Alþýðublaðið - 16.06.1978, Side 1
Stuðningsfólk
A-listans í Reykjavík!
Sjálfboðaliöa vantar til starfa á kosningamið-
stöðinni Túngötu 6 Reykjavik. Okkur vantar
aðstoð við dreifingu og fjöldamargt annað.
Hafið samband við kosningamiðstöðina nú
þegar. Hringið i sima 22906, 22957, 23015 eða
22869.
Kosningastjórn A-listans i Reykjavik.
KOSIÐ VERÐUR UM
EFNAHAGSÖNGÞVEITIÐ
— fjórir þættir baráttumála A-listans
Alþýðuf lokkurinn hef ur endurnýjað sig fyrir þessar
kosningar. Hann fók upp nýja og f jölmennari for-
ystusveit. Hann sefti sér vandlega unna og nýja
stefnuskrá með harðri þjóðfélagsgagnrýni. Hann tók
sér rósina og hnefann sem nýtt flokksmerki. Hann
býður fram f jölda ungra þingmannsefna með nýjar
hugmyndir, ný viðhorf.
Stefnu Alþýðuf lokksins í alþingiskosningunum, sem
fram fara annan sunnudag, má draga saman í f jögur
meginatriði, sem munu skipta sköpum, ef flokkurinn
fær— með dómi kjósenda — tækifæri til að taka þátt í
myndun ríkisstjórnar.
Hin f jögur meginatriði eru þessi:
1) Efnahag þjóðarinnar á réttan kjöl. Um þetta hefur
flokkurinn gefið út 10 stefnuatriði og dreift umallt
land. Þar er snert á þeim meginþáttum, sem til þarf,
en mestu skiptir launasáttmáli — það er samstarf
milli ríkisvalds og aðilja vinnumarkaðsins um allt,
sem gert verður.
2) Aukið jafnrétti og lýðræði í islenzku þjóðfélagi.
Engir hafa dregið eins vel fram sérréttindi og mis-
rétti i íslenzku þjóðfélagi, og vaxandi verðbólguspill-
ingu, sem hinir ungu f rambjóðendur Alþýðuf lokksins.
Verðbólgan magnar misréttið, skattsvikin eru mikil
og verða að hverfa. Atvinnulýðræði, starfsumhverf i
og jafnrétti kvenna í raun eru mikil baráttumál. Gæt-
um gamla fólksins og öryrkjanna. Jöfnum lífeyris-
sjóðina.
3) Ný stjórnarskrá — réttlátt stjórnkerfi. Það er
hneyksli, að ekki skuli hafa verið sett ný stjórnarskrá
f yrir lýðveldið ísland í 34 ár, heldur notast við 19. ald-
ar forngrip. Atkvæðisréttur er mannréttindi. Kosn-
inganjósnir og skýrzluhald flokkanna um skoðanir
fólks verður að afnema. Alþingi verður að bæta
starfsháttu sína og ef la völd sín og virðing. Prófkjör
eða röðun á lista verður að gera kjör persónulegra.
4) Raunhæf, óbreytt öryggisstef na. Alþýðuf lokkurinn
telur ekki tima kominn til að senda varnarliðið burt og
mun ekki verzla með öryggismál þjóðarinnar fyrir
ráðherrastóla (sjá leiðara). íslendingar verða að
fylgja raunhæfu mati á aðstæðum í nútíma valdataf li
risavelda, ekki óraunhæfum draumórum. ísland á að
styðja fátækar þjóðir til frelsis og bjargálna.
Island hef ur síðan núverandi flokkakerfi myndaðist
fylgteins konar samsteypu-kerfi, og hafa allir flokk-
ar, sem máli skipta, setið í samsteypustjórnum með
öllum öðrum.
Nú virðist vera vandi framundan, og verður þjóðin
aðútkljá hann i alþingiskosningunum. Alþýðuf lokkur-
inn hef ur jafnan reynzt vera f lokkur, sem gat stuðlað
að heilbrigðum stjórnarháttum með þátttöku sinni í
rikisstjórnum.
Miklar breytingar hafa nú orðið í liði Alþýðuf lokks-
ins. Þær breyta ekki eðli f lokksins að vera ábyrgurog
leita eftir árangri í samsteypustjórnum.
TIL HAMINGJU
MEÐ ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGINN!
17.
Á morgun er 17. júní,
þjóðhátíðardagur islend-
inga. Þá er minnzt fæð-
ingar íslenzkrar frelsis-
hetju, Jóns Sigurðssonar,
sem fæddist að Eyri við
Arnarf jörð þann dag árið
1811.
Alþýðubtaðið óskar
landsmönnum öllum til
sjávar og sveita gleði-
legrar þjóðhátíðar. Þessi
þjóðhátíð fer fram við
nokkuð óvenjulegar að-
stæður. Kosningar til al-
þingis standa fyrir dyr-
um. I landinu hefur setið
ríkisstjórn sem ber á-
byrgð á óðaverðbólgu svo
langvarandi að efnahags-
kerfi landsmanna er
gegnumsjúkt. Efnahags-
■ / /
jum
leg óreiða af öllu tagi er
svo mikil, að þess eru
ekki dæmi fyrr í íslenzkri
sögu.
Kjaradeilur hafa
magnazt, ekki vegna
neinnar frekju launþega,
heidur vegna þess að ó-
stjórnin er megn. Eftir
rúma viku verður kosið
um það, hvort þessi
stjórnarstefna á að vera
áfram,eða hvort við eig-
um aö breyta til. Og ef við
breytum til, eigum við að
gera það i átt til lýðræðis
og jafnaðar, eða í átt til
þröngsýni og yfirboða.
Ástandið er alvarlegt.
Samt á að vera létt yfir
þjóðhátíð, og þess vegna
óskar Alþýðublaðið is-
lendingum öllum...
A-lista
Kosningamiðstöö Al-
þýöuflokksins i Reykjavlk er aö
Tiíngötu 6 I Reykjavik.
Kosningastarf er þar i fullum
gangi. Viö fullyrðum aö aldrei
hefur komiö jafn mikiö af ungu
og nýju fólki til aö starfa fyrir
listann. En starfiö er mikið og
okkur vantar alltaf fólk. Kosn-
ingamiöstööin er opin frá þvi
snemma á morgnana og þar til
seint á kvöldin. Þaö er mikiö
verk aö vinna fyrir sérhverja
hönd, og árangurinn er undir
þvikominn.aöenginn liggi á liöi
sinu.