Alþýðublaðið - 13.06.1981, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 13.06.1981, Blaðsíða 2
2 Laugardagur 13. júní 1981 Dagskrá 44. Sjómannadagsins í Reykjavík 14. júní 1981 Kl. 08:00 Fánar dregnir að hún á skipum i Reykjavikurhöfn. Kl. 10:00 Lúðrasveit Reykjavikur leikur létt sjómannalög við Hrafnistu, Reykjavik, stjórnandi Oddur Björns- son. Kl. 11:00 Minningarguðþjónusta i Dóm- kirkjunni, dómprófasturinn, séra Ólaf- ur Skúlason predikar og minnist drukknaðra sjómanna, séra Hjalti Guðmundsson þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar, einsöngv- ari Sigurður Björnsson. Útihátídarhöldin í Nauthólsvik Kl. 13:30 Lúðrasveit Reykjavikur leikur sjómannalög, stjórnandi Oddur Björnsson. Kl. 14:00 Samkoman sett og kynnt, þulur og kynnir er Guðmundur Hallvarðs- son. Ávörp: A. Fulltrúi rikisstjórnarinnar Stein- grimur Hermannsson, sjávarútvegs- ráðherra. B. Fulltrúi útgerðarmanna, Kristinn Páisson, formaður útvegsbændafélags Vestmannaeyja. C. Fulltrúi sjómanna, Hannes Hafstein, framkvæmdastjóri S.V.F.l. D. Pétur Sigurðsson, formaður Sjó- mannadagsráðs heiðrar aldraða sjó- menn með heiðursmerki Sjómanna- dagsins og afhendir afreksbjörgunar- verðlaun. Skemmtiatriði dagsins: Kl. 15:00 Kappsigling á seglbátum unglingar úr æskulýðsklúbbum Reykjavikur og ná- granna sveitarfélaganna ásamt félög- um úr Siglingasambandi Islands keppa. Kappróður fer fram á Nauthólsvik. Margar sveitir keppa. Koddaslagur fer fram á milli atriða. Merki Sjómannadagsins og Sjómanna- dagsblaðið, ásamt veitingum verða til sölu á hátiðarsvæðinu i Nauthólsvik. Strætisvagnaferðir verða frá Lækjar- götu og Hlemmtorgi frá kl. 13:00 og verða á 15 min. fresti. Þeim sem koma á eigin bilum er sér- staklega bent á að koma timanlega til að forðast umferðaröngþveiti. Hring- akstur er um Nauthólsvik og yfir öskjuhlið. Á sunnudagskvöld verður Sjómanna- dagsskemmtun á Hótel Sögu og hefst meðborðhaldikl. 19:30. Skemmtiatriði verða undir borðhaldi. Sigurður Björnsson, óperusöngvari syngur, Ragnar og Bessi skemmta með gam- anþáttum. Miðasala verður i anddyri Hótel Sögu föstudag og laugardag kl. 17-19 og sunnudag kl. 16-17. Hrafnistuheimilið i Hafnarfirði Sýning og sala á handavinnu vistfólks verður frá kl. 14:30-17:00. Á sama tima er kaffisala og rennur allur ágóði i skemmti- og ferðasjóð vistmanna heimilisins. A næsta kynslóð að borga brúsann? Dr. Gylfi Þ. Gislason flutti stórfróölegt erindi á nýafstöönu orkuþingi. Erindi hans fjallaöi um þaö, með hverjum hætti ts- lendingar stæöu nú á kross- götum i atvinnumálum, þegar framundan er væntanlega nýtt skeiö orkufreks iönaöar. Um þetta sagöi dr. Gylfi m.a.: Fram til næstu aldamóta veröur veruleg fjölgun á vinnu- færu fólki i Islandi. Sýnt hefur veriö fram á, aö i hinum hefö- bundnu atvinnuvegum tslend- inga, sjávarútvegi og landbún- aöi, veröa ekki verkefni, a.m.k. ekki hagkvæm verkefni, fyrir þetta fólk. Þaö á eflaust einnig viö um þann iðnaö, sem fram- leiöir fyrir innlendan markaö. Sá iönaöur, sem nú framleiöir fyrir erlendan markaö, getur eflaust aukiö framleiöslu sina og útflutning, en ekki nægilega til þess aö veita öllum þeim hag- kvæma atvinnu, sem bætast munu við á vinnumarkaönum. Nýr útflutningsiðnaöur þarf þvi aö koma til skjalanna. Honum er hægt aö koma á fót meö hag- nýtingu ónotaöra orkulinda. Um þessar staöreyndir ætti ekki að þurfa að deila. Þær skoöanir eru hins vegar uppi, aö ekki eigi að leggja verulega áherzlu á uppbyggingu sliks iönaðar, en halda áfram aö reyna að efla hinar heföbundnu framleiöslugreinar, sjávarút- vegs og landbúnaö, iönaöar- framleiöslu fyrir innanlands- markaðog þann orkuiönaö, sem unnt sé aö stunda án teljandi samvinnu við erlenda aöila. Mér viröast rökin, sem færö eru fyrir þessari skoöun, einkum vera fólgin i þvi, aö annars veg- ar muni uppbygging nýs orku- iðnaöar i samvinu viö erlenda aöila hafa i för meö sér óæski- lega breytingu á islensku þjóð- félagi og óheppileg