróöri, heldur tala mál venju- legra manna og kvenna, þá gæti þaö orðið liður i aö frelsa heiminn frá glötun. Ég álit aö ummæli Chaplins gildi ekki aðeins um kvikmynd- irnar, þau gilda um alla list i heiminum i dag. Lifið getur virst öfugsnúið og óréttiátt, heimurinn eign hræsnaranna og ofbeldis- mannanna, en ef við fjarlægjum innantómt oröagjálfrið, afhjúp- um gervivandamálin og getum skapað einfaldan og raunveru- legan mannlegan hlátur, tár, samúð og skilning, þá hjálpum við manneskjunni að sjá sinn eiginn heim og sina eigin aðstöðu skýrar. Þá leggja menn sitt af mörkum i hinu mikla starfi að skapa mannlegri heim. Þetta hefur ekki ætið verið rót- tækum ljóst. Hatrið gegn þeim sem hafa kúgað mennina hefur i raun og veru oft verið hatur gegn mönnunum og þar með hjálpað til viö aö halda þeim niðri. A þriðja áratugnum og i byrjun þess fjórða var til dæmis uppi mjög þekktur þýskur listamaður að nafni George Grosz. Hann var álitinn og áleit sig sjálfsagt vera mjög róttækan. Hann afhjúpaði tillitslaust borgaralega heimsku, brjálæði, ljótleika og lifnaöar- hætti. Til að byrja með finnst manni að myndin af borgaranum sitjandi við veitingahússborðið afhjúpi tillitslaust mikið meira en hún i raun gerir. Þetta er skepna, viðurstyggilegur ræfill, sem Grosz hefur teiknað. En ef við gætum nánar að, uppgötvum við að það er ekki aðeins borgarinn sem hann ræðst á, það er manneskjan. Grosz sýnir manneskjuna i niðurlægingu sinni. Uppljóstrun hans er ekki afhjúpun falskrar menningar, heldur er hún vonlaus og svartsýn mynd af manninum. George Grosz var sjálfur and- fasisti og þurfti að leggja á flótta undan fasistunum. Var það and- inn i þessum teikningum, sem hefði átt að getað hjálpað þýskum verkalýö til að ná einingu og sam- stöðu gegn fasismanum? Var það þetta viðhorf til manneskjunnar, sem átti að stilla gegn manneskjuhatri fasismans? örugglega ekki. Bilið á milli manneskjuhaturs fasismans og manneskjuhaturs Grosz er ekki breitt. Sá sem leit þannig á lifið og manneskjuna átti ekki greiðan aðgang að verkalýðshreyfing- unni, sem átti heima i SA. Ég tek Grosz hér sem dæmi einmitt vegna þess að hann sjálf- ur var andfasisti og vegna þess að hann sýnir svart á hvitu bilið á miili róttækni sem bará er hatur og orðagjálfur og róttækni Chaplins, sem er manneskjuleg og ástrik. Nú situr Grosz i New York og málar yfirstéttarfólk meðan hann hrósar sjálfum sér og lifsþróun sinni. Hatrið varð ófrjótt. Þetta andlausa hatur, þessi rót- tækni, sem aðeins afhjúpar matargræðgi og velmegunarfitu mannsins sá ekkert skylt víð þá menningu, sem verkalýðurinn vill standa fyrir. Hún er hreint borgaralegt einkenni. 