Alþýðublaðið - 13.06.1981, Page 6

Alþýðublaðið - 13.06.1981, Page 6
6 Laugardagur 13. júní 1981 Fallvötnin og orkuna sem býr i ibrum jaröar verður að beisla. A grund- velli þessarar orku á að byggja upp iðnfyrirtæki i landinu. ingin var. En ég held, að hið bezta úr bændamenningunni islenzku hafi náð að festa rætur i bæja- menningunni og blómgist þar. Okkur nútimamönnum verður gjarnan starsýnt á ýmsa agnúa bæjamenningar, og ekki skal ég gera litið úr þeim. En þvi megum við ekki gleyma, að á bænda- /jáfeðningunni voru einnig veikar SgSíáRðar. l>að eru ekki veiku hliö- ■^árnar, sem máii skipta, hvorki á bændamenningu né bæjamenn- íi'ngu, heldur hitt, sem verður ofan & og lifir. Bændamenningin var IsJendingum ómetanlegur afl- ^Íaf4. Kjarni hennar lifir enn, ekki aöeins i sveitum, heldur hef- ur tekiö sér trausta bólfestu í bæj- ,um. Hið góða i nýrri bæjamenn- ingu er agnúunum yfirsterkara. samfélagsverkefni og jafnnauð- synleg heilsugæzlu og sóttvörn- um, að ótti við slikt ætti ekki að þurfa að veröa til þess að tefja framkvæmdir i þessum efnum, hvað þá koma i veg fyrir þær. Ýmsir hafa látið i ljós nokkurn ugg um framtið þjóðlegrar menn- ingar i kjölfar viðtækrar iðnvæð- ingar á tslandi. Ekkert er fjær mér en að segja eitthvað eða gera eitthvaö, sem stuðlað gæti að andvaraleysi um varöveizlu is- lenzkrar menningar, — nema þá ástæðulaus ótti um lifsmátt henn- ar. Fyrst þjóðinni tókst að varð- veita sál sina I þeirri allsherjar atvinnubyltingu, sem átt hefur sér stað á þessari öld, ætti henni ekki að reynast erfitt að gæta hennar innan um nýjar vélar. vinna við erlenda aðila er nauö- synleg að ák íðnu marki. Úr fjármagnsþörfi..ni má leysa með lántökum og eignaraöild erlendra fyrirtækja, með öðrum hvorum hættinum eða báðu.n og þá i ýmsu hlutfalli. Tækniþekkingar verður ekki aflað nema frá erlendum aö- ilum, en það gæti orðið með ýms- um hætti og þá fyrsi. og fremst annað hvort með þvi að ráða er- lenda sérfræðinga til starfa i islenskum fyrirtækjum eða fá þá til starfa vegna samvinnu við er- lend fyrirtæki um annað hvort sameign orkuiðnaðarfyrirtækj- anna eða afurðasölu þeirra. Markaðsvandamálin mætti leysa með samvinnu við erlend fyrir- tæki i hlutaðeigandi grein, annað hvort án þess að um nokkra sam- vinnu um rekstur orkuiðnaðar- fyrirtækjanna á íslandi væri að ræða eða i kjölfar slikrar sam- vinnu. Um það getur varla verið ágreiningur, að uppbygging orku- iðnaðar á tslandi getur ekki orðið án samvinnu við erlenda aðila. Spurningin er sú, hversu mikil sú samvinna þurfi að vera, ef orku- iðnaðurinn á að vera arðbær og afkoma hans örugg. Umræða um framtiðarþróun islenzkra at- vinnumáia á næstu áratugum hefur að verulegu leyti snúizt um þetta atriði. Ef horft er til baka til upphafs þeirrar þróunar i sjávarútvegi, sem varð þjóðinni jafnheilladrjúg og raun ber vitni, verður að minn- ast þess, að forsenda hennar var sú, að fyrsti stóri bankinn á ts- landi, tslandsbanki, flutti mikið erlent fjármagn til landsins. En hinn nýi sjávarútvegur varð