áhrif á islenska menningu og hins vegar stofna islensku sjálfstæöi i reynd i hættu. Fyrst Islendingum tókst að varöveita — og raunar efla — menningu sina samfara hinni gagngeru þjóöfélagsbyltingu, sem umbreyting bændaþjóö- félags i útvegssamfélag hafði i för meö sér, ætti engin ástæöa aö vera til þess aö óttast um ör- lög hennar samfara uppbygg- ingu orkuiðnaöar. Þjóðinni tókst jafnframt aö gera heimastjórn aö sjálfstæöi. Þau nýju vanda- mál, einkum á sviöi mengunar- hættu, sem viö veröuraðetja, er örugglega hægt aö leysa á grundvelli þekkingar, sem þeg- ar er fyrir hendi. Óg ég tel reynslu, bæöi tslendinga og annarra smáþjóöa á liönum áratugum, tvimælalaust sýna, aö þjóöerni og sjálfstæöi þarf ekki aö vera hætta búiö af sam- vinnu viö erlenda aila, ef aögát er höfö og skynsamlega haldið á málum. Enhvaöhlýzt afþví, eflátiðer hjá liöa aö hagnýta ónotaðar orkulindir til þess að koma á fót nýjum útflutningsiönaöi? Afleiðingin veröur augljóslega sá. , aö þaö vinnuafl, sem viö bætist á næstu áratugum, starf- ar þá i atvinnugreinum, þar sem afköst þess eru minni en þau gætu veriö. Vöxtur þjóðar- framleislu veröur minni en ella. Þaö gæti jafnvel beinllnis dregiö úr honum. Nú er þaö kunnara en frá þurfi að segja, aö ýmsir hafa á siðari árum ekki taliö aukinn hagvöxt eiga aö vera megin- markmiö i þjóðfélagsmálum. Ég fylli flokk þeirra, sem telja, að ekki megi einblina um of á hagvöxt sem allsherjarmark- mið. En auövitaö hljóta öll þjóðfélög aö stefna aö þvi, aö þjóðarframleiðsla vaxi, en standi hvorki i staö né minnki. Þaö auöveldar aö ná þeim öörum markmiöum, sem æski- leg eru talin. Þess vegna er eöli- legt að miða við, að i raun og veru vilji menn hér, eins og ann- ars staðar, stefna aö aukinni þjóöarframleiö&lu á komandi áratúgum.Og þá ber aö sjálf- sögöu aö beina hagnýtingu vinnuafls og auölinda i þann farveg, sem líklegast er, aö skili mestum afrakstri. I uppbyggingu orkuiönaðar mun felast mikil fjárfesting. Augljóst er, að hún yröi svo mikil, aö ekki yröi unnt að kosta hana meö þvi einu, aö draga úr neyzlu eöa minnka aðra fjár- festingu. Þess vegna er jafnan rætt um erlendar lántökur eöa eignaraöild erlends fjármagns i þessu sambandi. Enginn virðist mæla meö þvi, aö kosta hana eingöngu með erlendri eignar- aöild. t þvi felst I raun og veru aö láta næstu kynslóö greiöa verulegan hluta kostnaöarins. Hafa menn gert þaö upp viö sig, hvort hér sé um siðfræðilega rétt sjónarmið að ræða? Höfum viö spurt okkur þeirr- ar spurningar, hvort við séum reiöubúin til þess aö minnka neyzlu okkar um skeið eöa draga úr þeirri fjárfestingu, sem fyrirhuguö hefur veriö i aö- rar framkvæmdir? Meö hliösjón af því, hversu hátt hlutfall fjár- festingar er hér á landi af þjóö- arframleiöslunni, gera ráö fyrir, aö svör yrðu fremur á þá lund, aö draga ætti úr öörum fjárfestingarfyrirætlunum. En höfum viö þá hugleitt i alvöru, hverjar þær fjárfestingarfyrir- ætlanir ættu að vera? Athugun á þessum efnum leiðir I ljós, að i raun og veru höfum við hvorki spurt slikrar spurninga né svarað þeim. Hins vegar höfum viö fjárfest mikiö. Sé efnt til nýrrar, hreinnar fjár- festingar, án þess að dregið sé úr öörum fjárfestingarfyrirætl- unum eða neyzlu, verður afleiö- ingin óhjákvæmilega annaö hvort halli á utanrikisviöskipt- um og skuldasöfnun erlendis eða verðbólga innanlands, nema hvort tveggja gerist. c c c c <tC ccc^cccc cc cc Hann hefur allt sitt í lagi Góöur stjórnandi hugsar um þaö fyrst og fremst, aö allur búnaöur og tryggingar skipsins séu í fullkomnu lagi. Tryggingamiöstööin veitir honum alhliöa þjón- ustu viö tryggingar, svo sem viö tryggingar skipsins sjálfs, auk afla og veiöarfæratryggingar, ábyrgöartryggingar vegna útgeröar skipsins, slysa og farangurstryggingar sjómanna. Hjá honum er því allt í lagi, því T.M. trygging er traust. TRYGGINGAMIÐSTOÐIN t AÐALSTRÆTI 6 — 101 REYKJAVÍK — SÍMI 26466 c c

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.