Alþýðublaðið - 19.09.1981, Page 5
5
Laugardagur 19. september 1981
Fjórmenningakllkan svokallaöa: Roy Jenkins, David Owens, William Rodgers og Shir-
ley Williams, helstu leiötogar nýja jafnaöarmannaflokksins.
James Callaghan, fyrrv. formaöur Verkamannaflokksins og forsætisráöherra. 1
stjórnartíö hans og Wilsons á undan honum tókst samvinna meö stjórnvöldum og’ verka-
lýösfélögum. Aukin völd verkalýöshreyfingarinnar I framhaldi af þvi, hafa veriö Thatch-
er þyrnir i augum.
þessum lögum, og töldu aö meö
þessarri lagasetningu væri vegiö
aö grundvallar mannréttindum,
þar sem kveöið væri á um skyldu
einstaklings til aö ganga i ákveö-
inn félagsskap, hvortsem honum
væri þaö ljilft eöa leitt.
Skylduaðild að verka-
lýðsfélögum
Þaö átti aö veröa eitt helsta
verkefni Priors, sem atvinnu-
málaráöherra, aö vinna gegn
völdum verkalýöshreyfingarinn-
ar, og þar meö sérlega að afnema
skylduaöiidina aö verkalýösfé-
lögunum. Hann breytti aö visu
lögunum nokkuö, og mildaöi, en i
grundvallaratriöum standa þau
þóóbreyttenn. Þarkom auövitaö
margt til. I fyrstalagi taldi hann
stjórnina ekki hafa styrk til að
ganga hreinlega i berhögg viö
vilja verkalýöshreyfingarinnar,
enda ljóst aö þaö myndi leiða til
mikilla átaka i þjóöfélaginu. Pri-
or er enda hófsemdarmaður og
vill fara samningaleiöina frekar
en leggja i átök, svo fremi aö sú
leiö se fær. Það reyndist hún
vera enda settu verkalýðsfélögin
sig ekki svo mjög á móti þeim
breytingum, sehi hann gerði á
lögunum um aðildarskyldu.
Thatcher hinsvegar leit svo á,
aö mikilvæg ástæða fyrir kosn-
ingasigri Ihaldsflokksins væri sú,
aö barist hafði veriö hart gegn
verkalýöshreyfingunni og völdum'
hennar. Hún taldi þvi stjórn sina
hafa umboð og jafnvel skyldu til
aö ganga hart fram i þeirri bar-
áttu. Þar hlautauðvitaö aö koma,
að sjónarmið þeirra Prior og
Thatcher rækjust á með látum.
Þar kom aö Thatcher og frjáls-
hyggjuöfgamennimir fengu þá
ástæöu. Áriöl976voru þrirverka-
menn reknir frá breska rikisjárn-
brautafélaginu, fyrirþaðað neita
aö ganga i eitt þeirra þriggja
verkalýðsfélaga, sem þeim sam-
kvæmt lögum var skylt aö ganga
i. Bresk samtök, The Freedom
Association styrktu þá félaga til
að kæra brottreksturinn, og nii
um miðjan ágústmánuö sl. var
loks kveöinn upp dómur hjá
Mannréttindadómstól Evrópu i
þessu máli, eftir að þaö haföi
velkst i gegnum réttarkerfið i
fimm ár.
Skvlduaðild brot gegn
mannréttindum
Niöurstaða Mannréttindadóm-
stólsins var sú, að brottrekstur
mannanna þriggja heföi verið
ólöglegur og ekki samrýmst ann-
arri grein Mannréttindasáttmála
Evrópu, þar sem kveöið er á um
félagsfrelsi einstaklinga. Hins-
vegar veröur aö taka fram, að
siöan 1976 hefur lögunum um aö-
ildarskyldu verið breytt talsvert,
og dómurinn segir i sjálfu sér
ekkertum þaö, hvort lögin eins og
þau eru nú, stangast á viö Mann-
réttindasáttmálann. Breyting-
arnar eru aö visu ekki mðriar,
sem Prior hefur gert, en þó, t.d.
má nefna, aö nii eru til sérstakir
dómstólar i Bretlandi, sem fjalla
um vinnulöggjöfina i heild, og
verkamenn geta kært til, ef þeir
lenda i svipuöum vandræðum og
starfsmennirnir þrir hjá rikis-
járnbrautarfélaginu.
Þá má geta þess, aö i dómsoröi
sagði m .a.að skylda til að ganga i
verkalýösfélag, þurfi ekki undir
öllum kringumstæöum aö ganga
þvert á Mannréttindasáttmálann.