Is- lenzkur, þótt óttaraddir heyrðust um annað. En uppbygging orku- iðnaðar krefst miklu meiri sam- vinnu við erlenda aðila en upp- bygging sjávarútvegs gerði nauð- synlega. A hinn bóginn munu miklu minni breytingar á búsetu og störfum sigla i kjölfar aukinn- ar hlutdeildar orkuiðnaðar i þjóð- arframleiðslunni en sigldi i kjölfar fráhvarfsins frá bænda- þjóðfélaginu. Ahrif breytinga úr bændaþjóð- félagi i útvegsþjóðfélag hlaut að hafa í för með sér mjög viðtækar breytingar á gerð þjóðfélagsins. tslendingar hafa slikar breyting- ar að baki. Þær hafa ekki dregið úr styrk islenzkrar menningar. Bæjamenningin er aö sjálfsögðu með öðrum brag en bændamenn- sem óbeisluð orka er fólgin. Glfur- varhugavert. En megineinkenni þróunar i alþjóðamálum á undan- förnum áratugum, bæði á sviði viðskiptamála og stjórnmála, hefur samt verið, að eðlilegt og hagkvæmt samstarf hefur tekizt milii smárra ríkja og stórra. I kjölfar aukins alþjóðasamstarfs hefur vegur smárikja ekki minnkað og menningu þeirra ekki hnignað. Þau skipa sess sinn i al- þjóðamálum með sóma og njóta góðs af þeim árangri, sem aukir. alþjóðasamvinna hefur i för með sér. I lok heimsstyrjaldarinnar þurfti talsverða bjartsýni til þess að trúa þvi, að svo mundi fara. Sjálfur var ég þá i hópi þeirra, sem voru uggandi um framtiðina, einkum og sér i lagi um örlög smáþjóða i þeim heimi, sem var að fæðast. En sem betur fer finnst mér nú brautin, sem mannkyn hefur gengið, hafa verið bjartari en ég og fleiri þorðum að vona, þótt ný vandamál hafi að visu komið til skjalanna, stórkostleg vandamál, en annars eðlis en þá varö séö fyrir. t sambandi við eflingu orkuiðn- aðar á tslandi, sem ég tei sjálf- sögðustu leiðina til áframhald- andi uppbyggingar islenzkra at- vinnuvega, ber ég ekki kviðboga fyrir þvi, að islenzkri menningu verði hætta búin né að ekki sé unnt aö standa nægilega traustan vörð um Islenzkt sjálfstæöi, þótt samstarf sé haft við erlenda að- ila. En eigi slik atvinnuuppbygg- ing aö verða með hagkvæmum og traustum hætti, þurfa Islendingar aö takast á við ýmis vandamál, sem eru annars eðlis og eingöngu mál þeirra sjálfra, vandamál, sem lúta að ákvarðanatöku hér innanlands, skilningi á þvi, hvað felst i raun og veru i þeim val- kostum, sem nútiö og framtið bera i skauti sinu, og hvert sé það verð, sem nú verði að greiða fyrir framfarir, sem færi okkur aukna hagsæld á komandi árum. Ég er þeirrar skoðunar, að á þessu sviði séu hin raunverulegu vandamál i sambandi viö þá umbreytingu þjóðfélagsins, sem er hafin og þarf að halda áfram, frá sjávar- útvegssamfélagi til sjávarútvegs- og orkusamfélags. Þessum mál- um finnst mér ekki hafa verið nægur gaumur gefinn. A þeim langar mig nú til þess aö vekja at- hygli. tslenzk menning varð ekki fyrir áfalli í öllu þvi umróti, sem fylgt hefur gerbreyttum atvinnuhátt- um á þessari öld. Og samtimis hefur þjóðin sótt fram frá heima- stjórn til sjálfstæðis. Með hliðsjón af þessari reynslu tel ég ekki ástæðu til þess aö ótt- ast, að þjóðin komist ekki klakk- laust