Alþýðublaðið - 01.06.1978, Síða 7
{{pS1' Fimmtudagur 1. júní 1978
l
Eiturlyfjaleit í Kristjaníu:
Kvenfélag Alþýðuflokksins Akureyri
Aðalfundur verður haldinn að Strandgötu 9, 2. hæð, laug-
ardaginn 2. júni nk. kl. 2 e.h.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Inntaka nýrra félaga.
Stjórnin.
Reykjavík:
Kosningamiðstöð A-listans er i Túngötu 6. Þar er aðstoðað
við utankjörstaðakosningu, tekið við upplýsingum um bila
á kjördag, þar eru miðar i kosningahappdrætti seldir og
margvisleg aðstoð veitt. Helztu slmanúmer eru: 22906,
22957, 23015, 22756 og 22869.
Simi
flokks-
skrifstof-
unnar
i Reykjavik
er 2-92-44
Frá Kristjaniu
Ekkert einasta
gramm fannst!
— Kristjaniubúar sjálfir í herferð gegn
eiturlyfjum
I siðustu viku gerði lög-
reglan i Kaupmannahöfn
„eiturlyfjarassíu" i hverf-
inu Kristjaniu/ sem sumir
nefna frekar sérstakt
samfélag, eða riki innan
landamerkja Möggu
drottningar. ónafngreind-
ur ibúi i Kristjaniu hringdi
til lögreglunnar og lét vita
af hugsanlegum fíkniefna-
flutningum inn í „ríkið".
Lögreglan fór á stúfana og
leitaði í dyrum og dyngj-
um, handtók 40 íbúa
Kristjaníu, en fann ekkert
einasta grámm af vafa-
sömum efnum! Þykir
þetta ekki styðja framburð
margra „betri borgara"
Danmerkur og orð sem fer
af Kristjaniu viða erlendis.
Þar er viðkvæðið venju-
lega það, að Kristjanía sé
hin argasta dópistanýlenda
og sóðabæli.
Um kl. 6 að morgni gerðu 50 lag-
anna verðir innrás i Kristjaniu.
Þeir höfðu ekki erindi sem erfiði,
eins og fyrr segir. Kristjaniubúi
einn sagði við blaðamann Aktúelt
að enginn ibúi hafi hringt til lög-
reglunnar. Hún hafi komið fyrst
og fremst vegna greinar i blaði
fyrir skömmu. Þar var sagt frá
r
I HREINSKILNI SAGT
Þvi fylgja allar góðar óskir
Viðsjár talnanna
Auðsætt er, að stjórnarflokk-
unum svfður sárt niðurstaöa af
byggðakosningunum og þá auð-
vitað sérstaklega ihaldinu i
Reykjavik. Hafin er nú á siðum
Moggans margbrotin reiknings-
list, eflaust til að sanna, aö i-
haldið sé nú alls ekki dautt úr
öllum æðum!
Enginn bjóst nú reyndar við
þvi, enda þarf nær aö ganga oft-
ast, til þess að kveða niöur
gamla og rótgróna drauga. Þar
er Þorgeirsboli og ýmsir Mórar
og skottur gleggst vitni um!
En það er nokkuð athyglis-
vert, að verulega er forðast, að
minnast á úrslitin 1974. Má um
það segja, að öðruvisi brá áður.
í túlkun flokksins þá, var ekki
talinn mikill vafi leika á, að sá
ótrúlegi f jöldi, sem þeir fengu af
atkvæðum væri endanlega kom-
inn inn fyrir túngarð Sjálf-
stæðismanna. Skoðað i þessu
ljósi, verður að segja, að „heið-
arleikinn” i túlkunum sé að
minnstakosti teygður fram á
fremstu grös!
Ef það á að vera unnt að túlka
sveiflur i atkvæðamagni sem
gifurlegan sigur við óvænta at-
kvæðaaukningu, er hætt við, að
túlka verði fráhvarf á svipaða
lund!
Þó tsiendingar hafi löngum
verið hneigðari til „human-
iskra” fræða en raunvisinda,
höfum viðsamt átt ýmsa vel lið-
tæka i reikningslist, sem Sölvi
Helgason er óljúgfrótt vitni um!
Að eigin sögn, tókst honum að
reikna barn i eina danska
kvinnu, og hefur hann þar gert
fullt svo vel og ihaldið i Reykja-
vik i þetta sinn, þar sem þvl
mistókst að reikna nóg af börn-
um I borgarstjórnarframboðið.