Þá var niöurstaða dómsins ekki
einróma gerö, þvi þrir dómarar
af 21 töldu, i þessu tilfelli, ekki
vera um skeröingu á mannrétt-
indum að ræöa. Þeir voru Þór V il-
hjálmsson, hæstaréttardómari,
Lagergren, sænskur dómari og
danskur dómari að nafni Sören-
sen.
Viðbrögð v innu veitenda
Viöbrögö breska vinnuveit-
endasambandsins við úrskuröi
Mannréttindadómstólsins voru
dtki á sama veg, og viðbrögð
Thatcher og hennar stuðnings-
manna. 1 yfirlýsingu um þetta
mál sagði, að niðurstaða dómsins
ætti aöeins viö um mál þessara
þriggja einstaklinga, og að af-
staöa samtakanna væri óbreytt.
Þau myndu áfram leitast við að
fá fram breytingar á löggjöfinni,
sem felast i þvi, aö aöild aö
verkalýðsfélagi sé ekki skylda,
áöur en atvinnu fæst, hækkun
skaðabóta til þeirra, sem hafa
veriö reknir aö ósekju, og at-
kvæðagrciðslur á hverjum vinnu-
stað meö reglulegu millibili, um
þaö, hvort fólkið á staðnum vill
viðhalda skylduaöildinni.
Þessi viðbrögö. vinnuveitenda-
sambandsins breska, CBI, voru
nokkuö svipuð viöbrögðum Pri-
ors. Hann lagöi áherslu á aö
breyta lögunum i frjálsræöisátt,
frekar en að afnema þau meö
öllu ,og lenda þannig i átökum viö
verkalýöshreyfinguna.
Viðhorf íhaldsþingC
manna
Viðbrögö annarra þingmanna
Ihaldsflokksins voru nokkuð á
annan veg. Þeir litu á niðurstööu
dómsinssemástæöu tilaöberjast
enn frekar gegn skylduaöildinni,
og 178 óbreyttirþingmenn Ihalds-
flokksins undirrituöu áskorun tii
stjórnarinnar um aö afnema
skylduaöildarlöggjöfina alger-
lega. Þaö má gera ráð fyrir, aö
málflutningur þeirra fái velvilj-
aðra áheyrn hjá eftirmanni Pri-
ors i stóli atvinnumálaráöherra,
en hann heitii Norman Tebbit, og
er talinn eindreginn stuðnings-
maöur Thatcher.
ófriðarhorfur
Þaö er ljóst af öllu þessu, aö
ekki horfir friövænlega ibreskum
stjórnmálum þessa stundina.
Thatcher hefur nú, eftir upp-'
stokkunina á ráöuneyti sinu, enn
frekardregið tír áhrifum hófsam-
ari arms thaldsflokksins. Hún
hefur nii skipaö eindregna stuön-
ingsmenn sina i öll valdamestu
embættini rilcisstjórninni. Gagn-
rýnendur hennar vilja meina, að
henni láti illa aö vinna meö öörum
en þeim, sem eru henni algerlega
sammála ,og hafa jafnvelsagt, aö
ráöuneyti hennar sé nú frekar
eins og þægur skólabekkur en
ráðuneyti. Þannig hafi hún nú Uti-
lokaö sig aö miklu leyti frá þvi aö
hafa samband viö andstæöinga
sina innan flokks sem utan, og
hafi ekki tækifæri til aö gera sérjj^
Borgarspitalinn
Sjúkraþjálfarar
ósKast til afleysinga á Borgarspitalann frá 1. janúar 1982
til 1. sept. 1982.
Um er að ræöa hlutastöður á langlegudeildunum i Heilsu-
verndarstöö og Hafnarbúðum, hluta- og heilar stööur á
Borgarspitala i Fossvogi og Grensásdeild.
Upplýsingar um stööurnar veitir yfirsjúkraþjálfari i sima
85177 kl. 13.00—15.00 virka daga.
Reykjavik, 18. sept 1981
BORGARSPÍTALINN.
AÐSTAÐA
BUNAÐARBANKINN
Austurstræti
BÚNAÐARBANKINN
Hlemmi
Í|> Útboð
Tiiboö óskast I 40 MVA spenni fyrir aöveitustöö 5, fyrir
Kafmagnsveitu Reykjavikur.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frikirkjuvegi 3.
Tilboðin verða opnuö á sama staö miövikudaginn 4. nóv.
1981 kl. 11 f.h.
Innkaupastofnun Reykjavikurborgar.
INNKAUPASTOFNUN REYK3AVÍKURBORGAR
Frikirk|uveqi 3 — Sími 2S800