Alþýðublaðið - 01.06.1978, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 01.06.1978, Blaðsíða 8
alþýðu- blaðió Setuverkfall starfsfólks BÚH í gærdag: Útgefandi Álþýðuf lokkurinn eiaa aati ir\A i id Ritstjórn Alþýðublaðsins er að Síðumúla 11, sími 81866. Auglýsingadeild rl/VWVl l blaðsinserað Hverfisgötu 10, sími 14906 — Áskriftarsími 14900. 1978 — Þaö svíöur einnig sárt, aö hér er fólk, sem hefur unniö bæöi mikiö og vel fyrir Bæjar- útgeröina i 10-12 ár og svo koma einhverjir menn beint úr skóla og segja okkur aö viö séum ekki hæf i þessa vinnu. —• Þaö tekur mjög á fólk hér aö standa i þessu eilifa þrefi og menn eru miklu þreyttari eftir aö hafa staöiö i svona aögeröum heldur en eftir vinnu. Þaö sem viö viljum, er aö fá aö vinna i friöi. Fólkiö veit aldrei, hvert þeirra fær pokann sinn næst og þar sem ég óska ekki sérstak- lega eftir þvi aö þaö veröi ég, þá vil ég siöur aö nafn mitt veröi nefnt i blaöinu. En krafa okkar núna er fyrst og fremst sú, aö konan, sem var rekin i morgun veröi endurráöin, svo og aö verkstjórarnir „fái pokann sinn”. Við urðum að láta til skarar skriða. Um hádegisleytið I gær fór starfsfólk Bæjarút- gerðar Hafnarfjarðar í setuverkfall. Það mun hafa verið heitt í kolunum í Bæjarútgerðinni í nokkrum tima, en upp úr sauð er konu, er unniö hafði í ein átta ár hjá BÚH var sagt upp fyrir- varalaust. Alþýðublaðið fór í Bæjarútgerðina i gær til að leita upplýsinga. Skrifið bara upp sögu- sagnirnar Er blaöamaöur kom á staö- inn, ætlaöi hann aö ræöa viö trúnaöarkonur verkakvenna og fá hjá þeim upplýsingar um hvernig f málinu lægi. Trúnaö- arkonur voru á fundi meö verk- stjórum og sögöust þær ekki vilja láta hafa neitt eftir sér, sögöust reyndar litiö vita um máliö. Verkstjórinn tók þá til máls og sagöi: „Þiö getið bara skrifaö upp sögusagnirnar og bæjarslúöriö eins og vant er”. Blaöamaöur spuröi þá, hvort hann (blaöamaöurinn) væri aö ómaka sig inn á verkstjóra- skrifstofu ef sögusagnir væru þaö sem hann leitaði eftir. Svar verkstjórans var: „Þú færö ekkert frá okkur fyrir blaöiö á morgun, þú verður bara aö biöa einn til tvo daga ef þú vilt hafa eitthvaö eftir okkur”. Sagt upp fyrirvaralaust. Nú sneri blaöamaöur sér til verkafólksins, eins og hann hefði átt aö gera i upphafi. Það virtist rikja mikil sam- „Erum fyrst og fremst að mót- mæla framkomu verkstjóra77 — menn reknir fyrir engar sakir og enginn veit hver fær sparkið næst staöa og einhugur meöal verka- fólksins, þvf haföi veriö ofboöið og þaö ætlaöi sér ekki aö gefa sinn hlut frekar. Viö ræddum viö konu eina fulloröna, sem hefur unniö hjá Bæjarútgerð Hafnarfjaröar i tólf ár. Hún haföi þetta aö segja m.a.: — Þessar aögerðir okkar hafa átt sér langan aödraganda en i morgun var mælirinn fyllt- ur og upp úr sauö. Þá var eftir- Starfsmenn einhuga i gærdag var haldinn fundur starfsfólks Bæjarútgerðar Hafnar- fjarðar. Þar var borin fram og samþykkt ein- róma tillaga, sém efnis- lega er á þessa leið: Starfsmenn hefja ekki störf fyrr en búið er að reka verkstjórana úr starfi, og endurráða eftirlitskonuna, sem rekin var i gær. Almenn þátttaka var á fundinum og mikill hiti í mönnum. Þótti mönnum tími til kominn að vand- ræðaástandi því, sem ríkt hefur á vinnustaðnum síðan i haust lyki_ATA litskona ein rekin fyrirvaralaust og aö ástæöulausu aö þvi er viröist. Kona þessi hefur unniö hér i 8 ár aö minnsta kosti, hún hefur veriö vel liöin, samvizku- söm og dugleg. Svo kemur þessi verkstjóri, nýkominn úr fisk- vinnsluskóla og rekur hana, og segir aö hún sé ekki starfi sinu vaxin. Hún hefur starfaö hér svo lengi aö hún hlýtur aö eiga mánaöar uppsagnarfrest, en var samt sagt upp fyrirvara- laust. — En þetta er ekki fyrsta