1 haturs- fullri sýndarbaráttu sinni gegn borgaralegum stofnunum verður hún aöeins i raunveruleikanum ein af hjálparhellum afturhalds- stefnunnar. Hún innrætir mann- fyrirlitingu. Einnig Chaplin lýsir oft mjög biturt ljótleikanum, heimskunni, kjánaskapnum og glæpunum. En hann lýsir aldrei manneskjunni sem ljótri, heimskri eða lasta- fullri. Þvert á móti. Þvi gegnum allt þetta lætur hann hið mannlega koma i ljós. Akveðinn maður getur verið sakhæfur, en manneskjan sem slik hefur þá verið svikin. Það sem við hlæjum að er ekki heldur þýðingarlaust. Chaplin benti einu sinni á að það væri góður grandari ef einhver missti istopp niður um hálsmálið á strautklæddri forstjórafrúnni. Það væri brandari sem sýndi falskt gildi hennar og áhorfendurnir hlæju. En ef istoppurinn hefði runnið niður um hálsmálið á þreyttri og út- keyrðri hreingerningakonu, þá væri það ekki brandari lengur, það væri slys, sem vekti meðaumkun. Að lýsa þvi á ein- hvern hátt væri rangt, það væri mannfyrirlitning. Listaverk verður ekki mikiö vegna þess að linurnar eru falleg- ar og málið hafi takt. Styrkleiki listaverksins er háöur þvi hvers konar áhrif það hefur á áhorfandann. Hver hefur not fyrir list sem gerir manneskjuna óörugga, efablandna, og sem fær hana tíl aö missa trúna á sjálfa sig? Svarið er augljóst. Þaö eru þeir sem hafa mestan áhuga á þvi að manneskjan sé litilsmegnug, viljalaus og framtakslaus. Lista- verk sem aftur á móti fær manneskjuna að sjá skýrar og berjast ákveðið fyrir markmiðum sinum, er listaverk sem þjónar fólkinu, þjónar verkalýðnum og framtiðinni. Það er stundum sagt að slik afstaöa þrengi stakk listamanns- ins og listarinnar. Það er algengt að menningarróttæk borgaraleg timarit máli ógnarmynd af einkennisbúnum, leiðinlegum og þreytandi bókmenntum. Þessi mynd er vissulega röng. Leiðin- leg og þreytandi bók getur aldrei veriö tyrfið listaverk og list sem gengur út frá styrkleika og stærð mannsins er langt frá þvi að vera einhæf og bragðlaus. Listræn starfsemi spannar feykilega stórt svæði: Stórviðburðir og hvers- dagsviðburðir, gleöi og sorg, hamingja og þjáning, sögur og Ijóð, allt er þetta mannlegt og allt verður að tjá. Að gráta og siðan hlæja gegnum tárin að myndum Chaplins, að reyna sigur lifsins og félaganna yfir dauðanum með Josef Kjellgren (sænskt alþýðu- skáld) er jafn mikilvægt og að flissa yfir Svæk og verða hrærður af Strindberg. Allt þetta hjálpar okkur að sjá skýrar og þekkja betur þann heim sem við lifum i. Hið mikla hlutverk verkalýðs- stéttarinnar er að leiða þróunina inn á nýjar og hærri brautir og frelsa sjálfa sig og þar með frelsa aöra og koma á fót þjóðfélagi þar sem mennirnir eru vingjarnlegir og hjálpsamir i staðinn fyrir þau þjóðfélög þar sem mennirnir eru arðræningjar og arðrændir kúgarar og kúgaðir. Baráttan hefur verið hörð og löng, örugglega lengri og harðari en frumherjarnir bjuggust viö, þegar i dag hafa barnabarnabörn þeirra haldið út i atvinnulifið. En það er engin ástæða til að vera vonlaus. Það hefur mikið unnist og ennþá meir á eftir að vinnast og hið sögulega þróunarferli sem breyta skal heimi yfirsáta og undirsáta i mannlegan heim tek- ur meir en einn dag eða eina kynslóð. Sú menning sem verkalýös- stéttin vil gefa þýðingu og innihald er þvi ekki takmarkað hugtak á við yfirstéttarmenningu eða almúgalist. 