frá þeirri breytingu á at- vinnuháttum sinum, sem upp- bygging orkuiðnaðar við hlið sjávarútvegs mun hafa I för meö sér. Að einu leyti verður þó upp- bygging orkuiðnaðar öðru visi en uppbygging sjávarútvegs varð. Henni fylgdi litil hætta á mengun eða spjöllum á landi. Við sliku má hins vegar búast i tengslum við uppbyggingu orkuiðnaðar, ef ekki er staöiö á verði. Reynsla á þessu sviði með öðrum þjóðum er þó orðin svo mikil, að sé vilji fyrir Það er ekki einungis i fallvötnununr leg orka er fólgin I iðrum jarðar. hendi á ekki að þurfa að komá til mengunar, hvorki lofts né vatns, i tengslum við neinn þann nýjan orkuiðnað, sem hér kæmi til greina að koma á fót. A undan- förnum árum hefur skilningur, bæði hér og annars staðar, vaxið i svo rikum mæli á þvi, að mengun- arvarnir og náttúruvernd séu Þær raddir eru þó mun sterk- ari, sem láta i ljós ótta við, að sjálfstæði þjóðarinnar sé hætta búin, ef of langt sé gengið til sam- starfs viö erlenda aðila við upp- byggingu sliks iðnaðar, sem hér er um að ræða. Auðvitað má ekki loka augum fyrir þvi, aö of mikil erlend itök i atvinnulifi smáþjóð- ar geta gert sjálfsforræði hennar og sjálfstæöi að innantómum orð- um. Af þessum sökum er þó fjar- stæða að telja hóflegt samstarf við erlenda aðila varhugavert. Ekki aðeins íslendingar, heldur og fjölmargar aðrar smáþjóðir ættu að hafa orðið reynslunni rik- ari i þessum efnum á undanförn- um áratugum. Samstarf smá- rikja og stórvelda hefur farið mjög vaxandi á árunum eftir heimsstyrjöldina siðari. Dæmi þess má finna, að slikt samstarf hafi reynst fámennum þjóðum III. Fram til næstu aldamóta verð- ur veruleg fjölgun á vinnufæru fólki á Islandi. Sýnt hefur verið fram á, að i hinum hefðbundnu atvinnuvegum Islendinga, sjávarútvegi og landbúnaði, verða ekki verkefni, a.m.k. ekki hagkvæm verkefni, fyrir þetta fólk. Það á eflaust einnig við um þann iðnað, sem framleiðir fyrir innlendan markað. Sá iðnaður, sem nú framleiðir fyrir erlendan markað, getur eflaust aukið framleiðslu sina og útflutning, en ekki nægilega til þess að veita öll- um þeim hagkvæma atvinnu, sem bætast munu við á vinnumark- aðnum. Nýr útflutningsiðnaður þarf þvi að koma til skjalanna. Honum er hægt að koma á fót með hagnýtingu ónotaðra orkulinda. Um þessar staðreyndir ætti ekki að þurfa að deila. Þær skoð- anir eru hins vegar uppi, að ekki eigi að leggja verulega áherzlu á uppbyggingu sliks iðnaðar, en halda áframað reyna að efla hin- ar hefðbundnu framleiðslugrein- ar, sjávarútveg! og landbúnað, iðnaðarframleiðslu fyrir innan-, landsmarkað og þann orkuiðnað, sem unnt sé að stunda án teljandi samvinnu við erlenda aðila. Mér virðast rökin sem færö eru fyrir þessari skoðun, einkum vera fólg- in i þvi, að annars vegar muni uppbygging nýs orkuiðnaðar i samvinnu við erlenda aðila hafa i för með sér óæskilega breytingu á islenzku þjóðfélagi og óheppileg áhrif á islenzka menningu og hins vegar stofna islenzku sjálfstæði i reynd i hættu. Ég hef þegar gert grein fyrir þeirri skoðun minni, að