-
Semsagt, tölur eru viðsjár-
verður hlutur i ómildra hönd-
um! Framsókarflokkurinn virð-
ist, i túlkun Þórarins Þórarins-
sonar, hafa hætt sér út á nokkuð
hálan is. Þaöer ætið nokkuð við-
sjárvert, aö ætla sér að skrifa
sögu af náinni fortiö og nútið.
Venjulega er bezt að geyma
slikt, þar til fleiri kurl eru kom-
in til grafar. Auðvitað kann að
skipta öðru máli um hinn gam-
alkunna Timasannleik, en aðra
tegund af sannfræði. En hvað
sem um það er aö tala, sýnist
það vera nokkuð djarft, að
draga sérstaklega fram hlut
formanns Framsóknarflokksins
i stjórnarmyndun Geirs Hall-
grimssonar!
Sagan, sýnist ekki vera likleg
til— eins og nú standa sakir-aö
meta þá stjórnarmyndun neitt
sérstakt happaverk! Burtséö
frá þvi, að það er nú ekki i stór-
mannlegra lagi, að aðrir þurfi
að puða i þvi að mynda stjórn-
ina fyrir formann stóra flokks-
ins, þegar honum hefur sjálfum
mistekizt, hefur svo reynslan
ekki verið sérlega jákvæð af
þeirri „vetrarhjálp”.
Viðurkenna skal, að Fram-
sóknarflokkurinn er nú i svip-
uöu ástandi eins og selamóðirin
foröum. Hann burðast nú með
„sjö börn i sjó, og sjö á landi”.
Fleirum en þessari tvennu hefur
staðið vandi af slikri „ást”!
Hitt er tvimælalaust, aö
landsmenn eiga að geta fagnað
þvi, að borgarfulltrúi flokksins i
Reykjavik hefur áunnið sér sess
sem traustur maöur og alls ólik-
legur til þess, að láta venjuleg-
an hringlanda flokksins ráða
ferðum og gerðum sinum.
f
Sama máli gildir auðvitað um
hugsanleg bliömæli ihaldsins,
enda er hann nógu lifsreyndur
til að vita, að þó hann ætti kost á
að'slást I þann hóp, yröi litiö á
hann sem „svarta barnið” þar.
Vissulega mun reyna veru-
lega á þolrifin i þeim meiri-
hluta, sem bókstaflega allir
landsmenn telja eðlilegt, að nú
verði myndaður um borgar-
stjórnina i Reykjavlk.
Auðvitað má gera ráð fyrir,
að Mogginn og allir hans fylgi
fiskar láti ekki úr hömlu drag-
ast, aö veifa hinni fornu vofu
kommúnismans að höfði Al-
þýðubandalagsins. Hinsvegar á
nú Alþýðubandalagið kjörleik.
Undanfarið hefur þvi verið
hampað, að flokkurinn hafi skil-
ið við hina rússnesku forsjá og
hugmyndir um alræði öreig-
anna með meiru. Nú gefst kost-
ur á að sannreyna þær fullyrð-
ingar fyrir opnum tjöldum.
Komi það i ljós — sem viss-
ulega verður að bera fullt traust
til á þessu stigi málsins ætti að
mega vænta þess, að nú sé tim-
inn kominn, aö launastéttir
landsins gangi ekki til lengdar
fram héðanaf i mörgum strið-
andi fylkingum.
Sú harmsaga veröur ekki rif j-
uð hér upp, en lok hennar ættu
að vera i sjónmáli.
Hin fornu sárindi milli eldri
manna ættu að geta horfið
hljóðalitið — án allrar eftirsjár
— enda er nú á ný kynslóð tekin
við, eða að taka við.
Vandi hennar er yissulega
umtalsverður, og þaö væri frá-
leitt smjaður, að halda þvi
fram, að þetta unga fólk sé eða
verði þess umkomið að leysa
alla hnúta á allra farsælasta
hátt hverju sinni.
Samt eigum við -hin eldri-að
geta alið vonir um, að þvi takist
á margan hátt betur, enda væri
aukin upplýsing til mæsta litils,
ef svo yrði ekki.
Eitt má unga fólkið okkar
vera sannfært um. Allar góðar
óskir fylgja því á veg út i barátt-
una.
Oddur A. Sigurjónsson
þvi að Kristjaníumenn sjálfir
skipulegðu nú baráttu gegn fikni-
efnaneyslu og fikniefnadreifingu
innan „landamæranna” og að það
setti á svartan lista alla þá sem
verzluðu með fikniefni i fririkinu.