011 sú list sem hefur manninn og raunveruleik- ann sem takmark þjónar i vorum heimi markmiðum verkalýðs- stéttarinnar. Hins vegar er öll sú list og allar þær menningarað- gerðir sem eru fjandsamlegar manninum og niðurlægja hann einnig fjandsamleg verkalýðs- stéttinni. Raunverulegi mælikvarðinn, bæði i listsköpun og listrýni verður þvi: Er þetta fyrir manneskjuna? Verndar þetta manngildið og hjálpar henni til að sjá skýrar? (Þýtt úr grein eftir Jan Myrdal: Det manskliqa och det radikala) HKJ RÚTTÆKA OG HIÐ MANNLEGA ,,Hið mikla hlutverk verkalýðsstéttarinnar er að leiða þróunina inn á nýjar og hærri brautir og frelsa sjálfa sig og þar með frelsa aðra og koma á fót þjóðfélagi, þar sem mennirnir eru vin- gjarnlegir og hjálpsamir, i staðinn fyrir þau þjóðfélög, þar sem mennirnir eru arðræningjar og arðrændir, kúgarar og kúgaðir.” Reykjavík „lifandi” ir fjör 1 torginu að ihlutan borgaryfirvalda. Það voru þeir Hörður Agústsson list- málari og Þorsteinn Gunnarsson sem leystu það verk af hendi. í greinargérð með könnuninni seg- ir: „Að svipmót borga taki hæg- fara breytingum og borgarmynd- in beri keim af tilurð sinni og þró- unarsögu eru viðurkenndir æski- legir þættir I nútima borgarskipu- lagi”. Niðurstöður könnunarinn- ar voru lagðir fyrir borgarráð 1970, en hlutu ekki formlegt sam- þykki þar. Byggingarnefnd og skipulagsnefnd borgarinnar munu þó eitthvaö hafa stuðzt við þessa könnun við afgreiðslu mála. Timburhús faliegri en steinkumbaldar Þá er einnig ráðist harkalega að þvi sjónarmiöi, að öll timbur- hús séu ónýt og ekkert annað við þau að gera en bara jafna þau við jörðu. Bent er á það að þessi hús eru lifandi merki þess lifs sem þar hefur þrifizt mjnnismerki lið ins tima og oft mjög falleg, en það sama er þvi miður ekki hægt að segja um þá steinkumbalda sem veriö er að hrófla upp út um alla borg. Erlendis er það sjónarmið að verða alls ráðandi að verndun gamalla hverfa eigi að vera liður i allri skipulagsgerð, að sögn Ro- berts Egevang sem kom hér til þess að kynna okkur húsverndar- mál i Danmörku. Egevang þessi er forstöðumaður húsverndar- deildar danska þjóðminjasafns- ins. Frakkastfgur 12 Islendingar virðast sum sé vera að ranka við sér, og ekki bara Reykvikingar, heldur menn út um allt land. Akureyringar eru að átta sig á þvi, að „sjarmi” bæjar- ins er ekki sist að þakka gömlum timburhúsum sem þar standa. Og á Seyðisfirði og Sauðárkróki er fyrirhugaður húsakannanir. Það er fleira i umhverfinu en hús 1 borgum eru það ekki bar húsin sem þarf að gæta aö, það þurfa að vera góð útivistarsvæði i hverrri borg, fyrir þá ibúa sem þar búa. 1 blaðinu er minnt á mikilvægi þess og bent á að friða þurfi Elliðaár- svæöið allt frá sjó og upp aö Elliðaárvatni til þess að sjá Reykvikingum fyrir óspjallaðri náttúru, þar sem þeir geta dvalist i fristundum sinum. Það er vist óhætt að taka undir það. Grænu skikarnir i borginni Sufturgata 7 eru ekki svo margir þrátt fyrir „Grænu byltinguna” borgarstjór- ans fyrrverandi. Vonandi nær þetta blað út til sem allra flestra og veki menn til umhugsuhar. Þaö þurfa allir að taka höndum saman og vinna að þvi að gera þetta land sem allra byggilegast og fallegast og mögu- leikarnir eru fyrir hendi, það er bara að kunna að notfæra sér þá. EI.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.