fyrst ts- lendingum tókst að varðveita — og raunar efla — menningu sina samfara hinni gagngeru þjóðfé- lagsbyltingu, sem umbreyting bændaþjóðfélags i útvegssamfé- lag hafði i för með sér, ætti engin ástæða að vera til þess að óttast ~ " 'lög hennar samfara upp- Dyggmgu orkuiðnaðar. Þjóðinni tókst jafnframt að gera heima- stjórn að sjálfstæði. Þau nýju vandamál£inkum á sviði meng- unarhættu, sem við verður að etja, er örugglega hægt að leysa á grundveili þekkingar, sem þegar er fyrir hendi. Og ég tel reynslu, bæði tslendinga og annarra smá- þjóða á liðnum áratugum, tvi- mælalaust sýna, að þjóðerni og sjálfstæði þarf ekki aö vera hætta búið af samvinnu við erlenda að- ila, ef aðgát er höfð og skynsam- lega haldið á málum. En hvað hlýzt af þvi, ef látið er hjá liða að hagnýta ónotaðar orkulindir til þess að koma á fót nýjum útflutningsiðnaði? Afleið- ingin> verður augljóslega sú, að það vinnuafl, sem við bætist á næstu áratugum, starfar þá i at- vinnugreinum, þar sem afköst þess eru minni en þau gætu verið. Vöxtur þjóðarframleiðslu verður minni en ella. Það gæti jafnvel beinlinis dregið úr honum. Nú er það kunnara en frá þurfi að segja, að ýmsir hafa á siðari árum ekki talið aukinn hagvöxt eiga að vera meginmarkmið i þjóðfélagsmálum. Ég fylli flokk þeirra, sem telja, að ekki megi einblina um of á hagvöxt sem allsherjarmarkmið. En auðvitað hljóta öll þjóðfélög að stefna að þvi, að þjóðarframleiðsla vaxi, en standi hvorki i stað né minnki. Það auðveldar að ná þeim öðrum markmiðum, sem æskileg eru talin. Þess vegna er eðlilegt að miða við, að i raun og veru vilji menn hér, eins og annars staðar, stefna að aukinni þjóöarfram- leiðslu á komandi áratugum. Og þá ber að sjálfsögðu að beina hag- nýtingu vinnuafls og auðlinda i þann farveg, sem liklegast er, að skili mestum afrakstri. Ég endurtek, að ég tel engan vafa leika á þvi, að væntanleg vinnuaflsaukning á tslandi á næstu áratugum mundi skíla mestri framleiðsluaukningu, ef hún beindist að nýrri útflutnings- framleiðslu, sem hagnýtti orku- lindir landsins. En jafnframt má gera ráð fyrir, að uppbygging orkuiðnaðar þarfnist meira vinnuafls en þess, sem við bætist, og að afköst þess geti orðið meiri þar en þau voru i öðrum atvinnu- greinum, þannig að um tilflutning vinnuafls og annarra fram- leiðsluþátta þurfi að verða að ræða. Hérer einmitt komið að þvi atriði, sem ég held, að liggi til grundvallar þeirri tregðu, sem mér virðist á skýrri stefnumótun i þessum efnum, — sumpart vegna þess, að menn hafi ekki gért sér viðfangsefnið að fullu ljóst, og sumpart vegna hins, að þröngir hagsmunir annars vegar og fast- heldni við fortið hins vegar móti sjónarmiðin, hvort sem menn gera sér þess grein eða ekki. IV. I uppbyggingu orkuiðnaðar mun felast mikil fjárfesting. Aug- ljóst er, að hún yrði svo mikil, að ekki yrði unnt að kosta hana með Sjávarútvegur og fiskvinnsla eru undirstöðugreinarnar islenska atvinni traustustu stoðum efnahagsiffsins I landinu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.