— En ef einhver i Kristjaníu
hefur hvatt lögregluna til að
koma hingað, þá hefur sá hinn
sami valið skrattans óheppilegan
tima. Kristjania er nefnilega
„þurr bær”, enda fannst hér ekki
svo mikið sem eitt gramm af
dópi, sagði Kristjaniubúinn.
Erum einfær
með löggæslu
— Þar að auki höfum við ekki
áhuga á að njóta aðstoöar lög-
reglunnar i baráttunni gegn flkni-
efnum. Þaö erum við einfær um
sjálf. En það er lögreglunni mjög
að skapi að búa til móthverfur
meðal ibúanna hérna. Núna
gengur helmingur ibúanna um og
grunar hinn helminginn um eitt-
hvað óhreint.
Þó að þeir handteknu
Kristjaniubúar hafi reynst alsak-
lausir af ákæru um fíkniefnasölu
þá notaði lögreglan tækifærið og
fór niður i saumana á öörum þátt-
um i verkum þeirra. Einn var
fluttur til Finnlands, þar sem
hann skuldar yfirvöldum 10
mánaða setu i steininum fyrir ill-
virki. Annar lenti inni i sjö daga
fyrir þjófnað. Stúlka ein útlend
reyndist ekki hafa fullgild leyfi
fyrir Danmerkurdvöl og var
kyrrsett. Þjóðverji nokkur var
handtekinn fyrir að kvikmynda
lögregluna við störf sin. Það var i
sjálfu sér löglegt en löggan hafði
áhuga á sjálfri kvikmyndavélinni
sem var mikil og fin. Henni var
stolið fyrir ári siðan og Þjóðverj-
inn fer i steininn fyrir vikið.
Þá fann lögreglan talsvert
magn af vopnum i húsum i
Kristjaniu. Ekki reyndist þar þó
vera um að ræöa ólöglega vopna-
eign.
Aukin fikniefnaneysla —
fleiri glæpir.
Frá Kaupmannahöfn berast
einnig þær fréttir að mikil aukn-
ing sé i innbrotum á einkaheimili
iDanmörku. Helstu orsakir þessa
eru sagðar tengdar fikniefna-
neyzlu. Sama saga er sögð frá
Sviþjóð. Einstaklingar tapa verð-
mætum til þjófanna en i Sviþjóð
hefur þjófunum lika tekizt að
koma á hausinn nokkrum einka-
tryggingafélögum sem selt hafa
tryggingar fyrir bilþjófnaði og
þjófnaði úr ibúðum.
— Við vitum ekki hvort alfarið
er hægt að kenna hér um fikni-
efnanotkun en við vitum að i Dan-
mörku eru um 4.000 forfallnir
fikniefnaneytendur semeru i þörf
fyrir daglegan skammt. Hver um
sig þarf 1.000 danskar krónur
(45.000 isl. kr) til fikniefnakaupa
á hverjum degi eða alls 4
milljónir D. kr. á dag. Sumt fjár-
magnar fólkið með þvi að selja
sjálft fikniefni, einnig stelur það
úr stóru vöruhúsunum.
— En jafnvel að frádregnum
þessum fjáröflunarleiðum, þá er
enn eftir mikil þörf á peningum
og það er gjarnan leyst með inn-
broti. En vegna strangari
öryggisgæslu i verzlunum siðustu
árin þá hefur reynst erfiðara og
erfiðara að hnuplaiþeim og m.a.
þess vegna fjölgar innbrotum.
— Við getum ekki ráðlagt fólki
neitt betra en það að passa betur
eigur sinar og setja upp þjófa-
bjöllukerfi á heimilum sinum
sagði talsmaöur lögreglunnar viö
Aktúelt.
Frá Garðyrkjuskóla
ríkisins
Umsóknir um skóiavist þurfa að berast
fyrir 10. júni næstkomandi.
Skólastjóri
Phi%Ut% lil*
Grensásvegi 7
Sfmi 82655.
(&
IVfOTOfíOLA
Alternatorar
i bila og báta
6, 12, 24 og 32 volta.
Platinulausar transistor
kveikjur i flesta bila.
Hobart rafsuöuvélar.
Ilaukur og Ólafur h. .
Armúla 32 —Simi 3-77-00.
Au.c^seo(W!
AUGLYSiNGASlMI
BLADSINS ER
14906
Svefnbekkir á
verksmiðjuverði
SVEFNBEKKJA
Höfðatúni 2 — Simi 15581
Reykjavik.
2-
50-50
Sendi-
bíla-
stödin h.f.