uppsögnin. Þetta byrjaöi i haust, þegar gamla verkstjór- anum var sagt upp. Sá haföi veriö hér i 20 ár og var vel liðinn af verkafólkinu. Þá söfnuöum viö undirskriftum og fórum fram á að maöurinn yröi endur- ráðinn. Þaö skrifuöu allir undir þetta bréf utan fjórir menn. Þessu var ekki sinnt. — I haust voru ráönir tveir nýir verkstjórar. Þessir menn hafa svo tínt út þaö fólk, sem þeim hefur af einhverjum ástæöum ekki llkaö við. Erum að mótmæla fram- komu verkstjóra. — Við erum fyrst og fremst aö mótmæla framkomu verk- stjóra. Þetta eru menn, sem hvorki kunna aö umgangast fólk né hráefni. Verkafólki skiptir ekki máli, hvort menn hafa fengiö háar einkunnir i skóla, ef þeir umgangast undirmenn sina eins og vélar og i bezta falli eins og skynlausar skepnur. Viö lit- um þannig á, aö Bæjarútgerö Hafnarfjaröar sé fyrirtæki fólksins i bænum, fyrst og fremst til aö skapa þvi vinnu, en ekki eitthvaö einkafyrirtæki, þar sem geöþótti einstakra yfir- manna getur svipt fólk atvinnu. Á leiöinni út hitti blaöamaður fyrir mann, sem var ómyrkur i máli. — Þaö hefur rikt mikill ein- hugur hér vegna þessara aö- geröa. Þetta hefur átt sér svo langan aödraganda, aö upp úr hlaut aö sjóða fyrr eöa siðar. Þegar svo vitnaöist um brott- rekstur konunnar i morgun, þá uröum viö aö láta til skarar skriöa. Þaö er ekki hægt aö koma svona fram viö fólkiö endalaust. — Þaö er annars merkilegt, hve þátttakan i setuverkfallinu er almenn. Þegar verkafólki er sagt upp hverju af ööru og það aö ástæöulausu, þá er ekki árennilegt aö leggja út i aögerö- ir, þvi þaö er ekkert of auövelt aö fá vinnu. — Ég átti annars sjálfur von á þvi aö fá reisupassann i morg- un þvi ég gat ekki mætt fyrr en klukkan tiu af persónulegum ástæöum. Og þar sem ég til- heyri ekki lengur þeim alyngstu var hættan á brottrekstri enn meiri, þvi þaö viröist vera stefnan, að losna viö þá eldri. — óvissan er þaö versta, þaö veit enginn hver fær spark i rassinn næst. — Viö munum halda þessum aðgeröum áfram að óbreyttu ástandi. Viö viljum aö konan sem var vikiö úr starfi í morg- un, veröi endurráöin og aö verk- stjórarnir veröi látnir fara. Annars veröur fundur meö for- mönnum verkalýðsfélaganna og útgeröarráöi seinna i dag, og viö vonum aö máliö skýrist eitt- hvað á þeim fundi. —ATA Útgerðarráð á næsta leik — segir Hallgrímur Pétursson, formaður verkamannafélagsins Hlifar Alþýöublaöiö náöi tali af Hall- grimi Péturssyni, formanni verkamannafélagsins Hlifar I Hafnarfiröi i gærkvöldi. — Ég er búinn að vera niður i Bæjarútgerö frá þvi á hádegi i dag. Um fimm leytiö I dag var svo samþykkt á fundi starfs- manna, tillaga þess efnis, aö vinna yrði ekki hafin fyrr en verkstjórarnir yröú látnir hætta. (Sjá annars staöar á siöunni). — Á fundi þessum rikti ein- stakur einhugur og ég er ekki hissa á þvi. Frá þvi aö þessir verkstjórar hófu störf I nóvem- ber eöa desember hef ég tekið á móti fjöldanum öllum af kvört- unum vegna þeirra. Þeir verða bara aö gera sér þaö ljóst, aö menn haga sér ekki lengur eins og götudrengir viö starfsfólk sitt. Ég hef veriö alveg undrandi á framferöi þeirra. — Við fórum svo á fund Útgerðarráös, Guöriður Elias- dóttir, formaöur verkakvenna- félagsins, og ég, meö þessa tillögu starfsmanna BÚH. Málin voru svo rædd litillega og Útgerðarráð sagöist skyldu athuga málið. — Þannig er staðan. Starfs- fólk mun mæta á venjulegum tima til vinnu en ekki vinna neitt fyrr en tillögu þess hefur veriö svaraö. Þetta ástand gæti þvi staðiö i nokkra daga, eöa eftir þvi hvaö útgerðarráö er hart á sinu, þvi útgerðarráð á næsta leik, sagði Hallgrímur Pét- ursson, formaður verkamanna- félagsins Hlifar, aö lokum. —ATA

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.